Alþýðublaðið - 29.08.1935, Síða 4
FIMTUDAGINN 29. ÁGOST 1935
ffl GAMLA BlÓ Wj
Saklaos lýgi.
Efnisrík og eftirtektarverð
talmynd frá Gaumont-
British, London. — Aðal-
hlutverkin leika:
MATHESON LANG
LYDIA SHERWOOD
og hið 14 ára undrabarn
NOVA PHjBEAM.
Þessi óvenjulega mynd er
um baráttu barns fyrir
hamingju ósáttra foreldra
sinna og áhrifin, sem sak-
laus lygi getur haft á hina
ungu barnssál.
Bönnuð börnum innan
14 ára.
SJÁLFST ÆÐISFLOKKURINN.
(Frh. af 3. síðu.)
margvíslegu ráðstafanir, sem
gerðar hafa v-erið og gerðar eru
dags daglega til að auka atvinn-
|ma í landinu. Það er því óþarfi
að telja það upp að þessu sinni,
en það er hægt að gera ef óskað
er eftir. En gegn öllum þessum
tilraunum hefir Sjálfstæðisflokk-
urinn barist og beitt öllum vopn-
um sínum gegn. Það getur vel
verið, að ekki takist vel til um
sumt af því, sem verið er að
reyna, en tilraunirnar eru til alls
fyrst og Sjálfstæðisflokknum er
óhætt að búa sig undir þann ósig-
ur sinn, að margt af því, sem nú
er verið að gera, muni takast vel.
Það er óhætt að fullyrða það,
að sjaldan eða aldrei hefir nokk-
ur maður setið í atvinnumálaráð-
herraembættinu hér á landi, sem
hefir notið eins almenns trausts
og Haraldur Guðmundsson, enda
væri ástandið nú hér á landi
margfal't verra, ef einhver afhálf-
draugum Sjálfstæðisflokksins
hefði setið i því embætti, því að
menjn í þeim flokki eru með þeim
ósköpum gerðir, að geta engu
stjórnað, hvort sem vel gengur
eða iila ineð framleiðsiu og af-
komu í landinu.
Það er nú sem stendur eins og
íslenzka þjóðin sé á ferð um
eyðimörku. Hún á við margs kon-
ar skort að búa og vöntun, en
enginn lætur hugfallast. Hins veg-
ar iæðast hýenur Sjálfstæðis-
flokksins í kringum hana og bíða
eftir því, að einhver verði eftir í
slóðinni.
Ársfundur
Kvenfélagasambands Vestfjarða
var haldið í Bolungavík dagana
22. og 23. þ. m., og sóttu hann
14 fulltrúar frá 7 félögum. Sam-
bandið hefir beitt sér fyrir garð-
rækt á Vestfjörðum og haft
garðyrkjukon'u é sínum vegum,
og hefír starfið gefist vel. Meðal
annars var samþykt tillaga um
að skora á rikisstjórnina að hlut-
ast til um að heilt korn sé flutt
til landsins og myllur reistar.
Stjórn Kvenfélagasambands Vest-
fjarða skipa nú frú Estifa Björns-
dóttir, Þingeyri, frú Unnur Guð- '
mundsdóttir, ísafirði, og frú Guð-
rún Snæbjörnsdóttír, Flateyri.
ÓFRIÐARH ÆTTAN.
Frh. af 1. síðu.
Bretar búa sig undir að
verja Malta gegn ítalskri
loftárás.
LONDON; í gærkveldi. (FÚ.)
Á eynni Malta í Miðjarðarhafi
fara nú fram stórkostlegar æf-
ingar til varnar gegn loftárásum.
Næstkomandi sunnudag verða
hvarvetna haldnir opinberir fyr-
irlestrar um sama efni.
Þá eru gerðar ýmsar aðrar ráð-
stafanir vegna ófriðarhættunnajr;
til dæmis er engum leyft að fara
úr eyjunum án þess að fá til
þess sérstakt leyfi.
Blóðsúthellingar á landa-
mærum Abessiníu
og franska Somalilands.
LONDON 28. ágúst. F.B.
Frá Addis Abeba er símað,
að héraðsstjórinn í Aussa-fylki
hafi tilkynnt, að þjóðflokkur frá
franska Somalilandi hafi gert
árás á Issa(?) og hafi lent í
orustu all-mikilli. Sextíu menn
féllu. Nánari fregnir um þetta
eru enn ekki fyrir hendi.
United Press.)
Sáttanefndin í deilu ítalíu
og Abessiníu er að gefast
upp.
LONDON, í gærkveldi. (FÚ.)
ítalsk-abessinska sáttanefndin,
sem undanfarið hefir haldið
þindi í París og Bern, hefir ekki
getað komist að neinu samkomu-
lagi, og í dag hefir hún beðið
oddamanninn, Politis, sendiherra
Grikkja í París, um aðstoð hans,
AIÞÝÐUBLAÐIÐ
og heldur hann fund með hinurn
fjórum á morgun.
Nefndin verður að komast að
einhverri niðurstöðu, eða gefast
upp að öðrum kosti, fyrir 1. sept-
ember.
Laval og Herriot verða
fulltrúar Frakka í Genf.
LONDON 28. ágúst. F.Ú.
Fulltrúar Frakklands á Þjóða-
bandalagsráðsfundinum verða
Laval, tveir fyrverandi forsæt-
isráðherrar, annar þeirra er
Herriot, viðskiftamálaráðherr-
ann og utanríkismálaráðherr-
ann.
Páfimi biður guð að hjálpa
til að afstýra ófriði!
LONDON 28. ágúst. F.TJ.
Páfinn ávarpaði í dag hóp
hjúkrunarkvenna, sem fóru í
pílagrímsför til Róm, og sagði
hann meðal annars, að nauðsyn-
legt væri að allur ágreiningur
milli þjóða yrði leystur á frið-
samlegan hátt, og bað hann
guð að hjálpa þeim, sem ynnu
að því að koma í veg fyrir
ófrið milli Abessiníu og Italíu.
Ferðaflokkur
kennara og lækna frá Aust'ur-
ríki, Ungverjalandi og fleiri lönd-
um, alls 23 manns, kom
til Akureyrar síðastliðinn mánu-
dag, með Dr. Alexandrine. í
fyrra dag fór hópurinn austur að
Mývatni á bifreiðum, en kom til
Akureyrar aftur, og fór með bif-
reiðum áleiÖis til Reykjavikur í
gær. (FÚ.)
Af 3 morkum Islendinga
setti Jón Magnússon tvö.
ÚRVALSLIÐIÐ, SEM FÓR TIL ÞÝZKALANDS.
Jón Magnússon er lengst til hægri í fremstu röð.
SÍÐASTI kappJeikur íslendinga að Þjóðverjar hafa sett 33 mörk,
fór fram í gær í Hamborg. en íslendingar 3.
Leikar fóru svo, að Þjóðverjar j gærkveldi barst skeyti frá
sigruðu með 3 ifiörkum gegn 1, Pétri sigurðssyni til FB. um
og setti Jón Magnússon úr Fram kappleikinn, og fer það hér á
það. 1 eftir:
Hefir hann því sett tvö mörk ( !Kapp]ieikurinn í Hamborg fór
af þremur, sem Islendingar hafa þannigi aJJ Þj,óðverjar unnu með
sett í þessari för ti) Þýzkalands. ^ g[egn j_ p,egar 17 mínútur voru
Þetta var síðasti kappleikur-
inn, og hafa leikarnir farið svo,
Skemtiklúbburinn „KEYKVÍKINGUB l.
DANZLEIKUR
í Iðnó, laugardaginn 31. ágúst kl. 9% eftir hádegi.
HLJÖMSVEIT AAGE LOEANGE.
Aðgöngumiðar í Iðnó, frá kl. 4—7 á föstudag og eftir
kl. 4 á laugardag.
N.B. Þar sem þetta er fyrsti danzleikur haustins, er
vissara, að tryggja sér aðgöngumiða sem fyrst.
af leik skoruðu Þjóðverjar mark,
en þegar 40 mínútur voru frá
upphafi leiksins kvittaði Jón
Magnússon fyrir mark Þjóðverj-
anna. I seinni hálfleik skoruðu
Þjóðverjar tvö mörk, þegar 32
og 35 mínútur voru af leik. Var
þá farið að dimma. Leikurinn
var styttur um 2 mínútur sök-
um þess, hve dimt var orðið.
Þetta var harður, en jafn leikur,
og voru mörg snörp upphlaup
gerð af báðum liðum og kapp
manna mikið. Áhorfendur voru
yfir 5000. Voru þeir vinsamlegir
í garð okkar ekki síður en sinna
eigin manna. Okkar menn léku
vel og var vörn þeirra ágæt.
Þeir hafa lært mikið í ferðinni.
í dag var móttökuathöfn í ráð-
húsinu, en í kvöld veizla, sem
senatdð hefir boðað til. Á morg-
un förum við í ferðalag í boði
I DAG
Næturlæknir er í nótt Ólafur
Helgason, Ingólfsstræti 6, sími
2128.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur Apóteki og Iðunni.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 11
stig. All djúp lægð er yfir Skot-
landi, en há þrýstisvæði fyrir
vestan og norðan ísland. Útlit er
fyrir hæga austan og norð-aust-
an átt og bjartviðri.
ÚTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Lesin dagská næstu viku.
19,35 Tónleikar (plötur).
Létt lög.
20,00 Erindi: Frá útlöndum:
Bolivia og Paraguay
(Einar Magnúss., menta-
skólakennari).
20,30 Fréttir.
21,00 Tónleikar: a) Útvarps-
hl jómsveitin; b) Ein-
söngur Einar Markan; c)
Danzlög.
EnglenðlBgar helmta
rímknn á lanðhelgis-
löggjöf Norömanna.
Einkaskeyti til F.Ú.
LONDON í gær.
Fréttaritari enska blaðsins
„Morning Post“ skýrir frá því,
að brezki sendiherrann í Oslo
hafi fengið fyrirskipanir um að
ttala við norsku stjórnina við-
víkjandi þeim kröfum, sem hún
greir um að fá landhelgina
rýmkaða. Þetta mál er álitið svo
þýðingarmikið fyrir Englendinga,
að sendiherfanum hefir verið fal-
ið að koma fram með mikilli
festu í ‘tnálinu.
Samkvæmt hinni nýju norsku
reglugerð eiga yztu oddar eyj-
Hnna í skerjagarðinum að teljast
sem fast land, og á að miða
landhelgislínuna við það. Þetta
álíta Englendingar að hafi í för
með sér alvarlega takmörkun á
togarafiskiveiðum Englendinga
og Þjóðverja við Noreg.
Kjarvalssýningin.
Þegar hafa nefnd þeirri, sem
ætlar að sjá um allsherjarsýn-
ingu á málverkum Kjarvals, bor-
ist á fjórða hundrað myndir. Er
þó enn ekki búið að ná öllum
myndum þessa vinsælasta málara;
okkar, og verður þeim enn veitt
viðtaka.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Bjarni Pálsson vélstjóri frá
Hrísey og ungfrú Ásta Jónas-
dóttir, læknis Kristjánssonar á
Sauðárkróki.
Skátafélagið „Ernir“.
Almenn skátaútilega að Arnar-
bóli n. k. laugardagskvöld. Til-
kynnið þátttöku föstudagskvöld
kl. 8—10, á Ægisgötu.
Skipafréttir.
Gullfoss er á leið til Leith frá
Vestmannaeyjum. Goðafoss kom
til ísafjarðar kl. 2 í dag. Detti-
foss er í Ramborg, en fer þaðan
á laugardag. Brúarfoss er á leið
til Vestmannaeyja frá Leith. Lag-
arfoss lá á Kolkuós í morgun,
Selfoss fór frá London í gær tíl
Leith.
landbúnaðarráðuneytísins. Vellíð-
an. Kveðjur.“
Knattspyrnumenniraiir fara
hedmleiðis frá Hamborg á laug-
ardaginn.
Eitraðir fiskar úti
fjrrir Dee á Eog-
landi.
Ein/qapkeyti til FÚ.
LONDON í gærkveldi.
Nýlega hefir verið bannað af
heilbrigðisástæðum að nota fisk
veiddan í kringum árta Dee í
Cheshir-e í Englandi til manneld,-
is.
Ástæðan fyrir þessu banni er
sú, að mikil brögð voru að því
að dauðan fisk ræki á land á
bökkum árinnar, og ströndunum
við árósinn alla leið út að Flint-
höfða. Var fiskurinn rannsakaður
og kom í ljós, að hann hafði
dáið af eitrun, og er álitið, að all-
ur sá fiskur, sem gengur upp
ána, sé óheilnæmur. Fiskimenn á
þessu svæði, sem eru vanir að
byrja kolaveiðar um þetta leyti
árs, álíta að þetta muni gereyði-
leggja atvinnu sína.
U. M. F. Velvakandi
efnir til berjaferðar austur í
Þingvallasveit næstkomandi
sunnudag. Upplýsingar hjá
ferðanefnd.
Nýtt blað.
,,MATENO“ málgagn rót-
tækra esperantista á Islandi
flytur greinar á íslenzku um
öreigaesperantista hreifinguna,
námskeið í esperanto eftir Þór-
berg Þórðarson, sögur á esper-
anto, kvæði o. fl. o. fl. Blaðið
fæst á afgreiðslu þess: Lauga-
veg 27 A. (Þorsteinn Finnbjarn-
arson). Esperantistar kaupið
blaðið, gerist áskrifendur.
Knattspyrnumót 3. fl.
I gær keptu Víkingur og
Fram og varð jafntefli 1:1. —
Einnig keptu Valur og K. R. og
sigraði K. R. með 3:0. Næstu
kappleikir fara fram á sunnu-
NYJA BIÓ
Ríka frænkan.
Spriklfjörug og fyndin
sænsk tal- og tónmynd, er
fjallar um ástir, trúlofanir,
hjúskap og hjónaskilnað.
Aðalhlutverkin leika f jórir
vinsælustu skopleikarar
Svía
Tutta Berntzen, Karin,
Svanström, Adolf Jahr
og Bullen Berglund.
dag. Kl. 9,30 f. h. keppa Fram
og Valur og kl. 11 K. R. og Vík-
ingur.
Sendisveinafélag Reykjavíkur
fer hjólatúr á shnnudagmn
kemur upp að Tröllafossi. Lagt
verður af stað stundvíslega kl.
9 frá Mjólkurfélagshúsinu. —
Mætið allir! sendisveinar!
Hjálpræðisherinn.
í kvöld kl. 8V2: Söng- og hljóm-
leika-hátíð. Horna- og strengja-
sveit. Einsöngur, tvísöngur. Kap-
teih Överby og frú, kaptþin Nær-
vik og lautinant Kronberg Han-
?en. Föstiudag: Helgunarsamkoma.
Útlendar
Kartðflur
þessa árs uppskera.
15 aura y2 kg.
Kr. 12,50 kassinn, 50 kg.
VERZLUN
flaðn. Gaðjðnssooar
Skólavörðustíg 21.
Sími 3689.
Elskulegi maðurinn minn
Kristinn Gíslason
frá Hæðarenda, andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 27. ágúst.
Kristín Guðmundsdóttir, börn og tengdabörn.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er veittu okkur aðstoð
og auðsýndu samú,ð og vinarhug vegna andláts og við jarðarför
drengsins okkar,
Þorsteins Ingólfssonar.
Helga Guðmundsdóttir. Ingóifur Þorsteinsson.
eús
stór og smá, selur
Jónas H. Jðosson
Hafnarstræti 15. Sími 3327.
Ath. Öllum þeim, sem þurfa lausa íbúð fyrsta okt., er ráðlegt
að kaupa sem allra fyrst.
Dívanfætnr úr blrhl,
einnig borð og stólafætur úr eik eða hverju
því efni sem óskað er.
Fyrirliggjandi til smásölu og heildsölu.
Verð og gæði hliðstætt því bezta útlenda.
Styðjið íslenzka vinnu með kaupum ykkar.
Sent með póstkröfu, hvert á land sem er.
finðlanpr Hinriksson,
Vatnsstíg 3.
Sími 1736.
t