Alþýðublaðið - 12.10.1935, Blaðsíða 4
LAUGARDAGrlNN 12. OKT. 1006
B GAMLXBlÓ fl|
Hjartakónsnr.
Gamanleikur og óperettu-
mynd í 10 þáttum, skraut-
leg, f jörug og með nýjum
lögum og undurfögrum
dönsum, sem eru smekk-
lega fléttað inn í efni
myndarinnar. — Aðalhlut-
verkin leika:
Katherine de Mille
' • - \
Carl Brisson
Mary Ellis.
DÓMUR 1 TOLLSVIKAMÁLI.
Frh. af 1. sí'ðu.
rannsókn, að reikningurinn,
sem kaupmaðurinn sýndi, var
lægri, en reikningur, sem fanst
í kassanum.
Játaði Jón Heiðberg að hafa
samið þennan reikning, sem
hann sýndi, sjálfur, en raun-
verulega verðið stóð á reikn-
ingnum, sem var í kassanum.
Játaði hann að hafa framið
samskonar afbrot einu sixmi áð-
ur.
Lét hann prenta reiknings-
eyðublöð í Félagsprentsmiðj-
unni, með nafni útlends firma,
og útfylti þau síðan með þeim
' tölum, sem honum sýndist og
undirskrfaði þau.
Áður haf ði' hann skrif að. til
firmans og beðið um tvenna
reikninga, en firmað neitaði því,
og tók hann þá til bragðs að
semja reikningana sjálfur.
Kvaðst hann haia gert þetta
vegna innflutningshaftanna.
Jón Heiðberg var dæmdur í 4
mánaða fangelsi við venjulegt
fangaviðurværi, skilorðsbundið.
Einnig var hann dæmdur til að
greiða þrefaldan toll.
VILHELM JAKOBSSON.
Frh. af 1. síðu.
lögreglumaður greiði KH) króna
sekt í bæjarsjóð Neskaupstaðar.
Randver Bjarnasan greiði 100
icr. sekt í rikissjóð.
Þeir Ölafur Bjarnasan og Sig-
urður Jóhannesson 'sæti hvor um
sig 20 daga fangelsi við ven;u-
legt fangaviðurværi.
Sveinn Magnússan, Sigurjón
Ingvarsson og Bergur Valdimar
Andrésson sæti hvor um sig 15
daga fangelsi við venjulegt
fangaviðurværi, en dómurinn er
skilorðsbundinn að pví er síðast-
nefnda snertir:
Ari Bergþórsson sæti skilorðs-
bundið 12 daga fangelsi við
venjulegt fangaviðurværi, en
Stefán Bergþórsson var. sýknaður
af ákærum.
Ákærðir greiði allan kostnað af
málinu einn fyrir alla ag allir fyr-
ir einn.
Vikuritið
hefir verið stækkað úr 48 síð-
,uan upp í 64 síður, en verðið
helzt óbreytt. Aðalsagan er: Um-
skiftingur, eftir Arthur W. March-
mond. Aukasagan: Fyrirskipun
kardínálans, eftir Stanley J. Wey-
man. .
STRfBIB
f ABESiiINÍD.
Frh. af 1. síðu.
Itölum ekkiert að gjalda. Bretland
og Italía eru gamlir vinir. Hvergi
væri því tykið mcft meiri fögnuði
en einmitt á Bretlandi, ef ftalir
legðu niður ófrið. Hlutverk Þjóða
bandalagsins er langt frá þvi að
vera auðvelt. Áður eri kamið get-
ur til frámkvæmda refsiaðgerða,
verður aö ráðgast við 50 rikis-
stjórnir."
Bretar byrja að selja
Abessiníuniönnum
hergögn.
LONDON, 11. jkt. FÚ.
Baðmullarverksmiöjur i Lancas-
hire hafa fengið svo stóra pönt-
un frá Abessiniu um baðmullar-
'dúlka í fatnað handa hermönnun-
um, að það mun taka 2000 verka-
þijer.n í 3 mánuði að lúka vinn-
unni, og verður að bæta við um
5000 vefstólum.
Italski sendiherrann
fer frá 'Addis Abeba
í dag.
KAUPMANNAHÖFN í morgun.
í dag síðdegis baðst sendiherra
Itala í Addis Abeba Iress, að
fá að kom)a í kveðjuheimsókn til
Abessiníukeisara. Bar hirðsiða-
meistari ósk hans fram með sama
hætti eins og þegar fulltrúar rílkja
biðjast áheyrnar í áríðandi er-
indagerðum.
Kersarinn neitaði að tala við
irann eða kveðja haim. FC.
BERLIN, 12. okt. FÚ.
ítalski sendiherrann í Addis
Abeba yfirgefur horgina í dag.
Majór Attlee ræðst
á brezku stjórnina
fyrir að draga of
lengi að hefta hern-
að ítala.
AlÞfBUBlABIB
LONDON 11. okt. F.Ú.
Mr. Attlee, sá er tók við for-
ystu verkamannaflokksins í
brezka þinginu í sl. viku, hélt í
dag fyrstu opinberu ræðuna síð-
an hann tók við því embætti.
Haifn hét Þjóðabandalaginu
stuðningi verkamannaflokksins,
og sagði, að stefna flokksins
væri sú, að útrýma stríði, stór-
veldastefnu og einveldisstefnu.
Hann deildi á brezku stjómina
fyrir það, að hún hefði dregið
of lengi að hefta hemaðar fyrir-
ætlanir ítala. Hann kvaðst ótt-
ast, að þeir atburðir, sem nú
væru að gerast, myndu reka
þjóðimar út í heimskulegan
hemaðarundirbúning, og sagði,
að gegn því myndi verkamanna-
flokkurinn berjast, þar sem það
væri sannað, að aukinn vígbún-
aður leiddi aðeins til styrjalda.
Einar Helgason garð
yrkjustjórif lézt í
gœrkvöldi.
I DA6
EINAB HELGASON.
Einar Heigason garðyrkjustjóri
lézt á Landakotsspí-tala í gær-
kveldi.
Síðastliðinn mánudag hafði ver-
ið gerður á honum uppskurður,
sem virtist hafa heppnast vel, unz
honum tók að þyngja aftur, og
lézt hann um kl. 7.
Einar Helgason var þektur
brautryðjandi á sviði garðyrkju,
'og var hann formaður í Hinu ís-
lenzka garðyrkjufélagi.
Námskeið Heimilis~
iðnaðarfélagsins.
Um nokkurt skeið hefir Heimil-
isiðnaðarfélag Isiands starfrækt
ínámsikeið í saum'um og hagnýtum
hannyrðum.
Námsikeið {>essi hafa sérstak-
lega verið ætluð ungum stúlkum
og húsmæðrum, og hafa þau ver-
ið framúrskarandi vinsæi. Að
þessu sinni hefst vetrarstarfsemi
Heimilisiðnaðarfélagsins 19. þ.
m. Þá hefst 2 mán. námstoeiö fyr-
ir ungar stúlkur. Kenslan fer fram
daglega kl. 2—6 e. h. og er kend-
ur saumur ytri og innri fatnaðar
á konur og börn. Einnig prjón og
hek!. Sama dag hefst einnig 20
claga námskeið fyrir húsmæður,
og er þar kendur allur hagnýtur
saumur, einnig viðgerðir o. fl.
Alþýðublaðið vill vekja athygli
á starfsemi þessari. Sérstaklega
viil það heina athygli fátækra
húsmæðra að hvöldnámskeiðun-
um. Þar geta þær fengið ókeypis
leiðbeiningar um það, hvemig
þær geta á sem hagkvæmastan
hátt gert sér og börnum sinum
ódýran en smiekklegan klæðnað,
og hvernig þær geti sem bezt
búið að sinu.
Smábarnaskóli í Vesturbænum
Kenni börnum á aldrinum 5—8
ára Til viðtals á Sólvallagötu 35
kl. 1—6 daglega. Sími 2476.
Þórðnr Gestsson,
Brezka pingið kem-
ur saman 22. p.m.
LONDON, 11. okt.
Tilkynt hefir verið opinber-
lega, að brezka þingið komi
saman þ. 22. október eða viku
fyrr en ráð hafði verið fyrir
gert, með það fyrir augum, að
ræða hin stórpólitísku alþjóða-
vandamál, sem nú eru á döfinni,
aðallega þau, sem varða deilur
Itala og Abessiníumanna og ó-
friðinn í Austur-Afriku. (Uni-
ted Press).
Næturlæknir er í nótt Daníel
Fjeldsted, Aðalstræti 9, sími
3272.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur og Iðunnarapótekum.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 4 stig.
Yfrilit: Djúp lægð yfir islandi á
hreyfingu austur eftir. Útlit: All-
hvass vestan og norðvestan. Skúr-
ir og slydduél..
ÚTVARPIÐ:
15,00 Veðurfœgnir.
19,10 Veðurfregnir.
] 19,20 Þingfréttir.
19,45 Fréttir.
20,15 Leikrit: „Ljósastikur bisk-
upsins", éftir Norman Mc.
Kinnel (úr „Vesalingum“
Victors Hugo) (Brynjólfur
Jóhannesson, Ragnar E.
Kvaran, Soffía Guðlaugs-
dóttir o. fl.).
20.55 Tónleikar (Útvarpstríóiö).
21,20 Létt kórlög, pl.
21,40 Gömlu danzarnir, pl.
22,00 Danzlög til kl. 24.
Aðalklúbburinn
heldur fyrsta haust- og vetr-
ar-danzleik sinn i K.-R.-húsinu
í kvöld kl. 9^2*
Skemtiklúbbur góðtemplara
heldur fyrsta danzleik vetrar-
'ins í íkvöldj í Templarahúsinu. S,-
G.-T.-hljómsveitin spilar.
40 ára
hjúskaparafmæli eiga í dag
Guðrún B. Jónsdóttir og Bjarni
Jónsson, Hverfisgötu 104.
Hjónaband.
í kvöld kl. 8 verða gefin samán
í Jijónaband af sém Friðrik Hall-
grimssyni ungfrú Hulda Ottesen
Hringbraut 184, og Sigurður
Lyngdal Þorgeirs&on frá Helga-
felli. Heimill ungu hjónanna er á
Hringbraut 184.
1 dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Brynhildur
Pálsdóttir hjúkrunarkona og Gísli
Porleifsson múrari. Heimili þeirra
verður Hringbraut 74.
Höf nin:
Karlsefni komj í (morgun. Fagra-
nes kom í morgun. LínuveiÖarinn
Atli kom í snorgun. Bjöminn kom
í morgun. Huginn I. toomj í 'inorg-
un. Stoeljungur fór í moigun.
Huglinn III. toomi í inorgun. Nova
toon> í gærkveldi.
Gagnfræðaskólinn í Reykjavík.
Vegna viðgerðar á skólahúsinu
verður skólirin tekki settur fyr en
á miðvikudag, nánar auglýst í
blaðinu á þriðjudag.
Vígslusamkoma
fyrir. sjómannastofuna á Norð-
urstíg 4 verður haldin þar sunnu-
daginn 13. okt. 1935 kl. 6 e. h.
Allir veltoomnir ineðan húsrúm
leyfir.
Frú Marci Björnsson
hárgreiðslukona er nýtoomin
heim úr utanför sinni. Hefir hún
dvalið í Kaupmanniahöfn, Briis-
sel og París og kynt sér helztu
nýjungar í iðn sinni.
Lesstofa
fyrir sjómenn var opnuð í Sjyrra
dag á Norðurstíg 4. Opin allan
daginn.
„Ljósastikur biskupsins"
heitir leikrit eftir Norman Mc
Kinnel, sem leikið verður í út-
varpiö í kvöld. Leikendur eru:
Brynjólfur Jóhannesson, Ragnar
E. Kvaran, Soffía Guðlaugsdóttir
og fleiri.
Messa
í Hafnarf jarðarkirkju á
morgun kl. 2. G. Þ.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnix „Æfintýri á gönguför"
annað kvöld kl. 8 í Iðnú í sið-
asta sinn.
Verkakvennafélagið Framtíðin
í Hafnarfirði heldur fyrsta fund
sinn á þessu starfsári mánudag-
inn 14. þ. m. kl. 8V2 í Bæjar-
þingssalnum.
Bókasafn „Anglia“
í brezka konsúlatinu er nú op-
ið á mánudögum og miðvikudög-
um kl. 9—10 e. h. Margar nýjar
bækur eru komnar, og allir ensku-
lesandi menn eru velkomnir.
1 St. „Víkingur“
heldur hlutaveltu á morgun í
Templarahúsinu kl. 4. Þeir, sem
hafa hugsað sér að styilkja hluta-
veltuna með gjöfum, komi þeim
í Templarahúsið kl. 9 til 12 á
morgun.
Skipafréttir:
Gullfoss fer frá Leith í kvöld.
Goðafoss er í Hamborg. Detti-
foss er á Siglufirði. Brúarfoss
kom til Vestmannaeyja í jnrorgun.
Lagarfoss er á Sauðárkróki. Sel-
foss er á leið til Gautaborgar.
island er á Siglufirði.
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur skemtun í Iðnó kl. 9
í kvöld. Skemtiatriði: Kórsöngur.
eftirhennur, danz.
NYJA BIÖ
One Night of Love.
Kærlighedens Symfoni.
Ast og sðaglist.
Síðasta sinn.
„Æfintýri
á gönguför.44
Sýning á morgun kl. 8 í Iðnó.
Aðgöngumiðar seldir í dag frá
kl. 4-—7 og eftir kl. 1 á morgun.
Verð aðgöngumiða:
1,50, 2,25 og 3,00.
SlÐASTA SINN.
Sími 3191.
Bjarni Björnsson
skemti í gærkvöldi fyrir
troðfullu húsi áheyrenda. Hafði
hann að þessu sinni boðið öllum
þingmönnum og ráðherrum,
enda voru flestir þeirra mættir.
Skemtunin tókst ágætlega og
verður hún endurtekin enn einu
sinni á morgun kl. 4.
Farþegar
með E.s. Brúarfossi 11. okt.
1935 til Vestm.eyja, Reyðarfjarð-
ar og Lundúna: Anina Egilsdótt-
ir, Anna Claessen, Herr Jóhanns-
son. Finnbogi R. Þorvaldsson. —
Mr. Fred. Cartwright. Mr. Sonn-
ett. Mr. Brewer. Óskar Sigur-
hansS'On. Magnús R. Jónsson. Jón
as Jakobsson. Guðrún Ágústsd.
Guðmunda Jónsdóttir, Adda
Magnúsdóttir, Bjarndís Nikulás-
dóttir, Sigrún Daníelsdóttir, Mar-
grét Einarsdóttir, Guðrún Auðuns-
dóttir, Ingigerður Bjarnadóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Ingunn Júlíus-
dóttir. Þorgerður Jónsdóttir.
BJarni Bjornsson
skemtir einu sinni enn í Iðnó á morgun
sunnud. kl. 4.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó á morgun frá kl. 1
e. h. og kosta, stæði kr. 1,50, sæti kr. 2,00.
HLUTAVELTU
heidur st. VIKINGUR
' - /
á morgun í Templarahásinu. Margir ágætir munir.
Koí, Saltfisbur, Sykur, Nýr fisknr, fiiervara
Hásið opnað kl. 4.
og margt fleira nauðsynlegt og gagnlegt.
Inngangur 50 aura.
Dráttur 50 aura.
V. K. F. Framtíðin í Hafnarfirði Fyrsti fundur á þessu starfsári verður mánudaginn 14. þ. m.
kl. 8 j2 í Bæjarþingssalnum.