Alþýðublaðið - 28.10.1936, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGINN 28. okt. 1936.
oaooa: eio ■
Uppreisnin
á „Bounty“.
Stórkostleg og spennandi
sjómánnamýnd byggð á
sönnum viðburðum.
Aðalhlutverkin leika fræg-
ustu leikarar heimsins
CLARK GABLE og CHARL-
ES LAUGTON.
Börn innan 14 ára fá ekki
aðgang.
NORRÆNÍ DAGURINN
Frh. af 1. síðu.
það hefði sannast við undanfamar
kosningar á Norðurlöndmn, að
þjóðirnar þola ekki íhaidsflokkun-
um. neitt daður við náziamann.
En „þeim verður að svíða, sem
undir míga!“
5Ö ára afmæli.
Símon Símoniarson, Sogabletti
20, verður fimiugur á miorgun.
Símon hefir verið hér í bænum í
32 ár og er einn af stofnendum
Dagisbrúnar.
„ReibniDgsskir
Sýnliig á morgnn
kl. 8 e. Ix.
BENEFICE
fyrir
frú Soffíu Guðlaugsdóttur,
í. tilefni af 20 ára leikafmæli.
Aðgöngumiðar seidir frá kl. 4—7
í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Súni 3191.
Á sunnudaginn var töpuðust
gleraugu á leiðinni frá Sólvöll-
um og inn Hverfisgötu. A. v. á.
TAKIÐ EFTIR ! Efnalaugin
Iindin, Frakikastíg 16, sími 2256,
er ódýrasta lefnalaugin í bæn-
um.
Kápnbúðln,
Lnugaveg 35.
Taubútasala í nokkra
daga. Tilvaldir í dreng-
jafrakka og telpukápur.
Signrönr O&ömnndsson.
Géða ibúð
vantar mig nú pegar, eða frá 1. desember
Á VIGSTÖÐVUNUM VIÐ
MADRID
Frh. af 3. síðu.
steypa Alfons konungi af stóli
— að stöðva þá byltingu, sem
berst fyrir framförum, almenn-
um mannréttindum og útrýmingu
fátæktarinnar. Þegar ég fór burtu
frá Spani It. 16. apríl í vor, skrif-
aði ég eftirfarandi orð: „íhalds-
fiokkarnir eru beygðir af kosn-
ingaósigrinum og óttast framtíð-
ina. Eina. von þeirra er uppreisn
annaðhvórt með hjálp hersins eða
þjóðvarðarliðsins, eða ef til vill
með hjálp þeirra beggja. Sú von
sýnir bezt, hve gersamlega ráða-
lausir og úrræðalausir þeir eru.“
’ Ég átti við það, hve úrræða-
lausir þeir væru í öllum stjórnar-
farsLegum og félagslegum mál-
efnum. Þeir vissu, að það var
ekki til neins fyrir þá, að skjóta
máli sínu til þjóðarinnar. Þess-
vegna var herforingjauppreisnin
þeirra eina von, og málaliðsmenn
irnir frá Marokkó og fasistísku
flugmennirnir frá Italíu og Þýzka
landi þeirra eina hjálp.
Nítján af hverjum tuttugu her-
foringjum spánska hersins tóku
þátt í uppreisninni, sem brauzt
út þ. 17. júlí í sumar, og með
þeim yfirgnæfandi meiri hluti
hersins. Þetta er mergurinn máls-
ins á Spáni í dag. Stjórnin hefir
engan her. í virkilegu iðnaðar-
landi hefði verkalýðnum ef til
vill tekist að lama herinn með
ailsherjarverkfalli. En á Spáni
hafa járnbrautirnar ekki ýkjamikla
þýðingu, og í þeim héruðum, sem
uppreisnarmenn liafa náð á sitt
vald, halda þeir fólkinu niðri með
blóðugri ógnarstjórn. Þannig hef-
ir hemum tekist að ráða úrslit-
um — að minsta kosti til að
byrja með.
Hinar mörgu miljónir óbreyttra
alþýðumanna á Spáni eru trygg-
ir fylgismexm stjómarinnar á
móti fasismanum. En að undan-
skildum fáeinum „stormsveitum“
og lögregluþjónum úr þjóðvarð-
arliðinu svonefnda er stjórnar-
herinn að eins skipaður sjálf-
boðaliðum, óæfðum í vopna-
burði, óreyndum, illa þjálfuðum
og forystulitlum. Þeir gugna í
stórskotahríð fjandmannanna. Þ.
24. september var ég sjónarvott-
ur að einu áhlaupi stjórnarhers-
ins á Alcazarkastalann í Toledo.
Eg beið þess í garði sjúkrahúss-
ins í Santa Cruz, að áhlaupið
byrjaði. Á einnar mínútu fresti
fóru fallbyssukúlurnar hvæsandi
yfir garðinn í áttina til Alcazar
og sprungu í kastalanum. Þær
áttu að undirbúa áhlaupið. Við '
dyrnar á Santa Cruz stóð sextíu j
smálesta skriðdreki, vopnaður
þremur vélbyssum og einni fall-
byssu. Hann átti að ryðja sér
braut yfir rústirnat inn í kastal-
ann. Bílstjórinn, sem stýröi hon-
úm, sagði mér, að hann myndi
fara af stað klukkan fimm.
(Frh.)
Jónas ClaðniUDdSSOn, alginglsmeoif
Hótel fisland.
SPÁNN
Frh. af 1. síðu.
un, að öll iðniaðar- og verzlunar-
fyrirtæki í gervallri Katalóníu
hafi verið gerð að sameignar-
fyrirtækjum. Fyrirtækjúnum verð-
ur stjórnað af verkamannaráð-
um. (United Prless.)
Uppreisnarmenn
eiga í vök að verjast
við Navalcarnero.
LONDON, 27. okt. FÚ.
Nálægt Navalcarnero varð í
gær bardagi milli uppreisnar-
nianna og stjórnarsveita þeirra,
er voru hraktar þaðan á dögun-
um. Stjórnarliðið gerði árás á
uppreisnarmenn.
Um þessa viðureign segir í
skeyti frá Madrid, að her stjórn-
arinnar hafi sótt fram í tvennu
lagi, og hafi honum tekist að
hrekja uppreisnarmenn tvær míl-
ur á bak aftur. Hafi annar hluti
hersins komist innan 1 1/2 km.
frá Navalcamero, en hinn hafi
sótt fram á hlið við her upp-
réisnarmanna og hafi komist að
baki þeim, og sé nú tæplega 200
metra fyrir utan bæinn. Segir
stjórnin, að bardaginn hafi staðið
meiri hluta dagsins í gær.
Uppreisnarmenn segja aftur á
möti þannig frá, að stjómarher-
inn hafi gert árás á lið þeirra, og
um tveggja stunda skeið hafi litið
út fyrir að hann ætlaði að hafa
þetur. En að lokum hafi uppreism
armönnum tekist að hrinda árás-
inni. Segja uppreisnarmenn, að
annar hluti hers stjómarinnar
hafi sótt fram á hlið við. her
uppreisnamiaima, og hafi honum
næstum því tekist að komast á
bak við Navalcarnero, þ. e. vest-
ur fyrir bæinn.
Uppreisnarmenn segjast nú
vera komnir yfirum Jaranafljót,
en það er smáfljót, sem kemur
að norðan, austanvert við Madrid
jog rennur í Tajofljótið. Hafa þeir
með þessu móti, að því er þeir
segja sjálfir, náð á vald sitt ekki
einungis járnbrautinni frá Madrid
og suður tíl Valencia, heldur
einnig akvegimun, og er borgin
þá algerlega einangmð.
Jafnaðarmannafélag íslands
heldur skemtifund í kvöld í
Iðnó, með kaffidrykkju, söng,
musik, ræðuhöldum og upplestri.
Alt Alþýðuflokksfólk velkomið.
Sjómamtaféiag Reykjavíkur
heldur fund í kvöld ki. 8V2 í
Iðnó niðri. Til umræðu verða ör-
yggismál, ísfiskveiðarnar og tog-
ararnir og ýms félagsimál. Fast-
lega skorað á alla félaga að
mæta.
Söngæfing
hjá kór verkakvennafélagsins
Framsókln í Ikvöld 'kl. 8 í Alþýðu-
húsinu, efstu hæð. Eim þá geta
nokkrar stúlkur komist að.
Leikfélag Reykjavikur
sýnir annað kvöld leikritið
„Reikningsskil" eftir Carl Gand-
rup. Verður þessi sýning til á-
góÖa fyrir Soffíu Guðlaugsdóttur.
Ven julega til viðtals frá kl. 12—1 og 7—8 í síma 2580sem þá á 20 ára íeikafmæli.
i DAG.
Næturlæknir er í nótt Kristján
Grímsson, Þingholtsstræti 24, sími
4233.
Næturvörður er í nóitt í Lauga-
vegs- og Ingólfs-apóteki.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 1 stig.
Yfirlit: Djúp lægð við Suður-
Grænland á hreyfingu norðaust-
ur. Útlit: Hvass suðaustan, þeg-
ar líður á daginn, með slyddu og
síðan rigningu.
15,00
19,10
19,20
19,30
20,00
20,30
20.55
21,25
21,35
21.55
ÚTVARPIÐ:
Veðurfregnir.
Veðurfregnir.
Hljómplötur: Létt lög.
Erindi: Um fóðurrannsókn-
ir, III (Þórir Guðmundsson
landbúnaðarkandídat).
Fréttir.
Erindi: Frá Vatnajökli, II
(Jón Eyþórsson veðurfr.).
Tríó Tónlistarskólans leik-
ur.
Húsmæðratími.
Útvarpssagan.
Hljómplötur: Endurtekin
lög (til kl. 22,30).
ísfisksölur.
1 fyrra dag seldi Júnj í Weser-
mundi 91 tonn og 100 kg. fyrir
20 800 ríkismörk. 1 gær seldi
Hannes ráðherra í Wesermunde
122 tonn og 340 kg. fyrir 32 840
ríkismörk. Otur í Cuxhaven 50
tonn og 750 kg. fyrir 11 700 ri’.ris-
mörk, Hafsteinn í GrknSby 113-10
vætitr fyrir 1470 sterlingspund og
Kaírlsefni í Grimsby 1068 vættir
fyrir 1955 sterlingspund.
Athygli
le&enda blaðsins er liér með
vaikin á auglýsingu bæjargjald-
kera um hækkun dráttarvaxta á
nýjum og gömlum útsvörum.
Æskan,
októberheftið er nýkomið út og
hefst á grein um Olympíuleikana.
Þá er framhaldssaga: Góð börn,
eftir E. Nesbit, Brunnklukkan,
eftir Aðalstein Sigmundsson, Is-
land í alþjóðaleið, eftir G. G.
Vilhjálmur Stefánsson, eftir G. G.
Barnlausu hjónin eftir Tryggva
Bjamason frá Goðdal o. m. fl.
I gær
var dregið hjá lögmanni í
happdrætti þvi, er haft var í sam-
bandi viÖ hlutaveltu Karlakórs
Reykjavíkur s. I. sunnudag, og
komu upp eftirtöld núrner: 3021,
málverk, „Eiriksjökull og Strút-
ur“, 2070, peningar, 100 kr., 3448,
farseðill til Isafjarðar, 1519, pen-
ingar, 50 kr., 751, málverk, „Frá
Þórsmörk“, 3401, V2 tonn kol,
1871, peningar, 25 kr. — Þeir,
sem hlotið hafa vinningana, eru
beðnir að vitja þeirra til for-
manns kórsins, Sveins G. Bjöms-
sonar, c/o pósthúsið.
Jafnaðarmannafélag Isllands
heldur skemtifund í kvöid kl.
8V2 í ialþýðuhúsinu Iðnó. Erlend-
ur Vilhjálmsson flytur erindi um
störf verkalýðs- og jafnaðar-
mjannafélaga í Noregi, Pétur Pét-
ursson les upp. Á eftir verður
kaffidrýkkja, söngur og músík.
Allir Alþýðuflokksínenn eru vel-
komnir.
Höfnin.
Max Pemberton kom af veiðum
í gærdag og fór aftur í gær,
Skeljungur fór til isafjarðar í gæt
mðe olíu, Dania fór í gær, gas-
köksskipið Marar komj í gær með
gaskol til Gasstöðvarinnar. Geir
fór á veiðar í gær. Reykjatorgin
fór í ga*rkveldi á veiðar, Sindri
kom í nótt frá útlöndum, belg-
iskur togari, sem var hér, fór í
gær.
Hjóna&fni.
Laugardaginn 24. þ. m. opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Sig-
rún Guðmundsdóttir, starfstúlka
við símann á Landakoti, og Elís
Hallgrímsson sjómaður, nú til
heimilis á Bröttugötu 5 hér í bæ.
Piltur drukknar.
Síðastliðið sunnudagskvöld
kastaði unglingsmaður, Hermann
Jónsson að nafni, sér í sjóinn út
af bryggjunni í Norðfirði, og
tókst ekki að bjarga honum frá
drukiknun. Líkið fanst í gærmorg-
un. (FÚ.)
mm ma
filep mér ei.
STÓRFENGLEG ÞYZK
SÖNGVAMYND.
Aðalhlutverkið leikur og
Byngur frægasti tenorsöngv-
ari sem nú er uppK í heimin-
um.
Qenjámiii~ Oígll.
Aðrir leikarar eru:
Magda Schneider,
Siegf. Schurenberg
og litli drengurinn
Peter Rosse.
Gijgli syngur í myndinnj hi6
undur fagra lag: „Gieym
mér ei“ og ariur úr ópemm-
um
Rigoletto, Carmen.
Martha, Aida, Mignon,
Lohengrin, Tannha;u»er
o. fl.
Ctbreiðið Alþýðublaðið!
Minn hjartkæri elginmaður, faðir og tengdafaðir,
Jón Jónsson frá Gróf,
andaðist í fyrrinótt að heimili stnu, öldugötu 4, Hafnarflrði.
Guðfinna Einarsdóttir, börn og tengdabörn.
Hjartans þakklæti tll allra er sýnt hafa samúð og hluttekningu
við fráfall og jarðarför
Viktoríu Lilju Friðriksdóttur.
Þorsteinn SÖlvason og börn.
Sjómannafélag Reykjavíkur
heldur fund i IÐNÓ (niðri) í kvöld, 28. þ. m. kl. 81/* siðdegis. ,
Fundarefni:
1. Félagsmál.
2. ísfiskveiðarnar og togararnir.
3. Skipastöðvun og öryggi skipanna.
4. Önnur m&I.
Fundurinn aðeins fyrir félagsmenn er sýni skirtelni við
nnganginn. Stjórnin.
Kauplð
hlna ný|n bók
Dalafðlk
Dráttarvextir
falla á fjórða útsvarshlutann
um þessi mánaðamót. — Á sama
tima hækka dráttarvextir á eldri
útsvðrum og útsvarshlutum.
Bæjargjaldkeri Reykjavíkur.
Hornafjarðarkartðflnr, nýkomnar,
Drifandi Laugavegi 63, sími 2393.
kg.
Molasyknr 27'i> eyr.,j Strausykur 22‘> eyr. ’
gr- KartðflnmJSl 22 , eyr. % kg. -Ol
Verzlaa Alþýðnbraaðgerðarinmar, fcrtHHÉiitU—i Sfml 3507.