Helgarpósturinn - 17.08.1979, Blaðsíða 1
SKflPAR
PÍPAN
MANNINN?
j
i
\
1
}
)
i
I
í
KRÖGGUR KHOMEINIS
„Stjórnkerfi Irans er þvi I
molum eftir byltinguna. Herinn
leystist að nokkru leyti upp,
þegar fjöldi óbreyttra her-
manna strauk úr herþjónustu,
og togstreita rikir milli land-
varnaráðuneytisins i Teheran
og byltingarráðsins i Qom um
hvorir skuli ráða yfir þeim her-
sveitum sem einhvers eru
megnugar. Atvinnulif er i rúst,
þegar frá er talinn oliu-
iðnaðurinn, þar sem utanrikis-
verslun er að mestu stöðvuð,
nema innflutningur á mat-
vælum og útflutningur á oliu.
Atvinnuleysingjar skipta mill -
jónum, en greiðsla atvinnu-
leysisbóta hefur reynst ófram-
kvæmanleg vegna lömunar
stjórnkerfisins”.
Þetta segir Magnús Torfi
Ólafssonm.a. i erlendri Yfirsýn
Helgarpóstsins i dag, þar sem
hann fjallar um þann mikla
vanda og þá sundrungu sem
Khomeini ferkiklerkur og aðrir
valdaaðilar i Iran standa nú
frammi fyrir, m.a.
i kjölfarstjórnlaga-
þingkosninganna.
Ársafmæli vinstri Reykjavíkur
Fyrstaár vinstri meirihlutans
við stjórn Reykjavikur er tekið
til meðferðar i innlendriYfirsýn
i Helgarpóstinum i dag. Þar
kemur meðal annars fram að á
skipuriti um stjórnkerfi
Reykjavikur eru 113 nefndir,
ráð,stjórnir, skrifstofur og
stofnanir. Þar við bætast um 30
pólitiskar nefndir og ráð.
Þetta er mikið bákn, oe oft
þungt I vöfum. t innlendriYfir-
sýn er lagt til að borgurunum
verði gefin fleiri og betri tæki-
færi tíl að kynnast i raun
þessum frumskógi, og bent á að
nær hefði verið að nota„Reykja-
vikurvikuna’* sem stendur yfir
til þess, heldur en að sýna þrjár
af stofnunum.
HERLENDIS INNAN TIÐAR?
Margt bendir til þess að svo-
kallaður „sæðisbanki” verði sett-
ur á laggirnar hérlendis innan
tiðar. Munu nú nokkrar íslenskar
konur hafa fengið vilyrði lækna
hérá landi fyrir þvi, að þær gedd
fengið egg sin frjóvguð með sæðí
úr slikum „bönkum”. Sæðið
myndi væntanlega koma frá Dan-
mörku.
Helgarpósturinn hefur fengið
vitneskju um, að nokkrar Islensk-
ar konur hafi á undanförnum
árum fengið meðhöndlun sem
þe ssa — þá erlendis, en nú er sem
sé stefnt að þvi að öll framkvæmd
slikrar meðferðar fari fram hér-
lendis. Frjóvgunin verður i lik-
ama konunnar, en ekki utan, og
er þvi ekki um hina svokölluðu
„tilraunaglasaf r jóvgun ” að
ræða.
Nokkur tregða mun hjá heil-
brigðisyfirvöldum i þessu máli og
vilja ýmsir aðilar flýta sér hægt.
Aðrir telja hins vegar sjálfsagt að
þjónusta sem þessi sé fyrir hendi
hér á landi, eins og i nágranna-
löndum okkar.
Erlendis hafa „sæöisbankar”
veriö fyrir hendi um nokkurra
ára skeið. Er þá um að ræða, að
frjóir og heilbrigðir karlmenn að
öllu leyti, gefi sæði sitt til þessara
stofnana. Konur sem eiga erfitt
með að verðabarnshafandi annað-
hvort vegna þess að maki þeirra
er ófrjór eða af öðrum ástæðum,
geta þá fengið sæði úr þessum
„bönkum” og látið frjóvga egg
sin.
Þá er einnig reynt að láta
sæðisgjafa likjast sem mest þeim
sem verður faðir barnsins.
Aðgerð þessi er ekki eins einföld
og ef til vill litur út fyrir. Hér er á
ferðinni viðkvæmt mál fyrir hlut-
aðeigandi aðila og er fyllstu þag-
mælsku heitið, auk þess sem
aldrei er gefið upp nafn sæðis-
gjafa. Einnig þarf að meðhöndla
aðila á læknisfræðilegan hátt,
bæði hvað varðar likamlegt og
sálarlegt ástand.
Jón Ingimarsson skrifstofu-
stjóri hjá heilbrigðisráðuneytinu
sagði það ekki fyrirætlun yfir-
valda að þessi þjónusta yrði veitt
hér heima að öllu leyti. Aðeins
væri um það að ræða, að konur
sem hygðust fá frjóvgun með
þessum hætti, yrðu rannsakaðar
af islenskum læknum, en myndu
siðan fara erlendis til aðgerðar-
innar.
Læknar og yfirmenn kvenna-
deildar (fæðingardeildar) Land-
spítalans vildu sem minnst tjá sig
um málið og sögðu það á erfiðu
stigi. Þetta væri viðkvæmt mál
hjá hlutaðeigandi aðilum, sér-
staklega i litlu þjóðfélagi. Þá
þyrfti ákveðin leyfi hjá yfir-
völdum áður en starfsemin færi i
gang og þau leyfi væru enn ekki
fengin.
Helgarpósturinn hefur það eftir
áreiöanlegum heimildum, m.a.
frá konum sem hafa óskaö þess-
arar aðgerðar, aðallt bendi til að
þessi sjálfsagða læknisþjónusta
muni verða aö raunveruleika á
Islandi innan fárra mánaða.