Alþýðublaðið - 24.10.1935, Qupperneq 4
FIMTUDAGINN 24, OKT, 1035
M GAMLA BIO ■
Klanstnrbarnið
Þessi gullfallega mynd
verður sýnd ennþáí'kvöld.
uuNiuc itiyyií íioi
„Skngga-
SveinnM
eftir Matthías Jochumsson.
Sýning í kvöld kl. 8,
í Iðnó.
Aðgöngumiðar seldir í
dag frá kl. 1.
Sími 3191.
P P A F F - HÚLSAUMUR.
Guðrún Pálsdóttir,
Vesturbraut 3. —■ Hafnarfirði.
Á fyrstu skemtuninni í
Rauðhólum í sumar var kven-
veski skilið eftir í bíl. Vitjist á
Spítalastíg 4 gegn greiðslu aug-
lýsingarinnar.
„Goðaíoss“
íer á laugardngskvöld (26.
október) vestiir og norður
um land til Hull og Ham-
borgar.
„Gnllfoss“
fer á þriðjudagskvöld 29.
okt. um Vestmannaeyjar
til Leith og Kaupmanna-
hafnar.
mMmmzmumizí
ályktunartillögunnar, um sölu
Þórs, verði látinn falla niður.
Síldveiðin heldur á
fram við England
LONDON 23. okt. F.Ú.
Geysimikil síld heldur áfram
að vaða við austurströnd Eng-
lands. 1 dag voru lagðar á land
í Lowestoft og Yarmouth 30
miljónir síldar.
fer annað kvöld kl. 6 til
ísafjarðar, Siglufjarðar,
Akureyrar. Þaðan sömu
leið til baka.
Fylgibréf yfir
vorur
komi í dag.
Farþegar sæki farseðla
f dag.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen,
Tryggvagötu. Sími 3025.
Sala varöskip-
anna
Óðins og Þórs.
Svohljóðandi þingsályktunartil-
laga hefir verið lögð fram í
Sameinuðu þingi:
„Sameinað Alþingi ályktar að
heimila ríkisstjórninni að leita
fyrir sér innan lands og utan
um, hvaða tilboö væri hægt að
fá í:
a. varðskipið óðin,
b. varðskipið Þór,
og leggja siðan árangurinn fyrir
Alþingi.“
Þingflokkur Alþýðuflokksins
hefir samþykt að verða með sölu-
útboði á Óðni, þó að þvi til-
skildu, að fyrir andvirði skipsins
verði keyptir bátar til strand-
gæzlunnar.
Þáll Þorbjörnsson hefir lagt
fram tillögu um að b-Iiður þings-
Sendisvela.
12—13 ára, vantar nú þegar á skrifstofu hér í bænum.
Eiginhandar umsóknir,ásamt upplýsingum og meðmæl-
urii, ef til éru, sendist A.S.Í., merktar „SENDISVEINN“.
ht> 'j/Kum '9&i mw
HSWSWí?
óánægðir með 15-foto gjöri sjálfir saman-
burð á vinnu, gæðum og verði á hinum
vinsælu Ijósmyndum, sem alltaf mæla með
sér sjálfar, sem eðlilegt er, þar sem þær
byggjast eingöngu á gagnkvæmum • skiln-
ingi Ijósmyndarans, en ekki á myndafjölda
teknum út í loftið.
Virðingarfylst.
Ljósmjuidastofa Sigurðar Guðmundssonar,
Lækjargötu 2. Símar 1980 og 4980.
UÞfBDBUBIB
flin nýju írasn
færslulðo
I DA6
til 1. nmræða fi
neOri deild fi g»r.
í gær <kom til fyrstu urru'æðu
i neðri deild hið nýja frumvarp
tíl framfærslulaga, sem flutf er
af öllum þingmönnum í.lþýðu-
flokksi'ns í neðri deild að tilhlut-
un atvinnumálaráðherra,
Jónas Gúðmundsson var fram-
sögumaður fyrir frumvarpinu, og
lýsti hann því í snjallri og
greinargóðri ræðu.
Um frumvarpið töluðu einnig
Pétur Otte&en, s*em lýsti sig fylgj-
andi frumvarpínu, Eysteihn Jóns-
son og Hannes Jónsson. Gagn-
rýndi hinn síðast nefndi nokkur
atriði frumvarpsins.
Einnig kom til 1. umræðu frum-
varpið um ríkisframfærslu sjúkra
manna og örkumla, sem einnig
er flutt af öllum þingmönnum
Alþýðuflokksins í neðri deild.
Jónas Guðmundsson hafði
framsöga þess; og að umræðum
löknum var báðum frumvörpim-
um vísað til 2. umr. og allsherj-
arnefndar.
STKfBIB
f ABESSINÍD.
Frh. af 1. síðu.
um það, að Lavai forsætisráð-
herra Frakklands, sem að undan-
förnu hefir verið að reyna að
koma þvi til leiðar, að lagðar
yrðu fram nýjar tillögur til frið-
samlegrar lausnar Abessiníudeil-
unum, hafi komið því svo fyrir,
að brezku stjórninni verði jafn-
harðan gert aðvart um allar til-
lögur hér að lútandi, sem Italir og
Frákkar leggja fram. Bæði Bretar
og Frakkar eru þeirwr skoðunar,
að ekld sé ástæða til þess að
kalla saman ráð Þjóðabandalags-
ins út af tillögum þeim, sem
ræddar hafa verið til þessa.
(United Press.)
ÞINGROFIÐ Á ENGLANDI.
Frh. af 1. síðu.
Ihaldsflokkarinn œtl-
cr að nota sér éfrið-
arhrœðslnna.
Þá lýsti Baldwin því yfir, fyr-
ir hönd stjómarinnar, að hún
mundi fara þess á leit í komandi
kosningum, að hervamir ríkis-
ins yrðu auknar, þó innan
þeirra vébanda, sem sáttmáh
Þjóðabandalagsins setur, og
með sameiginlegt alþjóða öryggi
fyrir augum. Kröfumar um
aukin framlög til hervama
bygðust því ekki á neinum eig-
ingjömum tilgangi, af hálfu
Bretlands. Hann kvaðst vilja
vara þjóðina við því, að friðin-
um fylgdi einnig áhætta, og
hann bætti við: „Eg mun ekki
fylgja þeirri stefnu, og eg vií
ekki,.bera ábyrgð á stjóm, sem
ekki er gefið nauðsynlegt vald
til þess að tryggja öryggi
þjóðarinnar og alþjóðaöryggi.
Mér hrýs hugur við, hvílík örlög
bíða Evrópu, ef hið alþjóðlega
öryggi bregst.“
Alþýðuflokkur-
inn óhræddur.
LONDON 23. okt. F.Ú.
Þingmenn Alþýðuflokksins
brezka, framkvæmdarráð
flokksins, og yfirstjóm verk-
lýðsfólagaaambandsins komn
Næturlæknir er í nótt Þórður
Þórðarson, Eiríksgötu 11. Sími
4655.
Næturvörður er í nótt í Reykja-
vikur- og Iðunnar-apóteld.
OTVARPIÐ:
19,10 Veðurfregnir.
15,00 Veðurfregnir.
19,20 Þingfréttir.
19,45 Fréttir.
20.15 Erindi: Nýjar bækur á
Norðurlandamálum, II (sira
Sigurður Einarsson).
20,40 Útvarpshljómsveitin (Þór.
Guðm.): Nordische Suite,
eftir Kjerulf.
21,05 Lesin dagskrá næstu viku.
21.15 Upplestur: Það er alveg
satt, eftir H. C. Andersen
(Bjarni Björnsson leikari).
21,30 Hljómplötur: a) Sönglög
við íslenzka texta; b) Danz-
lög.
Afnælisbitið Sjö-
manaalélaBsins i
oærkvðldi.
Afmælishátíð Sjómannafélags
Reykjavíkur i Iðnó í gærkveldi
fór hið bezta fram og var hin
skemtilegasta. Hófst hún með
borðhaldi kl. 8 og lauk með
danzi um kl. 2.
Sigurjón Á. Ólafsson bauð
gesti og félaga velkomna. Mint-
ist hann í tveimur ræðum, er
hann fluíti, allra félaga sinina,
frumherjanna, er stofnuðú félag-
ið og börðust fyrstu árin, félag-
anna, sem staðið hafa fastast
þaman í þeim deilum, er félagið
hefir átt í, félaganna, sem nú
eru úti á hafinu og kvenna sjó-
mannanna, sem oft hafa styikt fé-
lagið mikið.
Sigurjón las upp fjöldamörg
hedilaóskaskeyti, sem félaginu
höfðu borist. Meðan setið var að
borðum, fluttu ræður, auk Sigur-
jóns, Jón Baldvinsson, HaraWur
Guðmundsson, Jóníina Jónatans-
dóttir, Stefán Jóh. Stefánsson,
Jón Guðnason, Flosi Sigurðsson,
Elías Jónsson, Jóhann Sigmunds-
son, Eggert Brandsson og Jón
Sigurðsson. En Kjartan ólafsson
flutti minningarkvæði eftir öm
Arnarson um aldraðan sjðmann,
er fallið hafðí í fangbrögðum við
Ægi
Eftir að staðið var upp frá
borðum skemtu menn sér við
söng og danz. Þessi afmælishá-
ti|ð Sjómannafélagsins mun lengi
lifa í minningum þeirra, er hana
sóttu.
Einn af félögunum sendi Sjó-
mannafélaginu í gær fallega
veggmynd.
Húsgagnasveinadeilan.
Samningaumleitanir fóru í
gær fram milli fulltrúa hús-
gagnasveina og fulltrúa meist-
aranna, en þær báru engan. á-
rangur. — Samningatilraunir
halda áfram í dag.
fsfisks&la: frgm
Hafsteinn séldi í 'Grimsby 1 gær
800 vættir fyrir 1220 stpd.
saman á fund í dag í þinghús-
inu, og stýrði Attiee fundinum.
Á fundinum var samþykkt
ályktun þess efnis, að enda þótt
augljóst væri, að stjórnin hefði
í hyggju að nota sér augna-
bliks aðstæður, í því skyni, að
sigra í komandi kosningum,
væri Alþýðuflokkurinn ákveð-
inn í því, að flýja ekki af hólmi,
heldur taka upp harðvítuga
baráttu fyrir jafnaðarstefnunni
og friðarmálimum.
Morgunblaðið afneitar flokks-
bræðrum sínum í Danmörku og
Englandi.
Sfðafi í gær, að fréttimar bárust
af hinum mikla ósigri íhaldsflokk-
anna í Danmörku, þorir Morg-
tmblaðið ekki að kannast við
flokkabræður sína þar. Það kallar
dönsku ihaldsmennina 1 morgun
hinu útlenda nafni .jkonaervatív-
ir“, þó ýmist skrifað með
eða „c“, tii þess að villa þeim
lesendum sínum sýn, sem ekki
skyidu vita hvað þetta orð þýðir
á íslenzku. Það lítur út fyrir að
Morgunblaðið þori heldur ekki að
treysta framtið íhaldsflokksins í
Englandi. Þvi hefir I öllu falli í
dag þótt vissara að kalla hann
líjka „konservativan" í staðinn
fyrir „íhaldsflokk“.
NtJA BIO
kvlkmFBdadrottniogin
Gamansöm amerísk tal- og
söngvamynd.
Aðalhlutverkin leika:
Ann Sothern og
Edmond Lowe.
Áukamynd:
Leynilögregliunaðurinn
frá Sing Sing.
Spennandi og fjörug ame-
ísk leynilögreglumynd.i *;>o
Kaupið Alþýðublaðið!
>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>:
Alúðarpakkir flytjum við
öllum er sendu Sjómanna-
félagi Reykjavíkur árnað-
aróskir á tuttugu ára af-
mœli þess í gœr.
STJÓRNIN
Jarðarför mannsins míns,
yfirkennara Þorl. H. Bjarnason,
fer fram föstudaginn 25. þ. m., og hefst með húskveðju á heimili
okkar Tjarnargötu 18 kl. iy2 e. h.
Fyrir mína hönd og bamanna.
Sigrún Bjarnason.
Jarðarför
Ingibjargar Fjólu Markúsdóttur
frá Görðum fer fram föstudaginn 25. þ. m. og hefst með hús-
kveðju frá heimili hennar, Barónsstíg 12, kl. 10% árdegis.
Aðstandéndur.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS.
Endurnýjun til 9. flokks er hafin.
Dregið verður 11. nóvember.
500 vinningar — 103900 krónur.
Vinningar verða áfgreiddir daglega í skrifstofu
happdrættisins í Vonarstræti 4, kl. 2—3. Vinn-
ingsmiðar séu áritaðir af umboðsmörinum.
Um& ^sm mOémí, .gé, .frífMnn ®
Prentsmiðja Hafnarfjarðar
er tll sðln.
Prentsmiðjan er í gangi. Vélar og áhöld eru í góðu
ásigkomulagi. Góðir borgunarskilmálar. — Ödýrt hús-
næði, ef prentsmiðjan verður starfrækt i Hafnarfirði.
Tilvalið að reka prentsmiðjuna þar, í sambandi við
prentsmiðju í Reykjavík.
Allar upplýsingar gefur
BJARNI SNÆBJÖBNSSON,
læknir í Hafnarfirði.