Helgarpósturinn - 11.06.1982, Side 29

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Side 29
/r/-nr,Föstudagur H. júní 1982 2? Valkyrjurnar í Norðurstræti (The North Ave. Irregulars). Banda- risk, árgerð 1979. Handrit: Don Taite. Leikendur: Barbara Harr- is, Susan Clark, Edward Herman, Cloris Leachman. Leikstjóri: Bruce Bilson. Myndin segir frá þvi, er prestur nokkur og kvenmenn smábæjar i Ameriku taka höndum saman og reka spillinguna út á gaddinn. Gamanmynd, að sjálfsögðu, og byggð á bók eftir prestling. TÓNABÍÓ Sími 31182 Greifi I Villta vestrinu (Man of the East). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Terence Hill, o.fl. Leikstjóri: E.B. Clucher. Gam- anmynd um austurstrandarbú- ann, sem kemur i villimennskuna fyrir vestan og reynist svo bara liðtækur. O io öo<L ★ ★ ★ ★ Hjartarbaninn (The Deer Hunt- er) Bandarisk, árgerð 1980. Leik- endur: Robert De Niro, Christop- her Walken, Meryl Streep, John Savage. Leikstjóri: Michael Cimino. Stórbrotið ferðalag um viti Viet- namstríðsins. Góö mynd, en of- metin að margra mati. Hugvitsmaðurinn (La Zizanie) Frönsk, árgerð 1978. Leikendur: Louis de Funes, Annie Girardot. Leikstjóri: Claude Zidi. De Funes er einhver vinsælasti gamanleikari Frakka og þaö veröur að segjast eins og er, að hann getur verið fjandi skemmti- legur. Hér tekur hann þátt i mynd um iðnaðarnjósnir vegna meng- unarvarnatækis. Vixen. Bandarisk kvikmynd. Aö- alhlutverk: Erica Gavin. Leik- stjóri: Russ Meyer -jfc- Lauflétt erótík, sem nær þvi aldrei að verða klám. Meyer er frægastur allra erótlkera i Ame- riku. Góð sem sllk. Mynd meö boðskap. Arásin á Entebbe (Operation En- tebbe). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Peter Finch, Charles Bronson, Martin Balsam, Yaphet Kotto. Leikstjári: Irving Kerschner. Hver man ekki árás israela á Entebbe flugvöll i Clganda og björgun gisla flugræningja? Þessi mynd fjallar um þann voveiflega atburð. Kvenholli kúrekinn (A'Poor lon- some Cowboy..). Bandarisk kvik- mynd um kúasmala, sem vill frekar liggja I heyinu með heima- sætunni en skjóta nautaþjófa. Gefið trukkana (High balling). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Jerry Reed, Peter Fonda. Svona-svonamynd með slags- málum og trukkaakstri. ÍS* 1-15-44 Meistara skotið (Title Shot). Kanadísk kvikmynd. Handrit: John Saxton. Leikendur: Tony Curtis, Richard Gabourie, Susan Hogan, Robert Delbert. Leik- stjóri: Les Rose. Spennumynd um veðmálasvik i boxi, eöa tilraunir til þess, og til- raunir löggu til aö stöðva ósóm- ann. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Austurbæjarbíó: t klóm drekans (Enter the Drag- on). Hongkonglsk kvikmynd. Aðalhlutverk: Bruce Lee. Æsi- spennandi karateslagsmál. Bióhöllin: Moröhelgi (Death Weekend). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1980. Leikendur: Don Shroud, Brenda Vaccaro. Leikstjóri: William Fruet. Ungur tannlæknir ætlar að eyöa helgarfriinu með kærustu sinni, en á vegi þeirra veröa fjórir snar- geggjaöir náungar, sem gera þeim lifiö leitt. Upphefst nú mikill hasar. Gereyðandinn (The Exterminat- or). Bandarisk. Argerö 1980. Handrit og leikstjórn: James Glickenhaus. Aðalhlutverk: Ro- bert Ginty, ChristoDher George, Samantha Eggar. ★ Þessi bandariska B-mynd hitti biógesti vestra og reyndar viðar i hjartastað. En þetta er bara þessi venju- legi blóðþyrsti stórborgarvestri um manninn sem hyggst hreinsa til en er að leikslokum sjálfur kominn á kaf i blóðsukkiö. Dapur- leg mynd. —AÞ ★ ★ ★ Fram i sviðsljósið (Being There) Bandarisk, árgerð 1981. Handrit Jerzy Kosinski, eftir eigin skáld- sögu. Leikendur: Peter Sellers, Melvyn Douglas, Shirley MacLaine. Leikstjóri: Hal Ashby. Eldribekkingar (Seniors). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Priscilla Barnes, Jeffrey Byron, Gary Imhoff. Leikstjóri: Rod Amatau. Unglingamynd i stil við Delta kliku og fleiri myndir. Um skóla- krakka. Texas Detour (Afvegaleiðing i Texas). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Patrick Wayne, Pris- cilla Barnes. Leikstjóri: Ilick- ment Avedes. Unglingar i klandri. Samskipti við löggur og ræningja. Allti lagi vinur (Hallelujah Amigo) Bandarisk-itölsk kvik- mynd. Leikendur: Bud Spencer, Jack Palance. Leikstjóri: Maur- izio Lucidi. Gamanvestri i Trinitý stil. LAUGARAS Sími 32075 Konan, sem „hljóp” (The Incred- ible Shrinking Woman). Banda- risk, árgerð 1981. Handrit: Jane Wagner. Leikendur: Lily Tomlin, Charles Grodin, Ned Beatty. Leikstjóri: Joel Schumacher. Kona nokkur veröur fyrir þvi að minnka. I byrjun lætur hún þenn- an samdrátt ekkert á sig fá, en heldur áfram að þjóna fjölskyld- unni til borðs — og sængur — i þetta skipti gleymdu þeir ekki sexinu. Konan leitar til sérfræð- inga, sem strax sjá gróöavon i samdrætti frúarinnar, og aö sjálf- sögðu er búið til „sjó” fyrir al- þýðuna. Myndin er mjög vel unn- in hvað alla tækni snertir. Taka og klipping er upp á bandariska venju og ekkert við þvi að segja. Atriðin þar sem Lily er litil i stór- um heimi eru með þvi betra, sem sést hefur i þeim efnum. Svo er þaö apinn i myndinni, hann er leikinn af manni. Sýnd kl. 5 og 7. Systir Sara og asnarnir (Sister Sarah and the Mules). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Clint Eastwood, Shirley McLaine.Clint er töffari, en skrattinn hitti ömmu sina, þegar hann rakst á nunnuna Söru. Skemmtileg spenna. Kl. 9 og 11. ÍS* 2-21-40 ★ ★ Ránið á týndu örkinni (Raiders of the lost Ark). Bandarisk, árgerð 1981. Handrit: Lawrence Dasdan. Leikendur: Harrison Ford, Karen Allen, Wold Kahler, Paul Freeman, Denholm EUiot. Leik- stjóri: Steven Spielberg. Hér er allt, sem prýða má gott bió, afburða tæknivinna i öllum deildum, einkum kvikmyndun, klippingu og bellibrögðum, linnu- laus hraðferö áhorfenda um heim spennuþrunginna ævintýra af hasarblaðaættinni, viöburðarik skemmtun — sem sagt allt, sem prýða má pottþétt bió. Allt nema einhver tilfinning, einhver örlitil mannleg tilfinning fyrir fólki og atburðum. — AÞ. ★ ★ ★ Rokk I Reykjavík. tslensk, árgerö 1982. Framleiöandi: Hugrenning- ur. Stjórnandi: Friörik Þór Frið- riksson. Þessi umdeilda og frábæra rokk- mynd verður sýnd kl. 15 á laugar- dag i endurbættu Dolby—kerfi biósins. Sándið ætti þvi að vera upp á sitt besta, enda lögö mikil vinna i þaö. Missið ekki af fyrstu islensku myndinni i Dolby. Striðsöxin. Spennandi indiána- mynd, sýnd kl. 3 á sunnudag. Lystugt á Listahátíd Við Reykvikingar erum nú i miöri Listahátið, margir eru eins og þeytispjöid á milli sýningar- sala, leikhúsa og Félagsstofnunar stúdenta. En sá böggull fylgir skammrifi að áður veröa menn að ráöfæra sig alvörugefnir við budduna sina og standa siðan I biðröö lon og don viö Gimli. Vist er um að fyrir þá sem hafa einhver aura- ráð er i mörg horn aö lita þessa dagana. „En lif- ið er ekki bara list — menn verða lika að nær- ast,” segir Stefania Harðardóttir, fulltrúi hjá Félagsstofnun stúdenta, en Listahátiö mun starfrækja klúbb sinn i þeim húsakynnum meö- an á hátiöinni stendur. Þetta eru orð að sönnu og hér kemur sannkall- aður Listahátiöarmatseðill, nokkuð ibúrðarmik- ili en fljótmatreiddur. Réttirnir eru jafn franskir og Flugmennirnir i Gamla biói. Matseöillinn hljóðar svo: 1) Lystaukinn Marnier-tonic. 2) Bananar i skinkuskikkju — Bananes au jam- bon. 3) Svinakótelettur i sinnepssósu með selleri- styrktri kartöflustöppu — Cðtes de porc en sauce á la moutarde, accompagnées d’une purée de céleri-rave. 4) Helena fagra — Poires belle Héiéne. Uppskriftirnar eru allar handa sex, nema drykkurinn. Njótið heil lystugs matar á Listahá- tið! Alntkr^^ii eftir Jóhönnu Sveinsdóttur Marnier Tonic Grand Marnier Cordon Rouge er franskur likjör sem hefur koniak og appelsinur að megin- uppistöðu. Hér kemur einn laufléttur lystauki... 1 sitrónusneiö 1 flaska tonic 2 - 3 cl Grand Marnier Setjið ismola i hátt glas, þá likjörinn, sitrónu- sneiðina og fyllið með tonic. Súpiö ... Bananar i skinkuskikkju Þetta er fljótlegur réttur og sannar að ýmis- legs góss gætir i klæðaskáp banananna — hér eru þeir prýddir skinkuskikkju og ostaslöri. 6 skinkusneiðar (1 bananar, vel þroskaðir U.þ.b. 100 gr sýrður rjómi U.þ.b. 50 gr rifinn ostur, t.d. Óöalsostur smjörklipa 1) Setjiö ofninn á 220 gr C. 2) Smyrjið eldfast fat. 3) Afhýðið bananana, vefjið skinkusneið utan um hvern þeirra og raðið þeim siðan á smurt fatið. 4) Þekið með sýrða rjómanum og stráiö rifnum osti yfir. 5) Bakiö réttinn i ofninum i 15 - 20 min., (timinn fer eftir þroska banananna). Berið fram og borðiö sjóöheitt Ur ofninum. Svínakótelettur í sinnepssósu óneitanlega kemurorðið kóteletta franskt fyr- ir sjónir i islenskri tungu. Það er reyndar meö öllu óþarft tökuorð, þar sem cótclette á frönsku merkir lítið rif, þ.e. annað hvort af lambi eða svini. Cótemerkir rif almennt, og er notað hvort heldur sem átt er við rif úr lambi, svini eða nauti, eða Adamsrifbeinið fræga sem Eva var sköpuð úr, la cöte d’Adam. Franska oröið cöte, sem merkir einnig strönd, er komiö af latneska orðinu costa. Þaðan er það jafnframtkomið inn i spönsku þarsem það hefur haldist óbreytt, sbr. Costa del Sol og Costa Brava. Hins vegar heitir ein eftirsóttasta strönd Suöur-Frakklands La cöte d’Azur. tslenska orðiö siöa hefur báðar framangreindar merkingar orðsins cöte, sbr. t.d. sjávarsiða og siöubein. Sé flett upp i Oröabók Menningarsjóös aö orð- inu kóteletta, stendur þar fyrir aftan, kórrétt: „rifjasteik, hryggbiti með tilheyrandi rifja- stubb.” Ritstjóri orðabókarinnar hefur að sinu leyti lagt blessun sina yfir kótelettuna i islenskri tungu, þvi fyrir framan orðið er ekki sett spurn- ingarmerki, sem táknar: „Vont mál. Orð og merkingar sem forðast ber i islensku.” En nóg um orösifjafræði i bili, hér kemur upp- ’ skriftin, hvort sem við kjósum að nota orðið kóteletta, rif eða rifjasteik. 6 svinakótclettur, u.þ.b. 170 gr hver 60 gr smjör salt og pipar 1 bolli af rjóma 3 msk franskt sinnep 1 msk kapers 1) Hræriö saman rjóma, sinnepi og kapers. 2) Bræðið smjörið á stórri pönnu og steikið kóte- letturnar i 7—8 min. á hvorri hlið. Saltið og pipr- ið. 3) Heliið sósunni yfir kóteletturnar, setjið lok yf- ir pönnuna og iátið malla við mjög vægan hita i 10 - 12 min. til viðbótar. Þið getið auövitaö allt eins notað lambakóte- iettur i þennan rétt. Reikniö þá meö tveimur litl- um kótelettum á mann og hagið steikingartim- anum eftir þykkt þeirra. Ég mæli með að kóteletturnar séu borðaðar með venjulegri kartöflustöppu eöa selleris- styrktri kartöflustöppu sem er mjög ljúffeng. Hér kemur uppskriftin að henni. Sellerístyrkt kartöf lustappa 1 Frakklandi er þessi stappa gjarnan notuð sem meölæti með kálfakjöti, önd eða steiktum pylsum. Mér finnst bragðmikið og dálitið sætt selleriið fara ofurvel viö sinnepssósu. Og sýröi rjóminn veröur til að milda bragðiö. 500 gr sellerirót 500 gr kartöflur 150 gr sýrður rjómi 50 gr smjör salt og pipar 1) Afhýðið selierirótina og skerið hana i fjórðu- parta. Setjiö þá út i sjóðandi vatn, saltiö, og látið sjóða við vægan hita i 20 min. 2) A meðan afhýðiö þið kartöflurnar, þvoið þær og skerið jafnframt i fjórðuparta. Þegar selleri- iðhefur soðið i 20 min., setjið þið kartöflurnar út i pottinn og látið þær sjóða meö selieriinu i 20 min. eftir að suðan er aftur komin upp. 3) Látið nú vatnið drjúpa vel af grænmetinu og stappið það siðan. 4) Kryddið með salti og pipar, hræriö út i sýrð- um rjóma og smjöri. Þið veröið að nota hressileg handtök til aö stappan samlagist vel og veröi létt. En þá ber aö borða hana tafarlaust. Helena fagra Þessi eftirréttur er samsettur úr niðursoðnum perum, vanilluis og sukkulaðisósu, semsé nokk- uð iburðarmikill og mettandi. Hann er kenndur við Helenu fögru, sem var samkvæmt grisku goösögunum og Ilionskviðu Hómers fegursta kona heims og varö þar af leiöandi mikili friðar- spillir. Helena var dóttir Seifs og var oröin drottning Menelaosar konungs i Mykene þegar Paris, sem var allra manna fegurstur sýnum, og sonur Pri- amusar konungs i Trójuborg, nam hana á brott meö fulltingi Afrodite, ástargyðjunnar. Hófst nú styrjöld sú er fræg er oröin og átti eft- ir aðstanda i tiu ár, eins og véfréttin i Deifi hafði sagt fyrir. Henni linnti ekki fyrr en Grikkir höfðu jafnað Trðjuborg við jöröu. Um siöir náöi Mene- laos Helenu hinni fögru aftur á sitt vald og færði' hana heim til Spörtu. Helena þessi hefur oröið mörgu skáldinu minnisstæö, bæði fyrr og siðar. T.d. elskar Faust Goethes, ein stórbrotnasta persóna I þýskum skáldskap, Helenu, fegurstu konu goðsagnanna, með lokkana yndisfögru. Og nú hefur einhver matargeröarmaðurinn skirt þennan eftirrétt i höfuöið á Helenu fögru. Eg hef nú engar óyggjandi heimildir fyrir orsök- um nafngiftarinnar, en imynda mér að hún sé til komin vegna þess aö þykk súkkulaðisósan sem streymir niður perurnar og vanilluisinn minni á lokkaflóð Helenu, fallandi yfir hvelfdan barm hennar og hvita handleggi (svo!) Hef þessar vafasömu hugleiðingar ekki lengri, en hér kemur uppskriftin að þessum ágæta eftir- rétti. G niðursoðnar perur, cða 12 helmingar. U-þ.b. 1 I vanilluis (700 gr nægja svosem) Súkkulaðisósa: 250 gr suðusúkkulaöi 50 gr smjör 1 tsk vanillusykur (má sieppa) G msk rjómi 1) Látiö vökvann drjúpa vel af perunum. 2) Búið nú til sósuna. Brjótið súkkulaðiö i bita og setjið i þykkbotna pott. Bætið viö smjörinu og 3 msk af sjóðandi vatni. Bræðiö þetta við mjög vægan hita, hræriö i á meöan með trésleif þar til súkkulaöibráöin er samlöguö, létt og lokkandi. Hrærið þá saman við hana vanillusykri og rjóma. 3) Deiliö nú isnum niður i sex skálar, setjið tvo peruhelminga i hverja skál og helliö súkkuiaöi- sósunni yfir i snarhasti. P.S. Reynið að skipta súkkulaðisósunni jafnt, svo Helena fagra veröi nú ekki aö þrætuepli og friðarspilli enn einu sinni!

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.