Helgarpósturinn - 18.01.1980, Side 4
NAFN: Lúðvík Aðalsteinn Jósepsson HEIMILI: Stóragerði 25 STAÐA: Fyrrverandi ráðkerra
FJÖLSKYLDUHAGIR: Eiginkona, Fjóla Steinsdóttir, og eiga þau einn son.
BIFREIÐ: Plymouth Volaré árgerð 1979 ÁHUGAMÁL: Þjóðmálin
VERÐ í AFTURSÆTINU EF ÉG FÆ PLÁSS
„Var óeining um þaö innan
Alþýöubandalagsins hver ætti
aö fá umboöiö til stjórnarmynd-
unar?
„Nei. I fyrsta lagi er réttara
að spyrja aðra en mig um það
hvað gerist i þingflokknum, þvi
ég er ekki i honum núna. En ég
veit ekki annað en það hafi verið
fullkomin eining um þá niður-
stöðu sem varð. Auðvitað
gerðum við okkur grein fyrir þvi
að það var fleiri en einn maður I
flokknum sem kom til greina
með að taka þetta að sér. En
.samstaða um þetta i flokknum
hefur verið mjög góð*'
Þýöir þetta, samkvæmt venj-
unni, aö Svavar veröur næsti
formaöur Alþýöubandalagsins?
„Nei, það er alveg fjarstætt
að tala um það. t fyrsta lagi þá
undrast ég það viðhorf sem hef-
ur komið upp i sambandi við
myndun á rikisstjórn, að menn
eru eins og farnir að ganga út
frá þvi að til sliks starfs geti
enginn annar maður komið en
formaður. Maður verði að vera
með einhvern titil. Sannleikur-
inn er sá, að það er raunveru-
lega flokkurinn, sem fær um-
boðið. Og hann velur að sjálf-
sögðu þann fulltrúa til verksins
sem hann telur að passi best i
verkefnið. Það á ekkert að
binda þetta við formann. Hitt er
auðvitað eðlilegt, að forseti ts-
lands snúi sér til formanns. Það
er svo formannsins að koma á
framfæri um það hver sé lfkleg-
astur til að vinna verkið”.
Ragnar Arnalds segir i viötali
viö Morgunblaöiö á miöviku-
daginn, aö þaö sé bara formsat-
riði hver fái umboð til stjórnar-
myndunar. Ertu sammála þvf?
„Það er formsatriði útaf fyrir
sig hver úr flokknum stýrir við-
ræðum, sem fram eiga að fara.
Að sjálfsögðu þarf að velja I það
þann mann sem maður telur
verulega hæfan og vel fallinn
til starfans, og vissulega gerir
maður ráð fyrir að hann gæti
orðið forsætisráðherra”
Þaö hefur veriö um þaö rætt,
aö þú viljir fá Hjörleif sem eftir-
mann þinn I formannssætinu.
Munt þú berjast fyrir þvi aö svo
veröi?
„Þetta er ein af þessum get-
gátum, sem hreinlega eru búnar
til á blöðunum aðallega, eða þá
kannski á enn æðri stööum, og
blöðin hirða það þar upp. Það er
semsagt ekki flugufótur fyrir
neinu sllku. Það liggur hinsveg-
ar augljóslega fyrir, að þegar ég
tók þá ákvörðun að gefa ekki
kost á mér til þingmennsku, þá
varð ég um leið að gera ráð fyrir
þvi að hætta formennsku i
flokknum. Síðan er þaö ekki
mitt hlutverk að arfleiða starfið
til einhvers sérstaks. Það verð-
ur vitanlega landsfundur og
uppstillingarnefnd . þar og
sameiginlegar ráðleggingar,
sem ráða þvi hver verður valinn
formaður”.
Þvi hefur Hka veriö haldiö
fram, aö þú hafir ekki viljaö
Þaö er stjórnarkreppa, og nú er komiö aö Alþýöubandalaginu aö gera þriöju tilraun til
stjórnarmyndunar. Svavar Gestsson leiöir nú aöra tiiraun frá kosningum I vetur til aö mynda
vinstristjórn. Svavar fékk umboöiö til stjórnarmyndunar frá Lúövlk Jóscpssynien hann tók viö
þvi úr hendi forseta íslands sem formaöur Alþýöubandalagsins. Lúövik er aö draga sig út úr
stjórnmáiunum eftir meira en 30 ára störf á þingi og setu I ráöherrastólum. Hann hefur veriö einn
af þeim stjórnmálamönnum þessa tlma sera hæst hefur boriö. 1 dag tekur Helgarpósturinn hann
til yfirheyrslu.
halda þessu umboöi sjálfur þar
sem þú hafir séö hvert stefndi i
enn einum vinstri viöræöum, og
ekki viljaö „skita þig út” á þvl
einu sinni enní
„Það er ekki óalgengt að ég
hafi orðið að taka að mér ýms
verk, sem minn flokkur hefur
þurft að vinna, þó að ég hefði þá
áhættu hvort hlutirnir gengju
upp eða ekki. Ég hef nú ekki tal-
ið það eftir mér á neinn hátt. En
ég taldi eðlilegt við þessar aö-
stæður að sömu menn úr þing-
flokknum héldu þessum við-
ræðum áfram og höfðu staðið i
vinstristjórnarviðræðum undir
forystu Steingrims Hermanns-
sonar. Þetta er nokkurskonar
framhald af þvi eða þær tilraun-
ir endurteknar viö nýjar að-
stæður."
Þú nefnir nýjar aöstæöur.
Hverjar eru þær?
„Þessar nýju aðstæður eru
aðeins það að menn eru búnir aö
sjá að stjórnarkreppan er mjög
alvarleg. Þótt ekki hafi tekist I
fyrstu umferð aö ná samkomu-
lagi milli vinstri flokkana um
stjórnarmyndun I það skipti
sem Steingrimur Hermannsson
veitti forstöðu þá geta menn
hafa áttað sig á þvl, að hlutirnir
liggja talsvert öðruvisi en þeir
höfðu reiknað með og vilji þvi
endurskoða þaö og athuga á
nýjan hátt hvort grundvöllur sé
nú fyrir hendi”.
Þaö hefur veriö stööugt skit-
kast milli Alþýöuflokksins og
Alþýöubandalagsins allar götur
siöan síöasta vinstri stjórn var
mynduö. Hver er ástæöan fyrir
þvi?
„Það hafa augljóslega verið
deilur milli okkar Alþýðubanda-
lagsmanna og Alþýðuflokks-
manna um marga hluti. Ég vil
ekki telja að þær deilur I vinstri
stjórninni hafi verið meiri en á
milli okkar og Framsóknar-
manna. Og ég állt að sú mynd
sem hefur verið dregin upp,
einkum af Framsóknarmönn-
um, að þeir hafi verið aö skilja
einhverja tvo ólátabelgi allan
tímann og þeir hafi veriö ein-
hverjir siðapostular, sé alröng.
Það er mín skoðun, að þarna
hafi óróleikinn I stjórninni verið
vegna þess, aö uppi voru mjög
mismunandi skoðanir á þvl
hvernig ætti að takast á við við-
kvæmustu málin. Það sem var
viðkvæmasti átakapunkturinn
var spurningin um þaö hvort
ætti að ráðast gegn verðbólgu
með þvi að skerða hin almennu
launakjör. Þar greindi okkur á
við Framsóknarflokkinn næst-
um eins og við Alþýðuflokkinn,
þó að það léti kannski aðeins
hærra í þeim Alþýðuflokks-
mönnum”.
„Þá komum viö aö öörum
möguleikum tii stjófnarmynd-
unar. Þvi hefur veriö haldiö
fram, aö þú heföir kosiö, aö
Alþýöubandalagiö reyndi
stjórnarmyndun meö Sjálf-
stæöisfloknum. Séröu einhverja
möguleika á þvi, eða eru and-
stæöurnar ósættanlegar?
„Það er auðvitað alrangt
þegar þvl er haldið fram, að ég
hafi viljað leita eftir samstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn fremur
en aðrir i Alþýðubandalaginu.
Það er ekki um það að ræða. Ég
er einmitt á þeirri skoðun, að
kosningabaráttan hafi verið
þannig, og yfirlýst stefna okkar
hafi verið á þá lund, að það bæri
skylda til að reyna til hins It-
rasta að ná saman vinstristjórn.
En hitt er svo allt annað mál, að
ef svo ógæfusamlega fer, að
engin leið er að koma fram
slikri stjórn og Alþingi lendir I
algjörum ógöngum við stjórnar-
myndun þá er auðvitað skylt að
skoða alla aðra möguleika.”
Teluröu að þaö séu meiri Ilkur
á þvi, aö Alþýöubandalagiö nái
sáttum viö Sjálfstæöisfiokkinn
en Alþýöuflokkinn og Fram-
sóknarflokkinn?
„Um það get ég ekkert sagt á
neinn hátt. En mér er það alveg
ljóst, að sú staða hefur komið
upp, að Sjálfstæöisflokkurinn
vill ábyggilega víkja frá yfir-
lýstri stefnu sinni á ýmsum
sviðum til þess að einangrast
ekki I íslenskri pólitlk. Og hann
vill leggja sig nokkuö fram til að
mæta sjónarmiðum annarra, ef
af samstarfi gæti orðið. Ég veit
ekkert hvar mörkin liggja frá
hans hendi I þessum efnum og
hvort það eru meiri möguleikar
á að ná samstarfi við hann
en Alþýðuflokk og Framsóknar-
flokk, um það get ég ekkert
sagt. Það virðist vera all mikill
ágreiningur milli flokkanna
allra”.
En er fyrir hendi i Alþýöu-
bandalaginu ákveöin stemning
fyrir þvl aö reyna samstarf viö
Sjálfstæöisfiokkinn?
„Ég vil ekki segja það, heldur
hitt, að það er skoðun I Alþýðu-
bandalaginu, aö það verði að
leita allra ráða til þess aö
mynda starfhæfa rikisstjórn.
Það fer ekki milli mála að við
viljum helst vinstristjórn. Við
erum mjög andvígir minni-
hlutastjórn, teljum, að hún sé
gjörsamlega gagnslaus og
erfiðleikarnir haldi áfram inni á
Alþingi eftir sem áöur. Við er-
um Iika andvigir utanþings-
stjórn, teljum aö þaö sé heldur
ekki lausn á vandamálinu. Við
þessar aðstæður ber auðvitað að
skoða það, hvort það sé til i
dæminu, að allir flokkar geti
komið sér saman um einhverja
millibilslausn. Ég er ekki mjög
trúaður á það, ég er heldur and-
vigur þjóðstjórn, hef ekki trú á
henni. En vegna þess að vand-
inn er mikill verður að skoða
alla möguleika.”
Ef Aiþýðubandalagiö og Sjálf-
stæöisflokkurinn reyna aö ná
saman, verður þá ekki her-
stöövamáliö helsti þrándur i
götu?
„Ég hef mjög litla trú á þvi,
að við núverandi aðstæður geti
Alþýðubandalag og Sjálfstæðis-
flokkur náð saman um stjórnar-
myndun. Herstöðvamálið þarf
ekki einu sinni að koma til. Það
er auðvitað um algjörar and-
stæður að ræða milli þessara
tveggja flokka og ekki sjáanlegt
neitt samkomulag um það mál
þeirra á milli. En mér sýnist að
vandinn milli þessara tveggja
flokka um önnur mál sé æði
mikill lika”.
En skýtur ekki innrás Sovét-
manna I Afghanistan stoðum
undir kenningar sjálfstæöis-
manna um nauðsyn þess aö hafa
hervarnir á tslandi nú, þegar
þeir eru farnir að teygja sig út
fyrir áhrifasvæöi sitt?
„Nei. Það er mikil fjarstæða
að minum dómi. Ef menn
drægju þá ályktun, að vegna
þess að Sovétmenn eru aö
blanda sér I innanríkismál, t.d. I
Afganistan eða i Vietnam, eða
Bandarikjamenn séu að blanda
sér I innanrlkismál I ýmsum
löndum og hafi þar herstöðvar
og taki þátt I hernaðaraögerð-
um, beinum eða óbeinum, — ef
menn ættu að draga þá ályktun
af þessum staöreyndum, sem er
þvi miður mjög sennilegt að eigi
eftir að liggja fyrir um alllang-
an tima, ættum við þessvegna
að slá því föstu að við ættum
að hafa hér erlendan her um ó-
comna framtlð* Ég állt einmitt
að tengist þjóðriki þessum stór-
veldum um of og gefi þeim of
mikinn rétt hjá sér, dragist þau
inn á hættusvæðin.”
Hver er þin persónulega af-
staöa til þessarar innrásar?
„Ég er algjörlega andvigur
þvi, að nokkurt riki geti blandað
sér I innanríkismál annars rlkis,
það eigi ekki að geta komiö til
mála, að her sé sendur inn I
sjálfstætt rlki til þess að hafa á-
hrif á gang innanlandsmála. En
um stöðuna I Afghanistan, eins
og reyndar mörg önnur hlið-
stæð riki i heiminum þar sem á-
tök hafa verið vil ég vera fáorð-
ur. Mig vantar mjög mikið af
upplýsingum um hvað er satt.
af þvi sem Sovétmenn segja, og
hvað er satt af þvi sem hinir
segja.”
Magnús Kjartansson sagöi
nýlega i viötali I Helgarpóst-
inum, aö stefna vinstriflokk-
anna hafi valdiö sér vonbrigö-
um. Hann lýsir henni meöal
annars þannig, aö hún sé bæöi
nærsýn og fordómafull. Hann
segir líka aö mismunurinn á
Alþýöubandalaginu og Alþýöu-
flokknum byggist á gömlum
kreddum og misskilningi. Hvaö
hefur þú um þetta aö segja?
„Ég ætla nú ekki að fara að
segja við ykkur eða neina aðra
álit mitt á Magnúsi Kjartans-
syni, eða einhverjum ummæl-
um hans. Ég leiði allt slikt gjör-
samlega hjá mér”.
Þvi hefur oft veriö haldiö
fram, að Alþýöubandaiagiö hafi
löngum verið stefnulaust i efna-
hagsmálum — þess er skemmst
aö minnast, að Alþýöuflokks-
menn veifuöu fyrir kosningar
auöu blaöi þar sem efnahags-
stefna Alþýöubandalagsins átti
aö standa.
„I fyrsta lagi er það misskiln-
ingur að við höfum ekki lagt
fram tillögur I efnahagsmálum.
Við lögðum fram Itarlegar til-
lögur fyrir kosningarnar 1978,
sem voru gefnar út i bók. Við
lögðum lika fram langan til-
lögulista i vinstri stjórninni. Nú
höfum við lagt fram tillögur,
þar sem raunverulega er engin
breyting frá þvi. En þeir sem
kalla ekkert annað tillögur I
æfnahagsmálum nema tillögur
um kauplækkun, þeir halda á-
fram að segja: Það vantar til-
lögur frá Alþýðubandalaginu.
Mér er ekki kunnugt um hverju
þeir voru að veifa, Alþýðu-
flokksmennirnir. En það er rétt,
að við erum með tillögur i efna-
hagsmálum, sem eru autt blað i
þvi, að leggja til, að kaup eigi að
lækka”.
Aö lokum: Hvenær áætlarðu
aö hætta sem formaður Alþýöu-
bandalagsins?”
„Þegar ég ákvað að gefa ekki
kost á mér til þingmennsku á
siðastliðnu hausti voru ekki tök
á að halda landsfund fyrir
kosningar. Ég var þvi formaður
flokksins áfram, og verð það
þar til næsti landsfundur verður
haldinn. Hann á að réttu lagi að
vera næsta haust, en ef
kosningar verða i sumar veröur
hann örugglega haldinn fyrr”.
Hvaö hyggstu fyrir eftir aö þú
hættir?
„Ég er ekkert farinn að hugsa
um það. Ég er ennþá á kafi I
pólitik”.
Ætiaröu aö sitja áfram I
aftursætinu?
„Það fer allt eftir þvi hvort ég
fæ pláss eða ekki”.
eftir Þorgrím Gestsson
Föstudagur 18. janúar 1980 -helgBrpOSturinrL_