Alþýðublaðið - 20.05.1936, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGINN 20. MAl 1936
ALÞYÐUBL2ÍÐIÐ
.......-..
Bálfarafélag Islaids hefir fengið
löð nndir bálstofnáSnnnnhvolstáni
Signrðar G&öanandssoii hAsaoieist*
ad hefíP pegar gert uppdrættrað
bálstofnmai.
A
ÐALFUNDUR Bálfarafé-
lags íslands var haldinn í
Kaupþingssalnum 15. maí og
var f jölsóttur. Fundarstjóri var
Sigurður Magnússon f. héraðsl.,
en ritari Jón Maríusson banka-
ritari.
Samkvæmt skýrslu formanns
hefir Bæjarráð Reykjavíkur
heitið félaginu ágætri lóð undir
bálstofu á Sunnuhvolstúni.
Stjórn félagsins fóí Sigurði
Guðmundssyni húsameistara að
gera uppdrætti að bálstofunni
og lágu þeir fyrir fundinum.
Stjórnin hafði samið við Eim-
skipfélag Islands um lækkun á
flutningsgjöldum fyrir kistur,
sem sendar eru til bálsetningar
ytra, og við „Dansk Ligbrænd-
ingsforening“ um alla af-
greiðslu á bálstofum í Kaup-
mannahöfn, án þess ao vanda-
menn þurfi að fara héðan.
Félagsmenn eru nú 530 og
hefir þeim fjölgað á s. 1. ári.
Ársreikningar voru lagðir
fram til samþyktar. Stjórn fé-
lagsins var endurkosin.
Dr. G. Claessen flutti erindi
um fyrirkomulag bálstofunnar,
samkvæmt nýju uppdráttunum,
er sýndir voru í skuggamynd-
um.
Bálstofan hefir kapellu, lík-
geymslu, rafmagnsofn, skrif-
stofu, prestsherbergi, íbúð fyrir
gæzlumann o. fl. Áætlað hús-
verð er 95 þús. kr., en ýmisleg
áhöld 20 þús. kr.
Einnig voru sýndar skugga-
myndir frá bálstofum og duft-
reitum erlendis.
Gjaldlteri félagsins, Björn
Ólafsson, stórkaupmaður, lýsti
þriggja ára áætlun stjórnarinn-
ar um fjársöfnun og bygging
bálstofunnar. Tilætlunin er að
safna helming stofnkostnaðar
með samskotum, en treysta því,
að ríkissjóður og bæjarsjóður
muni leggja fram helming. Bj.
ÓI. kvað stjórnina mundi leita
til manna um ákveðið framlag
í þrjú ár, (Tilk. frá Bálfarafél.
Islands. — FB).
Alvarlegt ástanð
I Færeyjum.
Vertíðin við Island
hefir brugðist.
KAUPM.HÖFN 17. maí. F.Ú.
Vegna þess, hve Færeyingar
eiga rnikið fé fyrir fisk frosið
inni á Spáni, og einnig vegna
þess, hve fiskveiðarnar á ver-
tíðinni við Isiand hafa brugðist
hrapallega, eru nú hin mestu
f járhagsvandræði og erfiðleikar
í Færeyjum. Var efnt til fund-
ar um þessi mál í Þórshöfn í
gær, að tilhlutun atvinnumála-
nefndar lögþingsins, amtmanns,
þingmanna, og að tilhlutun fé-
lagsskapar sjómanna og útgerð-
armanna.
Amtmaður skýrir svo frá, að
útgerðarmenn geti ekki greitt
fiskimönnum kaup sitt, nema
þeim komi einhver hjálp, en á
fiskveiðunum byggist öll fjár-
hagsafkoma Færeyja. Stauning
forsætisráðherra segir í sam-
bandi við þenna fund, að ríkis-
stjórninni sé fullljóst, hve al-
varlegt ástandið er, og að alt
skuli gert sem frekast sé unt,
til að hjálpa Færeyingum.
Norðnriandamót fp-
ir kenuarasbóla-
stjóra og landa-
fræðikennara.
I-sumar gengst Norræna fé-
lagið í Danmörku, í samráði við
hinar deildir félagsins, fyrir
móti kennaraskólastjóra á
Norðurlöndum. Öllum skóla-
stjórum við kennaraskólana er
boðið. Mót þetta verður haldið í
Hindsgavl-höllinni 2.—8. ágúst.
Á mótinu verða fluttir fyrir-
lestrar um ýms mikilsvarðandi
uppeldis- og skólamál. Á eftir
fyrirlestrunum verða umræður.
Meðal þeirra mentamanna, sem
flytja þar fyrirlestra eru dr.
phil. Ernst Kaper og J. Byskov
skólastjóri og fyrrum ráðherra.
Að mótinu loknu verður farið í
tveggja daga ferðalag um Suð-
ur-Jótland. Ýmsir merkir staðir
eins og t. d. Dybböl, Sönderborg
á Als, Ribe o. fl. verða heimsótt-
ir.
I Finnlandi verður mót fyrir
landafræðikennara og hefst í
Helsingfors 7. ágúst og stendur
til 19. s. m. Þar verða fluttir
fyrirlestrar um jarðmyndun
Finnlands, atvinnulíf og lifnað-
arhætti. Þá verður farið í
nokkurra daga ferðalag um
Suður-Finnland undir hand-
leiðslu landfræði-vísindamanna.
Meðal annars verður farið til
Sveaborg, Karelen, Imatra,
Vasa og Tammerfors. — Bæði
eru mót þessi hin merkilegustu.
Umsóknir um þátttöku í mót-
unum sendist ritara Norræna
félagsins Guðl. Rosinkranz Ás-
vallagötu 58 Reykjavík, fyrir
15. júní.
Krönuvelta
„Hringsins"
í Hafnarfirði.
Jónína Sigurðardóttir:
Prú Mörtu Eiríksd., Hverfisg. 46.
Frú Sigríði Magnúsd., Hverfisg. 46.
Frú Huldu Hansd., Hverfisg. 38.
Jakobína Mathiesen:
Guðfinnu Mathiesen, Strandg. 4.
Soffíu Mathiesen, Strandg. 4.
Emu Mathiesen, Suðurg. 23.
Guðfinna Mathiesen:
Amfríði G. Mathiesen, Austurg. 30.
Sólveigu Ásgeirsd., Brekkug. 24.
Þórunni Beinteinsd., Hverfisg. 11.
Jón Gestur Vigfússon:
Steinunni I. Jónsd., Templaras. 3
Sveinbjöm Magnúss., Skuld.
Stefaníu Magnúsd., Suðurg. 13.
Þorbj. Eyjólfsson:
Benedikt Jónss., Austurg.
Ingvar Guðmundss., Strandg.
Jón S. Jónss., Selvogsg.
Gunnlaugur Kristmundsson:
Pétur Indland, afgreiðslum.
Ingólf Stefánsson, múrara.
Ingva Jónss., Brekkug. 18.
Adolf Björnsson:
Jón Jónsson, bókara.
Friðjón Guðlaugsson, vélstj.
Ásgrím Sveinss., klæðskera.
Gyða Björnsdóttir:
Björn Helgason.
Garðar S. Gíslason.
Jóhannes Sigfússon.
Garðar Þorsteinsson:
Dagbjart Jónsson, cand. theol.
Þorstein Björnsson, stud. theol.
Guðmund Helgason, stud. theol.
Lárus Sigurðsson:
Teit Magnússon, Krosseyrarveg 6.
Sigurð Jóhannesson, Gunnarssundi 4.
Guðm. Þ. Magnússon:
Þórodd E. Jónsson, stórkaupm., Rvík.
Sigurð H. Guðmundss., verzlunarm.
Spítalastíg 6, Rvík.
Jón Bjarnason, kaupm., Bragag. 31.
Rvík.
Ólafur Böðvarsson, Hábæ:
Bior Westerlund, vélfræðingur.
Andrés Jóhannsson, rakara.
Ólaf Björnsson, bílstj.
Óiafía Jónsdóttir, verzlunarst.:
Frú Margréti Guðlaugsd. Njálsg. 5,
Rvík.
Frk. Jónínu Eggertsdóttir, Hverfisg.
4, Hafnarfirði.
Frk. Mariu Ólafsdóttir, Hábæ.
Frú Sigríður B. Árnadóttir:
Frú Ástu Norðmann, Laufásv., Rvík.
Frk. Guðlaugu Þorsteinsd., Klappar-
stíg, Rvik.
Frk. Svanfríði Jóhannsdóttir, Hf.
Elías Halldórsson, verkstj.:
Frk. Dagný Einarsd., Strandg. 25.
Frú Guðrúnu Halldórsd., Hverfisg.34
Frk. Vilborgu Helgad., Hverfisg. 21.
er komið!
lreggfóörarlnn hX
Kolasnndi 1.
Simi 4484.
Sild óskast tíl kanps
á Siglufirði í sumar af 2—3 skipum og til söltunar af 1—2 skipum.
Upplýsingar í síma 9210 eftir kl. 714.
Hvitabandið
heldur bazar, föstudaginn 22. þ. m. í Góðtemplarahúsinu kl. 4 e. h.
NB. Félagskonur og aðrir velunnarar, eru vinsamlega beðn-
ir að koma munum í Góðtemplarahúsið, ekki seinna en kl. 2 sama
dag.
Stjórnin.
Beztu Cigaretturnar
í 20 stk. pökkum
á kr. 1,25 eru
GOMMAHDEB
WESTMINSTEK
Virginia
CIGARETTUR
Búnar til hjá
Westminster Tobacco Compans Ltd.
London.
er þjóðfrægt fyrir gæði.
Geri við saumavélar, alskonar
heimilisvélar og skrár. H. Sand-
holt. Klapparstíg 11. Sími 2635.
Sumardvöl fæst á góðu
sveitaheimili, í grend við
Reykjavík, fyrir 1—2 börn, 4
ára eða eldri. Tilboð merkt:
,,Sumardvöl“, sendist Alþýðu-
blaðinu.
Seljum kvenfrakka. Verð frá
50—85 kr. Guðm. Guðmundsson
dömuklæðskeri, Bankastræti 7
(yfir Hljóðfærahúsinu).
r".... —
Uliarprjónatuskur, aluminium,
kopar og blý keypt hæsta verði
gegn peningum, en ekki vörum.
Vesturgötu 22. Sími 3565.
11. ........- ....-....-.... 1 ..ii
Munið 1 krónu máltíðirnar í
Heitt & Kalt.
*
♦
9
V
V
V
V
V
V
V
Heilsan er fyrir öllu.
Hafið þetta hugfast, og hitt, að heilsufræðingar telja
MJÖLK, SKYR og OSTA með hollustu fæðutegundum,
sem völ er á.
Notið því nú þegar
meiri MJÖLK — meira SKYR — meiri OSTA
W
V
v
V
V
V
V
V
V
V
V
V
»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»
íþróttasýningar Ármanns.
Síðastliðinn sunnudag fóru
íþróttaflokkar frá Glímufél.
Ármann í sýningarför austur í
Árnessýslu. Tveir firnleika-
flokkar, 1. flokkur kvenna, 14
stúlkur og 1. flokkur karla, 13
piltar sýndu fimleika, undir
stjórn Jóns Þorsteinssonar, og
einnig sýndu f jórir menn hnefa-
leika. Sýningar fóru fram á
Stokkseyri og Tryggvaskála við
húsfylli á báðum stöðum, og
nutu allir flokkarnir óskiftrar
aðdáunar áhorfenda.
Nýja Bíó
sýnir myndina ,,Ég elska alt
kvenfólk“ um þessar mundir
Aðalhlutverkið leikur hinn á-
gæti söngvari Jan Kiepura. —
Leikur hann tvær persónur og
syngur duett við sjálfan sig.
Syngur hann m. a. lög úr óper-
ettunum ,,Rigoletto“ og
,,Martha“.
E. PHBLIPS OPPENHEIM:
í spilavítinu.
41
„Þér eruð víst Englendingur; er það ekki?“ spurði
hún.
„Jú; ég er það,“ svaraði hann. „Er það rétt til getið,
að þér séuð Ameríkani?“
„Já, alveg rétt,“ svaraði hún. „Við erum nýkomin í
Iand. Við erum ekki farin að átta okkur á neinu hér
en'n þá. Mig langar til að fara með pabba og mömunu í
spilahöllina. Hvað þurfum við að gera til þess að geta
komist þangað?“
„Hafið þið vegabréf?“ spurði hann.
„Já, það er hérna,“ svaraði hún og benti á tösku
sína. „Vandkvæðin eru, að pabbi og mamma halda að
ég kunini heilmikið í frönsku, sem er nú reyndar ekki.
Ég get ekki einu sinni lesið athugasemdirnar."
Róbert athugaði þau vandlega. Faðirinn og móðirin
tilheyrðu bersýnilega velmegandi stéttunum, þau voru
glaðleg útlits, en talsvert ónóg sjálfum sér í þessu
nýja umhveríi. Maðurinn var langleitur, velrakaður
með há kinnbein. Svipurinn bar vott um hygni. Útlit
konunnar var eins og gengur og gerist — en hún var
glaðleg. Dóttirin varð að teljast aðlaðandi — hár henn-
ar var fagurlega kembt og skraytt og í augunum ást-
leitnisglampi.
„Ef þið viljiðý sagði Róbert, „þá skal ég fara með
ykkur og hjálpa ykkur. Hve lengi ætlið þið að dvelja
hérna?“
„Við ætlum að vera hér í mánuð 0g mujnum búa í
Hotiel de Paris. Yður er það víst ekkert á móti skapi?“
„Nei, ég held nú ekki,“ svaraði hann.
Hún hvíslaði einhverjú að pabba sínum og mömmu.
Því næst sinéri hún sér áftur að Róbert.
„Mig langar til að kynna yður fyrir foreldrum mín-
um,“ mælti hún, „hvað heitið þér?“
„Róbert Martin.“
„Mamma, þetta er Róbert Martin. Gerið svo vel að
taka einnig í hönd föður rnins. Hr. Róbert Martiti —
Daniel Wegges og frú. Ég heiti Sadie Weggcs. Hr. Mar-
tin ætlar að fana með okkur og aðstoða okkur við að
jná(í aðgöingumiðia."
„Það er mjög fallega gert af yður, ungi maður,“
sagði hr. Wegges. „Við höfum aldrei komið hingað
fyrri, og ég held að Sadie sé ekki eins góð í frönsk-
unni og við hugðum hana vera. Ég er hér með vini
mínum, sem er kuinnugur hér, en fyrsta morguninn er
han'n mjög önnum kafinn.‘“
„Þér fylgist þá með okkur,“ mælti ungfrú Sadie og
tók undir hönd Róberts. „Hve lengi búist þér við að
vera hérna, hr. Martin."
„Sem stendur get ég ekki sagt um það,“ svaraði
hann dapurlega. Hann vissi lítið hvað sín myndi bíða,
eins og málunum nú var háttað. „Ég vonast eftir að
dvelja hér a. m. k. í viku ennþá.“
„Staðurinn virðist vera, eins skemtilegur og ég gerði
mér hanm í hugarlund,“ sagði hún og kastaði frá sér
sigarettunni. „Ég er því svo fegin að vera laus við
sjóferðalagið. Á skipinu voru uingu mennirnir leiðin-
legir og maturinn afleitur. Búið þér í Hotel de Paris?“
„Nei, ég bý í villu,“ sagði hann, „hún er þarna í
þessari átt.“
Það tók nokkurn tíma að ná í aðgöngumiðana. Að
því búnu buðu þau Róhert til morgunverðar, en sér til
mikillar gremju gat hann ekki þegið það. En hann
félst á að borða með þeim miðdegisverð.
„Klukkan 8 í Hotiel de Paris," sagði Sadie um leið og
hún kvaddi hann. „Við munum taka á móti yður í ajnd-
dyrinu. Á eftir farið þér ef til vill, ef þér eigið ekki
sérstaklega annríkt, með mér á einhvern stað, þar sem
danzað er.“
Róoert lagði nú leið síraa heim til villunnar, fullur
kvíða og angurs, þegar hann hugsaði um viðburði næt-
urinhar. Hann var að ganga upp tröppurraar í sama bili
og Hargiave og Violet komu frá tennisleiknum.
Violet veifaði hendinni og flýtti sér inn.
Hargrave kinkaði kolli og bauð „góðan dag“.
„Komið héma, Miartin," sagði hann. „Ég þarf að tala
nokkur orð við yður.“
Róbert hlýddi og fylgdist með honum inn í minni
salinn.
Jafnskjótt og hurðin hiafði lokast á eftir þeim, kom
Hargrave unga manninum til hjálpar í eymd hans.
„Ungi maður,“ siagði hann, um leið og hann helti
kocktail í glasið sitt og rétti Róbert aranað. „Þér voruð
drukkinn í gærkveldi og hegðuðuð yður ósæmilega.“
„Ég veit það, herra,“ svaraði Róbert.
„Hvað þau brögð sraertir, er þið Violet hefið beitt
mig, er það að segja, að sættir hafa tekist með mér
og hen'ni, og við höfum komið iokkur samian um að
láta það vera gleymt. Þér getið verið hér áfram, ef
þér kæriö yður um, og mun heppilegast að láta fólk
standa áfram í þieirri trú, að þið séuð systkini. En
þér verðið að uppfyllia nokkur skilyrði."
Róbiert hlustaði ákiaft og varð nú ólíkt hughægra.
Það skilyrði var víst varla til, sem haran ekki hefði
viljað undirgaragast á þeirri stundu.
„Þér hafið ekki eins mikið gagn af veru yðar hér og
ákjósanlegt væri,“ hélt Hargrave áfram. „Ég kem iraeð
þá tillögu, að þér farið ekki í spilahöllina fyr en
eftir kl. 4. Eins og þér vitið er alt af bifreið til taks
fyrir yður, og þótt Violet muni lítiran tíma hafa til
ferðalaga með yður, mun yður veitiast létt að finna fé-
laga. Þér verðið að muna eftir þvi, aö heilsan er
mikils virði, einkum á yðar aldri. Skemtið yður — en
gætið ávalt hófsemi. Hiafið nóga hreyfiragu — umfram
alt. Við skulum sjá um, að þér getið tekið þátt i
tennis, og þér skuluð verða meðlimur golf-klúbbsins.
Ég vieit að þessi staður stígur ökunnugum til höfuðs.
Ég gleymi því ekki, og um fortíðina skulum við ekki
framiar tala. Reynið að hafa sem rraest gagn af tím-
anum, sem þér eigið eftir hérraa. Enn fremur vil ég