Alþýðublaðið - 12.09.1935, Qupperneq 4
FIMTUDAGINN 12. SEPT. 1935
GAMLA BIÖ
Hin heimsfræga
íshafsmynd um
Tjeijuskin
rússneska skipið, sem sökk
í íshafinu.
Mynd, sem allir verða að
sjá.
Hættulegur leikur.
I gær 'kl. tæplega 7 var Hafn-
arfjarðarbíllinn Hf. 90 austanmeg-
in við Lækjartorg og var að taka;
farþegia. Reið þá kúla alt í eínu
inn um einn gluggann af ofsa
hraða. Lögregiunni var pegar til-
kynt um petta, og eftir dálitla
rannsókn kom í ijós, að piltur
17 ára að aldri, hafði skotið stein-
völu af teygjuslöngu frá gafli
Útvegsbankans, för steinvalan um
30 metra vegalengd. Telur lög-
reglan, að hefði steinvalan lent
á manni hefði hún valdið stór-
slysi. Pað mun tíðkast mjög mik-
ið meðal unglinga hér í bænum
að hafa slíkar slöngur um hönd.
f .
Fallegt grasbýli á fallegum
stað, til sölu fyrir sanngjamt
verð. Einnig 5 lítil hús með ný-
tízku þægindum. IJtborgun á
öllum eignunum eftir samkomu-
lagi. Jón Magnússon, Njálsgötu
13 B. Heima eftir 6. Sími 2252.
XfOOOOOOOOOCK
Get bætt við 3 stúlkum í
kjólasaumanámskeiðið.
HILDUR SIVERTSEN,
Aðalstræti 18.
Sími 2744 og heima 3085.
xxxxx>oooooo<
Kartðflnr,
fyrra árs uppskera,
sériega góðar
10 aura y2 kg.
KORNYRKJAN.
(Frh. af 3. síðu.)
Eflaust verður á næstu árum
hægt að rækta matbaunir og
rauðan og hvitan smára í tún-
ræktarlandi, en þessi aukning í
fjölbreytni s'kapar möguleika fyrir
enn meiri nýbreytni í jarðræíkt.
Sá, sem ræktar 4—5 einærar
jurtir innan ramma á'kveðins sáð-
skiftis, á hægra með að bæta við
nýjum nytjurtum en hinir, sem
enga reglubundna jarðrækt hafa.
Sáðskiftið hefir það' í för með sér
að gera jarðræktarstörfin að
heimilisstarfi, það kemst regla á
framkvæmd jarðræktarinnar.
Búfjáráburðurinn notast betur í
sáðskifti vegna þess, að ávalt, er
hægt að. fcoma honum niður í
jörðina og til þeirra jurta, er
borga hann bezt, í stað þess að
láta hann sólbakast ofan á tún-
unum, eins og aiment tíðkast.
Nú ríður á því, að láta korn-
yrkjuna heppnast og beina henni
í fastan farveg reglubundinnar
jarðræktar.
Tilraun:um í akuryrkju þarf að
fjölga, en allir þeir, sem íslenzk-
um landbúnaöi unna, þurfa að
styðja þetta nytjamál, þ. e. um-
sköpun jarðræktarinnar í regiu-
bundna ræktun með fjölþættri
framleiðslu. Pað er ekkert áríð-
ÚTVARPIÐ.
(Frh. af 1. síðu.)
að þá verði fyrst og fremst flutt-
ir kórsöngvar, einsöngvar og al-
þýðleg músík.
Kl. 21,05 til 21,30 verður upp-
lestur, leikrit, samtöl og erindi
um létt efni. Að því búnu hefst
múslk og stendur að jafnaði til
kl. 22,30.
Kvöldvökurnar verða með
sama hætti og áður og á sömu
dögum.
Það, sem aðallega befir vakað
fyrir okkur í útvarpsráði er að
gera dagskrána fjölbreyttari og
að meir skiftist á talað orð og
músík en verið hefir.
Útvarpsráð hefir nú í undir-
búningi val á efni og starfsmöntn-
um við dagskrána. Pað hefir skift
öllu útvarpsefni í 20—30 flokka
og tekur sérstök nefnd innan
ráðsins hvern flokk til meðferð-
ar út af fyrir sig.
Við væntuin þess að geta i
næstu viku gengið frá efni dag-
skráiinnar fram að áramótum, a.
hi. k. í höfuðdrátt'um.
Snorri goði kom i
gær með 150 smð-
iestir af karfa.
FLATEYRI, 11/9. (FÚ.)
Togamrnir Gulltoppur, Sindri
og Snorri goði hafa lagt á land
í Ríkisverksmiðjuna á Flatey
rúmlega 1800 smálestir af kaxfa,
sem unninn er jafnóðum.
Reynslusending af frystri karfa-
lifur 'er nýfarin til útlanda.
Prír reknetabátar stunda enn
veiðar frá Flateyri, en einn er
hættur. Einn bátur þaðan er ný-
byrjaður dxiagnótaveiðar, og hef-
ir aflað sæmilega.
Snorri goði kom snemma í
fnorgufb með 140—150 smálestir
af karfa og Sindri í dag með
um 120—130 smálestir, báðir frá
Halamiðum. Lifrin er hirt og fryst
í Jshúsi Ásgeirs Péturssonar og
Co.
1 dag \4nna um 70 menn og
komu' að lifrartökunni.
Stjórn þvottakvennaféiagsins
heldur fund í Mjólkurfélags-
húsinu, herbergi nr. 15, annað
kvöld kl. 8 V2. Ritari er beðinn
að hafa með sér fundargerða-
bókina.
andi að hafa sáðsfciftin stór, að
feins í fyrstu að koma reglunni á,
og læra af eigin reynslu þau verk-
brögð, sem þarf við framkvæmd
ræktunarinnar, það er fyrsta spor-
ið, sem hver bóndi þarf að stíga,
síðan 'kemur til greina að stækka
sáðskiftin og hverja ræktun innan
vébanda þess og auðvitað er pad
framtíðin.
Með því að rækta eftir þeirri
reglu, er ég hefi hér bent lítillegaj
á, fengist meiri festa í Landbún-
aöarstörfin en áður hefir þekst.
Hver ræktun myndi verða auð-
veldari í framkvæmd en með
gamla laginu, sérstaklega myndi
kartöfluræktin verða auðveldari
og ódýrari í framkvæmd en í
gömlu görðunum, og sprettan
meiii fyrir sama áburðarmagn, en
það stafar af því, aö við víxlrækt-
un þriggja eða fleiri yrkiplantna
á sama stað og i sama landi yrði
samfara tíðri jarðvinslu auðugra
gerlalíf og uppleysing torleystra
efna, er toemur bverri nytjurt til
góða, eftir eiginleiktun hennar.
Með sáðskiftiræktun með korni
og öðrum nytjajurtum næst hin
bundna frjó&emi jarðvegsins bet-
ur úr honum og gefur aukinn af-
rakstur. I þessu er fólgið gildi
sáðskiftis fyrir komyrkju og aðra
ræktun.
Klemmz Kristjámaon. ,
MISLINGARNIR.
(Frh. af 1. síðu.)
Isafjarðar og þaðan til Siglu-
fjarðax.
Samkvæmt fregnum, sem bár-
mst hingað í gær, hefir einn skip-
verja fengið veikina, og liggur
jbann í skipinu á Siglufirði. Eúm-
ig hefir frézt, að 5 aðrir s'kip-
verjar á Columbusi hafi ekki
fengið mislinga.
Skipið er nú í sóttkví á Siglu-
fiirði, en mikil líkindi til að áður
en upplýst var um mislingana
hafii Siglfirðingar hafit þau mök
við skipið, að veikin berist þar
í land.
Nýtt tilfelli raænnséítar
i bænnra i gan. Hænn-
söttar hefir einnig ort-
ið vart i Kefiavik og á
Snðurejrri.
Nýtt trlfelli mænusóttar fannst
hér í bænum; í gær.
Einnig hefir frézt um eitt til-
felli mænusöttar í Reflavik, sem
er 1. tilfelli þar, og ánnað á Suð-
ureyri. Hafði veikinnar orðið vart
á Suðureyri áður.
Miltisbranðnr i Skáney
i Reykholtsdal.
Fréttix hafa borist frá Skáney
í Reyikboltsdal um það, a'ð þar
sé kominn upp iniltisbrandur.
Hafia tvær kýr þegar drepist,
Aulk þess eru aðrar kýr á bæn-
um veikar.
Einnig hefir einn heimilis-
manna tekið veikina, þannig að
hann hefir fengið miltisbrands-
kýli á fingur og úlnlið.
Óvitað er um upptök veikinn-
ar, en fyrir um 40 árum síðan
kom upp miltisbrandur á sama
svæði.
Hefir Skáney verið sett í sótt-
kví, og er verið að rannsaka upp-
tök veikinnar.
Slys ¥ið hðfnina.
Um kl. 11 i gærmorgun datt
maður í höfnina við Ægisgarð.
Verkamaður, Sigurður Sigurðs-
son, var þar að skipa út veiðar-
færum á togarann Ólaf og féll í
sjóinn af vörubíl. Lenti hanin fyrst
á borðstOkk skipsins og var með
vitundarlaus er hann kom í sjó-
inn.
Há&eti á Kára, Erlingur Klem-
entsson, fleygði sér til sunds og
bjargaði manninum.
Var Sigurður fluttur á Lands-
spítalann. Hafði bann marist á
baiki og skorist á höfði. Líður
honum nú eftir vonum.
JÖKULFLÓÐIN.
(Frh. af 1. síðu.)
skýrslu um hlaupið eftir frá-
sögn Hannesar bónda Jónsson-
ar að Núpstað. — Skýrslan er
í aðalatriðum á þessa leið:
Fyrsta þessa mánaðar veitti
Hannes á Núpsstað eftirtekt
óvanalegum lit á Núpsvötnum,
sem falla fram vestan Skeiðar-
árjökuls en austan Lómagnúps,
og aðskilja Skeiðarársand og
Brunasand. Enginn vöxtur var
þó sjáanlegur í Skeiðará þá. Um
miðja síðastliðna viku voru
Núpsvötn tekin að vaxa og jókst
vatnsmagn þeirra dag frá degi.
Á laugardag síðastliðnum voru
þau orðin alófær yfirferðar og
kominn í þau jakaburður. Síðan
um helgi hafa vötnin vaxið að
mun, en þó mest í fyrri nótt og
í gærdag. Flóði vatnið þá yfir
sandana og mikinn hluta Núps-
I DA3
Næturlæknir er í nótt Þórður
Þórðarson, Eiríksgötu 11. Sími
4655.
ÓFRIÐARH ÆTTAN.
(Frh. af 1. síðu.)
England gerði kröfu til þess, að
Þjóðabandalagið gerði skyldu
sína í þvi alvarlega deilumáli,
sem hér er um að ræða. Ef það
brygðist þeirri skyldu nú, sem
því bæri til þess að varðveita
friðinn, myndi England draga
sig út úr deilumálum megin-
landsríkjanna og láta þau ein
um að leysa úr sínum vand-
ræðmn.
England hefir tekið
forystuna, segir
Benes.
Ræða Samuel Hoare var frá
sjónarmiði mælskulistarinnar
hreint meistaraverk, enda var
dauðaþögn í salnum, frá því að
hann byrjaði og þangað til haxm
hafði lokið máli sínu. En þá
ætlaði lófaklappinu aldrei að
linna. Fnlltrúarnir gengu hver
á eftir öðrum yfir að sæti
enska utanríkisráðherrans og
óskuðu honum til hamingju með
ræðuna.
Benes sagði eftir að fundin-
um var lokið: „England hefir
nú tekið forystuna og því mun
verða fylgt af öllum þjóðum,
sem í sannleika vilja frið“.
STAMPEN.
HVAÐ GERIR FRAKKLAND?
(Frh. af 1. síðu.)
öðrum löndum á meginlandinu
gerbreytast. Þau leggja áherslu
á, að framtíð Þjóðabandalags-
ins og samvinna Bretaveldis við
Frakka og meginlandsþjóðirnar
sé undir því komin, að Þjóða-
bandalagið leysi vandamál ítala
og Abessiníu á fullnægjandi
hátt.
_ S
staðaengja og olli þar skemd-
um, en hey var búið að hirða
af engjum. Síðastliðna nótt
jókst flóðið enn og í morgun
höfðu jakar borist upp á tún
á Núpsstað. — Hlaupið fellur
, fram úr Súlu, sem kemur und-
an vestanverðum Skeiðarárjökli
og fellur út í Núpsvötn, en eng-
inn vöxtur/er talinn í Skeiðará.
— Vitað er til að tvisvar áður
hafi svipað hlaup komið í þessi
vötn, nálægt tveim árum eftir
Skeiðarárhlaup. Þá voru hlaup-
in talin af því, að Grænalón hafi
hlaupið, en Grænalón er við
upptök Núpár, í jökulkrók
milli Vatnajökuls og Skeiðarár-
jökuls.
Síðustu fregnir af jökul-
hlaupinu eru þær, að í dag fór
Hannes á Núpstað að tilhlutun
póst- og símamálastjóra austur
að Núpsvötnum, til þess að at-
huga verksummerki, og virtist
honum hlaupið enn hafa vaxið
að miklum mun. Auk hlaupsins
í Súlu er annað hlaup komið
fram úr Blautuhvísl, sem fellur
undan Skeiðarárjökli talsvert
sunnar og austar en Súla, og
hefir jökullinn brotnað fram á
stórum svæðum við upptök
beggja þessara jökulvatna. —
Símalínan er gjöreydd á all-
löngum kafla og jökulhrönn um
allan sandinn. Telur Hannes að
mjög örðugt muni verða þar yf-
irferðar í haust, þó að flóðið
sjatni og jökulhlaup þetta telur
hann vera hið mesta sem kom-
ið hafi á þessum slóðum um
langt skeið.
L
SKALDSAGAN
AÐALHEIÐUR
eftir
C. DAIVES.
fæat í nawtu
bókabúð.
Verð: 5.50.
R.ft.D£
Heimsfræg tal- og söngva-
mjmd.
Aðalhlutverkin leika:
Paula Wessely,
Adolf Wohlbriich og
Hilde von Stolz.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
síra Richards Torfasonar
Ólafía Torfason. Magnús Riehardsson.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar
Ástráðs Hannessonar,
fer fram frá fríkirkjunni n. k. föstudag kl. 3% e- h. Húskveðja
Ingibjörg Einarsdóttir og börn.
heima kl. 3.
Jarðarför föður míns,
Erlendar Marteinssonar,
fer fram næstkomandi laugardag 14. þ. m. og hefst með bæn á
heimili hans Kirkjuveg 10, Hafnarfirði kl. 2 e. h.
Eftir ósk hins látna eru kransar afbeðnir, en þess vænst, að
þeir sem kyimu að hafa ætlað sér að senda krans, láti andvirðið
ganga til bamaheimilis verkakvennafél. Framtíðin.
F. h. mína og móður minnar.
Sigríður Erlendsdóttir.
Það tilkynnist, að móðir okkar, tengdamóðir og amma
Helga Kristín Davíðsdóttir
andaðist í morgun að Lækjargötu 18 í Hafnarfirði.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Jarðarför
Jóns Kristjánssonar
fer fram á morgun föstudaginn 13. þ. m. og hefst á heimili
okkar Njálsgötu 64 kl. 1 e. h.
Jarðað verður frá Dómkirkjunni.
Björney Jónsdóttir. Þórður Bjarnason.
SkemtíbjábWnB^Carioca
DanzsýninQ«
Hansfdanzleiknr.
í Iðnó laugardaginn 14. sept. kl.
9 y2. — Helene Jórisson og Egild
Carlson sýna nýjustu danzana.
Hljómsveit Aage Lorange spilar
nýjustu danzlög.
Aðgöngumiðar og skírteini í Iðnó frá
5—7 á föstud. og eftir kl. 4 á laugard.
Athuglð!
Ég undirritaður opna í dag verzlun á Bergataða-
stræti 54, undir nafninu
Verzlnn Ragnars Jóhannessonar
Ég hefi á boðstólum allar matvörur og nýlendu-
vörur. — Komið eða hringið í síma 3548, og pantið
nauðsynjavörur yðar. Þær verða sendar heim til yðar
um hæl.
Virðingarfylst,
Ragnar Jóhannesson,
Sími 3548. - Sími 3548.