Helgarpósturinn - 11.06.1982, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 11. júnf ™82 Galdrameistarinn mikli Art Blakey öðru sinni í Reykjavík Þaö er i kvöld klukkan 22 að islenskum djassunnendum gefst kostur á að hlýöa á Art Blakey öðru sinni. Hann verður i Háskólabiói með djassboðber- ana sina og eitt er vist að sveifl- an verðursterk, rýþminn heitur og andrúmsloftið rafmagnað þegar gamli maðurinn kýlir ungu strákana áfram f hverjum trylltum sólóinum af öðrum og gömlu meistaraverkin: Blues March, Moanin’, Wishper Not osfrv. eru túlkuð i bland við nýja ópusa. Blakey er kominn á sjötugs- aldurinn en ber þess samt engin merki. Enn er krafturinn sami og tryllt þyrlið, olnbogamel- ódiurnar og háhattmerkin hafa hafa margir fremstu snillingar djassins leikið. Trompetistar á borð við: Kenny Dorham, Cliff- ord Brown, Donald Byrd, Lee Morgan, Freddie Hubbard, Chuck Mangione og Woody Shaw. Saxafónleikarar einsog Lou Donaldson, Benny Goison, JohnColtrane, Johnny Griffin, Wayne Shorter og Garz Bartz. Pianistar einsog Bobby Timmons, Keith Jarrett og Jo- anne Brackeen og skal nú upp- talningu lokið. Piltarnir sem koma með honum hingað eru allir ungir og efnilegir: Tromp- etleikarinn Perence Blanchard er sagður enn betri en ung- stirnið Wynton Marshalis þegar hann byrjaði með Blakey, Bill Meistari Blakey — kominn á sjötugsaldurinn en ber þess engin merki, segir Vernharður um manninn sem heldur uppi merki djassins I Háskóiabiói ikvöld. Y/sX''Xs eftir Vernharð Linnet ekkert látið á sjá. Hann tekur kannski ekki eins marga sólóa og áður en enginn trommu- leikari rekur hljóðfæraleikara sina áfram af öðrum eins krafti. Eftir tónleika Art Blakey And The Jazz Messengers i Austur- bæjarbiói 1979 spöruðu gagn- rýnendur ekki lýsingarorðin, enda var allt á suðupunkti alla tónleikana. Enginn drengjanna sem þá stóðu á sviðinu er nú i bandinu enda er Blakey frægur fyrir að láta piltana sina fara þegar þeir geta staðið á eigin fótum. Hljómsveit hans má nefna gróðurhús djassins og þar Pirce tenoristi og Donald Harrisson altóisti kunna þá list að láta saxana ýlfra i heitum sólóum. Pianistinn John O’ Neil hefur verið nefndur nýr Óscar Peterson og bassaleikarinn Charel Farmbrough kann þá list til fullnustu að telja f jóra i takt- inn og láta sveifluna svifa. Einsog áður segir verða tón- leikarnir klukkan tiu i kvöld i Háskólabiói og er sala aðgöngu- miða I Fálkanum, Laugavegi 24 svO‘ og við innganginn. Leyfum djassgeggjaranum i okkur öllum að fá útrás i Háskólabiói i kvöld! „Vorvakan hefur gengið mjög vel" segir Haukur Sigurðsson „Þetta hefur gengið mjög vel. Það sem búið er, hefur tekist skfnandi oghefur fengið mikla og góða eftirtekt, nema franski lát- bragðsleikurinn á mánudags- kvöld”, sagði Haukur Sigurðsson, sem sæti á í undirbúningsnefnd Vorvöku 82 á Akureyri, sem fer fram samhliða Listahátið I Reykjavlk. Haukur sagði, að Vorvakan væri ekki mótvægi þeirra norðan- manna við Listahátið i Reykja- vik, heldur kannski hluti af út- vikkun hennar um landið. For- ráðamenn Listahátíðar höfðu samband við bæjaryfirvöld á Akureyri um, að atriði af hátið- inni yrðu send norður. Nefnd var skipuð i málið og varð niðurstað- an sú, að fá fjögur atriði af Lista- hátið til Akureyrar. Einnig varö aö samkomulagi milli bæjaryfir- valda og Félags islenskra mynd- listarmanna, að sett yrði upp samsýning félaga úr FIM fyrir norðan. Undanfarin ár hafa svo verið haldnir tónlistardagar á þessum árstima, og var ákveðið, að slá þessu öllu saman undir einu nafni. Haukur sagði, að ef Vorvakan gengi vei, væri stemmning fyrir norðan að halda áfram á sömu braut. Þetta væri fyrsta skrefið i dreifingu Listahátiðar um landið. Um samvinnu þessara aðila, sagði Haukur, að Listahátið sæi um að útvega listamenn til lands- ins, en siðan sæi Akureyrarbær um aðkoma þeim norður og siðan suður aftur. Þau fjögur atriði Listahátlðar, sem fara norður, eru frönsku látbragðsleikararnir með sýninguna um flugmennina, Eyrnalyst á Listahátíð Visan ein dugir skammt Sænski visnasöngvarinn Olle Adolphson gerði okkur glatt sunnudagskvöld 6. júni i Norr- æna húsinu. Ekki var þó fyrir- ganginum að heilsa eða hávaða og sperringi. Hér var annars- um augnablikið milli lifs og dauða sóru sig einnig i fyrr- nefnda flokkinn. Um siðir söng hann reyndar visur sínar um friðinn, samdar i tileíni af valdaráninu i Chile 1973, sem þvi miður eru i fullu gildi enn i dag, einsog hann komst að orði. En stef i þeim erindum er ein- konar ágæti á ferð, en Olle varð einkum til þess á 7. áratugnum ásamt Sven Bertil Taube að gefa visnasöng i Sviþjóð nýja uppsveiflu, ekki sist meðal yngra fólks. Samskonar gróska i frjóum og framsæknum visna- söng hefur átt sér stað viðar i Evrópu á siðustu tveim ára- tugum, en á Islandi hafa visna- vinir verið harla yfirþyrmdir af amriskum visnasöng og honum misgóðum. Visur og lög hans sjálfs voru flest heldur angurvær um ástina og dauðann, börnin, lifið og til- veruna en sum þeirra smá- fyndin og launfyndin, svosem einkamálaauglýsingin og svarið við henni. Visur Birgers Sjöberg mitt, að „visan ein dugir skammt”, og er þörf áminning til þeirra, sem virðast halda, að helsta vonin sé að leysa vanda- málin með gitar og skaki. Undir lokin fór hann svo með nokkraraf miður eða miðlungs- þekktum visum eftir gamla meistarann Evert Taube. Og hér sem i öðru komu megin- einkenni söngvarans skýrt fram. Hann tekur mann ekki strax með trompi, en vinnur smámsaman á allan timann, uns auðskilið verður, hvers- vegna hann er vinsæll. Olle Adolphson segir okkur allsekki, hvernig visnasöngur „eigi” að vera, heldur eina gerð hans, þar sem áherslan liggur ekki á laglinunni, heldur fram- sögn textans. Stundum syngur hann með talrænum blæ- brigðum eða talar með söng- rænum blæmun og lætur hljóð- færið um lagið, en syngur það svo tært á milli. Visnasöngvarar okkar hafa oftastnær talið sig hafa meiri skyldur við lagið en textann, nema helst nokkrir gamanvisnasöngvarar. Besti framsagnarsöngvari okkar hefur liklega verið Bjarni Björnsson (d. 1942) en þvi miður er fátt til af þeirri list hans á hljómplötum. Það var næstum einsog endir á vel heppnaðri kennslustund, að sem lokasöng valdi hann sjálfan Calle Schewens vals. Miður frumlegt kannski, sagði Olle.En hann kvað þessar visur orðnar svo „sundursungnar”, að menn væru hættir að taka eftir textanum, þar sem nátt- úran sjálf er ástleitin og mun- úðarfull. Úr þessu vildi hann bæta og gerði það sannarlega. Hið eina sem olli snerti af vonbrigðum var aukaiagið, 2. pistill Fredmans, Nu skruva fiolen. Það var sem eitthvað skorti þar á ástina og alúðina, Olle Adolphson — tekur mann ekki strax með trompi en vinnur smámsaman á allan timann. en það væri jú skylda sænsks vísnasöngvara að gefa áheyr- endum eitt stykki Bellman. Dyggðir i andliti Kvöldið eftir komu svo Lett- inn Gidon Kremer.sem leikur á Stradivariusfiðlu frá 1734, og Úkrainupianistinn Oleg Maisen- berg fram fyrir okkur i Há- skólabiói. Og það var óneitan- lega mikill listviðburður. A efnisskránni voru aðallega vel Kremer og Maisenberg-tónleikar þeirra I Háskólabiói voru óneitan- lega mikill listviðburður. sænski visnasöngvarinn Olle Adolphson, sænski trúðurinn Ruben.sem bæði sýnir og efnir til námskeiðs i trúðleik, og loks kammersveitin London Sinfoni- etta. En þessi samvinna er ekki bara i aðra áttina, þvi Passiukór- inn á Akureyri kemur suður um þessa helgi og flytur tónverkið African Sanctus eftir breska tón- skáldið David Fanshawe I Gamla biói á sunnudag, en um það verk er fjallað nánar á öðrum stað i Listapósti. Þessi helgi verður viðburðarik á Vorvökunni, þvi þá opna allar myndlistarsýningarnar. í dag, föstudag, opnar sýning FIM i Skemmunni, á morgun, laugar- dag, opna Sigriður Jóhannes- dóttir og Leifur Breið fjörð vefnaðarsýningu i Hús- stjórnarskólanum, Leifur Breið- fjörð opnar glerlistarsýningu i Amtsbókasafninu, og á sama stað opnar handrita- og bókasýning frá Landsbókasafni, i Klettagerði 6 opna Gestur og Rúna keramik- sýningu og loks verður opnuð sýning I Gailery Stil á verkum Ragnars Lár og Guðmundar Ar- manns. Á sunnudag sýnir trúð- urinn Ruben svo listir sinar i samkomuhúsinu. þekkt verk: sónatina nr. 3eftir Schubert, sónata nr. 2 eftir Brahms og Vorsónatan eftir Beethoven.en inná milli komu 4 smáverk eftir Anton von We- bern.sem auðvitað stungu i stúf við hin, en ekki illa, nema siður væri. Að pianistanum alls ólöst- uðum er fiðlarinn ótvirætt hinn meiri meistari. Þegar farið er óaðfinnanlega með nauðaþekkt verk einsog t.d. Vorsónötuna og maðurinn leyfir sér samt i tilbót að tefla á tæpt vað i þvi sama verki og komast sigri hrósandi frá öllu saman, þá er skammt i hina hættulegu blekkingu, að þetta sé liklega ósköp auðvelt og ekkert nema klaufaskapur hjá öllum öðrum, sem fást við fiðlu- leik, aðgeta ekki slikt hið sama. I aukalögunum þrem sýndi hann svo bæði af sér innileik, galdratök, sprell og spé, enda fór hann loks aö brosa i siðasta trylliverkinu,Mars frál978 eftir Tékkann Ladislav Kupkovic (f. 1936). Þeir sem gaman hafa af að rýna i látbragð listamanna, fengu hér nokkuð fyrir sinn snúð. Ég heyri fyrir mér setn- ingar á borð við: „þetta voru einsog tveir hálfvitar”. Oleg lætur nefnilega einsog sumum finnst píanistar eigi að vera: geiflandi sig eða skælbrosandi, lyftandi augum og ennisskinni einsog Helgi E. eða hleypandi i brýrnar og herðarnar, takandi bakföll og hliðarsveiflur, gjó- andi glyrnum á fiðlarann o.s.frv. Gidon hinsvegar svip- brigðalaus að mestu, nema hvað neðri vörin og kjálkinn lafa þvi álappalegar sem dýpri tilkenning er túlkuö. Nótna- flettarinn Snorri Sigfús var svo einsog þriðja viddin i þessu myndverki.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.