Helgarpósturinn - 18.01.1980, Síða 11
helgarpásturinn.
Föstudagur 18. janúar 198C
sjálfum heldur en fötunum sem
þær sýna.
Hanna sagöi tiskusýninga-
fólkiö lita á sitt starf sem liö i
auglýsingastarfsemi fyrirtækj-
anna sem framleiöa tisku-
fatnaö. „Þetta er einfaldlega
háttur fyrirtækja aö auglýsa.
Þaö sem við gerum er aö þjóna
verslunum. Við kynnum vöru
sem þær hafa uppá að bjóöa”.
Að sögn Hönnu eru sýningar-
störfin undantekningalaust unn-
in i aukavinnu. „Það þarf alveg
brennandi áhuga til að standa i
þessu”, sagði hún. „Þetta er illa
borgaö, það fer mikill timi i
þetta — það verður að æfa, og
snyrta sig og greiða”.
Tískuklikurnar
Fatafólk eða tiskuklikpr, eru
fyrirbæri sem vel þekkt eru er-
lendis. Það er hópur fólks, sem
lifir og hrærist i tisku, hugsar
um tisku og klæðist tiskufötum
jafnt á skemmtistöðum sem á
klóinu heima hjá sér. Til
skamms tima hefur slikur hóp-
ur varla getað talist vera til hér
á Islandi, en nú — með diskóinu
— hefur orðið þar breyting á.
Hanna Frimannsdóttir sagði að
visu þröngan hóp fólks lengi
hafa lifað eftir lögmálum fata-
fólksins, en núna væri þetta að
koma uppá yfirborðið og hópur-
inn að stækka mikið. „Ég veit
ekki hvort það er nógu sniöugt”,
sagði hún, og benti á að alltaf
væri eitthvað nýtt að koma
fram, og það væri orðið óhóflega
dýrt að tolla i tiskunni.
Hér á landi sem annars stað-
ar er til fólk sem stundar
skemmtistaðina. Svo hefur auð-
vitað veriö lengi, en var þó
lengst af bundið við helgarnar.
Nú er hægt að fara út i miðri
viku lika, og fyrir bragðið hafa
skemmtistaðir, diskótekin sér-
staklega, orðið nokkurskonar
annað heimili hjá hópi af fólki.
Það skreppur i Hollýeða Óðal
eða eitthvað annaö, til að hitta
kunningjana, meðan aðrir glápa
á sjónvarpið. Ekkert við það að
athuga.
„Ef ég ætti að benda á hóp
fólks sem lifir fyrir tiskuna og
sem kallast getur fatafólk, þá er
það fólkið sem alltaf er á
skemmtistöðunum”, sagði Hild-
ur Einarsdóttir, ritstjóri á
Tiskublaðinu Lif. „Þvi finnst
það ekki geta látið sjá sig kvöld
eftir kvöld i sömu fötunum,- og
þess vegna kaupir það föt og
aftur föt”.
Stór hluti tiskusýningarfólks
vinnur i tiskuverslunum, og hér
áður var til fyrirbæri sem kallað
var Karnabæjarklikan. Hún átti
að standa saman af fólki sem
vann við tiskuna.
En á
siðustu árum hefur það færst æ
meira i vöxt að ungt fólk sem
vinnur við sýningarstörf taki sig
til og stofni eigin verslanir.
50 tiskuverslanir
Fyrir skömmu gengum við
Helgarpóstsmenn niður
Laugaveginn og töldum fimm-
tiu tiskuverslanir á Lauga-
veginum einum, og Austur-
stræti. Það er mikill fjöldi, og
miklu meira en var fyrir
örfáum árum.
„Neysía almennt hefur aukist
mikið á siðustu 20 árum, og það
á við með fatnað lika”, sagði
Guðlaugur Bergmann. „En það
eru ekki til neinar tölur yfir um-
fang tískuverslana á Islandi. Til
að byrja með er varla hægt að
skilgreina hvað er tiskuverslun
og hvað ekki”.
Guðlaugur benti lika á að
flestar þessara nýju verslana
væru mjög litlar, en áður fyrr
hefðu þær verið færri, en miklu
stærri. „Fólk tekur eftir þvi
þegar ný búð er opnuð, en það
tekur ekki eftir þvi að nánast i
hvert sinn sem það á sér stað,
þá lokar önnur”.
Svo einhverjar tölur um um-
fang tiskuverslana á íslandi séu
nefndar sagði Guðlaugur velt-
una hjá Karnabæ á siðasta ári
hafa verið tveir milljarðar. Þar
kæmu hljómplötur og tæki að
visu inni. Tveir milljarðar!!
Að lokum: Er tiskan vont fyr-
irbæri?
„Nei, tiskan er ekki af hinu
illa”, sagði Ernir Snorrason.
„Þetta er ákveðið þjóðfélags-
legt fyrirbæri, sem að mörgu
leyti gerir hlutina skiljanlegri.
Maðurinn er félagsvera, og
tiskan aðgreinir hópa á vissan
hátt. Ef þú fylgir tiskunni, og
klæðir þig eins og aðrir ertu orö-
inn hluti af ákveðnum hópi
fólks. Það auðveldar hlutina á
vissan hátt. Hins vegar eru
margir sem græða á þessu, og
það er náttúrulega ekki gott ef
fólk eyðir öllu sinu i tisku”.
Oryðvarin bifreiö a yfir hoföi ser:
Tæringu
Verörýrnun
Slæma endursölu
Stórfelldan viógeröarkostnaö
Eigandinn býr viö:
Öryggisleysi
Vonbrigói
Óánægju
Ryövarin bifreiö:
Hefur trausta vörn gegn tæringu
Viöheldur verögildi sinu
Stóreykur endursölu
Dregur úrviöhaldskostnaöi
Eigandinn:
Ánægöari
Öruggari
Stoltari
um endurryövörn
■
'ÉÆA -
Sigtúni 5 — Simi 19400 - Pósthólf 220
eftir Guðjón Arngrimsson
Leitaðu óhikað hollra ráða —
Við munum gera okkar allra besta
Vefnadar
band
Hið margeftirspurða vefnaðarband
er nú fáanlegt í yfir tuttugu litum,
sem gefa óendanlega möguleikaá
skemmtilegum samsetningum.
VESTURGÖTU 2 - SÍMI 13404
OG VERSLANIR UM LAND ALLT
IHIÐ ALSJAANDI AUGA I
I nótt sem nytan aas! I
m: IKEGAMI 1
K3 • Monitorar fyrir allar gerðir
af myndavélum, fjórar
LJ stærðir 10” 12” 17” 20”
Kl
• Myndavél til notkunar úti.
Er i vatnsþéttum upphituð-
um kassa, td. fyrir skip, báta
og verksmiðjur.
• Alhliða myndavél til notkun- fj'l
ar fyrir verslanir og iðnfyr-
irtæki. L J
ta
EJ
Ea.
Ijósmagn
K3
trj
£3
• Mvndavél fyrir erfiöar aðstæður úti sem
inni, algjöriega vatnsþétt. j^j
m
Stjórntæki, getur vcrið 1/2 km. frá „aug-
anu” á stærð við vasaljós.
Myndavél fyrlr alhliða notkun. Þarf litið
ljósmagn.
Radiostofan Þórsgötu 14 — Simi 14131
IBBEGEGEGSGGGEEGEGGCEGGGBGESGE