Helgarpósturinn - 18.01.1980, Síða 7
htalrjarpncztl irinn Fostudagur 18. janúar 1980.
væri unnt aö leyfa mér aö fá nafn-
breytingu. Sagöi hann aö almenn-
ingur gæti þá haldiö, aö yfirvöld
væru aö leyfa mér aö fara i felur
fyrir fólki.”
„Núna sé ég aö það heföi veriö
til Íítils að breyta nafni minu. Hiö
rétta nafn hefði þá liklega verið
notað núna i Hæstarétti og þá ver-
ið á allra vitorði.”
Erla segir frá þvi, aö nokkuö
væri um þaö, að fólk liti á eftir sér
á götu og piskraði. „Fyrst fór
þetta óskaplega i taugarnar á
mér. Nú upp á sfðkastiö þoli ég
þetta betur og skil fólk. Ég heföi
eflaust gert slikt hiö sama i spor-
um þess.”
Einnig segist Erla verða vör viö
misjafna afstööu til hennar i
bönkum og opinberum stofnun-
um. Þannig væri það t.d. þegar
hún væri i banka, að heföi gjald-
kerinn samúö með henni, þá kall-
aöi nafn hennar lágt upp og rétti
það sem henni bæri yfir borðiö og
brosti. Hin afstaðan væri lika
fyrir hendi i bönkum. Þá hrópaði
gjaldkerinn nafniö hátt og önug-
lega og henti i hana peningum eöa
kvittun.
„Farin aö þekkja
sjálfa mig betur"
„Þetta er ekki eins óþægilegt og
áöur. Ég er farin aö þekkja sjálfa
mig betur og þá um leið kynnist
maður kostum og göllum fólksins
i kringum sig,” segir Erla. „Ég
hef hagt mikinn stuðning af vin-
um sem ég hef eignast og stund-
um hef ég getað veitt þeim hjálp-
arhönd i þeirra erfiöleikum. Sum-
um finnst óþægilegt að tala viö
mig og vita ekkert hvernig þeir
eiga að bregðast við. Ég reyni að
vera eðlileg og gera þeim þannig
ástandið þægilegra.”
Erla segist lesa mikið og á
borðinu hjá henni liggur opin bók,
eftir Martinus nokkurn. Ég spyr
hvað hún lesi. „Ég les mikið.
Þessi bók er eftir danskan
lifspeking, Martinus að nafni og
er skráð af manni sem er aö rita
fyrir þá sem eru i meövitaðri þorf
fyrir skýringar á þeim hlutum,
sem hingað til hafa byggst á þvi
að trúa um leið og þekkingunni
sleppir. Þessi aukna þekking min
i gegnum lestur alheimsvisinda
hefur skiljanlega haft áhrif á öll
svið lífs mfns.”
Erla neytir aðeins jurtafæðis,
snertir ekki vin eða önnur ávanæ
lyf og lifir mjög fábrotnu lifi að
hennar sögn. „Eyði miklum tima
með dóttur minni og góöum vin-
um okkar.”
— Hvað um framtiðina?
Óttastu hana?
„Nei, það geri ég ekki. Ég á al-
veg eins von á þvi aö verða sett i
fangelsi en viö þvi er ekkert að
gera. Ég á vini og fjölskyldu sem
styðja mig og dóttir min mun
veröa i góöum höndum, ef ég verð
að sitja inni. En umfram allt er
það léttir að hafa nú kjark til að
segja sannleikann. Mér liöur bet-
ur eftir aö hafa nú loks þann styrk
til að le'tta af mér þessu oki.
Sannleikurinn er þessi: Hvorki ég
né Sævar fórum til Keflavikur
þessa umtöluðu nótt og allt það
sem ég hef sagt um þetta mál hef-
ur verið skáldskapur.”
„Ég trúi þvi og veit að hæsta-
réttardómararnir gera sitt besta
og leita sannleikans. En mér þyk-
ir það orðiö nokkuð óeðlilegt
dómskerfi, sem horfir framhjá
afturköllun aðalvitnisburðar i
jafn alvarlegu máli og þetta er.
Hér er um að ræða örlög einstak-
linga sem ég sjálf veit að eru
hafðir fyrir rangri sök, hvað þetta
Geirfinnsmál snertir.”
Og að lokum segir Erla Bolla-
dóttir i þessu samtali viö Helgðr-
póstinn: „Ég vil árétta, aö þessi
framburður minn bætfr ekkert
málstað minn hjá dómstólunum
— nema þetta mál upplýsist.
Þvert á móti veikir þetta mina
stöðu og ég get átt von á þyngri
dómi fyrir vikið. En það er þó
skárra að vera dæmdur eftir að
hafa sagt hið rétta i málinu, held-
ur en aö hafa skugga lyginnar yfir
höfði sér alla ævi.”
Eigum
til af-
greiöslu
meö stutt-
um fyrirvara fáeina
DODGE ASPENoq
PLYMOUTH VOLARÉ/ 2ja
og 4ra dyra, árgerö 1979 á sérstöku afsláttarverði, sem er allt aö
KR. 1.200.000 TIL 1.500.000 LJEGRA VERD
en á 1980 árgerðinni. Bílarnir eru allir í deluxe útgáfu, sjálfskiptir, með
vökvastýri og aflhemlum.
Látið ekki happ úr hendi sleppa. Nýtið þetta einstaka tækifæri til að
eignast óvenju glæstan og hagkvæman vagn á verði, sem nánast von-
laust er að endurtaka og verið á undan næstu ef nahagsaðgerðum.
Talið við okkur strax i dag -
ó morgun kann það að vera off seint.
SÖLUMENN í CHRTSLER-SAL
Umboðsmenn:
Sniðill h.f. Akureyri — Bila-
sala Hinriks Akranesi — Frið-
rik Öskarsson Vestmannaeyj-
um og Óskar Jónsson Nes-
kaupstað.
Simar 83330 og 83454*
O Ifðkull hf.
VERÐLÆkKUN
HKP5
Ótrú/egt en satt,
nú getum við boðið verðlækkun
á nýjustu sendingunni af þessu
g/æsi/egu e/davé/um
Eitt mesta úrval eldavéla i bænum.
3 og 4 hellna með venjulegum ofnum og sjálf-
hreinsandi.
Litir: Gulur, rauður, grænn, svartur og hvítur,
viftur, uppþvottavélar, kæli- og frystikistur o.f I.
í sama stil.
KAUPIÐ STRAX Á HAGSTÆÐU VERÐI
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI IOA - SlMI 16995
FUNDUR ER
SETTUR!
Þegarþessi ord eru sögö er undirbúningi fundarins iokiö og sjátf
fundarstörfin framundan.
Eigiþau aö ganga fyrirsig á fljótan og árangursríkan hátt, veröuraöstaöan aö
vera fyrsta flokks.
Á Hótel Loftleiöum eru funda- og samkomusaliraföllum geröum og stæröum.
Og öll þau tæki sem nútíma fundatækni krefst, myndvarpar, sýningarvélar,
töflur - aöstaöa til að vélrita og fjölrita, jafnvel túlka yfir á ólik tungumál.
Veitingar eftirþví sem óskaö er.
Leitiö upplýsinga þarsem reynslan ermest og aöstaöan best.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Sími22322