Helgarpósturinn - 28.03.1980, Page 21

Helgarpósturinn - 28.03.1980, Page 21
45 —helgarpásturinrL. Föstudag ur 28. mars 1980 0 Fred Astaire, hinn áttræði dansari frá Hollywood, hefur ný- lega tilkynnt það, að hann ætli að ganga i hjónaband með Bobyn Smith, en hún er aðeins 36 ára, og fyrsti kvenkyns knapinn sem eitt- hvað hefur kveðið að á veðhlaupabrautinni. Það var lika hinn sameiginlegi áhugiáhestum sem varð til þess að þau kynntust fyrir átta árum. Ekki hafa þau enn ákveðiö brúðkaupsdaginn, en vonum bara að það verði fljótlega og allt gangi i haginn fyrir þeim... # Tollverðir i Nigeriu komust heldur betur i feitt um daginn, þegar þeir rannsökuöu gám nokk- urn, sem samkvæmt skýrslum átti að innihalda mjólk. Ekki var þaö nú beinlfnis mjólk, en ef við höldum okkur viö kúaafurðir, má segja að það hafi verið nokkurs konar rjómi. Það var nefnilega dýrindis Mercedes Benz. Nigeriu- menn eru haldnir sömu áráttu og Islendingar, að þeir tolla bila alveg óskaplega. Verður þvi hver sem er að reyna að bjarga sér eftir bestu getu. Vonandi tekst piltinum betur næst upp...... # Það hefur mjög færst I vöxt hin siöari ár, að konur ganga um berar að ofan á baðströndum Evrópu, og þykir ekki tiltökumál. Þetta hafði lika veriö gert á bað- ströndinni við Rio de Janeiro i nokkrar vikur, án þess aö menn kipptu sér upp við þaö, þangað til að einn dag kom ein ægifögur og vel sköpuð yngismær og spókaði sig um iklædd eingöngu smásæj- um þrihyrningi um lendarnar. Varð hún umsvifalaust fyrir miklu aökasti frá öðrum bað- strandargestum og átti i vök að verjast. Kærasti stúlkunnar ætl- aði nú að koma sinni heittelskuöu til bjargar, en það fór ekki betur en svo, að skrillinn réöist að hon- um i staðinn og átti hann fótum sinum fjör að launa og leitaði skjóls i kofa einum Skipti það engum togum, að lýðurinn réðist á kofann og ætlaði að skemma. Linnti ekki látunum fyrr en lögg- an kom á vettvang og tvístraði liðinu með táragasi og öðru til- heyrandi. Þvi segi ég yður.. Tölvutæknin gerir meira en að etja saman væntanlegum hjónum. Nú er komið á markaö handhægt tæki fyrir heimshorna- flakkara. Það er ekki mikiö stærra en venjuleg vasatölva, en með tækið i hendinni geturðu bjargaðþér á fimmtán tungumál- um: Ensku, frönsku, spönsku, þýsku, itölsku, japönsku, norsku, portúgölsku, sænsku og finnsku. Allt og sumt sem gera þarf er aö slá inn orðið sem þig vantar, og þá birtist þaö þér d þvi tungumáli sem þú óskar. Auk þess er inná tölvunni allar upplýsingar um mat og vin, viðskipamáliska, kaloriuteljari og kennslustund I hinum ýmsu fjárhættuspilum og fleira. Semsagt: þarna er kominn nýi. feröafélaginn.... Fólksbíll kr. 1.840.000.- Station kr. 1.950.000.- Þeir sem reka fyrirtæki sín vel meta þad og vega í hverju sé sparnaður Þeir sem vilja spara kaupa TRABANT enda hagkvæmustu bílakaupin með tilliti til vaxta, afskrifta, viðhalds og benzínkostnaðar. TRABAIMT/WARTBU RG UMBOÐIÐ Vonorlondi v/Sogoveg Simor 30560-37710 Segulband fyrir rafhlöður. Innbyggður hljóðnemi. Verð kr. 54.560,- Útvarpstæki LB og MB Aðeins fyrir rafhlöður. Verð kr. 14.217,- Sambyggt útvarp og segulband, fyrir rafhlöðu og rafmagn. LB, MB og FM. Innbyggður hljóðnemi. Verð kr. 134.704.- Hárblásari — 400 W; Verð kr. 23.323- Segulband fyrir bæði rafhlööur og rafmagn Innbyggður hljóðnemi. Verð kr. 62.240.- Rakvél með 2, 12 blaða hnífum Verð kr. 48.231,- Plötuspilari með innbyggðum magnara Hátalarar fylgja. Verð kr. 120.215.- heimilistæki hf Morgunhani með LM, MB og FM. Gengur alveg hljóðlaust. Verð kr. 37.780,- HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 Útvarpstæki LB MB og FM. Bæði fyrir rafhlöður og rafmagn Verð kr. 36.336,- Hárburstasett með 4 fylgihlutum. 800 W. Verð kr. 33.596.-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.