Helgarpósturinn - 28.09.1979, Page 8
8
Föstudagur 21. september 1979 hnlrjr^rpn^tl irinn
ALBERT FORSETI EÐA FORSÆTISRAÐHERRA?
—he/gar
pósturinn—
Útgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgjafi
sem er dótturfyrirtæki Alþýðublaðs-
ins, en með sjálfstæða stjórn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guö-
mundsson
Rítstjórar: Arni Þórarinsson, Björn
Vignir Sigurpálsson
Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf-
steinsson.
Blaóamenn: Guðjón Arngrímsson,
Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund-
ur Arni Stefánsson og Þorgrlmur
Gestsson
Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason
Augiysmgar: ingiDjorg Siguroaraonir
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir
Dreifingarstjóri: Sigurður Steinars-
son
Ritstjórn og auglýsingar er'u að Síðu-
múla 11, Reykjavik. Simi 81866. Af-
greiðsla að Hverfisgötu 8-10. Simar:
81866, 81741, 14900 og 14906.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Askrift (með Alþyðublaðinu) er kr.
4.000 - á mánuði. Verð i lausasölu er
kr 200,- eintakið.
Farald sfóturinn
Ég er á þeirri skoðun, og hef
rcyndar lýst henni áður i þessum
dálkum að tslendingar séu alveg
dýrlegir. Allir þeir leiðaraskrif-
arar og greinahöfundar vaða
reyk sem sýknt og heilagt eru að
fjasa i biöðunum hversu vonlaust
lið þessi þjóð er.Einstaka sinnum
er að visu eðlilegt að þessi mis-
skilningur komi upp. En þá er það
engu að siður vegna misskiinings.
Mér virðist það koma einna
best og skýrast fram þegar
islendingar eru erlendis hversu
spes þeir eru. Enda gjarnan
auðvelt um samanburð við
annarra þjóða kykvendi. Þá
stirnir á hin þjóðlegu sérkenni og
fölnar flest annað f þeim bjarma.
Þegar tslendingar fara til út-
landa þá skilja þeir tsland ekki
eftir heimaÞeir taka það meðsér
Til er spakmæli eða heilræöi
sem hljóðar eitthvað á þá leið að
þegar menn séu i Róm þá sfe
vænlegast aö haga sér eins og
Rómverjar gera. tsiendingar
taka ekkert mark á þessu. Enda
væri sllkt þjóðernislegur afslátt-
ur. tslendingar eru á tslandi hvar
sem þeir eru. Og haga sér sam-
kvæmt þvl.
Þessi aðdáunarverði eiginleiki
kom mjög berlega I ljós um dag-
inn þegar ég skaust rétt sem
snöggvast yfir loftbrúna sem svo
er kölluð af litillátum feröaskrif-
stofukóngum og liggur frá Kefla-
vfkurflugvelli til Kostadelsól á
Spáni. A þeirri strönd er yfir
sumartfmann aðalútibU tslands
ht.ril dæmis gerðist það I glæsi-
legum næturklúbb að spengilegir
dansarar voru að reyna að troða
einhverjum spænskum kúnstum
sem kallast flamencó eða állka
upp á landann. Þetta fólk áttaði
sig ekki á þvi að landinn var á
balli. Hann vildi skemmta sér.
Hann vildi bara meira fjör. Og
svo þegar tslendingar voru I
miðjum þjóðsöng sinum (Tvær úr
Tungunum heitir hann og er eftir
ástmegi þjóðarinnar Halla og
Ladda) þá leyfði þetta nætur-
klúbbaliö sér að vlsa söngflokkn-
um út á þeim forsendum að hann
truflaði þetta spænska sveita-
tjatjatja. Það vill til að við sýnum
littdönnuöum þróunarlöndum
umburðarlyndi og virðum þeim
svona villimennsku tii vorkunnar.
Að visu er ekki jafn ljóta sögu
að segja af öllum viöskiptum okk-
ar við innfædda. Til dæmis eru
nokkrir barir þarna sem eru með
á nótunum. Þar geta þjónarnir
tjáð sig á mannamáli.
Segja;Takk, Bjór, Brennivin,
Rommogkók, og Skál á Islensku,
Og glvmskrattinn sDÍlar lög með
Lummunum og öðru alvöru
listafólki á íslandi. En
þróunin er greinilega I þá átt
að landinn taki þessi mál alfarið I
sinar hendur. Þannig er nú fram-
sýnn athafnamaöur að stofna al-
islenskan menningarbar á Kosta-
delsól, og heitir samkomustaður-
inn þvi þjóðlega nafni Bar Sex.
Þessi islandsbersi okkar daga
veit hvað hann syngur. A Bar Sex
fá ferðalangar á loftbrúnni Island
með öllu. Þar eigum við að geta
fengið islenskt brennivin, harð-
fisk, skyr, prins póló, lesið
islensku blööin, eins og Samúel og
Sakamál, horft á nýlegar sjón-
varpsfréttir af myndsegulbönd-
um að heiman þannig að við vit-
um hvaö er að gerast I heiminum,
og á uppáhaldsframhaldsþættina
okkar, þannig að við þurfum ekgi
að missa þráðinn. Og þegar við
komum heim er eins og við höfum
aldrei fariö burt.
Góða ferð.
Þá er Albert Guðmundsson
stórkaupmaður, alþingismaður
og borgarráðsmaður með meiru
liklega endanlega búinn að
koma i veg fyrir aö doktor
Kristján Eldjárn forseti tslands
gefi enn á ný kost á sér til em-
bættis forseta Islands, og eigin-
lega hrekja Kristján úr em-
bætti. Þetta þykja mörgum
slæm tíðindi, og einkum og sér I
lagi þó þeim sem höfðu hugsað
sér að skora á doktor Kristján
Eldjárn að gefa kost á sér á-
fram.
Fræðimaður og forseti
Þaö hefur lengi verið vitað að
doktor Kristján vildi geta helg-
að sig fræðimannsstörfum I rlk-
ari mæli, en hann getur á meðan
hann situr á Bessastöðum. Þar
á hann að sjálfsögöu slnar tóm-
stundir en þó mun færri en
margur heldur. Stöðugur gesta-
gangur þar á staðnum og alls-
konar skyldur sem forsetaem-
bættinu fylgja valda þvl að tóm-
stundirnar eru færri, en hann
gæti hugsað sér. Þetta er ein
aðalástæða þess að doktor Krist-
ján er sagður hafa haft við orð
að hann myndi ekki gefa kost á
sér áfram. Þá hefur verið talað
um aö Halldóra forsetafrú væri
ekkert fyrir þetta llf gefin. Vist
er að Halldóra er hlédræg kona,
en hún hefur staðið með sóma
við hliö manns slns bæði utan-
lands og innan og þau bæði eru
góðir fulltrúar lands og þjóðar
hvar sem þau fara. Þá er ekki
annað aö sjá á Bessastöðum en
Halldóra kunni vel við sig þegar
gesti ber að garði, hvort sem um
er að ræða innlenda eða erlenda
gesti. Það var talað um þaö hér
á fyrstu forsetaárum Kristjáns
að Halldóru félli ekki hlutverk-
ið, en sem sagt, nú á siðari árum
er ekki annað að sjá en henni
falli það býsna vel.
Nú er fyrir dyrum opinber
heimsókn forsetahjónanna til
Belglu, og ekki er óliklegt að
það verði slðasta opinbera
heimsókn þeirra til annarra
landa, þvl ekki á ég von á þvl að
Kristján kæri sig um að fara I
opinbera heimsókn á slðustu
vikunum I embætti.
Tilkynningar að vænta
við þingsetningu
eða i áramótaávarpi
í sumar þegar fyrst var farið
að tala um forsetaframboð á
næsta ári, sagði doktor Kristján
Eldjárn eitthvað á þá leiö, að
hann myndi gefa yfirlýsingu um
hvort hann hygðist gefa áfram
kost á sér, á viðeigandi stað og
stund. Þá mun hann hafa haft I
huga að gefa þessa yfirlýsíngu I
áramótaávarpi slnu til þjóðar-
innar á nýjársdag. Eftir slöustu
atburöi I þessu máli er ekki ólík-
legtað forsetinn gefi yfirlýsingu
slna við þingsetningu sem aö
venju fer fram 10. október. For-
setinn getur gefið yfirlýsingu
þar að lútandi við það tækifæri,
og hann hefur oft notað þann
stað og stund til að fara nokkr-
um orðum um þjóðmálin. Það
má þvl búast við að beöið verði
með mikilli eftirvæntingu eftir
ávarpi Kristjáns Eldjárns við
setningu Alþingis nú I haust.
Kannski hefur hann ekki geð I
sér til þess að gefa yfirlýs-
inguna beint fyrir framan Al-
bert Guðmundsson alþingis-
mann og kýs heldur að gera þaö
fyrir framan sjónvarpsmynda-
vélarnar að fáum viðstöddum
rétt fyrir áramótin, þegar ára-
mótaávarpið er venjulega tekiö
upp.
Keppir ekki við Albert
ÓHklegt þykir að Kristján hafi
geð I sér til að keppa við Albert
Guðmundsson um forsetastól-
inn, og er það að mörgu leyti
skiljanlegt. Kristján veit eins og
margir aðrir aö Albert mun
sækja þetta mál af miklu kappi,
liklega meira af kappi en forsjá.
Hann á ótrúlega mikil Itök I
fólki, en hvort þau Itök nægja til
Bessastaðaferðar, skal ósagt
látið. Þá er rétt að menn geri
sér grein fyrir þvl að ekki mun
skorta fjármuni I kosningabar-
áttu Alberts. Hann er vel efnum
búinn, og hefur auk þess nægan
tlma til að sinna áhugamálum
sinum, hvort sem það er að
komast I borgarstjórn eða á
Alþingi. Sem stórkaupmaöur
hefur Albert verið mest umtal-
aður sem umboðsmaöur nokk-
urra áfengis- og tóbakstegunda.
Hann hefur meðal annars um-
boð fyrir Kent slgarettur. Það
eru þóhreinir smápeningar sem
hann fær fyrir innflutning
ATVR á þessum vörum. Aöal-
tekjurnar eru af innflutningi
ailskonar vinnuvéla og einkum
og sér I lagi þó Grove — krana
sem mikið er til af viö
Reykjavikurhöfn. Það er þó
ekki höfnin sjálf sem á þessa
krana, heldur Eimskip — óska-
barn þjdöarinnar. Albert hefur
þvl ekki áhyggjur af þvl að
framfleyta sér og sínum, öfugt
viö þá aðstöðu sem Kristján
Eldjárn var i þegar hann gaf
kost á sér til forsetakjörs á moti
Gunnari Thoroddsen árið 1968.
hákarl
Hvildi sig i Svarfaðar-
dal
Heimkynni Kristjáns Eldjárn
eru i' Svarfaðardal sem kunnugt
er, og þar býr bróðir hans
Dr. Kristján var I Svarfaöardal
um tlma I sumar. Blaðið Dagur
á Akureyri átti þá viötal við for-
setann heima á Tjörn. Þar var
meöal annars rætt um áhuga-
mál hans, á sviði fornleifafræði
og þjóðhátta. Ennfremur kom
fram I viðtalinu að þeir bræöur
Kristján og Hjörtur ætluðu á
skak á Eyjafirði. I lok viðtalsins
er svo vikið að næstu forset-
akostningum. Kristján segir:
„Nokkurt umtal hefur um málið
orðið hvort við hjónin bjóðumst
til að vera áfram á Bessa-
stöðum eða við breytum til. Ég
hef áður veriö spuröur um
þetta, en ég hef ekki enn treyst
mér til að segja af eða á og
þannig stendur málið ral I dag.
Á meöan svariö liggur ekki
fyrir, veröur að llta svo á, aö
þaöséóákveöiö hvað viö gerum.
Alltaf getur eitthvað komið
fyrir, áður en timi er til þess
kominn að ákveða sig. En ég
mun hafa þann tima rúman á
hvornveginn sem ræðst. Ennþá
get ég ekki svarað spurningu
þinni á annan hátt”, segir dokt-
or Kristján Eldjárn að lokum I
viðtalinu viö Dag á Akureyri.
Þetta voru hógvær orö og ólik
yfirlýsingum knattspyrnuhetj-
unnar fyrrverandi, sem nú læt-
ur ekkert tækifæri ónotað til að
gefa yfirlýsingar um að hann
gefi kost á sér I forsetakjöri á
næsta ári.
Stuðningsmenn
Kristjáns
safni Liði
Nú er ekki seinna vænna fyrir
stuðningsmenn Kristjáns fyrir
ellefu árum, og aðra þá sem eru
svipað þenkjandi og núverandi
forseti, að fá það fram hjá hon-
um hvort hann ætlar að sitja á-
fram, eða setjast að I húsinu við
Skothúsveginn á móti Hljóm-
skálanum, sem hann festi kaup
á fyrir ekki mörgum árum.
Þrátt fyrir það sem sagt var I
upphafi, að Albert væri llklega
endanlega búinn að koma i veg
fyrir að Kristján gefi kost á sér
áfram, þá er það alveg ljóst, að
Kristján myndi sigra glæsilega
á forsetakosningum á næsta ári,
jafnvel þótt fjármálamaðurinn
Albert byði sig fram á móti hon-
um. Aö bera þessa tvo menn
saman I ræðustól, er eins og að
bera saman svart og hvltt. Það
er ekki það að Albert sé ekki á-
sjálegur og hafi margt gott
gert, heldur hitt að hann á ákaf-
lega erfitt að koma fyrir sig
orði, þrátt fyrir mikla æfingu á
undanförnum árum, og flytur
mál sitt auk þess ekki áheyri-
lega.
Ef Kristján verður harður á
þvi að gefa ekki kost á sér, þurfa
fyrrverandi stuöningsmenn
hans og aðrir þeir sem eru á
svipaðri linu að fara að huga
alvarlega að þvl að finna mót-
frambjóðanda.
Þrátt fyrir hægri sveiflu vlða I
nágrannalöndunum, og llkleg-
ast einnig hér i næstu alþingis-
kosningum er ekki þar með sagt
að þessi sveifla nái til Alberts
Guðmundssonar i forsetakosn-
ingum, — sem betur fer segja
kannski margir. En hún nægði
kannski til þess að gera hann að
forsætisráðherra og hvort vilja
menn nú að hann verði forsætis-
ráðherra eða forseti Islands.
Þetta er hlutur sem kjósendur
verða að gera upp við sig á
næsta ári.
....hákarl....
-AÞ