Helgarpósturinn - 11.06.1982, Síða 9
~¥f^fi'írlnn 'Föstudagur Tl;^0^1982
M^KWÍT1
.im»ir nn'"’* v m'
æ^sSSSR
nV.'mnnun'ro.vnr^tuy
5!J»Í#
Man einhver eft-
ir magabeltunum?
Undirfatnaður kvenna þótti
hér áöur fyrr á árunum afskap-
lega spennandi, og blúndunær-
buxur og magabelti allskonar
seldusl grimmt. Svo kom bak-
slag i alitsaman.Konur á vestur-
löndum nánast hættu að ganga i
undirfötum, nema bara nær-
buxum (auðvitað) og þær voru
bara plein, eins og sagt er.
Brjóstahaldarar hurfu, hvað þá
sokkabönd og bumbustrekkjar-
arnir eins og magabeltin heita
hjá óknyttastrákum.
Nema hvað.
A allra siðustu árum hefur
sala aftur stóraukist i allskonar
kvenundirfatnaði. Ennþá er hún
náttúrlega mest i þessum
grundvallarhlutum — nær-
buxum og brjóstahöldurum, en
hún hefur samt rokið upp salan
á allskyns blúndum, undir-
pilsum, sokkabeitum, mjaðma-
beltum og þess háttar. Þessi
undirfatnaður virðist bar að
auki ekki keyptur bara til að
vera i undir öðru, þvi heistu
tiskuhönnuðir heims teikna her-
legheitin, og greinilegt aö þetta
eru hlutir til aö láta sjá sig i.
Rómantikin virðist sem sé á
uppieiö.
Svona undirfatnaður verður æ vinsælli
Kiósum lífið
Það skyidi þó aldrei vera að
kosningar væru bráðhoilar fyrir
þjóðarsálina?
Ojú. Myron Brown, bandarisk-
ur sáifræðingur, hefur komist að
þviaðá meðan á kosningabaráttu
forsetaframbjóöenda þar i
landi stendur þá fækkar sjálfs-
moröum verulega. Brown bar
saman tiðni sjálfsmorða i sept-
embcr og október á fjórtán kosn-
ingaárum við sömu mánuði árin
fyrir og eftir hverjar kosningar.
Könnunin náði semsagt tii alira
forsetakosninga frá 1912 til 1972.
Þá mánuöi sem kosningabaráttan
stóð yfir frömdu 21% færri ein-
staklingar sjálfsmorö en þau ár
sem engar kosningar voru.
Skekkjan i þessari könnun er inn-
an við þrjú prósent.
Þetta kemur heim og saman við
að rétt fyrir fridaga, stórafmæii
og þessháttar fækkar dauðsföllum
verulega. Skýringin virðist vera
sú að allskonar hátiðleg tækifæri
auki áhuga fólks á lifinu, um
stundarsakir að minnsta kosti.
Það fylgir ekki sögunni hve
margir hættu alfarið við sjálfs-
morðin, og hve margir einfald-
lega frestuðu þeim framyfir
kosningar. Sem er náttúrulega
galli.
Regnbogafangarinn
Kiin II Sung, forseti Norður-
Kóreu, er maður virtur i sinu
heimalandi, svo ekki sé minna
sagt. Hann er i lifanda lifi orðinn
að goðsagnaveru, og eru sagðar
margar sögur af göfugri náttúru
hans.
Sagt er, að blómin breiði út
krónur sinar, þegar hann horfir á
þau, og þykir það ósköp eðlilegt,
þar sem hann er Sólin. I höfuð-
borg landsins, Pyongyang, er nú
verið að flytja óperu til heiðurs
honum. Kórarnir syngja m.a., að
hann hafi þakið landið blómum,
og að alþýðan nærist á ástúð
hans.
önnur saga segir, að þegar Kim
II Sung hafi verið litill, hafi hann
þegar verib orðinn stór, og auk
þess sérfræðingur i ljósbroti. I
fæðingarþorpi hans, Mankyeung-
dai stendur tré, sem milljónir
pilagrima Jlykkjast að á ári
hverju. Astæðan fyrir þvi er sú,
að þegar leiðtoginn var litill,
klifraði hann upp i þetta tré á
rigningardögum i þeim tilgangi
að handsama regnbogann.
36 ERINDI A
ÁTTA TÍMUM
Og barnið á að heita...?
íslensk mannanöfn taka breyt-
ingum eins og annað, og er það
bara vel. Núorðið eru nöfnin farin
að vera með alþjóðlegri blæ en
áður, styttri og „linari” mundi
einhver segja, „Eva Dis” og
þannig.
En gömlu og „góðu” nöfnin eru
samt enn i fullu gildi. 1 Nafnabók-
inni, eftir Hermann Páisson, sem
kom út á sfðasta ári er skrá yfir
islensk mannanöfn, karlkyns og
kvenkyns, og þar er ekki á ferð-
inni nein linkind. Við gátum ekki
stillt okkur um að birta nokkur
sýnishorn:
Alfifa Andriðsdóttir
Bekkhildur Bölverksdóttir
Brandþrúður Brúsadóttir
Ellisif Dömarsdóttir
Fjörleif Falgeirsdóttir
Gestheiður Galtadóttir
Iiallótta Hafbersadóttir
Járnbrá Jólfsdóttir
Kjölvör Kjarvaldsdóttir
Lofnheiður Leiðólfsdóttir
Þraslaug Þiðrandadóttir
Úlfarna Ubbadóttir
Múli Refkelsson
Óblauður Sigarsson
Tósti Skatason
Véþorn Vatnarsson
ölvaldur Þrasarson
Höðbroddur Hrútsson
Hnikar Hálogason
Framar Fleinsson
Kár Knörrsson
Vilbrandur Vöttsson
Þróttólfur ögvaldsson
Baugur Aleifsson
Svarthöfði Indriðason
Rétt er að taka fram að nöfn og
föðurnöfn eru samsett af Helgar-
póstinum.
Áhugamenn um ræður, finnist
þeir á landi hér, komast i feitt á
morgun. Klukkan tiu i fyrra-
málið, laugardag 12. júni, hefst
nefnilega á Ilótel Borg ráðstefna
samtakanna Lif og land, og þar
veröa flutt hvorki meira né minna
en .16 stutt crindi sem ná yfir sögu
stjórnmála frá grisku borgrikj-
unum fram til dagsins i dag.
Ráðstefna þessi heitir „Maður
og stjórnmál”, og stendur til
klukkan sex siðdegis takist ræðu-
mönnum að halda sig við tiu
minútna lengdarmörkin. Fyrir
hádegi verður fjaliað um elniö
útfrá sögulegu sjónarmiði, en
eftir hádegið verður ljallaö um
stjórnmálaástandið svokallaða i
viðu samhengi.
Ef gripið er af handahófi niður i
heiti ávarpanna kemur i ljós að
viða er komið viö. Björn Þor-
steinsson lalar t.d. um stétta-
skiptingu miðalda, Sólrún Jens-
dóttir um aðdraganda að l'yrri
heimsstyrjöld, Magnús Torfi
Ólaísson um island og umheim-
inn, Thor Vilhjálmsson um list-
ina og stjórnmálin, og íulltrúar
stjórnmálaflokkanna munu
kynna þá hygmyndaíræði sem
þeir byggja á. Og svo íramvegis
og svo framvegis.
öllum er heimil þátttaka, það
er að hlýða á erindin, og það fyrir
ekki neitt. Á ráðstelnunni verða
svo öll erindin gelin út i bókar-
formi og þau seld.
Pepp
í SATT
Nú er verið að setja nýtt púður i
S.A.T.T., sem heita fullu nafni
Samtök alþýðutónskálda og tón-
listarmanna, en nokkur lægð hef-
ur verið i starfscminni að undan-
förnu. Til að kippa þvi i liðinn hef-
ur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri, og eins og kom fram i sið-
asta pósti heitir sá Eggert V.
Kristinsson, og var einn af þeim
allra fyrstu sem komu nálægt
poppinu hér á landi.
En i SATT kemur hann til með
aðgæta hagsmuna fleiri en popp-
aranna, þó þeir séu fjölmennastir
á félagatalinu sem alls telur 150
til 170 manns. Þar eru lika jassar-
ar og visnasöngvarar: Með öðr-
um orðum flestir þeirsem fást við
aðra músik en þá sem einu nafni
hefur verið kölluð klassisk.
Markmið félagsskaparins er að
efla lifandi tónlist með ráðum og
dáð en til þess þarf hann nátt-
úrlega starfsfólk og aðstööu.
Byggingarmálin eru einmitt eitt
stærsta verkefnið sem Eggert
kemur til með að fást við. „SATT
keypti fyrir tveimur árum 280
fermetra hæð við Vitastiginn”,
sagði hann, „og spurningin er
Eggerts biða óteljandi verkefni
fyrir tónlistarfólkið.
hvernig á að nota hana. Núna
stendur húsnæðið autt, en það eru
margir möguleikar fyrir hendi i
sambandi við nýtingu hússins
sem við þurfum að skoða betur”.
Egill Ólafsson, Þurs, er núver-
andiformaður SATT.og segja má
að kjarninn i starfi samtakanna
komi úr röðum hinna svokölluðu
eldri poppara. En það bætast
stöðugt nýir meðlimir við, enda
engin furða eins og gróskan i
poppinu er núna.
Verið velkomin
í nýju veiðivörudeildino okkor
Athugið: Veiðileyfi fást hjá okkur,
Gislholtsvatn, Kleifarvatn, Djúpavatn.
Dafwa
MITCHELL
Verslið hjá fagmanni
GRENSÁSVEGI50 108 REYKJAVÍK SÍMI: 31290
Opið á laugardögum kl. 9—12.