Alþýðublaðið - 29.08.1935, Page 1
Að vinna fyrir nútímann
er gott.
Að vinna fyrir eftirkomend-
urna er betra.
Hvort tveggja þetta gerirðu
ef þú ert starfandi kraftur í
Kaupfélagi Beykjavíkur.
XVI. ÁRGANGUR.
FIMTUDAGINN 29. ÁGÚST 1935
219. TÖLUBLAÐ.
RirSTJORI: F. R. VALDEMAR3SON
ÖTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Síldarskipin faraeon á veiðarí dag
En ef fil viil í síðasta sinn f ár.
OLL síldarskipin, sem legið
liafa á höfnum í ofveðrinu,
eru í dag að fara á veiðar aftur
og mörg fóru í nótt.
Almennt er álitið, að veiðist
síld ekki nú, þegar stillir úti
fyrir, sé síldveiðuniun lokið í
ár, og skipin og fólk, sem enn
eru eftir í verstöðvunum, fari
þá heim nú um helgina.
Hin gamla trú manna, að oft
skifti um veður með höfuðdegi,
virðist ætla að rætast í þetta sinn.
Höfuðdagurinn er í dag, og í
gærkveldi skifti um veður norð-
anlands til stórra muna.
Á Siglufirði er í dag sólskin og
blíða, og þótt enn sé ekki komið
vel gott veður úti fyrir, er þó
enginn vafi á því, að veður fer
batnandi. Síldarflotinn, sem hefir
legið inni á Siglufirði og öðrum
höfnum norðanlands undanfarna
daga vegna norðanstórviðrisins,
er nú allur farihn út eða á förum.
Sjómenn hafa góðar vonir um að
síld kunni að fást enn. Reknieta-
veiði hefir þó verið mjög lítil
undanfarna daga, en fregnir um
að vart hafi orðið við smokk,
munu ekki vera réttar.
Síldarskipin fara langflest vest-
jur á Húnaflóa að leita síldarinn-
ar, Um 450 manns munu nú vera
farnir heim frá Siglufirði, en
stramnurihn virðist vera stöðv-
laður í bi'li, og er líktegt að það
fólk, sem enn er eftir, verði kyrt
þangað til útséð er um að síld-
veiðunum sé að fullu lokið, og
mun fátt fólk fara með „Dr. Al-
exandrine" í kvöld. En flestir
telja að síldveiðunum sé lokið,
ef síld veiðist ekki nú næstu daga. j
Fari svo má teíja víst, að flest j
það fólk, sem eftir er á Siglu-
firði, fari heim með Goðafossi
á sunnudaginn.
Haraldur Gaðmnndsson
heldur plnomálafund á
Sejfðisfirði.
SEYÐISFiRÐI, 28/8. (FÚ.)
Haraldur Guðmundsson at-
vinnumálaráðherra hélt fjölmenn-
an stjórnmálafund á Seyðisfirði
í gærkveldi. Fer hann í idag heim-
leiðis landveg. .
Bjargráðanefnd Austfjarða hef-
ir starfað á Seyðisfirði síðustu
daga og afgreitt nokkrar titlög-
ur til ríkisstjórnarinnar.
Tyrolerkvartettinn skemtir á
Seyðisfirði í kvöld.
Dönnnnm vlð Kap Berlfin
y
var bjargað i gær af norska sidpi.
R ÉTT eftir að Danirnir í Kap
Berlín á Grænlandi höfðu
sent frá sér heyðarskeytið i !gær-
morgun, sem birtist hér í blað-
ínu í gær, tókst norska skipinu
Busko, sem verið hefir fast í ís
saamt þaðan, sem Danirnir voru,
að koma báti til þeirra og bjargíj
þeim, en Busko situr þó enn fast
í ísnum.
Danska sjóliðsflugvélin, sem
var á leið hingað, lagði af stað
frá Færeyjum klukkan rúmlega 1.
Fékk hún sæmilegt veður á
leiðinni hingað, en nokkurn storm,
og kom hún hingað kl. rúmlega 7.
Ensknr ferðamaðnr
dvelor 15 dap einn
í ðbygðnm.
Englendingurinn T. Illion, sem
var hér fyrir þremur, vikum og
ætlaði til Ódáðahrauns og víðar
um óbyggðir landsins, kom hing-
að til bæjarins í gærmorgun, eftir
langt og mjög óvenjulegt ferða-
lag.
Hann var alls 15 daga aleinn
inni á óbygðum fótgangandi.
Hann lagði upp frá Ásólfsstöð-
þm( í Pjórsárdal og hélt fyrst til
Hofsjökuls með Þjórsá, en þaðan
fór hann til Kerlingafjalla og
Hvítafells og þaðan aftur sömu
leið til Ásólfsstaða.
Mr. Illion hafði ekki með sér
annað en gúmmíbát, ljósmynda-
vél og malpoka á þessari ferð
sinni. Hann heldur fyrirlestur um
ferðalög sín í Tíbet næsta mið-
vilkudagskvöld kl. 8V2 í £3iuðspeki-
félagshúsinu.
Enn er ekki ákveðið hvert flug-
vélin fer héðan, og beið flug-
maðurinn fyrirskipana um það í
morgun.
Árás á Ólaf Hvann-
dal prentmynda-
gerðarmann.
Á mánudagskvöld kl. um 12
ætlaði Ólafur Hvanndal prent-
myndagerðarmaður í Mjóstræti 6
að loka húsi sínu.
Fór hann út bakdyramegin og
lokaði á eftir sér, en fór svo að
forstofudyrum og ætlaði að loka
þeim.
Er Ólafur Hvanndal kom inn í
portið við forstofudyrnar var þar
mjög dimt, en hann varð þó var
við, að þar voru fjórir menn fyrir.
Ólafur ætlaði inn í húsið, en
um leið urðu einhver orðaskifti
milli mannanna, og rauk þá einn
þeirra samstundis á hann, sló
undan honum fæturna og spark-
aði í andlit honum. Ætlaði fant-
urinn síðan að halda áfram mis-
þyrmingum sínum, en var hindr-
aður í því af einum félaganna,
' er greip hann.
Ólafur varð mjög illa leikinn
við árásina. Hann fékk snert af
heilahristing, og það sér tölu-
vert á fótum hans.
Ólafur Hvanndal hefir kært á-
rásiha fyrir lögreglunni.
Gísli Guðmundsson
alþingismaður, sem verið hefir
aðalritstjóri Nýja dagblaðsins frá
stofnun þess, hefir nú látið af því
starfi. Við aðalritstjórn blaðsins
tekur Sigfús Halldórs frá Höfn-
Stríð f Afrfkn getur sett alla Ev-
rópa f bál og brand áðar en varlr
Nazistastjórnin situr um færi til að innlima Austurríki.
1 1
Alpjóðasambönd jafnaðarmanna kalla saman fnnd í Qenf til að taka ákvarðanir
á móti ófriðarhættunni.
ElNKASKEYTl TIL ALÞÝÐUBL. KAUPMANNAHÖFN I morgun.
A STANDIÐ í Evrópu er í dag líkast því, sem það
var seinustu dagana í júlí 1914, áður en heims-
styrjöldin hófst.
Árás ítalíu á Abessiníu, sem búast má við að byr ji
allra næstu daga, virðist ætla að steypa aliri Evrópu
út í eyðileggjandi styrjöld. Alt bendir til þess, að bar-
áttan um Austurríki brjótist út í ljósum logum undir
eins og stríðið í Afríku er byr jað. Þýzka Nazistastjórn-
in teygir þegar út klærnar þangað, en Mussolini virð-
ist ætla að reyna að fyrirbyggja sameiningu Austur-
ríkis og Þýzkalands meðan á ófriðnum í Afríku stend-
ur, með því að setja gömiu keisaraættina þar aftur
til valda.
Gegn þessari ægilegu hættu hafa nú alþjóða-
sambönd verkamanna og jafnaðarmanna kallað for-
ingja verkalýðsfélaganna og jafnaðarmannaflokkanna
í Evrópu saman á fund í Gení til þess að gera kröfur
verkalýðsins til Þjóðabandalagsins gildaridi, þess efnis,
að það beiti vaidi sínu til að slá á síðustu stundu
morðvopnið úr hendi ítalska harðstjórans.
Örlagaríkustu viðburðir geta gerst á hverri
stundu.
Mussolini kallaði í gær ráðu-
neyti sitt saman á fund í Bolz-
ano á Norður-Italíu, þar sem
ítölsku ráðherrarnir eru allir
saman komnir í tilefni af hinum
stórkostlegu heræfingum ítala
við suðurlandamæri Austurrík-
is.
Fregnirnar af þessum fundi
eru óljósar. Þó er víst, að þar
var ákveðið, að ítalía skyldi
senda fulltrúa á ráðsfund
Þjóðabandalagsins í Genf þ. 4
september, ekki til þess að
semja um neinar sættir, heldur
til þess. að lýsa yfir kröfum
Italíu til landa í Abessiníu. Orð-
rómur gengur um það, að einn-
ig hafi verið ákveðið að endur-
reisa keisaradæmi Habsborgara
í ..Austurríki ..áður ..en ..stríðið
hefst, til þess að afstýra Naz-
istauppreisn í landinu og sam-
einingu þess við Þýzkaland.
Mussoiini segist viður-
kenna öll réttindi Engiend-
inga í Abessiníu.
Mussolini hefir átt nýtt við-
tal við fréttaritara „Daily Mail“,
Ward Price, og lýst því yfir, að
ítalska stjórnin muni gefa út
opnibera yfirlýsingu þess efnis
að hún sé reiðubúin til þess að
viðurkenna og virða öll réttindi
Englendinga í Abessiníu. Jafn-
framt mótmælti hann því, að
ftalía hefði nokkuð það í
hyggju, sem gæti skaðað hags-
J muni þeirra.
Englendingar heimta
þvingunarráðstafanir
gegn Italíu, Frakkar eru
þeim mótfallnir.
Svo að segja á sama tíma og
ráðherrafundurinn var haldinn
í Bolzano, var ráðuneytisfundur
haldinn í París, eftir að Laval
hafði átt langar viðræður við
sendiherra Itala þar, Cerutti.
Blaðið „Le Matin“ segir, að
stöðugir samningar séu í gangi
milli Frakka og Englendinga
um það, hvaða afstöðu Þjóða-
bandalagið eigi að taka, ef íta-
lía ráðist á Abessiníu. England
vilji í því tilfelli grípa til þeirra
þvingunarráðstafana, sem gert
er ráð fyrir í Þjóðabandalags-
sáttmálanum, en Frakkland sé
því algerlega mótfallið.
STAMPEN.
Keisaraættin i Austurríki
ætlar að brjótast til valda
áður en striðið í Afriku hefst.
Mussolini óttast Nazistauppreisn og
sameiningu Austurrikis og Þýzkalands
að öðrum kosti.
LONDON, í gærkveldi. (FÚ.)
AÐ er skýrt svo frá í Aust-
urríki, að Otto erkihertogi
muni ef til vill gera tilraun til
þess að brjótast til valda með
aðstoð Schussnigg ríkiskanzl-
ara. Schussnigg óttast, að því
að sagt er, að Nazistar reyni
að brjótast til valda þegar ítal-
ía hefir innrás sína í Abessiníu.
Þá hefir verið bent á það, að
það sé ágætur tími fyrir erki-
hertogann að brjótast til valda
einmitt nú, þegar hersveitir
ítala eru staddar rétt liandan
við landamærin.
Jafnaðarmenn um alla Evrópu
kalla saman fund í Genf tii að
taka af stöðu til ófriðarhættunnar
E/NKASKEYTI TIL
ALÞÝÐU BLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í morgun.
Alþjóðasambaud verkamanna-
félaganna í Amsterdam og
Alþjóðasamband verkamanna
og jafnaðarmanna í Brússel
háfa, fyrir forgöngu George
Landsbury, foringja enska AI-
þýðuflokksins, og Leon Blum,
foringja franskra jafnaðar-
manna, boðað til almeimrar
ráðstefnu fyrir jafnaðarmanna-
flokkana og verkamannafélögin
í Evrópu, til þess að taka af-
stöðu til ófriðarhættunnar.
Staður og stund fundarins
er ennþá óráðm, eii talið er lik-
legt, að hann verði í Genf þ.
6. september, eða sömu dagana
og ráðsfundur Þjóðabandalags-
ins verður haldinn, til þess að
taka ákvarðanir uin afstöðu
Þjóðabandaiagsins til hinnar
yfirvofandi styrjaidar.
Meira en hundrað verka-
mannaforingjar víðsvegar úr
Evrópu munu sækja þennan
þýðingarmikla fund.
STAMPEN.
(Frh. á 4. síðu.)
Asirid Belgiadrotín-
ing ferst við biisijrs
soðnr I Alpaljðlium.
—»—
HRAÐSKEYTI TlL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN á hádegi.
P RÉTTASTOFA REUTERS
símar frá Luzern að kon-
ungshjónin frá Belgíu hafi orð-
ið fyrir bílslysi suður í Alpa-
fjöllum. Hinn ungi konungur
Leopold, varð fyrir lítils háttar
tneiðslum, en Astrid drottning
beið bana tafarlaust.
STAMPEN.
Það er áður kunnugt, að Ték-
kóslóvakía, Júgóslavía og Rúmen-
ía eru á móti endurreisn konung-
dæmisins í Austurríki.
Nazistar bafa eiimig sínar
klær úti.
VINARBORG í gærkveldi. (FB.)
Sarnbúð Austurríkismanna og
Þjóðverja hefir sern kunnugt er
verið miður góð um langa hrið,
og hefir þess gætt mjög í blöð-
um beggja landanna.
Nú hafa þeir von Papen, sendi-
herra Þjóðverja í Vínarborg, og
Berger-Waldenegg ráðherra átt
með sér viðræður til. þess að
reyna að korna því til leiðar, að
breyting verði á framkomu aust-
urrískra blaða í garð Þýzkialands
og þýzkra blaða í garð Austur-
j rikis. Hefir verið gefin út op-
j inber tilkynning um þessar við-
’ ræður, sem ákveðið var að færi
; fram, þá er árásum var haldið
uppi í austurrískum blöðum í
i garð ríkisstjórnarinnar í Þýzka-
landi, og hið sama átti sér stað
í þýzkum blöðum gagnvart ríkis-
j stjórn Austurríkis. Leiddu þessi
I blaðaskrif til opinberra mótmæla
' í Vínarborg og Berlín.
| Gera menn sér vonir um, að
sambúðin geti batnað til mikilla
muna, ef blöðin „skifti um tón“,
(United Press.)
MUSSOLINI ÆSIR UPP
ITALSKA HERMENN I RÓM.