Helgarpósturinn - 11.06.1982, Page 28

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Page 28
28 Stjórnmál og iþróttir faraekki saman,hehe Það er svolitið kúnstugt að heyra islenska iþróttaforystu segja, eins og hún sagði til dæmis fyrir ólympiuleikana i Moskvu, að iþróttir og stjórnmál fari á engan hátt saman, og aö þessu tvennu eigi að halda aöskildu frammi rauöan dauðann. Það er nefnilega fátt pólitiskara en islensk iþróttaforysta. Litum á stjórn lþróttasambands Islands. Forseti sambandsins er Sveinn Björnsson kaupmaður. Hann tók fyrir nokkrum árum viö af Gisla Halldórssyni. Báöir þessir menn eru Sjálfstæðis- menn og hafa verið i framboöi fyrir flokkinn. Þaösama má segja um varaforsetann, Hannes Þ. Sigurðsson. Hann hefur unnið heil- mikið fyrir Sjálfstæðisflokkinn og verið i framboði fyrir hann. Alfreð Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Sölu varnarliðseigna, var varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins um skeið. Og Jón Armann Héðinsson skreiöarútflytjandi sat á þingi fyrir Alþýðu- flokkinn um árabil. Eini stjórnarmaður 1S1 sem ekki er þekktur fyrir stjórnmálastörf sin er Þórður Þorkelsson endurskoðandi, en hann mun þó eitthvaö hafa unnið fyrir Sjálfstæöisflokkinn. Þetta er stjórn ISI. Litum svo á formenn nokkurra stærstu sér- sambandanna. Formaður KSl er Ellert Schram, fyrrum alþing- ismaður Sjálfstæöisflokksins.og hann er eftirmaður Alberts Guð- mundssonar. Formaöur HSI er Július Hafstein, sem var i fram- boði fyrir Sjálfstæöisflokkinn i nýafstöðnum borgarstjórnar- kosningum og situr nú i iþróttaráði borgarinnar fyrir flokk sinn. Formaður KKl er Helgi Agústsson, sem ekki er þekktur fyrir pólitisk störf. Formaður FRt er örn Eiðsson, sem verið hefur m.a. bæjarfulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn. Og formaöur Skiðasam- Skofi& eftir Guöjón Arngrímsson bandsins er Hreggviður Jónsson, sem verið hefur I framboöi og unniö önnur störf fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þetta voru nokkur af stærstu sérsamböndunum. Svipaða sögu eraðsegja ef litiöer á iþróttafélögin sjálf. Formaður Vals er t.d. Pétur Sveinbjarnarson, sem m.a. stjórnaði leiftursóknarkosn- ingum Sjálfstæðisflokksins og hefur unnið mörg önnur störf fyrir flokk sinn. Formaður Fram er Hilmar Guðlaugsson borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins. Þannig má halda áfram. Ihaldsblær hefur löngum verið yfir KR, og Framsóknarsvipur á Vikingum, sem m.a. kom i ljós nú i kringum prófkjör Jósteins Kristinssonar i Framsóknarflokknum. Og svo framvegis og svo framvegis. Þegar forysta islenskrar iþróttahreyfingar er skoöuð kemur i ljós að Sjálfstæðisflokkurinn hefur þar greinilega afar sterk itök. Ot frá hreinu pólitisku sjónarmiði hlýtur það aö teljast sterkt, þvi samkvæmt tölum ISl telur iþróttahreyfingin um 70 þúsund skráöa félagsmenn (sem að visu er ótrúleg tala, en látum hana liggja milli hluta). Þeir hafa „meirihluta” i stjórn 1S1, þeir hafa formenn nokkurra stærstu sérsambandanna og stærstu félag- anna. Framsóknarmenn og Kratar eiga nokkra menn i góðum stöðum, en Alþýöubandalagsmenn hafa verið furðulega afskiptir i iþróttahreyfingunni. 1 fljótu bragði man ég ekki eftir nema Ey- steini Þorvaldssyni, sem eitt sinn var formaöur Júdósambands- ins, og Gunnari Steini Pálssyni, sem er vaxandi áhrifamaður innan KSI. En hver er svo ástæðan fyrir þvi að stjórn Iþróttahreyfingar- innar er skipuð svo rammpólitiskum mönnum? Er það vegna þess að flokkarnir hafa komið auga á mikilvægi iþróttahreyfing- arinnar i pólitisku starfi og vinni markvisst að þvi að tryggja þar áhrif sfn? „Nei”, sögðu einum rómi nokkrir af þessum forystu- mönnum sem ég talaði við. Astæðan er fyrst og fremst sú, segja þeir, aö þetta eru menn með brennandi áhuga á allskyns félags- legu vafstri og þeir hafa langflestir komið upp i gegnum iþrótta- félögin til forystu i Iþróttahreyfingunni. Og þar að auki hefur það löngum verið talinn plús fyrir formenn áhugamannafélaga eins og t.d. iþróttafélaganna aö hafa einhver pólitlsk áhrif, eða að- gang aö áhrifamönnum I stjórnkerfinu. Þessir menn segjast ekki vera i iþróttunum stjórnmálanna vegna. Sjálfsagt er þetta beggja blands. Ellert Schram og Hilmar Guðlaugsson voru t.d. báöir ágætir iþróttamenn á sinum tima og komust til áhrifa I Iþróttahreyfingunni í gegnum störf sin þar sem ungir menn. 1 öörum tilfellum eru tengslin ekki jafn augljós, og enginn getur neitað þvi að störf i iþróttamálum eru stjórn- málamönnum gott veganesti. Ekki aðeins verða þeir i mörgum tilfellum landsfrægir menn, heldur fara þeir fyrir ákaflega virkri félagslegri hreyfingu, sem hægt er aö nýta sér þegar að kosningum dregur, eins og margoft hefur komið i ljós. Sterkustu atkvæðasmölunarmaskinurnar eru jafnan I kringum iþróttafé- lögin. Slikt er að sjálfsögðu ákaflega óheilbrigt og iþróttahreyfing- unni til nokkurrar minnkunar. En ekki er hægt að banna iþrótta- mönnum að hafa pótitiskar skoðanir. Og varla er hægt að banna þeim að vinna fyrir sinar skoöanir, sé það gert á réttum vett- vangi. En þaö er þó hægt aö ætlast tií þess að menn viðurkenni og taki mið af þvi að á Islandi sem annars staðar er afskaplega stutt á milli stjórnmála og iþrótta — svo stutt reyndar að þar verður varla skilið á mílli. EÖa ætlast til dæmis stjórn ÍSI til þess aö menn trúi þvi að allir stjórnarmennirnir láti af stjórnmála- skoðunum sinum á fundum Iþróttasambandsins? Það er svona álika og að segja að þeir missi iþróttaáhugann um leiö og þeir setjast á fund hjá stjórnmálaflokknum. Eöa hvaö? Björnsson, Sigurðsson, steinsson, Héöinsson, Sjálfstæöis- Sjólfstæöis- Framsókn- Alþýöu- flokki, for- flokki, vara- arflokki. flokki. seti. forseti. _________________Föstudagur 11. júnf 1982irinn lÆIBAItVISIIt HBLUIUKW sýiiiiujurssilir Ásmundarsalur: Á laugardag opnar þýsk sýning á vegum Arkitektafélagsins og heitir hún Náttúruform. Þar er fjallaöum ýmis konar byggingar- form, sem koma fyrir I náttúr- unni, jafnt lifræn sem ólifræn. Sýningin stendur til 20. júni og er opin daglega kl. 14—22. Rauða húsið Akureyri: Halldór Ásgeirsson sýnir verk, sem hann hefur máiað vitt og breitt um húsið. Sýningin er opin kl. 16—20 og lýkur á sunnudag. Gallerí Langbrók: Smámyndasýningin Smælki 82, þar sem Langbrækur sýna. Opin virka daga kl. 12—18 og 14—22 um helgar. Kjarvalsstaðir: Magnús Tómasson sýnir mynd- verk á göngum. I Kjarvalssal er Kjarvalssýning og i Vestursal er sýning á húsgögnum og listiðnaði. Norræna húsið: Ken Reynolds sýnir ljósmyndir I kjallara og danski myndhöggv- arinn John Rud sýnir steinmyndir úti og inni. Listmunahúsið: Félagar i Leirlistafélaginu sýna verk sin. Listasafn ASI: Yfirlitssýning á verkum Krist- jáns Péturssonar listmálara. Þar eru sýndar teikningar, vatnslita- myndir, pastel- og oliumyndir. Listasafn Islands: Kinverski listmálarinn Walasse Ting sýnir málverk á vegum Listahátiðar. Opið daglega kl. 13.30—22. Nýlistasafnið: „Thinking of the Europe”. Samsýning 8 listamanna frá fimm löndum. Það allra nýjasta i málverkinu I Evrópu. Frábær sýning. Opið 16—22 virka daga og 14—22 um helgar. Djúpið: I dag, föstudag, opnar Nonni myndlistarsýningu, sem höfund- ur segir vera allsherjar uppá- komu. Sýningin skiptist i tvo hluta: Viö erum til sölu, og 1 Djúpinu hefst náttúran. Boðið verður upp á sjónleiki á sunnudag kl. 17 og sföan föstudaga, laugar- daga og sunnudaga kl. 22. Gallerí Lækjartorg: A laugardag kl. 14 opnar Björn Skaptason með péi sina fyrstu einkasýningu og sýnir hann verk unnin með blandaöri tækni, fantasiur. Sýningin er opin mánu- daga til miðvikudaga kl. 14—18 og hina dagana kl. 14—22. Veriö vel- komin. Arbæjarsafn: Safnið er opiö daglega kl. 13.30 - 18, nema mánudaga. Aökoma að safninu er um gamla rafstöðvar- veginn og með leið 10 frá Hlemmi. Mokka: Erla ólafsdóttir sýnir myndverk. Galleri Niðri: I kjallaranum er samsýning nokkurra góðra listamanna og má þar nefna menn eins og Sigur- jón ólafsson, Guðberg Bergsson, Sigurð Orn Brynjólfsson, Stein- unni Þórarinsdóttur, Helga Gisla- son, Kjartan Guðjónsson og Kol- bein Andrésson. Það sem sýnt er, er teikningar, skúlptúr, grafik, keramík, plaköt og strengbrúð- ur, Listasafn Einars Jónsson- ar: Safnið er opið á sunnudögum og miðvikudögum kl. 13.30 - 16 til mánaðamóta, en frá 1. júni er það opiö daglega, nema mánu- daga kl. 13.30 - 16. A efstu hæö safnsins er heimili Einars og Onnu konu hans, og er það til sýn- is á sama tima yfir sumarmánuö- ina. Höggmyndasafn Ásmund- ar Sveinssonar: Safnið er opiö þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl.14-16. Bogasalurinn: 1 salnum stendur yfir sýning, sem heitir Myndasafn frá Teigar- horni, þar sem sýndar eru ljós- myndir eftir tvær konur, sem báðar voru læröir ljósmyndarar, Nicoline Weyvadt og Hansinu Björnsdóttur, en myndir þeirra spanna timabilið frá um 1870 og fram yfir 1930. Sýningin er opin á sunnudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 13.30 — 16. Asgrimssafn: Sumarsýning. Aö þessusinni eru flestar myndanna vatnslita- myndir og hafa margar þeirra sjaldan verið sýndar. Sýndar eru landslagsmyndir, blómamyndir og flokkar mynda úr þjóösögum. Safnið er opiö sunnudag, þriðju- dag og fimmtudag kl. 13.30—16 i mai, en daglega, nema laugar- daga.frá og með 1. júni, á sama tima. Aðgangur ókeypis. Nýja Galleriið: Magnús Þórarinsson sýnir nýjar oliu- og vatnslitamyndir. Opið kl. 14-18. listnlisifíit Föstudagur: Þjóðleikhúsið: Bolivar. Rajatabla-leikhúsið frá Venezuela undir stjórn Carlos Giménez sýnir leikrit um þessa miklu frelsishetju. Fyrri sýning. Kl. 20. Laugardalshöll: Human League flokkurinn spilar fyrra sinni fyrir islenska æsku kl. 21. Bubbi og Ego á undan. Laugardagur: Norræná húsið: Sænski trúðurinn Ruben leikur slðara sinni fyrir börn og full- orðna kl. 16. Þjóðleikhúsið: Bolivar. Siðari sýning Raja- tabla-leikhússins. Kl. 20. Laugardalshöll: Human League leikur kl. 21. Siðari samleikur. Sunnudagur 13. júni: Háskólabíó: Kammersveit Listahátiðar leikur undir stjórn Guðmundar Emils- sonar kl. 15. Gamla bíó: African Sanctus eftir David Fanshawe I flutningi Passiukórs- ins frá Akureyri. Frábært stykki. Kl. 21. Mánudagur: Þjóðleikhúsið: Forseti lýöveldisins. Sýning Rajatabla leikflokksins frá Venezuela kl. 20. Laugardalshöll: Júgóslavneski pianóleikarinn Ivo Pogerelich leikur einleik með Sinfóniuhljómsveit Islands undir stjórn David Measham. M.a. verður leikinn pianókonsert nr. 2 eftir Chopin. Pogerelich þessi þykir mikill snillingur og frum- legur og óvenjulegur túlkandi. Um hann leika miklir vindar og er koma hans hingað meiriháttar viðburður. viillinriir Gönguferðir Arkitekta: A sunnudag kl. 10 efna arkitektar til göngu um miðbæ og Skóla- vörðuholt með leiösögumanni. Gangan hefst viö Bryggjuhúsið að Vesturgötu 2 og I lok göngunnar verður þátttakendum boðið að skoða sýninguna Náttúruform, sem arkitektar standa fyrir i Asmundarsal. Kynnið ykkur bæinn undir leiösögn sérfróðra manna. Lögberg, H.I.: A laugardag kl. 14 I stofu 101 flytur bandariski prófessorinn William McBride fyrirlestur um rit Sartre um Flaubert, L’idiot de la famille, og er hann fluttur á ensku. Allir velkomnir. Gamla bfó: Á laugardag kl. 14 dansar ind- verska dansmærin Shovana Narayan svokallaðan Kathak dans, sem er ein af sex tegundum trúarlegra dansa á Indlandi. Ein- stakt tækifæri aö kynnast fram- andi og háþróaöri dansmennt. tóulist Háskólabió: Art Blakey og Djasssendiboð- arnir leika dúndurdjass á föstu- dagskvöld (I kvöld) kl. 22. Missið ekki af þessu einstæöa tækifæri til að sjá snillinginn aftur eöa i fyrsta skipti. Frábært. utilif UMFÍ A sunnudag er göngudagur fjöl- skyldunnar og af þvl tilefni skipu- leggja ungmennafélögin um land allt gönguferðir fyrir almenning. I Reykjavlk hefst gangan kl. 14 og verður gengið inn Elliðaárdalinn undir leiðsögn kunnugra manna. Lagt verður upp frá Elliðaár- brúnni. Mætum öll. Skemmtistaðir: Ferðafélag islands: Föstudagur kl. 20: a) Helgarferö i Þórsmörk. b) Ferð i Mýrdal, Dyrhólaey, Kerlingardal og Heiðardal. Sunnudagur kl. 10.30: Gönguferð á göngudegi fjölskyldunnar. Farið I Jósepsdal og Ólafsskarð á Hellisheiði. Þetta er 10 km ganga, sem tekur 3 tlma. Sunnudagur kl. 13: Sama ferð og á undan. Útivist: Föstudagur kl. 20: a) Helgarferö á Hekluslóðir. b) Helgarferð I Þórsmörk og gist I skála. Sunnudagur kl. 08: Dagsferð I Þórsmörk. Sunnudagur kl. 10.30: Skálafell — gamla þjóðleiðin um Hellisheiði. Pylsuveisla. Sunnudagur kl. 13: Gamla þjóð- leiðin um Hellisheiði — Drauga- tjörn, pylsuveisla. Dagana 15.—23. júni verður Hringferð um Lappland. 17.—20. júni: Sumarleyfisferö um Djúp og Drangjökul. 26.—30. júnl: Sumarleyfisferö á öræfajökul og I SkaftafelL liíoiii ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg ★ ★ Sekur eða saklaus (And Justice for all). Bandarisk, árgerð 1981. Handrit: Barry Levinson og Valerie Curtin. Leikarar: AI Pacino, John Forsythe, Lee Strasberg, Jack Warden. Leik- stjóri: Norman Jewison. Myndin leggur til atlögu gegn spilltu réttarfars- og dómskerfi. Höfundar myndarinnar kafa ekki djúpt i þetta efni. Þeir grafa ekki eftir rótum meinsins. Þeir ein- faldlega lýsa þvi eins og það birt- ist I lifi og starfi nokkurra starfs- manna dómskerfisins og skjól- stæðinga þeirra eða, eins og myndin leggur þaö út, fórnar- lamba þeirra. Þetta er snoturlega unnin flétta meö þéttu mannlifs- ivafi úr frumskógi stórborg- arinnar, krydduð húmor á köflum.Sýndkl.7og9.10. — AÞ Cactus Jack. Bandarisk kúreka- grínmynd með Kirk Douglas. Sýnd kl. 5.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.