Helgarpósturinn - 17.08.1979, Page 6
6
Föstudagur 17. ágúst 1979
—helgarpústurinrL.
„Borgarfrumskógi
lýsa götutungl”
..Blika samt lengi, líkt og sól i
heiöi. / ljós þin um biíðar-
glugga, fulla af vörum...” kveö-
ur Tómas Guðmundsson um
Ijósin i Austurstræti.
Ljósastaurar og önnur götu-
lýsing eru orðnir svo sjálfsagðir
hlutir i ndtima borgum, að
inenn eru hættir að taka eftir
þcim . Stundum komast menn þó
illilega að þvi, aö þeir eru til.
Sumir verða fyrir þvi aö vefja
ökutækjum sínum utan um þá,
aðrir fá kúlu á cnnið þegar þeir
horfa á eftir fallegri stúlku, og
gæta ekki að sér. Þá gerist það,
að öll Ijós á þeim slokkna upp úr
þurru, og mannfólkið verður
hjálparvana eins og blindir
kettlingar.
Ljósastaurar eru llka hin
ákjósanlegustu skotmörk fyrir
strákana i hverfinu, á köldum
vetrarkvöldum. Hver hefur ekki
hnoöað snjóbolta eftir snjóbolta
til þess aö reyna aö stúta per-
unni i staurnum uppi á horni?
Og hlaupið i felur lafhræddur ef
einhverjum tókst það? Eöa þá
menn reyndu bara að hitta
staurinn. Þaö geröum við, en
strákarnir hinum megin viö
Miklubrautina voru svoddan
villingar, aö þeir voru alltaf aö
stúta perum.
Svo venjuleg sem götulýsing
er nú oröin, þá varekki kveikt á
fyrsta götuljóskerinu i Reykja-
vik nema fyrir rétt rúmum eitt
hundrað árum, eða þann 2. sept-
ember 1876. Þetta fyrsta ljósker
var staðsett viöBakarabrúna og
þótti það auka virðuleikabrag
bæjarins. Reykjavikhaföi stigiö
stórt skref i borgarátt.
Götuljóskerunum fjölgaöi
smátt og smátt. Voru það Bak-
arabrekkan og nærliggjandi
götur, sem fyrstar fengu sin
ker.
Það varsteinolia, sem logaði i
þeim. Akveðnir menn i bænum,
svo sem næturverðir, höfðu
þann starfa að kveikja og
slökkva á luktunum.
Steinoliuljóskerin lifðu hér til
ársins 1910, eða þar til Gasstöð-
in tók til starfa. Gasluktirnar
leystu þá steinoliuljóskerin
smám saman af hólmi, enda
mun betri að öllu leyti.
Fyrst i stað munu það hafa
verið ákveðnir mertn sem sáu
um að kveikja ogslökkva á gas-
luktunum, eins og þeim sem
brenndu steinoliu. En þegar ár-
iö 1911 var kynntur búnaður til
„fjarkveikju á götuljóskerin”.
Ariö 1915 var ákveðið i bæjar-
stjórn, aðslökkva skyldi á götu-
ljóskerunum kl. 11 að kvöldi.
Nokkrum árum stðar, segir að
kveikja skuii ljósin „ávallt
nema þegar bjart er af tungli”
og skuli þau „loga til kl. 11 1/2
að nóttu”.
Rafmagnsveita Reykjavikur
tók til starfa áriö 1921, er kon-
ungur vor vigði stöðina inn við
EUiðaár. Rafmagnsveitan tók
alia götulýsingu aðsérogvar þá
meöal annars hætt að slökkva
ljósin á miðnætti, heldur voru
þau látin loga alla nóttina. Ljós-
kerum fjölgaði til muna frá þvi
sem áður var, og Reykjavik
steig enn eitt skrefiö i átt til nú-
tima borgarmenningar. Það
myrkur, sem siðförlir nátt-
hrafnar höfðu mátt búa við, var
nú á hröðu undanhaldi.
A fyrsta starfsári Rafmagns-
veitunnar, var fjöldi ljóskera
rúmlega 300, en i dag eru ljósa-
staurar á veitusvæði hennar
tæplega 15000, þar af eru um
0*4
j 12500 staurar i Reykjavik einni.
|En Rafmagnsveitan hefur á sin-
íum snærum götulýsingu i fimm
öðru in bæjar- eða sveitarfélög-
um.
Götulýsing i Reykjaviker öll i
eigu gatnamálastjóra, en Raf-
magnsveita Reykjavikur ann-
ast uppsetningu viðhald og allan
rekstiir hennar. Gatnamála-
stjóri greiðir siðan fyrir það
samkvæmt gjaldskrá Raf-
magnsveitunnar. A þessu ári er
gert ráð fyrir að kostnaður
gatnamálastjóra vegna þessar-
ar lýsingar verði um 300 mill-
jónir króna.
Mikill hluti ljósastauranna,
eða um 12000, eru járnstaurar
og rafmagnið er leitt til þeirra i
köplum sem eru undir yfirboröi
jarðar. Aður fyrr voru þetta tré-
staurar og rafmagnið leitt i þá
með loftlinum. Sumum finnst
það fegurðarauki aö hafa þessar
jarðlinur, en þær eru fyrst og
fremst betri, að þvi leyti, að bil-
anatiðnin minnkar.
,,Júni og hitabylgjurnar byrj-
aðar / borgarfrumskögi lýsa
götutungl”, segirSigurður Páls-
son i einu kvæða sinna. Sú tið er
senn á enda, að við sjáum við-
gerðarmennina klifra upp tré-
staurana, sem væru þeir apar i
öðrum f rumskógum, og gera viö
linur eða skipta um perur. Nú
eru það körfubilar, sem lyfta
mönnunum upp i mót tunglum
þessum.
Borgarbúar hafa kannski
stundum furðað sig á því, aö sjá
logandi götuljós um hábjartan
daginn. Þegar svo er, er ekki
um aö ræöa neitt orkubruðl eða
bilun, heldur er þetta gert
reglulega til að fylgjast með hve
mikiðafperum eru orðnar ónýt-
ar, og siðan skipt um. A fjög-
urra til fimm ára fresti, er skipt
um allar perur i götulýsingu
bæjarins. Þá er búnaðurinn
hreinsaður og flikkað upp á
hann að öðru leyti. Eftir að pera
hefur logað i 4-5 ár, gefur hún
frá sér litiö ljósmagn, en tekur
mikla orku. Götulýsingin logar
á ári hverju um 4500 stundir.
1 sakleysi sinu gætu menn
haldið að nokkrir menn hefðu
þann starfa, að kveikja og
slökkva á götuljósunum eins og
forðum. En i'stað þess að ganga
frá staur til staurs, sætu þeir i
þar til gerðu stjórnherbergi og
ýttu á takka við sólarlag og sól-
arupprás. Þvi er vist ekki þann-
ig farið, og hefur aldrei verið.
Það er sérstakur ljósnemi, sem
sendir merki til sérstakra mót-
tökuliða sem sjá um að kveikja
og slökkva. Heyrst hefur, að
nokkrir gárungar hafi farið af
staðmeðsterkanljóskastara og
lýst á þennan ljósnema og þar
með búið til „dag” um hánótt,
með þeim afleiðingum, aö öll
ljó6 slokknuöu.
Hér áður fyrr voru notaðar
glóðperur i ljósastaurana, en
það eru perur eins og fólk er
með i heimahúsum, nema hvab
styrkleikinn er allt annar. Nú
hefur tekist að finna betri ljós-
gjafa, þar sem eru kvikasilfurs-
perur. Nýtni þeirra er miklu
betri* geta þær verið helmingi
minni en gömlu perurnar. Glóð-
perum fækkaði um 47% á sið-
asta ári og eru nú aðeins eftir
221 slik pera. Þá hefur enn ein
ný tækni haldið innreið sina hér,
en það er gul lýsing. Það eru há-
þrýstnar natriumperur. Stefrit
er að þvi að setja slikar perur á
allar stærri götur.
Gangbrautalýsing hefur mik-
iö verið bætt á undanförnum ár-
um og mikill kostnaður-verið
lagður i það.
Eins og áöur segir, hafa
margir það að leik, að skemma
götulýsingu. Virðist það ganga
yfir i bylgjum og er tjónið metið
á milljónir króna á ári hverju.
Með ört vaxandi byggð, fjölg-
ar ljósastaurum á hverju ári. 1
fyrra fjölgaði þeim um 512 og i
ár er gert ráð fyrir uppsetningu
fyrir 75-80 milljónir kröna. Er
núsvo komiðað Reykjavik mun
verá með best lýstum borgum i
heiminum. Ekki veitir sjálfsagt
af, þvf óviða er skammdegið
meira.
eftir Guðlaug Bergmundsson mynd: Friðþjófur
i' M'