Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 01.02.1980, Qupperneq 18

Helgarpósturinn - 01.02.1980, Qupperneq 18
18 LAND OG L/ST Austurbæjarbió: Land og syn- ir. islensk. Argerö 1980. Gerö eftir samnefndri sögu Indriöa G. Þorsteinssonar. Leikstjórn, klipping, og handrit: Agúst Guömundsson. Kvikmynda- taka: Siguröur Sverrir Pálsson. Leikmynd: Jón Þórisson. Tón- Bst: Gunnar Heynir Sveinsson. Leikendur: Siguröur Sigurjóns- son, Jón Sigurbjörnsson, Jónas Tryggvason, Guöný Hagnars- dóttir, Þorvaröur Helgason, Magnús Óiafsson o.fl. Fram- leiöandi: isfSm. Framkvæmda- stjóri: Jón Hermannsson. Loksins, loksins... Meöan afkynningartitlarnir i Landi og sonum runnu út af tjaldinu I Austurbæjarbió, sóttu þau aö mér þessu fleygu upp- hafsorö i ritdómi Kristjáns Al- bertssonar um Vefarann mikla, bókina sem sumir vilja álita aö marki upphaf fslensku nútima- skáldsögunnar. Þessi orö eiga á sinn hátt einnig við um Land og syni, þvi mér finnst eölilegt aö eftirleiöis veröi ti'matal leikinna islenskra kvikmynda mitað viö frumsýningardag Lands og sona — föstudaginn 25. janúar. minna á aö i bókmenntasögunni er þessi skáldsaga fremur tima- mótaverk en meistaraverk. Svipaö er aö segja um Land og syni. Þótt margt sé þar vel gert er myndin ekki meistaraverk. Til þess getur heldur enginn ætl- ast. Agústi Guömundssyni, höf- undi þessarar myndar, og sam- starfsmönnum hans hefur tekist aö búa til þjóölega kvikmynd, draga upp látlausa en fallega mynd frá tilteknu timabili i lifi þjóðarinnar á þessari öld, krydda hana hæfilegum skammti af gamansemi en þó umfram allt mannlegri hlýju og gera þaö alltsaman heldur trú- veröugt. Þaö erekkilttið afrek. Um leiö er myndin sérlega trú hinum upprunalega efniviö, samnefndri skáldsögu Indriöa G. Þorsteinssonar án þess þó aö maöur veröi óþyrmilega var viö aö bókin sé aö þvælast fyrir myndinni. Agúst hefur unniö gott verk þar sem handritiö er og greini- legt aö þarna er kunnáttumaöur á ferö. Þá hefur samvinna þeirra Agústs og Siguröar Morðsaga Reynis Oddssonar var of brotakennd og meingöll- uömyndtilaö veröskulda slikan sess. Land og synir er aftur á móti rammíslensk kvikmynd, sem heldur áhorfendum viö efniö allt frá byrjun tii loka. Hand- verkiö sem i myndinni birtist ber þess vitni, að aöstandendur hennar eru bjargálna menn i hugviti og þekkingu á þeirri guUgeröarlist sem kvikmynd er og er um leiö ánægjuleg staö- festing á þeirri fullvissu okkar margra, aö islensk kvikmynda- gerö stendur ekki lengur á brauöfótum hokurs og fákunn- áttu, sem svo lengi hefur veriö hennar fylgifiskur. Þetta táknar þó varla aö ekki sé þörf aö hlúa betur aö þessari menningar- grein, þvl aö þrátt fyrir allt er sá f jörkippur sem nú hefur oröiö vart mestmegnis einkaframtak, gert út á bjartsýnina og áræöiö eitt saman. Hér á undan hefurveriö tekiö djúpt i árinni. Til aö giröa fyrir allan misskilning má þá ef til vUl halda áfram meö samlik- inguna viö Vefarann mikla og Sverris Pálssonar, kvikmynda tökumanns, veriö til fyrirmynd- ar ograunarfinnst mér framlag hins siöarnefnda tU myndarinn- ar aö mörguleyti merkilegasti þáttur hennar. Um þaö má nefna mörg dæmi. Islenska landslagið gegnir stóru hlut- verki en er þó aldrei ofnotaö eöa látiö leUca aöalhlutverkiö, eins og stundum hefur viljaö brenna viö i islenskum myndum eða myndum teknum hér á landi, heldur feUur þaö inn I myndina sem fullkomlega eölilegur bak- grunnur. Og þaö sem meira er — þeir félagarnir eru alls ó- hræddir viö aö nota Islensku veöráttuna I öllum slnum marg- breytileiku veörabrigöum, sem veröur til aö undirstrika hversu sannislensk þessi mynd er. Sama má segja um ýmis inn- skotsatriði Agústs I myndinni. Égnefni söng hetjutenórsins viö fjallavötnin fagurblá og gangnamannasönginn I kjölfarið. Otlendingum þætti þetta senni- lega heldur afkáraleg uppá- koma i óbyggöum en hittir i mark skopskyns Islendingsins, sem veit vel aö þetta heföi vel Föstudagur 1. febrúar 1980 helgarpásturinn Einar bóndasonur IGilsbakka (Siguröur Sigurjónsson) og Tómas I Gilsbakkakoti (Jón Sigurbjörnsson) ganga frá sölunni á Gils- bakka. getaö gerst —og hefur vaf alaust gerst. Smekkvisin er töluvert ein- kennandi fyrir Agúst og þessi mynd fer ekki varhluta af henni. Kannski er ég þó þakklátastur honum fyrir það hvernig hann meöhöndlar slátrun dýra i þremur atriöum i myndinni og unaösstundelskendanna bak viö heysátuna á árbakkanum. Agúst hlifir okkur við blóöbaöi og samfaraatriöum, þessu tiskukryddi kvikmyndanna nú á dögum en segir þó allt sem segja þarf. Þaö er guösþakkar- verö tilbreyting. Land og synir eru átakasaga, saga um innri og ytri baráttu. Þar segir frá ungum pilti I sveit á kreppuárunum, sem eftir iát föður sins ákveöur aö rifa sig upp og flytjast á mölina, selur allan bústotmnn og jöröina, sem faöir hans unni og erjaöi, upp i skuld viö kaupfélagiö. Þetta er einnig saga heimasætunnar á næsta bæ, sem elskar þennan pilt og verður aö velja á milli þess aö fylgja piltinum eöa veröa eftir i foreldrahúsi I sveit- inni. Þessari baráttu kemur mynd- in ekki til skila aö neinu marki og þaö er hennar veikleiki. Kvikmyndin eins og llöur áfram átakalitiö og þegar mesta hrifn- ingarvíman er runnin af manni og maöur fer aö skoöa hana ögn nánar i' minningunni, þá rennur það upp fyrir manni aö þaö er eins og söguþráöur myndarinn- ar sé sumpart borinn ofurliöi af einstökum atriöum hennar og ekki eralveg laust viö aö heildin raskist ofurlltiö. Hér veröur samanburöur viö skáldsöguna ef til vill óhjá- kvæmilegur, þvi aö finna má nokkra réttlætingu fyrir þessu átakaleysi i bókinni sjálfri. En þá er þess aö gæta aö Indriöi beitir kunnáttusamlega stíl- brögöum sínum og náttúru- og stemmningslýsingum til aö leiða fram tengsl lands og son- ar, en á þessi tengsi finnst mér skorta I myndinni. Indriöi eyöir aö sönnu heldur ekki mörgum oröum til aö lýsa tilfinningalffi persóna sinna i samtalsþáttum bókarinnar, en engu aö siður býr hann þannig um hnútana að lesandanum dylstekki aö Einar bóndasonur á Gilsbakka á sinar rætur I þvl landi sem hann hyggst yfirgefa og hann telur sjálfur aö þaö sé aöeins raunsæ- iö sem rekur hann til borgarinn- ar og þá sárusaukafullu ákvörö- un dylur hann bak viö kald- hæðnina. Þetta kemur ekkieins vel yíir I myndinni. I túlkun Siguröar Sigurjónssonar veröur þessi sami bóndasonur frekar týpa, fulltrúi hinna nýju viöhorfa,og hann kastar fram setningum I keimlikum hálfkæringi hvernig sem á stendur. Siguröur er sjálfum sér likur I þessari mynd, og nær tæpast þeim tök- um á bóndasyninum til aö hann veröi sannfærandi. Reyndar er framsögn Siguröar hvergi nærri nógu góö I myndinni. Um flestar aörar söguhetjur myndarinnar gildir þaö einnig, aö þær virðast þarna komnar fremur sem týp- ur en mótaöar persónur og það er aöeins Jóni Sigurbjörnssyni sem tekst aö birta okkur ljóslif- andi persónu i Tómasi stór- bónda I Gilsbakkakoti. Sannast sagna er það dálítiö höfundar- einkenni á Agústi Guömunds- syni hversulitla rækt hann legg- ur viö persónusköpunina — i þessari mynd sem fyrri mynd- um sem ég hef séö eftir hann. Hann viröist uppteknari af þvi aö leiöa fram á sjónarsviöiö þessar týpur sinar, fulltrúa mis- munandi viöhorfa eöa þjóöfé- lagshópa. Þetta er góö og gild aðferð þar sem hún á viö en ég held aöLandogsynirheföu ekki haft vont af þvl aö fá ofurlltiö dramatlskari tdn, þvl sagan býöur óneitanlega upp á sllkt. Kvikmyndin er þó alltént einnig dramatiskur miöill. Agústi fatast lika ögn flugiö I þeirri viöleitni sinni aö undir- byggja samband bóndasonar og heimasætunnar því aö bakskot- iö frá dansleiknum meö bónda- soninni. úti ihorni en heimasæt- una úti á dansgólfinu kemur eins og skrattinn úr sauöar- leggnum, þar sem þeir eru aö rlöa til heiöa — bóndasonur og faöir stúlkunnar. Um frammistööu leikara skal ekki fjölyrt. Mér sýnist þó Guö- ný Ragnarsdóttir skila heima- sætunni mjög þokkalega og án þess aö viðvaningsbragur I leik valdi manni verulegu angri. Jónas Tryggvason á einnig á- gæta spretti en veldur ekki kvalaköstum og verður þaö aö skrifast á leikstjórnina. Þor- varöur Helgason i hlutverki ör- lygs skálds kemur á óvart og raunar allt þaö atriöi. Þaö er skemmtilega ýkt og ágætlega gert út af fyrir sig, en I þessari mynd virkar þaö dálitiö eins og laxneskur undanvillingur, eins og einhver oröaöi þaö svo ágæt- lega. Ónefndur er þáttur Jóns Þdr- issonar i leikmyndinni og viröist mér honum yfirleitt hafa tekist aö færa okkur aftur til kreppu- áranna I dreifbýlinu án þess aö þar stingi nokkuö I augun. Gunnar Reynir hefur gert tón- list við myndina og leyst það vel af hendi. Sextlu milljónir króna er ekki há fjárhæð til kvikmyndageröar, en Land og synir ber þess furöu litil merki aö þar hafi eitthvaö veriö skoriö viö nögl. Aldrei þessu vant getur maöur heils- hugar mælt meö islenskri kvik- mynd án þess aö þurfa aö hnýta aftan viö fyrirvara á borö við „miöaö við allar aðstæöur.” Hvaö sem öllum hnökrum líöur þá er þetta vel gerö kvikmynd og verulegur menningarauki. Sú verður heildarniöurstaöan. 1 Landi og sonum er þaö ung- ur maöur sem af raunsæi slnu á- kveöur að selja fööurleifö slna ásamt öllu sém henni fylgir, skýtur gæöing sinn og heldur út I óvissuna þótt þaö kosti hann ástina hans. Þaö má finna hliö- stæöu meö bóndasyninum unga á Gilsbakka og aöstandendum þessarar myndar. Þeir eru aö visu hugsjónamenn, ef ekki draumóramenn en þeir slógu bankastjóra og köstuöu sér ávo út I óvissuna. Þaö stökk verö- skuldar að verða upphaf aö var- anlegu ástarævintýri — lands og þeirrar listar sem kvikmyndin er. BVS SVANASONGVAR Þaö var sameiginlegt öllum þrem verkunum á sinfóniutón- leikunum 24. janúar, aö þau vorusamin á þrengingatimum i lifi tónskáldanna og tvö þeirra nánast svanasöngvar. Vltava Bedrich Smetana (1824-84) varö fimmtugur aö aldri fyrir sömu hrellingu og Beethoven: algeru heyrnarleysi. Þá hóf hannaö semja sinfóniska ljóöa- flokkinn Fööurland mitt. Annar kaflinn af sex heitir Vltava eftir fljótinu, sem þýskir og viö flestir köllum Moldá. Tónaljóö þetta er einkar myndrænt. Viö heyrum fyrst uppsprettulindirnar ólga og niöa ýmist hjá tréblásurum eöa strengjum. Smátt og smátt sameinast lækirnir I stærri og stærri ár, uns Moldár-lagiö upphefst og veröur æ kraft- meira eftir þvl sem móöan vex og veröur ýmist aö lygnu eöa straumþungu fljóti. Síöan ber ýmsar myndir á bökkum árinnar fyrir eyru: horn og básúnur gefa skógar- veiðiferö til kynna, fiölur og klarínett slá upppolka i bænda- brúökaupi, jafnvel vatnadlsir bregða á leik i tunglsljósi. Einna tilkomumest veröa þó straumköstin og iöurnar i ánni. Sé verkið flutt I heild, má heyra i lok þessa kafla stefiö úr fyrsta þættinum Vysehrad, gömlu virkisrústunum nyrst I Prag, sem senda kveðju sina, meöan fljótiö liöur framhja'. Hans Eisler notaöi Moldár- stefiö i lagiö viö hnökralaust Moldárljóö Brechts úr Svejk i 2. heimsstyr jöldinni, sem er næstum skiljanlegt manni, sem aldrei hefur þýsku lært: Am Grunde der Moldau wandern die Steine Es liegen drei Kaiser begraben in Prag. Das Grosse bleibt gross nicht und klein nicht das Kleine. Die Nacht hat zwölf Stunden, dann kommt schon der Tag. Þaö fer ekki hjá því,aö sá sem hefur látiö sig reka á vindsæng ofaneftir Moldá og synt 1 röst- inni, þar sem hún mætir Sax- elfi, veröi nokkuö vandlátur um flutning þessa verks. Þaö er likt og sérviska hvers og eins, hvernig eigi aö fara meö Gunn- arshólma. Og þótt allir geri vel, og rétt, finnst mér ætiö sem Tékkar einir geti spilaö þetta af nægum innileik. En aö þvislepptu, var þetta vissulega fögur kveöandi aö heyra. Krýningarkonsertinn Mozart átti aö vlsu þrjú ár ólifuö, þegar hann samdi þennan konsert. En hann var þá kominn i miklar fjárhags- kröggur vegna þeirrar ein- þykkni sinnar aö vilja endilega vera frjáls listamaöur. Þessi konsert átti þvi aö veröa „kassastykki”, sem hann og varö einsog flest annaö sem þessi ungi maður framleiddi. Sjálfum entist honum hinsveg- ar hvorki auöna né aldur til aö njóta þeirrar tekjulindar. Einsog i flestum slöari píanókonsertum Mozarts er hér um vissa keppni aö ræöa milli einleikaraog hljómsveitar, sem geriráheyrandann stundum dá- litiö spenntan. Samkvæmt leik- reglum tónskáldsins á þó allt aö falla i ljúfa löö og gerir þaö oftast. Þaö var kannski misskilningur en þaö virtist jaöra viö ósamkomulag milli tirsúlu Ingólfsson og Urs Schneider, t.d. varöandi hraöann. En auðvitaö beygöu þau sig aö lokum undir lögmál meistarans. Átakanlega sinfónian Ekki fór illa á þvi, aö á eftir Wolfgang Amadeusi kæmi aödáandi hans Pjotr Iljitsj Tsjækofskl (1840-1893). Þetta dæmi um litríka rússneska manngerö, sem maöurséralltof sjaldan i opinberu lifi nú á dögum, átti m.a. til sinn hroka einsog fram kemur i dagbókum hans og bréfum: „Ég hef spilaö i gegn múslk eftir þennan þorpara Brahms. Hvllikur fábjáni!” — „Aldrei fyrrhefur þvilikur gáfnaskortur veriö sýndur af jafnmiklu yfir- læti”, sagöi hann um Richard Strauss. — ,,Mér finnst gaman aðspila Bach, af þvi þaö er gott aö spila góöa fúgu. Hándel er fjóröa flokks, hann er ekki einusinni áhugaveröur. Ég hef samúö meö Gluck, þótt sköpunargáfa hans sé i lakara lagi. Sumt hjá Haydn er fallegt. En Mozart yfirskyggir alla þessa stjórmeistara. Geislaj-, þeirra hverfa I sólskini hans. Þetta er a.m.k. öllu skemmti- legri rússahroki en viö höfum kynnst á næstliðnum árum. Hvar skyldu sambærilegir menn viö Pjotr Iljistj vera staddir I þvisa landi núna? Sfnfónia Pathétique er svo sannarlega sálmur um dauöans óvissa tima, sem uppáféll tónskáld (viljandi?) aöeins rúmri viku eftir frumflutning- inn I Pétursborg. Ef á annaö borö er unnt aö túlka þjáningar storma og strlö I tónum, þá hafa fáir gert þaö betur en Beethoven og Tsjækofskí. í stuttu máli togast á i þessu verki angurværö, tregi, kæti, svartsýni og stolt. Viljakrafturinn birtist I slnum mætti I þriöja þætti, en uppgjöfin er undirrituö i þeim siöasta? Kom þú sæll, þá þú vilt. Pjotr átti ekki I f járhagsöröug- leikum, þvl aö rlkir snobbar borguðu meira undir hann en rikisvöld gera nú á dögum. En hann var m.a. óforbetranlegur hommi og öfugt viö suma aöra skammaöist hann sín fyrir þaö og baröist á móti þvi. Brúö- kaupsnæturnar fóru átakan- lega út um þúfur. Sjálfur sagöi hann, aö ekkert gæti túlkaö sálarstrlö betur en múslk. Þaö er a.m.k. nærtækt aö skilja 6. sinfóníuna I ljósi þessa. Manni fannst líka sálarástandiö hjá hljómsveit- inni æriö ótryggt á köflum. En alltaf náöist jafnvægi á milli og endirinn varö giftusamlegur og forvitnilegt aö heyra þessi uppgjafarandvörp svona óvanalega langdregin.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.