Alþýðublaðið - 20.10.1935, Side 4
SUNNUDAGiNN 20. OKT. 1035.
mm GAMLABIÖ HM
Klanstnrbarnið í
■ i
:
með Dorothea Wieck.
Sýnd-kl. 9.
Graimi maðurinn.
Leynilögreglumynd sýnd
kl. 7.
Börn innan 14 ára
fá ekki aðgang.
Fisksalarnir.
Gög og Gokke.
Sýnd kl. 5.
„Skugga>
Sveinn“
eftir Matthías Jochumsson.
Sýning í kvöld kl. 8
í íðnó.
Aðgöngumiðar seldir í
dag eftir kl. 1
Sími 3191.
„VORBOÐAR."
(Frh. af 3. síðu.)
þeir klufu hrannar fall.
Á nökkva hlöðnum náðu
með nauðum oft í vör.
Ei bragna griða báðu,
en brýndu þungum knör.
I bókinni er margt kveðið um
vorið eins <og nafn bókarinnar
bendir til, enda er bressandi
bjartsýni og vorblær höfuðein-
kenni flestra kvæða bókarinnar.
jiessi faliega vísa er í einu vor-
kvæðinu:
Hjalar lind við loftin blá
ljóðin yndisþýðu:
Svásir vindar suðri frá
sumars mynda blíðu.
Hér er ekki rúm til að tiJfæra
fleira úr þessari ljóðabók. Bragar-
hættir ljóðanna og arðaval er með
talsvert öðrum hætti en gerist á
hinum nýrri Ijóðabókum; hvort
tveggja ber svip eldra máls en
nú tíðkast, enda er skáldið nú
miðaldra, þó að flest séu kvæðin
ný. Ferskeytlur eru margar og
ílestar bringhendar. Rímnafcenn-
ingar og forn heiti eru víða not-
uð með smekkvísi og gefa kvæð-
unum sérstakan sjálfstæðan blæ,
sem er hressandi og skemtilegur.
Þessar línur um „Vorboðana"
hans Péturs eiga ekki að vera
neinn ritdómur, enda er ég enginn
bókmentafræðingur. En mig lang-
aði til að vekja athygli á þessum
kvæðum, sem mér þykja mörg
hver sfcemtileg, því að það andar
frá þeim hressandi vorblæ af
lífsgleði og bjartsýni heilbrigðs
og hrausts manns.
Einar Magnússon.
LYFSALINN í STYKKISHÓLMI.
Frh. af 1. siðu.
1. júlí' í sumar hafði apótekíð
fengið 88 kg. af „tinktúrum" sömu
tegundar sem lyfjasveinninn bafði
gefið upp, en nú var eftir af þeim
44 kg. og einnig 231/4 1. af koní-
aki og hálfur 1. af ákavíti.
Það skal tekið fram, að þetta
koniak er spíritúsblanda með kon-
íaksessensum, og sagðist apótek-
arinn hafa búið þessa blöndu til
fj-á því fyrsta að hann kom til
Stykkishólms. en aldrei nema lítið
þar til nú, og sama væri að segja
um ákavítið. Tinktúrurnar og á-
fengið var innsiglað nieðan málið
STRfÐIÐ
I ABESSINfD.
DBUSIÐ
Frh. af 1. síðu.
Um vörur, sem þegar eru á
leiðinni til ákvörðunarstaðar
síns, samkvæmt áður gerðum
samningi, gilda þessa ákvæði
ekki. En um vörur, sem samn-
ingar kunna að hafa verið gerð-
ir um, en ekki eru komnar af
stað, skal þetta bann gilda.
Ríki þau, sem eru meðlimir
Þjóðabandalagsins eru beðin að
láta Þjóðabandalagið vita, ekki
síðar en 28. okt., hvenær þau
telja sig geta komið þessum á-
kvæðum í framkvæmd. En 31.
október er svo gert ráð fyrir,
að nefndín komi saman á fund,
til þess að samræma þessar
refsiaðgerðir.
Rúmenía íer fram á
refsiráðstafanirgegn
Austurríki, Ung-
verjalandi og Al-
baníu.
Fulltrúar Bretlands, Frakk-
lands, Rúmeníu og Jugo-Slavíu
ræddu um það, hvernig hátta
skyldi skaðabótum til þeirra
ríkja, sem bíða viðskiftatjón af
þessu banni. Tituleseu, fulltrúi
Rúmena, hóf máls á því, hvort
ekki væri rétt að beita refsiað-
gerðum gagnvart þeim ríkjum,
sem ekki vildu taka þátt í því,
að beita refsiaðgerðunum, og
áttj hann þar við hvaða ráð-
stafanir skyldi gera gagnvart
Austurríki, Ungverjalandi og
Albaníu, sem færst hafa undan
að taka þátt í þeim refsiaðgerð-
um, sem aðrar þjóðir Þjóða-
bandalagsins hafa samþykt um
þessi mál. Þetta var þó ekki
frekar rætt í dag.
Rauði krossinn send
ir hjálp til Abess-
iníu
OSLO í gærkveldi. (FÚ.)
Alþjóða-Rauðdkrossnefndin í
Genf hefir sent hínum ýmsu
Rauða-Kross-félögum beiðni um
'styrk til handa Rauða krossi A-
bessiníiu- Rauði kross Danmerkur
hefir þegar gefið 5 þúsund krón-
ur, og þar að auki hafið fjár-
söfnun urn land alt. Verður því fé
ef til vill varið til þess að senda
hjúkrunarkonur og lækna til A-
bessiníiu, að ciæmi Svíþjóðar og
fleiri ríkja.
Þá hefir Rauði kross Noregs
hafið fjársöfnun til handa Rauða
krossi Abessiníu. Er sagt, að í
Abessiníu sé tilfinnanlegur skort-
ur á öllum Iijúkrunartækjum, og
aðstaða öll mjög slæm, einkum
vegna vatnsskorts. Læknar og
hjúkrunarkonur á því mentunar-
stigi, sem annars staðar gerist,
þru varla til í landinu, og skortur
á sáraumbúðum, meðulum og
lækningatækjum tilfinnanlegur.
Rauða-kross-félög ýmissa [ancÞ
hlaupa nú undir bagga með hinu
unga Rauða-kross-félagi Abessi-
níti, til þess að það geti veitt þá
■ iílkn, sem aðeins er á valdi Rauðaí
krossins að veita í styrjöldum.
Kristmann Guðmundsson
rithöfundur les upp í útvarpið
kl. 21,05 í kvöld.
Áheit
á Strandarkirkju frá N. N.
kr. 2.00.
er i rannsókn, en prufur tekið af
öllu og þær sendar Efnarannsókn-
arstofu ríkisins til rannsókn.ar.“
I Stykkishólmi er altalað, að
liTsalinn hafi selt áfengi lengi.
og þá sérstaklega til ýinissa mekt-
prmanna í þorpinu, þar á meðaJ
Sigurði Lárussyni piresti, Ágústi
kaupmanni og fleirum.
Hvalveiðaskip-
in veiddu aiis
28 hvali.
PATREKSFIRÐI F.Ú.
Hvalabátarnir frá Tálkiiafirði
eru báðir hættir veiðum og
farnir til Noregs. Marquis De
Estella hefir aflað 17 hvali eftir
þriggja mánaða veiðitíma og
Jerv fyrsti, 11 hvali eftir
tveggja mánaða veiðitíma.
Úr þessum afla hafa fengist
um 700 föt lýsis og auk þess
hefir alt rengið verið selt og
nokkuð að kjöti selt til Noregs
til refafóðurs.
KAUPM.HÖFN 19. okt. F.O.
Dagblaðið Börsen birtir í dag
viðtal við Svein Björnsson sendi
herra íslendinga I Kaupmanna-
höfn, um Sogsvirkjunina, upp-
hitun með hveravatni á Islandi.
og leiðslu hveravatns um lengri
veg. I þessu viðtali er einnig
rætt um þróun og aukningu
vegakerfisins íslenzka.
R íkmar 1000 tiíuuiur af síid
til Hafnarfjarðar.
Þessir bátar komu með síld
til Hafnarf jarðar í fyrradag, og
höfðu þann afla, sem hér segir,
áætlað: Hermóður um 50 tunn-
ur, Jón Þorláksson 60, Málmey
80, Huginn þriðji 35, Huginn
annar um 90, Atli 60, Bangsi
10, Valbjörn 100, ísbjörn 35,
Ásbjörn um 80, Gunnbjörn 60,
Sæbjörn 100, Rúna um 60, Kol-
beinn Ungi 170, og Hafalda 20.
F.TJ.
Bráðapest í Dalasýslu.
LJÁRSKÓGUM. F.U.
Bráðapest stingur sér niður,
en hefir óvíða gert verulegan
usla. Bólusetningu er víða lokið.
— Mikill snjór er í fjöllum og
sums staðar í bygð, t.d. í Hauka-
dal og framanverðum Laxárdal.
Slátrun var lokið hjá Kaup-
féiagi Hvammsfjarðar í Búðar-
dal. Álls hefir verið slátrað tæp-
lega 11000 kindum. — Meðal-
þungi dilka er um ýá kg. meirí
en í fyrra.
Súðin tók í fyrra dag rúmar
500 tunnur af kjöti til útflutn-
ings og um 4000 gærubúnt.
Meðan slátrað var gekk dag-
lega kjötbíll til Reykjavíkur.
Kuldar og frost hafa verið
hér undanfarið.
Italíaskuldar Noregi
11,4 milljónir líra.
KAUPM.HÖFN 19. okt. F.Ú.
Skuldir Italíu við norska út-
flytjendur hafa nú stigið upp i
11,4 milj. líra. Norska stjómin
hefir aðvarað útflytjendur um
það, að norska ríkið taki enga
ábyrgð á þessum skuldum, og
varar útflytjendur við því, að
ef þeir haldi áfram að senda
vörur til Italíu megi þeir búast
við að þujTa að bíða lengi eftir
greiðslunni.
Norska stjómin hefir lagt
bann á útflutning hergagna til
ítalíu.
Kosningarnar í Danmörku
fara fram á þriðjudaginn kem-
ur. Um kosningarnar og það, sem
aðallega skiftir málum í Dan-
niörku nú, skrifar Stefán Péturs-
son neðanmálsgein í blaðið á
þriðjudaginn.
I ÐAG
Næturlæknir er í nótt Páll
Sigurðsson, Garðastræti 9,
sími 4959.
Næturvörður er í nótt í
Reykjavíkur og Iðunnarapóteki.
MESSUR:
Kl. 11 messa í dómk. Fr. H.
Kl. 5 messa í dómk. Bj. J.
Kl. 2 messa í fríkirkj. Á. S.
ÚTVARPIÐ:
10.40 Veðurfregnir.
12,00 Hádegisútvarp.
14,00 Messa í Fríkirkjunni (sr.
Árni Sigurðsson).
15,00 Tónleikar frá Hótel Is-
land.
18.30 Barnatími: a) I heima-
vistarskólanum (Ingimar
Jóhannesson skólastj.)
b) Sönglög.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Hljórnplötur: Sígild
skemtilög.
19,45 Frétir.
20,15 Erindi: Jörundur hunda-
dagakonungur, II (Jó-
hannes skáld úr Kötlum)
20.40 Einsöngur (Sigurður
Skagfield).
21,05 Upplestur.
21.30 Hljómplötur: Symfonía,
nr. 1, eftir Beethoven.
22,05 Danzlög til kl. 24.
Á MORGUN:
Næturlæknir er Jón G. Niku-
lásson, Lokastíg 3, sími 2966.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur og Iðnunnarapóteki.
UTVARPIÐ:
10,00 Veðurfregnir.
12,00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfréttir.
19,45 Fréttir.
20,15 Samtal: Faxaflóasíldin
(Geir Sigurðsson skipstj.
og Vilhj. Þ. Gíslason.)
20,40 Einsöngur ( frú Guðrún
Ágústsdóttir).
21,05 Erindi: Geymsla garð-
ávaxta (Ragnar Ásgeirs-
son ráðunautur).
21,30 Utvarpshljómsveitin (Þ.
Guðm.): Alþýðulög.
21,55 Hljómplötur: Kvintett í
Ardúr eftir Schubert.
Ríkisverksmiðjan á Sólbakka
er nú að hætta störfum í bili.
Ur þeim 5659 smálestum karfa,
sem lagðar voru á land þar,
fengust 790 smálestir mjöls,
295 smálestir lýsis og 23 smá-
lestir lifrar. F.Ú.
Vélbátimnn Svanur,
sem strandaði við Hrafna-
skálanúp 10 þ. m. brotnaði í
spón. Mjög litlu varð bjargað.
— Báturinn var vátrygður fyrír
18000 kr.
Kaupfélag Önfirðmga
slátraði í haust 1900 fjár. —
Meðalvigt dilka var 14,3 kg. —
Meir én helmingur kjötsins var
saltað til útflutnings.
Fyrsta kvöldvakan
i útvarpið verður á laugardag-
inn kemur, fyrsta vetrardag. 1 viet-
ur verða kvöldvökurjiar á föstu-
dögum, eins og venja hefir verið
undanfarna vetur.
Sesselja síðstakkur
Dg fleiri sögur þýddar af Frey-
stdni Gunnarssyni Dg gefnar út
af Isafoldarprentsmiðju h.f., eru
nýkomnar á bókamarkaðinn.
Danzskóli
Helene Jónsson og Eigild
Carlsen er tekinn til starfa og
kennir alls konar danza, plastik
og ballett o. fl. Sjá augl.
Sængurfötum stolið
á Hótel Heklu.
Um hádegið í fyrra dag var
stolið sængurfötum á Hótel
Heklu. Hafði þjófurinn farið með
poka með sér upp á herbergið
og látið sængurfötin í hann.
Síðan hafði hann selt sængur-
fötin og keypt áfengi fyrir and-
virðið. i
Náðist þjófurinn í gær, og hefir
hann aldrei óður komist undir
manna hendur.
Tveir menn höfðu verið í vit-
orði með honum, og hafa þeir óð-
/ur komist í kunningsskap við lög-
regluna.
Þessir þrír félagar höfðu sama
dag stolið nýjum frakka uppi í
bæ, og voru búnir að selja hann
og fcaupa áfengi fyrir andvirðið.
Ekki er hægt að birta nöfn
mannanna að svo komnu, því
málið er ekld fullrannsakað emi
þá. Sitja þeir allir í varðhaldi.
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur fund og skenitikvöld á
þriðjuclagskvöldið. Til skemtun-
ar verður: 1. Félagsmál. 2. Kaffi-
drýkkja. 3. Danz. Félagskonur
eru beðnar að fjölmenna.
Frú Halldóra Sigurjónsson
auglýsir hér í blaðinu í dag
fyrirlestur um andleg mál (spiri-
tisma). Frúin er fyrir skömmu
komin frá Ameriku og hefir gef-
ið sig þar nokkuð við þessum
málum, og fylgist hún vel með
i því, sem gerist á því sviði utan-
lands.
Bændaskólinn á Hvanneyri
var settur 16. þ. m. Komnir
voru þá 52 nemendur, en nú eru
komnir 58 og von á nokkrum í
viðbót. Þórir Guðmundsson hefir
fengið lausn frá keninarastarfi í
vetur,.og stundar hann fóðurrainn-
jjóknir í Reykjavík í vtetur, í á-
framhaldi af starfi sfnu í Sviþjóð
i sumar. — Guðbrandur Magnús-
son kennari er ráðinn í vetur í
hans stað. (FÚ.)
Ný símalína.
Það hefir verið lokið við lagn-
ingu simalínu frá Sveinsieyri til
Suðiureyrar í Tálknafirði, en lín-
an er ekki tekin til notkunar
ennþá. (FÚ.)
mm njtía biö n
IBræöuroir
Rothscbild
Stórfengleg og hríf andi tal-
og tónmynd um kunnustu
f jármálaætt Evrópu, Roth-
schild bræðurna, sem hóf-
ust til svo mikilla valda
á tímum Napoleons-styrj-
aldanna.
Aukamynd:
Æskuást tónsnillingsins.
Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 9.
Lækkað verð kl. 5. Engin
barnasýning.
I. O. G. T.
STIJKAN „VERÐANDI“ nr. 9
heldur vetrarfagnað næstkom-
andi þriðjudag kl. 8 Ví> e. h.
Skemtiatriði eru:
1. Kaffisamsæti.
2. Ræða: P. Z.
3. Gamanvísur.
4. Upplestur.
5. Frjáls ræðuhöld.
6. Danz.
Meðlimir ásarnt gestum sínum
eru beðnir að fjölmenna.
Neíndin.
iaæææææmææææ
Skntull
BlaO Alísíðaílokkslns á
IsafirOl
er n .íuðsynlecri öllum, sem
vilja fylgjas'. með
á Vestíjðröðni
Gerist áskrifendur í afgre’öslu
þýð il íífirf
mmmmmmmm
V. K. f. Fmnsðkn
heldur fund og skemtikvöld þriðjudaginn 22. þ. m. í Iðnó, uppi,
kl. 8V2 síðdegis.
1. Félagsmál.
2. Kaffidrykkja.
3. Danz, harmonikumúsik.
Félagskonur, fjölmennið! STJÓRNIN,..
Danzskóli
Helene Jðnsson m Egild Carlsen,
er byrjaður.
Nýtízku samkvæmisdanzar, bailett, plastik,
akrobatie og step.
Upplýsingar í síma 3911. Laugavegi 34.
Viðtaistlmi minn
i
verður framvegis frá 10y2—liy2 f. h. og 4y>—6 e. h. (í stað
3—5).
Bankastræti 11.
Sveiun Pétursson,
augnlæknir.
Sími 2811. Heimasími 1611.
Kauplð Alpýðublaðfð!