Helgarpósturinn - 11.06.1982, Blaðsíða 32
v JNú er unnið i Cardiff i Wales
y að undirbúningi nokkurs kon-
ar Evróvision söngkeppni fyrir
klassiska tónlist, og hefur út-
varpsráð tekið vel i að islenska
sjónvarpið verði þátttakandi i
henni. Keppni þessi er fyrir klass-
iska söngvara, 25 ára og yngri,
sem syngja eiga þrjár „tegundir”
söngs, Óperú, óratoriu og ljóð.
Hugmyndin er að i hverju landi
fari fram undankeppni, og sigur-
vegarinn fari siðan i keppnina i
Wales. Verðlaunin þar verða i
fyrsta lagi peningar, en einnig
boð um að syngja með hinni
frægu Welsku óperu auk margs-
konar upphefðar annarrar. Lik-
legt er að keppnin verði send út i
beinni útsendingu til margra Ev-
rópulanda, en þar er einn hængur
á hvað varðar tsland: Keppnin
verður i júli á næsta ári....
> >Að vanda mun sjónvarpið gera
J listahátiö nokkur skil, með þvi
að taka upp hluta af þvi efni sem
verður á boðstólum. Nú þegar
hefur allnokkuð verið fest á
myndband, en það sem ef til vill
sætir mestum tíðindum er að
hljómleikar bresku popphljóm-
sveitarinnar Human League i
Laugardalshöllinni verða teknir
upp og fluttir i sjónvarpi við tæki-
færi. Aldrei áður hefur sjónvarpið
tekið upp poppið á listahátið.
Klassikin situr þó engan veginn á
hakanumaðþessusinni, þvim.a.
tekur sjónvarpið upp tónleika
Kammersveitar ungs fólks undir
stjórn Guðmundar Emilssonar,
Zoltán Kocsis verður festur á
band og einnig tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitarinnar og söngvarans
Boris Christoff. Þá er veriö að
vinna þátt um trúðinn Ruben og
fl. og fl..
Hingað til lands er væntanleg-
ur seinna i mánuðinum holl-
enskur kvikmyndagerðarmaður
sem við kunnum þvi miður ekki
að nafngreina. Þessi maður er
mjög virtur i heimalandi sinu og
þykir einhver flinkasti heimilda-
myndasmiöur Hollands. Erindi
hans hingað er tviþætt. Annars
vegar hefur hann i farangri sin-
um sjónvarpsmynd um Sigurö
Guðmundsson myndlistarmann
sem búsettur er i Hollandi. Þessi
mynd er gerð fyrir hollenska
sjónvarpið og tekur um 45 minút-
ur i flutningi. Mun fátt vera til
sparað i gerð hennar. Leikstjór-
inn hefur hug á að bjóða islenska
sjónvarpinu myndina til kaups.
Auk þess beinist áhugi hans að is-
lenska hestinum en hann mun
ætla að kanna möguleika á að
gera heimildarmynd um þarfasta
þjóninn hér á landi...
^ JMargir hafa vafalaust saknað
Viðsjár-þáttanna, sem frétta-
stofa útvarps annaðist eftir
kvöldfréttir fyrir tveimur árum
eða svo. Fréttastofan varð að
hætta þessum fréttaskýringar-
þáttum vegna slæmrar vinnuað-
stöðu og mannfæðar, og tóku þá
Vettvangsþættirnir við á vegum
dagskrárdeildar hljóðvarpsins.
Nú hefur fréttastofan skrifað út-
varpsráöi bréf þar sem hún býðst
til að hefja aftur gerð frétta-
tengdra þátta fjórum sinnum i
viku með haustinu. Dagskrár-
stjóri hljóðvarps mun hafa tekið
vel i þessa hugmynd, og þarf nú
aðeins samþykki útvarpsráðs...
f~jÞótt Jóhann Briem hafi selt
-^jfyrirtækið Frjálst framtak er
hann ekki alveg af baki dottinn.
Hann hefur nú ákveðið að setja á
stofn auglýsingastofu og vinna
þar að ýmisskonar auglýsinga- og
kynningarstarfsemi. Jafnframt
hefur Jóhann i hyggju — i félagi
við ótilgreindan hóp manna — að
hefja útgáfu einskonar borgar-
blaðs i Reykjavik, þar sem kynnt
verður ýmislegt það, sem á döf-
innier i höfuðborginni. Blað þetta
veröur ætlað útlendingum jafnt
sem Islendingum og verður sniðið
að einhverju leyti eftir svipuðum
blöðum, sem gefin eru út i mörg-
um höfuðborgum i útlöndum.
Markaður fyrir blað af þessu tagi
er sagöur öruggur — en áætlað er,
að það komi út fjórum sinnum á
ári — að vori, sumri, hausti og
vetri...
'jBaldur Hermannsson, dag-
J^skrárgerðarmaöur hjá frétta-
og fræðsludeild sjónvarpa, hefur
sagt upp störfum einsog við sögð-
um frá hér i blaðinu fyrir
skömmu. Ekki er búið að ráða i
hans stað en gamall forveri Bald-
urs hjá deildinni, Örn Harðarson,
mun hafa verið fenginn til að
leysa hann af i tvo mánuði að
minnsta kosti...
ýjSjaldan hefur leiksýning vakið
y jafn mikla athygli og umtal
mörgum mánuðum áður en hún
kemur upp en væntanleg sýning
Þjóðleikhússins á Garðveislu eft-
ir Guðmund Steinsson þar sem
nokkrir leikarar hafa lýst sig
andviga þátttöku í henni. Mikið er
spjallað um verkið og sýninguna i
leikhúsheiminum, og er sögð
hvila veruleg leynd yfir æfingum.
Leyndin sé slik að annað starfs-
fólk leikhússins en það sem tekur
þátt i sýningunni fái þar hvergi
nærri að koma. Það sé reyndar
ofur eðlilegt. Sagt er að það skil-
yrði hafi verið sett, a.m.k. fyrir
nærveru á tilteknum æfingum^ð
viðkomandi sé nakinn, og eigi það
jafnt við um tæknistarfsmenn
sem leikara. Gárungar i leikhús-
heiminum velta þvi nú fyrir sér
hvort sömu kröfur verði gerðar til
áhorfenda þegar til sýninga kem-
ur i haust...
/-^Fremur hljótt hefur verið um
■S- tilvist útgáfu- og menningar-
félagsins Svart á Hvitu undan-
farin misseri. Samnefnt timarit
hefur ekki komið út og eina lifs-
markið i langan tima var bók um
hagfræði eftir Birgi Björn Sigur-
jónsson sem kom út i vetur. Nú
er að verða breyting á. Ráðnir
_/~ieigai--7---
Föstudagur'll. júní 1982 POSturínn
Dagskrá
Listahátíðar
í Reykjavík
Þjóðleikhúsið
Föstudagur 11. júní kl. 20:00
Bolivar
Rajatabla-leikhúsið frá Venezuela
Leikstjóri Carlos Giménez
Fyrri sýning
Laugardalshöll
Föstudagur 1 1. júní kí. 21:00
Hljómleikar
Breska popp-hljómsveitin
The Human League Fyrri hljómleikar
Klúbbur
Listahátíðar
í Félagsstofnun stúdenta-
við Hringbraut
Opið virka daga kl. 20.30 til 01.00,
föstudaga og laugardaga kl.
20.30 — 03.00.
Föstudagur: Hálft i hvoru
Laugardagur: Karl Sighvatsson
og félagar
Sunnudagur: Rajatabla-leikhóp-
urinn með suður-ameriskan
söng og dans.
Miðasala i Gimli við Lækjargötu.
Opin alla daga frá kl. 14-19.30.
Simi Listahátiðar: 2 90 55.
hafa verið tveir starfsmenn, þeir
Guðmundur Þorsteinsson og
Björn Jónasson og er stefnt að
blómlegri útgáfustarfsemi frá og
með næsta hausti. Fimm eða sex
titlar eru væntanlegir, tvær þýdd-
ar bækur um sálfræöi og um-
hverfisvernd i teiknisöguformi,
matreiðslubók eftir kunna is-
lenska matkráku, slangurorða-
bók sem verið er að safna i og 1-2
barnabækur. Þá hafa þeir félagar
sem að fyrirtækinu standa hug á
þvi að taka i notkun maskinuna
Harry sem fjölfaldar segulbands-
spólur. Loks standa flutningar
fyrir dyrum. Hefur félagið tekið á
leigu húsnæði i Borgartúni 29...
^Jlslenskir poppáhugamenn
y kannast flestir við nafnið Lár-
us Grimsson Hann var lengi
fláutu- og hljómborðsleikari i
hljómsveitum á borð við Eik,
Þursaflokkinn og Þokkabót. Það
var einmitt i hljómleikaferð
Þursanna um Evrópu sem kafla-
skipti urðu h já Lárusi. Hann varð
eftir i Amsterdam i Hollandi og
hóf að stunda nám i tónsmiðum
við háskólann i Utrecht. Þessi
gamalreyndi poppari kvað gera
það einkar gott i „alvarlegu” tón-
listinni i Hollandi. Eftir þvi sem
við heyrum hefur tónverk eftir
hann verið valið til flutnings á al-
þjóðlegri tónlistarhátið i Amst-
erdam i haust. Verk eru send til
þessarar hátiðar úr öllum heims-
hornum og valið úr fjöldanum. Þá
mun Lárus einnig taka þátt i nor-
rænni tónlistarhátið ungra tón-
listarmanna....
\ Ekki verður samskiptum
y Arnarflugs og Flugleiða
beinlinis lýst sem ástum sam-
lyndra hjóna þótt fyrirtækin séu
náskyld. Fyrir nokkru voru
fulltrúar Flugleiða kallaðir á fund
með fulltrúuni samgönguráðu-
neytisins og flugráðs. Þar voru og
fyrir fulltrúar frá Arnarflugi og
uröu Flugleiðamenn við það
nokkuð langleitir. Enn langleitari
urðu þeir þegar fundarefnið varð
ljóst: Arnarflugsmenn höfðu
kvartað yfir undirboði Flugleiða
á flugleiðinni Keflavik-Frankfurt
sem fyrirtækið hefur auglýst stift
undanfarið. í auglýsingunum er
þvi haldið fram, að fargjald
þangað fáist á „bæjarins bestu
kjörum” — en þó er verðið hvergi
skráð. Arnarflugsmenn óskuðu
eftir að félögin kæmu sér saman
um lágmarksverð i Þýskalands-
fluginu, eftir þvi sem við höfum
frétt. Þá urðu Flugleiðamenn
langleitir i þriðja sinn og spurðu
sem svo: Hvar er nú öll sam-
keppnin sem Arnarflug berst
fyrir?
BÚNAÐARBANKINN
SELJAÍITIBÚ
Stekkjarseli 1 (á homi Stekkjarsels, Stokkasels og Skógarsels)