Helgarpósturinn - 11.06.1982, Síða 6

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Síða 6
6 Föstudagur 11. júní 1982 JHelúan-^y: jJósturinrL Er ekki NATO-sinni að ástæðulausu Fjölbreytt starf og skemmtilegt, segir Mik Magnússon. — segir Mik Magnússon, blaðafulltrúi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli Mik Magnússon, blaöafulltrúi hersins á Keflavíkurflugvelli, er vitaskuld NATO-sinni. Hann trúir á málstaöinn. Mik er úvenjulegur islendingur — hann varö nefni- lega ekki íslenskur fyrr en hann var kominn á fulloröinsár, fram aö þeim tima var Mik Skoti. Hann á ennþá til aö fara I Skotapils. En hann er nú islenskur rikisborgari kvæntur islenskri konu, og hefur búiö hérlendis i mörg ár. Hann sagöist hafa hafiö störf fyrir upplýsingadeild herliösins á Keflavikurflugvelli vegna þess eins, aö hann hafi fengiö tilboö um starfiö. „Ég var þá starfandi hjá Menningarstofnun Banda- rikjanna i svipuöu starfi. Mér fannst hugmyndin strax góö — þetta er fjölbreytt starf og skemmtilegt. Þaö er ekki einasta fólgiö i þvi aö kynna tslendingum varnarliöiö heldur einnig aö kynna hermönnum hér tsland og tslendinga, þjóöina sem hefur engan eigin her og þekkir ekki. Hér er sjálfstæö þjóö meö sjálf- stæöa menningu og siöi. Þaö skipti mig miklu máli, þegar ég tók ákvöröun um aö þiggja þetta starfstilboö, aö mér fannst yfir- menn hér á Vellinum vilja sýna tslendingum og sjónarmiöum þeirra skilning. Þetta væri náttúrlega útilokaö fyrir mig ef sú afstaöa væri ekki fyrir hendi. En þaö er ekki rétt, aö ég vinni fyrir erlent stórveldi. Ég vinn fyrir NATO, sem tslendingar eiga aöild aö og NATO er auövitaö samvinnustofnun tslendinga og fleiri þjóöa.” Varnarsamstarfið er nauðsyn — Þannig aö þú starfar ekki fyrir herinn af beinum hugsjóna- ástæöum? „Bæöi og. Ég myndi aldrei vinna fyrir málstaö sem ég trúi ekki á. Ég er frjáls maöur hér meö fullt málfrelsi og þaö nota ég. En ég er mikill NATO-sinni vegna þess aö ég tel vera ástæöu til þess. A meöan „hinum megin” eru einnig herveldi, á meðan stjórnmálamennirnir koma sér ekki saman um aö leggja heri niöur og útrýma vopnum, þá er varnarsamstarfið nauösyn. Þaö má þvi segja aö á þann hátt sé ég hér af hugsjónaástæðum”. Vil vera hérna megin við múrinn — Og hvaö er þaö svo, sem þú gerir fyrir NATO? „Þaö er nú býsna margt. 1 fyrsta lagi þurfum viö hér aö vera tilbúnir aö svara öllum spurning- um, sem til okkar er beint, bæöi hérlendis og erlendis frá. Viö sendum aidrei frá okkur upplýs- ingar eöa áróöur óumbeönir og skiptum okkur ekki af stjórn- málalegum deilum eöa ágrein- ingsefnum. Spurningum af þvi tagi svörum viö ekki. Þaö má segja aö herinn hér sé eins og lög- regla, hlutverk hans er aö annast varnir landsins og aö þvi miöar öll starfsemin. I ööru lagi er það hlutverk okkar i upplýsingadeild- inni aö fylgjast meö og miöla upp- lýsingum, sem eiga aö koma i veg fyrir vandamál. Vandamál sem alltaf geta komiö upp, þvi hér eru jú tvær þjóöir meö ólika siöi. Okkar hlutverk er aö foröa árekstrum, sem gætu komið upp — til dæmis meö þvi aö benda herstjórninni á, aö ekki sé hyggilegt að vera meö stórar her- æfingar yfir Keflavik á Sjó- mannadaginn. 1 þriöja lagi tökum viö á móti hópum, sem koma á Völlinn og vilja skoöa aöstööuna, skipu- leggjum feröir þeirra um varnar- svæöiö og svörum spurningum. í fjóröa lagi fylgist ég með is- lenskum blöðum og islenskum stjórnmálum, svo viö getum alltaf vitaö i hvaöa andrúmslofti við störfum, hvernig fjallaö er um málefni varnarliösins og svo framvegis. Nú og i fimmta lagi þá annast upplýsingadeildin hér svo- kallaða „overseas diplomacy”. Þar er átt viö þriggja daga nám- skeiö, sem haldin eru vikulega fyrir nýgræöinga, um Island, ts- Framhald á bls 7 viðtöl: Ómar Valdimarsson STORVELDANNA MALSVARAR Á ÍSLANDI Hvernig skyldi vera að gæta hagsmuna erlendra stórvelda meðal smáþjóðarinnar, sem byggir ísland? Hvaða fólk er það, sem ræður sig i vinnu hjá erlendum aðilum til að koma sjónar- miðum þeirra á framfæri. Trúlega er það ósköp venjulegt fólk — það trúir á sinn málstað eins og aðrir. Við leituðum með þessar spurningar og fleiri til tveggja íslendinga, sem vinna fyrir erlend herveldi. Maria Þorsteins- dóttir er ritstjóri og ábyrgðarmaður blaðsins Fréttir frá Sovét- rikjunum, sem gefið er út i samvinnu við sovésku fréttastofuna APN. Mik Magnússon er fyrrum blaðamaður i Bretlandi, sem nú er íslenskur rikisborgari og starfar við upplýsingadeild herliðs NATO á Keflavikurflugvelli. Rétt er að taka fram, að við höfðum áður leitað til Magnúsar Þórðarsonar, starfsmanns upplýsingaskrifstofu NATO i Reykja- vik.en hann færðist eindregið undan þvi að ræða við Helgarpóst- inn á sama tima og Maria Þorsteinsdóttir. myndir: Ólafur Lárusson ofl. Mitt litla lóð á vogarskál friðarins segir María Þorsteinsdóttir, sem vinnur fyrir sovésku frétta stofuna APN Maria Þorsteinsdóttir er sann- trúuö. Hún er ritstjóri blaösins Fréttir frá Sovétríkjunum og gef- ur þaö út hérlendis f félagi viö sovésku fréttastofuna APN. t mörg ár, jafnvel áratugi, hefur Maria varið stjórnvöld i Sovét- rikjunum í ræöu og riti. Hún vinnur fyrir sovéska rikiö af hugsjónaástæöum, aö því er hún sagöi, þegar viö spurðum hana hvert heföi veriö upphaf þess, aö hún fór að vinna fyrir APN. „Frumástæöuna má rekja allt til ára siöari heimsstyrjaldarinn- ar”, sagöi Maria. „Ég er komin þaö til ára minna, aö ég man vel eftir þvi þegar ég var aö leggja börnin min til svefns á kvöldin, aö þá dundu i eyrum mér frásagnir af dauöa og hörmungum annarra barna úti I heimi, sem útvarpiö flutti á hverju kvöldi. Einkar minnisstæöar eru mér i þessu sambandi frásagnir af „vel- heppnuöum” loftárásum á borgir Þýskalands i striöslokin. Ég vissi vel, aö þessar „velheppnuöu” loftárásir höföu i för meö sér dauöa margra saklausra barna og annarra, sem ekkert höföu til saka unnið. Mér fannst þá og hef- ur fundist æ siöan, aö viö, sem komum meö heilu skinni út úr þessum hildarleik, og meira aö segja græddum peninga á honum, ættum heiminum skuld aö gjalda. Ég hét þvi þá, aö tæki þessi mar- tröð einhverntima enda og fjöl- miölar færu aö flytja okkur aörar fréttir en af fjöldamoröum úti i heimi, þá skyldi ég leggja mitt litla lóö á vogarskál friöarins þaö sem ég ætti eftir ólifaö.” Bandrikin stórgræddu á heimsstyrjöldinni „Sovétrikin misstu 20 milljón manns i siöari heimsstyrjöld- inni”, hélt Maria áfram. „Flestar borgiri vesturhluta Sovétrikjanna voru i rúst og sú fjölskylda var vart til þar, aö hún ætti ekki um sárt aö binda. Þaö þurfti þvi meira en litiö hugmyndaflug (eöa annarlegar ástæður) til aö halda á þeim árum, aö þau vildu stofna til sliks hildarleiks á ný. Um þetta held ég aö allir hafi veriö sam- mála hér. ööru máli var aö gegna um Bandarikin. Þau misstu aö visu menn i striöinu, en samkvæmt tölum, sem þá voru taldar óyggj- andi, voru þeir færri aö tiltölu viö mannfjölda en þeir sjómenn is- lenskir, sem fórust á stríösárun- um. Auk þess las ég þaö i banda- risku blaöi eftir striöiö, aö Banda- rikin heföu grætt verulega fjár- hæö á styrjöldinni. Ég man ekki lengur hve há sú tala var á hvern fallinn mann, en hún var all veru- leg. Ég held aö þaö hafi veriö öll- um ljóst, aö minnsta kosti hér á landi, aö Sovétrikin vildu umfram allt friö til aö byggja land sitt upp úr rústunum fyrstu árin eftir striöiö. Bandarikin hófu hins veg- ar aö framleiöa kjarnorku- sprengjur. Þessi framvinda hófst, eins og kunnugt er, meö kjarn- orkusprengingum á Hirosima og Nagasaki. Sovétrikin smiöuöu sína kjarnorkusprengju nokkrum árum siöar. Hernaöarbandalagiö NATO var stofnaö 1949 en Var- sjárbandalagiö, sem var andsvar viö þvi, ekki fyrr en 1956. Þannig hefur vigbúnaöarkapphlaupiö haldiö áfram æ siöan. Bandarikin hafa hafiö framleiöslu nýrra vopna, Sovétrikin hafa mótmælt en siöan komiö á eftir meö fram- leiösluna. Eöa eins og Harald Of- stad prófessor viö háskólann i Stokkhólmi, sagöi á Alandseyjum fyrir tveimur árum: „Vestriö hervæöist meö heimsins bestu samvisku. Austriö kemur á eftir meö nokkuö verri samvisku og tilboö ööru hverju um aö rjúfa vitahringinn.” Starfið beint fram- haid af hugsjóninni Ég hef tekiö þátt I alþjóölegu friöarstarfi siöan um striöslok, eöa siöan alþjóöasamband lýö- ræöissinnaöra kvenna var stofn- aö. Kveikjan aö þvi var, aö konur, sem voru fangar I Ravensbruck, ákváöu stofnun þess siöasta striösáriö og alþjóöasamband lýöræöissinnaöra kvenna var ein- mitt stofnaö i Paris 1945 aö til- hlutan franskra kvenna, sem höföu veriö fangar I Ravens- bruck. Ég hef frá striöslokum fylgst vel meö alþjóöamálum. Ég hef lesiö um þau á öllum sviöum,allt sem mér hefur veriö tiltækt og ég hef haft tima til aö lesa. Sovétrik- in hafa lagt fram mörg tilboö um afvopnun og takmörkun vigbún- aöar en þvi hefur jafnan veriö hafnaö af Bandarikjunum. Ég hef oröiö æ sannfæröari um þaö, aö þaö eru Sovétrikin, er vilja friö og afvopnun, en bandariskir her- gagnaframleiöendur, sem leggja verulegt fé til kosningar forsetans hverju sinni, vilja aukna hervæö- ingu, sem þeir græöa mjög á. Starf mitt hér er þvi beint fram- hald af þeirri hugsjón minni, aö leggja friöarmálum þaö liö, sem ég get og er maöur til.” — Þannig aö ritstjórn þin á Fréttum frá Sovétrikjunum er hugsjónastarf. I hverju er þaö starf nákvæmlega fólgiö? „Starf mitt er fólgiö i þvi aö vera ábyrgöarmaöur og meörit- stjóri blaösins og gefa þaö út i samvinnu viö þann mann frá APN, sem hér er hverju sinni. Svo sinni ég daglegum störfum á fréttastofunni eftir þvi, sem þau falla til.” Reyni að vera mann- eskja og halda sönsum — Heiminum er gjarnan skipt i Framhald á bls7.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.