Helgarpósturinn - 28.03.1980, Page 3
—he/garpósturinrL
Föstudagur 28. mars 1980
27
Sjálfur segist hann sjaldan
hugsa um dauöann. Hann segist
heldur ekki þjakaöur af kviða og
áhyggjuköstum, en þö helst ef
hann óttast aö geta ekki leyst öll
embættisverk af hendi. Engum
sérstökum lifsreglum segist hann
fylgja og börn sin ali þau hjón upp
eftir brjóstvitinu.
Þetta viröist honum allt svo
leikandi létt aö mér verður loks á
að segja að hann virðist lifa
áhyggjulaus eins og fuglar
himinsins. En það gerir enginn
sem veriö hefur f æðri embættum
rikisins um áratugi, enda verður
hann steinhissa: „Eru fuglarnir
ekki alltaf aö leika sér? Við
hjónin höfum næstum aldrei á
ævinni tekiö okkur fri.”
Og þegar hann er alveg orðinn
uppgefinn á spurningum minum
um viðhorf hans til lifs og dauða,
til þjóðfélagsins — sem hann
færist undan að ræða, og um
trúarskoðanir hans, sem hann
heldur ekki vill ræða, eflaust
vegna þess að honum finnst þaö
brjóta í bága viö hlutleysi sitt, þá
segirhann að lokum að hann telji
mest um vert að hegða sér
skikkanlega og muna hvað
stendur i bibliunni, að það sem
þér viljið að aðrir gjöri yður, það
skuluð þér og þeim gjöra.
En geturðu ekki lýst sjálfum
þér?
„Ég er eins og jafnaldrar minir
tveggja tima barn, i' aöra röndina
miðaldamaður og kreppukyn-
slóðarmaður, en i hina röndina
nútimamaður. Sem manneskja
vona ég að ég geti kallast
alminlegheitamaður.”
Stofustúlkan kemur inn og
tekur fram kaffið af borðinu.
Henni til aöstoðar er tólf ára
piltur, barnabarn forsetans.
Hann leikur þjón, i siðum lafa-
frakka af afa sinum með tandur-
hvita hanska, mælir ekki orð frá
vörum. Þannig er embættis-
maöurinn, þjónn rikisvaldsins^og
leikur þögull hlutverk sitt.
Lokar
þú augunum íyrír
staóreyndum?
„Kaupmaður kaupir 10 egg á 100 krónur.
Hann selur þau aftur á 120 krónur. Hve mikill
er gróði kaupmannsins?“
Þetta gamla skólabókardæmi er aðeins örlítið
brot af þeim misskilningi, sem ríkt hefur
hérlendis um viðskipti og verslun. Það er
nefnilega ómögulegt að reikna út gróða, án
upplýsinga um kostnað verslunarinnar.
Alíka misskilningur hefur einnig ríkt um inn-
lenda heildverslun. Akaflega margir loka
beinlínis augunum fyrir staðreyndum varð-
andi hlutverk heildverslunar í nútíma þjóð-
félagi.
Það er staðreynd að samkeppni í heildverslun
er grundvöllur vöruúrvals og vörugæða. Það
er líka staðreynd, að ranglát löggjöf um
heildsöluálagningu hefur staðið innlendri
heildverslun fyrir þrifum.
Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því,
að heildverslunin einfaldar vörudreifingu og
gerir hana ódýrari; um leið og samkeppnisfær
heildverslun stuðlar að hagkvæmu vöruverði,
skapar hún atvinnu í atvinnugreinum, sem
flest okkar líta á sem sjálfsagða þjónustu.
Frjáls atvinnurekstur í lýðræðisríkjum er trygging þín fyrir dagiegri
þjónustu, sem öllum fínnst sjálfsögð.
Betri þjónusta og fjölbreyttara vöruúrval, með öfíugri heildverslun,
er stór hluti þeirrar tryggingar.
Stundum gleymist bara hve heildverslun er nauðsynleg.
Antwerpen
alla fimmtudaga
Hafðu samband
EIMSKIP
SIMI 27100
viðskipti
&veizlun
Hafið þið
gert ykkur
grein fyrir
auglýsingamætti
HELGAR-
PÓSTSINS?
Síminn er
8 18 66