Helgarpósturinn - 18.01.1980, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 18.01.1980, Blaðsíða 17
Föstudagur 18. janúar 1980 77 Stjórnmálaflokkarnir og menningarmálin: HVER ER STEFNAN? Nokkrar umræður hafa farið fram i fjölmiðlum um menn- ingarm álastefnu stjórnmála- flokkanna —eða skort á henni— i kjölfar greinar, sem Sveinn Einarsson þjóðleikhiisstjóri skrif- aði i eitt blaðanna. Menningarmálastefnan er nokkuð sem flokkarnir tala litt eða ekki um i kosningabaráttu, heldur er hennar einungis getiö á tillidögum og i skálaræðum, svona til hátfðabirgöa. Og oft er það einnigaöathafnir fylgja ekki orðum. Helgarpósturinn hafði samband við talsmenn stjórnmálaflokkanna fjögurra i menningarmálum og bað þá aö gera grein fyrir menningarmála- stefnu flokka sinna. Þeir eru: fyrir Sjálfstæðisflokkinn Erna Ragnarsdóttir, fyrir Alþýðu- bandalagið Svava Jakobsdóttir, fyrir Alþýðuflokkinn Jón Baldvin Hannibalsson og fyrir Framsóknarflokkinn Haukur Ingibergsson. Lesendur verða svo að dæma um þaðhver fyrirsig, hvert ágæti þessara stefna er. Að gera Islenskt mannlif auðugra „Við Sjálfstæðismenn triium þvi að islensk menning sé endan- legur tilgangur baráttu okkar fyrir góðum og batnandi lifekjör- um”, sagði Erna Ragnarsdóttir formaður menningarmálanefnd- ar Sjálfstæöisflokksins. „Við telj- um að fumkvæði og sjdlfstæði i menningarmálum sé ekki siður mikilvægt en efnaleg velgengni og raunar hvort öðru háö. Að undanförnu hafa þjóðfélags- umræður hér á landi svo til ein- göngu sniiist um efnahags og at- vinnumál. Þvi viljum við breyta. Vil viljum beita okkur fyrir heildarathugun á stuðningi rikisins við hinar ýmsu greinar menningarmála og á þeim beinu tekjum sem rikið hefur af slikri starfsemi. A þeim grundvelli verði mörkuð stefna sem miði að þvi að gera islenskt mannlif auðugra og innihaldsrikara. Sjálfstæðisflokkurinn vill hafa forystu um þróun menningar- málaogleggurm.a.áherslu á að: Islensk tunga er undirstaða menningar okkar og ber að bæta meðferð hennar i töluðu máli og rituðu, einkum með þátttöku skóla og fjölmiðla. Við viljum hvetja til skapandi starfs á sviði allra listgreina. Endurskoða þarf styrkveitingar með það i huga að ná betri árangri. Nauðsynlegt er að framboð menningarathafna sé sem fjölbreyttast og sé ekki mál rikis- ins eingöngu. Við viljum stuðla að frjálsri list og menningarstarf- semi einstaklinga og félaga. Við teljum að skólarnir séu of laununum til rithöfunda var kom- ið á i formi Launasjóðs. Við telj- um einnig að gera þurfi listir i vaxandi mæli að daglegu viö- fangsefni almennings, enda eigi að bjóðast til þess auknar tóm- stundir. Einn þingmaður Alþýðu- bandalagsins, Helgi Seljan, átti hvað rikastan þátt i að sett voru leiklistarlög til stuönings frjáls- um áhugaleikfélögum. Margt fleira mætti nefna, en i lokin langar mig að vitna orðrétt i stefnuskrá okkar sem segir: „Sósialiskt menningarviðhorf tekur fyrst og fremst mið af þörf- um og þroskamöguleikum sjálfs einstaklingsins og leggur áherslu á að ytri aðstæður, tengdar eign og valdi, verði sniðnar eftir þvi”.” Styrkir tillistamanna „Menningarmálastefna Alþýðuflokksins getur engan veginn talist fullhugsuð eða fullmótuð, fremuren stefna ann- arra flokka i þessum málum”, sagði Jón Baldvin Hannibalsson. ,,Það er staðreynd, að enginn stjórnmálaflokkur á tslandi hefur upp á að bjóða stefnu i menn- ingarmálum, sem fólgin er i ööru en frómum óskalistum, sem illa gengur að standa við i framkvæmd. Gottdæmi um það, er sú staðreynd, að af 330 milljarða fjarlögum rikisins, er 0,46% varið til menningarmála annarra en skólahalds. Fyrsta spurningin i menningarmála- stefnu stjórnmálaflokks er yfir- leitt, hvert skuli vera hlutverk rikisvaldsins til þess að treysta einhvern starfsgrundvöll skapandi listamanna, og þá er strax komiö að deilumáli um, hvert eigi að vera hlutverk kommisarsins i kúltúrnum. Riki og sveitarfélög veita fjár- stuðning til leiklistar, áhuga- manna-og at- vinnuleikhúsa. Þaöerekki fyrr en ' \ núna um daginn, aörikið afsalaði sér sölu skatts- tekjum af ðgöngumiðum áhugamanna- leikhúsa, sem nam hærri upphæö en styrkurinn. Að öðru leyti rekur rikið ein- hver listasöfn, veitir svokallaða listamannastyrki ogstyrkirstarf semi frjálsra fé- laga, sem fást við menningarmál. Jafnframt veitir það einhverjum fjármunum til hreinna visindarann- sókna, en sú upphæö er einhæfir og að þar fari fram ot mikil mötun. Mun meira skap- andi og listrænt starf þarf að koma til. Að mennta fólk í list er ein forsenda þess að listin sé eðli- legur þáttur daglegs lifs. Við viljum auövelda almenn- ingi þátttöku f listrænu starfi. Við viljum stuðla að útbreiðslu Islenskrar listar sem viðast um heim, ekki siður utan hins norræna menningarsvæðis en innan þess. Við viljum efla listiðn i landinu bæði meö innlendan og erlendan markað i huga. Það er ein forsenda vörugæða og iðn- aðarstefnu sem hlýtur að byggjast á islenskum hugmynd- um og framtaki. Við viljum endurskoða útvarps lögin með það tvennt í huga að tryggja Rikisútvarpinu aukið sjálfstæði og bolmagn til að rækja ótvirætt menningarhlutverk sitt. Við viljum jafnframt veita svig- rúm fyrirfrjálsan útvarpsrekstur innan ákveðins ramma. Islenska kvikmyndagerð þarf aðefla. Það er mikiö framfara og nauðsynjamál fyrir okkur öll. I stuttu svari er ekki unnt að fjalla um fleiri atriði, en ég leyfi mér að benda á að stefnuskrá menningarmálanefndar og lands- fundarsamþykkt Sjálfstæðis- flokksins er fjölþættari og þar er nánar skýrt með dæmum hvernig Sjálfstæðisflokkurinn vill framfylgja stefnu sinni i menn- ingarmálum.” Barátta verkalýðsins... „Mennta- og menningarmála- stefna Alþýðubandalagsins er viðtæk og verður ekki sett upp i örfáa tölusetta liði”, sagði Svava Jakobsdóttir. „Þegar tekin er ákvörðun i einstökum málum á sviði menningar og mennta, reynum við Alþýðubandalags- menn eftir bestu getu að hafa að leiðarljósigildismat, sem tengt er i senn islenskri menningararfleið og þeirra manngildis-og samfélagshugsjón, sem sprottin er upp úr frelsis- og réttinda- baráttu alþýðu og ber öll kennimörk sósialisma — svo ég vitni næstum orðrétt i stefnu- skrá Alþýðubanda- lagsins. I samræmi við mann- gildishugsjón sósialism- ans lítum við svo á, að verkalýðsmál, bar- átta verka- lýðsins fyrir mannsæm- andi lifi, félagsmál og hin hefðbundnu menningarmál séu grein ar á sama meiði og vart sundurgreind. Alþýðubandalagið hefur þvi á stefnuskrá sinni jafnan rétt allra til menntunar. Þess vegna styðj- um við öflugt námslánakerfi, við viljum tryggja fullorðnu fólki að- stööu á við aöra til aö bæta viö menntun sina eða þjálfa sig til starfa, við styðjum starfsemi Menningar- og fræðslusambands alþýðu, svo einhver dæmi séu nefnd. Við teljum, að allt skóla- starf skuli jöfnum höndum taka miðaf því að glæða frumkvæði og sjálfstæða hugsun nemenda og efla með hverjum einstaklingi þá eiginleika sem auðvelda honum sambúð og samskipti við aðra og þau viðhorf sem likleg eru til að gera lífið innihaldsrikara og auðugra. Við höfum lagt áherslu á að afnema beri hin tilbúnu og óeðlilegu skil milli verknáms og bóknáms bæði skipulagslega (með stuðningi okkar við framhaldsskólafrumvarpið) og i breyttu viðhorfi manna á eðli og tilgangi menntunar. Við teljum, aðdagvistarheimilifyrir börn séu — eða eigi að vera — mennta- stofnanir eigi siður en aðrar, sem morgum finnst sjálfsagt að kalla þvi nafni. Við teljum að listsköpun eigi að vera frjáls og styðja beri hvers konar listsköpun landsmanna og gera listamönnum kleift að stunda iðju sina. Ég leyfi mér að minna á, að einmitt i þessu skyni átti ég frumkvæði að þvi á Alþingi fyrir nokkrum árum, að starfs- {f „í4ÍÉI»v f < - lika eitthvert lægsta hlutfall af þjóðartekjum, sem þekkist i Evrópu. Rikisvaldið býr ekki til menn- ingu, þaö gera bara einstakling- ar. Þaö ernáttúrlega alkunna, að rikisvaldi getur lagt fram mikla fjármuni til að búa til glæsilega umgerð í túlkandi listum, rikinu til lofs og dýraðr, sbr. t.d. i Sovétrlkjunum. A sama tima hundeltir þetta sama rikisvald skapandi listamenn eins og rit- höfunda, málara og tónskáld, ef þeir falla ekki inn i fyrirfram ákveöið mynstur um jákvaeð viðhorf til rik isvaldsins. 1 þessu er fólgin stórkostleg hætta, aö lit- ið verði á listamenn sem pensjónista rikisvaldsins. Lista- menn veröa að vera frjálsir. Aðalgallinn á fjárstuðningi rikisvaldsins við listamenn er sá, að hann er fremur hugsaður sem - einhver viðurkenningarvottur fremur en laun fyrir unnið starf eða hvatning til starfa. Þess vegna vill Alþýðuflokkurinn fremur veita slika styrki i formi starfslauna, þannig að færri njóti þess hverju sinni, en þeir komi að meira gagni. Einn vandi listamanna, eins og annarra hér i þessu fámenna þjóöfélagi, er smæð markaðarins. Hér getum við, að fordæmi grannþjóða okkar,látið I té skipu- lagða þjónustu, með þvi að skipu- leggja heimsóknir tónlistar- manna, rithöfunda og sýningar málara i skóla og félagsheimili um landið og greiða fyrir þá þjónustu fullu veröi. Eitt dæmi þar sem mennta- málayfirvöld þurfa að stórbæta sitt ráð, er i músikuppeldi þjóðar- innar. Tónlistarskólar eru sér- skólar og á islenskan mælikvaröa nokkuð dýrir. Að fordæmi þjóöa eins og Ungverja eigum við að gera skipulegt átak til að gefa tónlistaruppeldi fastan sess i barnauppeldi þjóðarinnar. Þýðingarmikill styrkur rikis- ^valdsins við rithöfunda, væri að fella niöur skattlagningu á inn- lenda bókagerð,og um leið fjölga beinum starfsstyrk jum til rithöfunda og greiða fyrir þýðing- um okkar bestu rithöfunda á er- lend mál, þannig aö þeirgetilifað af Bst sinni ekki siður en þeir kennarar sem lifa á þvi að kenna bækur þeirra I skólum. Löngu timabært er oröið að lyfta islenskri kvikmyndagerð af frumbýlingsstiginu. Hún geldur mjög smæðar heimamarkaðar. Þaö getur ekki gerst nema með þvi að tryggja greininni fasta og vissa tekjustofna, t.d. með skatt- langingu aðgöngumiða að kvik- myndahúsum, og skyldubundinni samvinnu innlends sjónvarps. 1 núverandi efnahagskreppu verða fjárveitingar til listsköp- unar ekki auknar nema með þvi að draga sem þvi svarar Ur sólund I skólakerfinu, sem fær i sinnhlut 96,8% allra fjárveitinga á vegum menntamálaráöu- neytis.” Manngildi ofar auðgildi „Það grundvallaratriði I stefnu 3» ■■ > AGÆTIS SÖNGKONA Leiklistarfélag M.H. sýnir SköIIóttu söngkonuna eftir E.Ionesco I þýðingu Karls Guð- mundssonar. Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson. þó finnst manni oft eitthvað vanta i leikhúslifiö — einfald- lega vegna þess að raddir sem fyrr heyrðust eru þagnaðar. Við þessar aðstæður getur vel farið svo að leiksýningar áhuga- manna i skólum eigi erindi langt Leiklist eftir Heimi Pálsson Það er öllum kunnugt, að starfsemi frjálsra tilraunahópa i leiklist höfuðborgarinnar ligg- ur að langmestu leyti niðri um þessar mundir. Leikhúsin þrjú hafa að sönnu sin sérkenni, en út fyrir það litla samfélag sem þær eru risnar upp i. Þetta gild- ir a.m.k. ef vel hefur tekist tii um val leikstjóra og starf hans. t félagsheimili nemenda Menntaskólans viö Hamrahlið — venjulega nefndu Noröur- kjallara af heimafólki — hefur verið breytt um háttu. Við dyrn- ar tekur á móti manni kjól- klæddur dyravörður, gestabók liggur frammi, buktandi hvit- farðaöir þjónar visa gestum til sætis og bera þeim siðan te- blöndu hússins ellegar þá dökk- an bjór eða ljósan. Við ágætan undirleik hljómsveitar hússins og notalegan söng Hönnu Stinu liggur við að skapist sannfær- andi krárstemmning. I þessum stað sem nú hefur fengið heitið The Cellar of the North leikstýrir Andrés Sigur- vinsson einhverju frægasta absúrdleikriti allra tima, Sköllóttu söngkonunni. Ég get enga grein gert mér fyrir ástæðunni, en af einhverj- um sökum höfða sum verk framúrstefnumannanna meira til min en flest annað. I þeim er einhvers konar túlkun á firringu nútimamannsins sem mér finnst aðrar listgreinar tæpast lýsa eins átakanlega og á jafn skemmtinn hátt þó. Og ég varö ekki fyrir vonbrigðum viö að endurnýja kynnin við Sköllóttu söngkonuna. Andrés Sigurvinsson er ekki langreyndur leikstjóri, en ef mér skjátlast ekki eigum við eftir að heyra meira af honum á næstunni. Mér sýnist á öllu að hann hafi unniö verk sitt með miklum sóma. Skólasýningar hafa fjarska oft tilhneigingu til að verða hálfgerður leikskóli, þar sem ærslin og gleðin rikja ein. Svo varð ekki þarna. Ungt og litt reynt fólk var þarna að leika i alvöru, takast á við erfitt verkefni og gera sitt besta. Það er ævinlega ánægjulegt aö sjá vel unniö — og ekki sist að sjá leikhúsfólk leggja sig fram við að vinna með áhugafólki. Leikhúsið i The Cellar of the North er ekki stórt. Þess vegna er borin von að þessi sýning nái til allra sem ástæða væri til. En ég held ég geti lofað mönnum þvi, að kvöldstund á kránni atarna er vel variö. Með þökk fyrir skemmtunina. P.s.: Leikendur heita Magnús Hákonarson, Birna Bjarnadótt- ir, Valdimar Helgason, Margrét Gunnlaugsdóttir, Gubrún Björg Erlingsdóttir og Ólafur Tryggvi Magnússon. HP

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.