Alþýðublaðið - 04.09.1935, Síða 4
MIÐVIKUDAGINN 4. sept. 1935.
GAMLA BÍÖ
Lejrntyjófarimi.
Afar skemtileg leynilög-
reglumynd, leikin af þýzk-
um gamanleikurum, þeim:
ALFKED ABEL,
DOLLY HAAS og
OTTO WALLBURG.
AUKAMYNDIR:
Pastoral.
Hörpuleikur eftir Bellotta
leikin á 20 hörpur og
2 flygel.
Rússnesk Serenade
(Tschaikowsky)
leikin af „Das Wiener-
Frauen Symphonie-
Orchester.“
BÖRN FA EKKI AÐGANG.
m
Þ.iðji hlati skipsins
„Ucitefl States" ejði-
iagðnr.
OSLO, 3. sept.
Frá Kaupmannahöfn er símað
til Sjöfartstidende, að í nótt er
leið hafi kviknað í e/s United
States, sem áður var í förum
milli Danmerkur og Bandaxíkj-
anna, en nýlega var selt til Italíu
til niðurrifs.
Skipið liggur í Frihavnen,
Elduiinn var slöktur eftir hálfa
aðra klukkustund.
Þriðji hluti skipsins er eyði-
lagður. Slökkvistarfið var erfitt.
Sjómenn, sem voru viðstaddir
brunann, telja, að ólíklegt sé, að
kviknað hafi í kolunium af sjálfu
sér. Margir ætla, að kveikt hafi
verið í skipinu.
Þótt skipið væri selt til niður-
rifs, var búist við ,að það myndjj
verða notað eitthvað til herflutn-
inga. Italir áttu að taka við skip-
inu í Kaupmannahöfn og greiða
andvirðið við móttöku. Vegna vá-
tryggingar verður félagið ekki
fyiir neinu tjóni af völdum elds-
voðans. (NRP—-FB.)
nmiisiMS
¥
austur um þriðjudag 10. þ. m.
kl. 9 síðdegis.
Tekið verður á móti vörum
fyrir næstu helgi (kl. 12 á laug-
ardag).
íerksinlðjao BAo
Selur beztu og ódýrnstu
LlKKISTUBNAR.
Fyrirliggjandi af öllum
stærðum og gerðum.
Séð um jarðarfarir.
sr Sími 4094,
FRAMKÖLLUN,
KOPIERING og STÆKKANIR.
Vandlátir amatörar
skifta við
Ljósmyndastofu
Sigurðar Guðmundssonar,
Lækjargötu.
fmsmfmm&mfm
fmfmuwmsmfm
Béndi á Kfalar-
nesi dæmdar fyr-
ir isynferðisaf-
brot.
Maður hér í bænum hefir ný-
lega kært til lögreglunnar bónda
á Kjalarnesi fyrir hneykslanlegt
framferði gagnvart stúlkubarni.
Hafði maðurinn, sem kærði,
komið dóttur sinni ungri til sum-
ardvalar hjá bónda á Kjalarnesi,
sem er kunningi hans. Kom hann
fyrir nokkru að heimsækja telp-
una, og fylgdi hún honum úr
garði, er hann fór heimleiðis og
vildi fara með honum. Sagði hún
honum þá, að ekki færi vel um
sig. Sneri maðurinn þá við og
talaði um það við bóndann, en
hann svaraði þá illu einu, og
varð úr handalögmál milli þeirra.
Þegar maðurinn kom aftur til
Reykjavíkur með telpuna kærði
hann málið til lögreglunnar og
tók hi'rn skýrslu af telpunni, sem
bar það, að bóndinn hefði ráðist
á sig oftar en éinu sinni.
Mélið hefir nú verið sent bæj-
arfógetanum í Hafnarfirði til
frekari xannsóknar.
20000 pakkar
af saltfiski tii
Portúgais.
Fisktökuskipið Sado tók nýlega
15 þúsund pakka af fiski til
Portúgal. Einnig tók fisktökuskip-
ið Bro 5 þúsund pakka.
I Vestmannaeyjum er nú reit-
ingsfískirí í „snuxrevaad".
Síld veiðist i rek-
net í Vestmanna-
eyjum.
Fyrir nokkrum dögum reyndi
leinn bátur í Vestmannaeyjum að
veiða síld með reknetum, en það
er mjög sjaldgæft að síld veið-
ist þar í reknet.
Bóturinn fékk þegax í fyrsta
róðri 3 tn., í öðrum róðri fékk
hann 4 tunnur og í rnorgun 8.
Síldin er millisíld og veiddist
hún fyrir vestan Vestmannaeyj-
ar. Síldin er öll grófsöltuð.
Tveir bátar fóru auk þessa á
reknetaveiðar í gærkveldi.
Brotist íod i Kjðt-
Mðioa ð Laogav. 58.
1 nótt var brotist inn í kjöt-
búðina á Laugavegi 58.
Kjötbúðin er í kjallara hússins,
og hafði verið faxið inn um op-
inn glugga á bakhlið hússins og
þaðan inn í búðina.
Þjófurinn hafði þó lítið upp úr
krafsinu, að eins dálítið af skifti-
mynt úr skúffunni.
Kenslubækur í tungu-
málum fyrir útvarps-
hlustendur.
Málakensla útvarpsins hefir
hlotið miklar vinsældir, og mikill
fjöldi fastra nemenda tók þátt í
henni síðastliðinn vetur. 1 vetur
verður þessi kensla aukin, og sú
nýbreytni tekin upp, að sérstakar
kenslubækur verða gefnar út fyr-
ir útvarpið en á því er hin
mesta þörf, því kenslubækur, sem
notaðar eru fyrir útvarp, hljóta
að verða með nokkuð öðru sniði
en skólakenslubækur. Innain
skamms munu koma út kenslu-
bækur í þýzku, ensku, íslenzku
og dönsku á vegum útvarpsins.
Komið hefir til orða að kenslan
fari finam kl. 8—9 á morgnana.
Skemtun
í Rauðhólum
á sunnudag.
Skemtun vexður í Rauðhólum á
sundudaginn kemur, verði veður
gott.
Þar sem þetta verður síðasta
skemtun sumarsins í Rauðhólum
verður sérstaklega vel til hennar
vandað á alla lund.
Reykvíkingar hafa líka sýnt
það, að þeir kunna vel að metá
hinar ágætu og ódýru skemtanir
í Rauðhólum.
Innan skamms verður skýrt frá
nokkrum skemtiatriðum, og gelur
fólk þá sannfærzt um, hvort ekki
muni borga sig vel að fara upp í
Rauðhóla á sunnudaginn.
Jarðarfðr Astriðar flrottn-
lngar fðr fram meó
mikilli viðhðfn i Brflss-
el f gær.
LONDON, 3. sept. FTJ.
FEIKNA mannf jöldi var á
götum í Belgíu frá því
snemma í morgun og þangað til
jarðarför Ástríðar drottningar
var Iokið.
Laust eftir kl. 10 var líkkist-
an borin niður hallarriðið. Ridd-
araliðssveit blés í lúðra og skot-
ið var af fallbyssum meðan kist-
an var borin niður þrepin og
samtímis byrjuðu klukkur St.
Gudule kirkjunnar að hringja.
Fremst í líkfylgdinni gengu
klerkar þeir, er framkvæmdu
jarðarförina. 8 svartir hestar
drógu líkvagninn. Á kistunni
var kóróna drottningar og all-
ur drottningarskrúði.
Á eftir kistunni gekk kon-
ungur með hendina í fatla, og
við hlið honum gekk bróðir hans
hertoginn af Flandem. Því næst
kom bróðir Ástríðar drottning-
ar og ríkiserfingjar Svíþjóðar
og Danmerkur.
Konungur .gekk á eftir lík-
vagninum alla leið til kirkjimn-
ar í Leaken þar sem síðustu
atriði jarðarfararinnar fóru
fram, en það em 2/2 ensk míla
vegar. Aðrir óku í bifreiðum.
Um leið og kistan var borin í
kirkjuna var leikinn þjóðsöngur
Belgíu. Við hina stuttu kirkju-
legu athöfn í Leaken var aðeins
konungsfjölskyldan ein, og að
henni lokinni var Ástríður
drottning "lögð til hinstu hvíld-
ar meðal annara látinna með-
lima belgisku konungsf jölskyld-
unnar.
SKIPSTRANDIÐ
Frh. af 1. síðu.
Þrjú skip voru í kvöld komin
til aðstoðar „Dixie", sem fast var
á klettaskeri um 40 mílur undan
Floridaströnd með 3—400 farjrega.
Lítill leki var sagður kominn að
skipinu.
ABESSINÍA Frh. af 1. síðu.
I sambandi við hin nýju lög um
lengingu herskyldutímans í Frakk-
landi, sem gengu í gildí í sjumar,
hafa verið gerðar ýmsar skipu-
lagsbreytingar og endurbætur á
fyrirkomulagi hermálanna.
Kveldúlfur
hefir fengið leigða nýju fisk-
reitina í Rauðarárholti norðan
Háteigsvegar fyrir 6000 kr. árs-
leigu.
Eldur í Kötlu.
I gær kom upp eldur í fisk-
pökkum í öftustu lest e.s. Kötlu.
Tókst slökkviliðinu að slökkva
eldinn áður en verulegt tjón
hlaust af. Kviknað mun hafa út
frá gasi.
I DAG
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson Lækjargötu 4. Sími
2234.
Næturvörður er í Laugávegs-
og Ingólfs-apoteki.
ÚTVARPIÐ:
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Tónleikar: Skemtilög,
(plötur).
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Vangæfu börnin
og þjóðfélagið, II. (Jón
Pálsson, f. gjaldkeri).
21.00 Tónleikar (plötur): a)
Grieg-tónleikar; b) „Lof-
ið vorn drottinn“, eftir
Anton Bruckner.
22.00 Tónleikar Músikkklúbbs-
ins á Hótel ísland.
F. U. J.
heldur danzleik í Iðnó á laug-
ardagskvöld.
Karlakór Alþýðu
heldur fund á venjulegum
stað kl. 8 V2 annað kvöld (fimtu-
dag). Mjög áríðandi að allir
mæti.
/
Bjarni Björnsson
hélt kvöldskemtun á Akur-
eyri síðastliðin laugardags- og
sunnudagskvöld. Var aðsókn
góð, og vöktu skemtiatriðin
mikinn hlátur meðal áheyrenda.
(FÚ.).
” i.' ‘aSfca' igaaGffigfl
Sfldarskipið Jarlinn
kom til Akureyrar 1 fyrradag
með 220 tunnur síldar til Helga
Pálssonar. Af aflanum voru
kryddaðar 90 tunnur, en hitt
grófsaltað. Síldarskipin hætta
nú veiðum hvert af öðru.
Sigríður Magnúsdóttir
að Melstað í Miðfirði varð 95
ára í gær. — Hún hefir dvahð
í sömu sókn alla æfi og síðast-
liðin 40 ár að Melstað í Miðfirði,
og verið þar í tíð þriggja sókn-
arpresta: síra Þorvaldar
Bjarnasonar, síra Eyjólfs Kol-
beins og síra Jóhanns Briem. —
Sigr. er elzta manneskja í Mel-
staðarsókn. Hún hefir stöðuga
fótavist og vinnur tóvinnu. Hún
hefir gott minni og fylgist vel
með daglegum viðburðum. Sig-
ríður er ekkja Ásmundar Guð-
brandssonar sem er dáinn fyrir
mörgum árum. Eignuðust þau
hjón 10 börn og eru 3 þeirra enn
á lífi, öll við aldur. (FÚ.).
Sjómannakveðja.
Lagðir af stað til Englands.
Vellíðan. Kærar kveðjur.
Skipverjar á Venusi.
Norska aðalræðismanns-
skrifstofan.
Aðalræðismaður Bay kom 2.
september til Reykjavíkur úr
leyfi sínu og tók sama dag við
forstöðu aðalræðismannsskrif-
stofunnar. (FB.).
Skipafréttir.
Gullfoss er í Kaupmannahöfn,
en fer þaðan 7. þ. m. Goðafoss
fer héðan í kvöld kl. 8 til Hafn-
ar og Hamborgar. Dettifoss er á
leið til Vestmannaeyja frá Hull,
kemur hingað á laugardag. Brú-
arfoss er á Stapa. Lagarfoss er
á Akureyri. Selfoss er á leið til
Vestmannaeyja frá Leith. Prí-
múla fer héðan til Kaupmanna-
hafnar í kvöld. ísland fór frá
Færeyjum kl. 12 á miðnætti í
nótt og kemur hingað annað
kvöld. Alexandrína drottning
fór frá Færeyjum í gærkveldi á
leið til Hafnar.
Richard Torfason
fyrverandi aðalbókari í
Landsbankanum lézt í gær-
morgun.
Pétur Sigurðsson
flytur erindi í Varðarhúsinu
annað kvöld kl. 8y2 um einræði
og lýðræði, og hvers vegna þjóð-
irnar hneigist nú aftur að ein-
ræði, hvers vegna þær hverfi
um, og hvers vegna menn heimti ;
sérstaklega svo ákaft félagsleg- j
ar umbætur. Inngangurinn kost- 1
ar 50 aura. Pétur Sigurðsson er *
nú bráðum á förum úr bænum í
um lengri tíma.
Bæjarstjórnarfundur
er á morgun á venjulegum
stað og tíma. 13 mál eru á dag-
skrá, þar á meðal er skipun eins
fátækrafulltrúa og kosning
tveggja manna í nefnd, er rann-
saki atvinnuleysi unglinga hér í
bænum og geri tillögur til úr-
lausnar á því máli.
T. Illion
frá London flytur erindi fyr-
ir almenning í Guðspekifélags-
húsinu, Ingólfsstræti 22 í kvöld
kl 8 y2. Efni: Einsamall í dular-
klæðum á ferð um Tibet. Að-
gangur 1 króna. Fyrirlesarinn
svarar spurningum. Síðasta er-
indi hans var mjög vel sótt.
Kjarvalsýningin.
Á annað þúsund manna hafa
sótt sýningu Kjarvals í Menta-
skólanum.
pm NÍJ-i ksö iw
Brim |
Stórfengleg og fögur i
sænsk tal og tónmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Sten Lindgren og
Ingrid Bergman.
Aukamynd:
Bónorðsför Cha líns.
Amerísk tónskopmynd,
leikin af
CHARLIE CHAPLIN.
Síðasta sinn.
Es. Lyra
fer héðan fimtudaginn 5. þ. m.
kl. 6 síðd. til Bergen, um Vest-
mannaeyjar og Thorshavn.
Flutningi veitt móttaka til há-
degis á fimtudag.
Farseðlar sækist fyrir sama
tíma.
Hér með itlkynnist vinum og vandamönnum að dóttir mín
Valgerður
andaðist að Vífilsstöðum í nótt.
Jón Jónsson.
:::
I. O. G. T»
St. EININGIN nr. 14.
Fundur í kvöld á venjulegum
tíma. Á eftir kaffisamsæti.
Allir templarar velkomnir.
Æt.
Nýtt dílbakiðt,
með lækkuðu verði.
Vínarpylsur,
Miðdagspylsur,
Medisterpylsur,
Bjúgu,
Kjötfars,
Hakkað kjöt,
Grænmeti
og allsk.
Álegg.
KÍöíbúC iostarbæjar
Sími 1947.
M. s. Laxfoss
Fimtudaginn 5. september:
Frá Reykjavík kl. 9 árdegis.
Frá Borgarnesi kl. 8 síðdegis.
Kemur við á Akranesi í upp-
eftirleið.
Föstudaginn 6. september:
Frá Reykjavík kl. 8 árdegis.
Frá Borgamesi kl. 2 síðdegis.
Kemur við á Akranesi í báð-
um leiðum.
Laugardaginn 7. september:
Frá Reykjavík kl. 5 síðdegis.
Frá Borgarnesi kl. 8 síðdegis.
Kemur við á Akranesi í upp-
eftirleið.
Sunnudaginn 8. september:
Frá Reykjavík kl. 9 árdegis.
Frá Borgarnesi kl. 8 síðdegis.
Kemur við á Akranesi í báð-
um leiðum.
ATHS. Geymið þessa auglýs-
ingu.
Enn er tækífæri
til að gera góð kaup á ostum, því enn er óselt nokkuð
af hinum ágætu „tafíel“-ostum, sem seldir eru fyrir
niðursett verð.
Ostarnir vega \x/% til 2 kgr. hver og seljast fyrir:
kr. 2.00 hvert stykki 30% og
kr. 1.50 hvert stykki 20%.
Notið þetta ágæta tækifæri, sem aðeins stendur
í fáa daga enn.
Ostarnir seljast í öllum kjötbúðum Sláturfélags Suður-
lands og í öllum mjólkurbúðum Mjólkursamsölunnar og
víður — en aðeins í heilum stk. og gegn staðgreiðslu.
MJólkurbii Flóamanna.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiniiiiiniiiiiiiiiiiiiminiiiiiiniiiiiiniiiiiiiiiiii