Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.06.1982, Qupperneq 23

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Qupperneq 23
Helgar----- Föstudagur 11. júní 1982 pösturinn Umsjón: Jóhanna Þórhallsdóttir Þær hljómsveitir sem kynntar hafa verið hér i Stuðaranum hing- að tii hafa vel flestar verið skip- aðar fólki sem er á táninga - aldrinum svokallaða (óþolandi orð! táningaaldur!) Nú ber annað við. Félagar hljómsveitarinnar Lexiu, sem ættuð er úr Húna- vatnssýslunni,er nefnilega komin af sinu alira léttasta skeiði. Plöt- una Lexiu skipa þeir: Ragnar Jörundsson söngvari, Marinó Björnsson bassaleikari, Guð- mundur Þór Ásmundsson hijóm- borðsleikari, Björgvin Guð- mundsson gitarleikari og Axel Sigurgeirsson trommuleikari, en auk þess vinna þeir sem bóndi, mjólkurfræðingur, kennari, skólastjóri og múrari. Jafn erfitt að byrja að syngja og hætta þvi — En hvað kemur til að þessir menn sem eru i fullri atvinnu fara að leika i hljómsveit? Stuðarinn hitti Ragnar Jör- undsson þegar hann var i bæjar- ferð á dögunum og lagði fyrir hann nokkrar laufléttar spurn- ingar... ,,Já, hver hefur sinn djöful að draga, sumir leggja stund á hestamennsku, aðrir golf. Ég er til dæmis mikill hestamaður. Sig- urður Ölafsson (hestamaður og söngvari innsk. Stuðarans.) sagði einu sinni „bað er jafn erfitt að byrja aðsyngja og hætta þvi”. Og það veit ég að er satt. — Forsaga málsins er annars sú að fyrir 7 árum flutti ég i Húnavatns- sýsluna. Marinó (bróðir Grettis Björnssonar harmonikkuleikara) var þá i hljómsveit með nokkrum strákum. Einhvern veginn frétti hann að ég var i hljómsveitinni Toxic á minum yngri árum. Kvenfélagið tekur i taumana — Þá er það, að Kvenfélagið á staðnum spyr Marinó hvort að hann geti ekki spilað með ein- hverjum á góðgerðardansleik til styrktar heilsugæslustöð á érmrS®*f T!n <p* Marinó’5 3É|ásM3l2Íií Hvammstanga. Jú, jú, Marinó leitar til min og ég slæ til og við hefjum æfingar ásamt fleirum. Ekkert varð þó af góðgerðar- dansleiknum, en viö vorum búnir að æfa heilt danslagaprógramm, þannig að við spiluðum á réttar- balli i staðinn og fengum ágætar undirtektir. Siðan höfum við spilað saman i 4—5 ár”. — Nú eru eingöngu frumsamin lög á plötunni... ,,Já, Marinó fór að lauma inn einu ög einu lagi á danslaga- prógrammið. Og við komumst að samkomulagi að halda þeim”. Ragnar glottir. Einmana — Hvert er yrkisefnið á plöt- unni? „Þetta er erfið spurning. Text- arnir fjalla flestir um einstakl- inginn og þjóðfélagið um ein- manakenndina. Annars fylgir textablað plötunni þannig að hver og einn getur lesið og túlkað út af fyrir sig”. — Eruð þið að spila fyrir ein- hvern sérstakan aldurshóp? Takið eftir mér „Ætli það sé ekki helst fyrir fólk sem er nýfarið að búa og svo eitt- hvað uppúr. Annars er þetta mis- jafnt eftir lögum. Lagið Takið eftir mér fjallar t.d. um ungling- inn og vandamál hans. Hann finnur sig ekki heima hjá sér og þegar hann er fullur, öskrar hann takið eftir mér, Hann vill fá að haga sér eins og fullorðið fólk”. Bókaðir fram á haust — Og þið ætlið að halda ótrauðir áfram að spila??? ,,Já, við eigum þó nokkru fylgi að fagna allt frá Dalasýslu til Þingeyjarsýslu. Viö erum bók- aðir um hverja einustu helgi fram á haust. Og i sumar spilum við á Laugahátið sem er mesta hátið sumarsins á Norðurlandi”, segir Ragnar og við sláum hér botninn i spjallið. BENIDROM1982: 22.JUNI 13.JULI 3. & 24. AGUST 14.SEPT. 5-OKTOBER BEINT FLUG í SÓLINA OG SJÓINN Umboðsmenn: Sigbjörn Gunnarsson, Sporthúsiö hf., Akureyri — sími 24350. Helgi borsteinsson, Ásvegi 2, Dalvík — sími 61162. Feröamiöstöö Austurlands, Anton Antonsson, Selás 5, Egilsstööum — simi 1499 og 1510. Viöar borbjörnsson, Noröurbraut 12, Höfn Hornafiröi — sími 8367. Friöfinnur Finnbogaaon, c/o Eyjabúö, Vestmannaeyjum — simi 1450. Bogi Hallgrímsson, Mánageröi 7, Grindavík — sími 8119. Bjarni Valtýsson, Aöalstööinni Keflavik, Keflavík — sími 1516. Gissur V. Kristjánsson, Breiövangi 22. Hafnarfiröi — simi 52963. Ólafur Guöbrandsson, Merkurteig 1, Akranesi — sími 1431. FERÐA.. MIÐSTODIIM AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.