Helgarpósturinn - 13.08.1982, Blaðsíða 9
Heitt og þungt i gamla gufubaöinu á Laugarvatni: Vinirnir og verkfræðingarnir Benjamín Eiríksson
(Benedikt Arnason) og Siguröur Páisson — Þorvaidur S. Þorvaldsson arkitekt sem kunnur er frekar af
teikningum sínum af t.d. Þjóöarbókhlöðunni og stöövarhúsinu viö Kröflu en leiklist.
,,Heitur og þungur"
fyrir Hrafn og fleiri
Hún ber langt nafn nýja
kvikmyndin hans Hrafns Gunn-
laugssonar: OKKAR Á MILLI í
hita og þunga dagsins. Ekki langt
nafn, segir höfundur, ef miðað er
við hve lengi hún hefur verið í
vinnslu. Annars hefur verið
fremur hljótt um OKKAR Á
MILLI þar til nú allra síðustu daga
fyrir frumssýningu.
Fýrst fréttist að upptökur væru í
gangi fyrir nær einu og hálfu ári, á
sumardaginn fyrsta, þegar sett var
á svið móttaka í Ráðherrabústaðn
um, þar sem Hjörleifur Gutt-
ormsson lék sjálfan sig, þ.e. iðna-
ðarráðherra. Senan var töluvert
fyrirferðarmikil, því samkvæmt
handriti áttu Útvarp, blöð og Sjón-
varp að vera mætt á staðinn, því
hér fór fram móttaka á vegum Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna, og
gestirnir voru komnir alla leið frá
Kína. Þá höfðu upptökur í rauninni
verið hafnar nokkrum mánuðum
fyrr, eða í marz, og voru þær senur
teknar í gufubaðinu gamla á
Laugarvatni og víðar á því svæði.
Ekkert fékkst þá upp úr höfundi
myndarinnar, um efni hennar, og
fréttist ekkert frekar af gerð henn-
ar fyrr en öll þjóðin hrökk upp við
það að Geysir var farinn að gjósa,
og ástæðan sögð að hverinn vildi
ólmur og uppvægur leika í OKK-
AR Á MILLI. Afleiðingar þessa
goss urðu þær að myndin komst
skyndilega á allra varir, eftir að
Geysisnefnd gaus með ekki minni
krafti en hverinn frægi. Allt þetta
mái út af kvikmyndatökunni við
Geysi varð í rauninni eitt spaugi-
legasta skammdegismál liðins
vetrar, og gekk svo langt að Birgir
Thorlacius Iýsti því yfir í Mogga-
num að' hér væri um
„Heimshneyksli" að ræða og kærði
Menntamálaráðuneyti þá feðga á
Geysi, Sigurð og Þóri, sem höfðu
aðstoðað Hrafn við að fá hverinn
til að leika. Afleiðingar þessa máls
virðast hins vegar ætla að verða
öllum til góða, því nú er hægt að sjá
Geysisgos um hverja helgi og jafn-
vel panta það prívat, svo þetta nátt-
úruundur er ekki lengur goðsagan
ein, heldur lifir.
Það sem vekur kannski hvað
mesta forvitni úr fjarlægð, þegar
litið er yfir þær upplýsingar sem
liggja fyrir um Okkar á milli eru
leikararnir og val þeirra. í að-
alhlutverkunum er aðeins einn
Leikari, með stóru elii og er þá átt
við mann úr Leikarafélaginu, en
það er Benedikt Árnason leik-
stjóri. Raunar hefur Hrafn jafnan
farið eigin leiðir í leikaravali og
nægir þar að benda á Svein M.
Eiðss., kaupmanninn í Oðali feðr-
anna, Egil Ólafsson í hlutverki
Feilans í Silfurtunglinu og Björgu
Jónsdóttur dansara í að-
alhlutverkinu í Vandarhöggi. Ben-
edikt Árnason hefur gert lítið af því
að leika, en er hins vegar sá leik-
stjóri, sem sett hefur hvað flestar
sýningar á svið í Þjóðleikhúsinu
gegnum árin. Benedikt er því
miklu reyndari sem leikstjóri en
leikari og hefur í rauninni ekki
leikið neitt í áratugi nema smáhlut
verk, ef frá er talið hlutverk hans í
kvikmyndinni VANDARHÖGG
eftir Jökul Jakobsson heitinn, sem
Hrafn leikstýrði. Trúlega er Bene-
dikt flestum sem sáu myndina mjög
eftirminnilegur í hlutverki
ljósmyndarans og sýndi þar að
hann býr yfir þessum hæfileikum.
Það verður því fróðlegt að sjá hvað
kemur út úr þesu nýja samstarfi
þeirra Hrafns,
Konu Benedikts leikur Andrea
Oddsteinsdóttir sem rak á sínum
tíma tískuskóla Andreu, en börn
þeirra hjóna leika Margrét
Gunnlaugsdóttir sem varð stúdent
frá HM nú nýlega, og júlíus Hjör-
leifsson sem útskrifaðist úr
Leiklistarskóla fslands á síðasta
ári. Ekki vitum við til að Andrea
hafi leikið opinberlega, alla vega
ekki síðustu áratugi, og þótt Júlíus
sé útskrifaður úr Leiklistarskól-
anum er hann næsta óþekktur enn-
þá, ef frá eru skilin minmháttar
hlutverk á sviði frá því hann út-
skrifaðist. Hins vegar segja þeir
sem sáu sýningu MH, þar sem Mar-
grét lék undir leikstjórn Andrésar
Sigurvinssonar að þar hafi greini-
lega verið mikið leikaraefni á ferð.
Það leikaraval sem vekur þó enn
meiri forvitni, er val á þeim
tveimur mönnum sem Benedikt
umgengst mest í vinnunni, en þá
/leika Valgarður Guðjónsson söngv
ari Fræbbblanna með meiru, og
Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt,
sá er teiknaði m.a. Þjóðarbókhlöð-
una og stöðvarhúsið við Kröflu.
Hvorugur þessara manna hefur
komið nálægt leiklist áður svo vitað
sé, en svo langt sem við vitum er
hér um nokkuð stór hlutverk að
ræða. Hvort Hrafni tekst að láta þá
skapa trúverðuga karaktera í þess-
ari mynd verður spennandi að sjá,
og munu ýmsir í leikarastétt kunna
honum litlar þakkir fyrir uppátæki
sem þessi.
Enn eru það tveir leikarar sem
vekja forvitni, en það eru þær Mar-
ía Ellingsen og Sirrý Geirs. María
er kornung menntaskólastúlka og
mun meðal annars leika „stórar
flóknar ástarsenur" svo vitnað sé í
orð leikstjórans, þegar við spurð-
um hann um Maríu. Sirrý Geirs
munu flestir þekkja, en hún gerði
garðinn frægan í eina tíð með
þátttöku í fegurðarsamkeppnum
um víða veröid, og kom á þeim
tíma töluvert nálægt kvikmynda-
leik og sjónvarpi, en hefur ekki
snert slíkt síðasta áratuginn.
Allir þessir einstaklingar sem
leika aðalhlutverk myndarinnar
vekja óhjákvæmilega mikla for-
vitni, og þá ekki síður að Hrafn
teflir hér einnig fram alveg nýju
fólki á sviði kvikmyndagerðarinnar
sjálfrar. Kvikmyndatökumaðurinn
heitir Karl Óskarsson og hefur ekki
fengist við leiknar myndir áður, en
hefur hins vegar vakið athygli fyrir
óvenju frumlegar og vel gerðar
sjónvarpsauglýsingar og má þar
nefna AKÁI auglýsinguna,
auglýsinguna fyrir Blondie og nú
síðast Moggann. Hvernig Karl
reynist sem kvikmyndatökumaður
í leikinni mynd, er ekkert hægt að
fullyrða um, því hér er um svo
gerólík form að ræða. Karl hafði
hins vegar sér til aðstoðar
þrautreyndan mann, þar sem Jón
Axel Egilsson er, en Jón var m.a.
aðstoðarmaður Sigurðar Sverris í
Útlaganum, auk þess sem hann er
nú kvikmynda- og myndbandarýn-
ir Helgarpóstsins.
Og þá er það kannski sá einstak-
lingur sem hvað mestar vonir eru
bundnar við, en það er Gunnar
' Smári Helgason hljóðmaður. Vit-
að er að Hrafn hefur verið mjög
ánægður með vinnubrögð Gunnars
og haft mörg orð um ágæti hans.
Gunnar er sjálfmenntaður, vann
lengi sem upptökustjóri í Hljóðrita
og þótti þá bera af öðrum, en hvort
hann ræður við að búa til pottþétt
hljóð í íslenska kvikmynd, — en
hljóðið hefur til þessa verið þeirra
veikasta hlið hvað tækni snertir, —
getur árangurinn einn borið vitni
um.
OKKAR Á MILLI mun tiltölu-
lega ódýr, ef miðað er við myndir á
borð við Punktinn og Útlagann, en
kostnaður við myndina mun rúmar
300 milljónir gamlar í dag, eða 3
milljónir nýjar, sem er svipað og
Óðal feðranna og Land og svnir
kostuðu á sínum tíma. Ástæða
þess að Hrafni hefur tekst að
halda kostnaði niðri segir hann þá
,,að hann hafi aldrei haft fleiri
menn i uppptökugenginu en bráð-
nauðsynlegt var, og hann hafi
sneitt að mestu hjá þeim
leikmynda- og búningakostnaðar-
lið sem gerir peródíumyndir (þ.e.
myndir sem gerast ekki í nútím-
anum) hvað þyngstar í skauti.
Hrafn hefur verið dálítið sér á
parti í hópi íslenskra kvikmynda-
leikstjóra að því leyti, að myndir
hans eru frumsamdar sem
kvikmynöir, en ekki gerðar eftir
skáldsögum. Það sama er uppi á
teningnum í OKKAR Á MILLI,
Hrafn mun hafa samið verkið jafn-
óðum og unnið þannig séð ekki
ósvipað og rithöfundur. Byrjað á
næsta kafla þegar einum var lokið.
Þessi vinnuaðferð er þekkt úr
kvikmyndaheiminum en hefur gef-
ist bæði og, getið af sér meistara-
verk og algerlega ónýtar myndir.
Hvort Hrafn ræður við þessa að-
ferð er því ein af þeim ótal mörgu
spurningum sem vakna svona rétt
fyrir frumsýningu á OKKAR Á
MILLI.
Nokkuð hefur dregið úr bjart-
sýni manna eftir fyrstu íslensku
myndirnar, hvað fjárhag snertir og
munu ýmsir kvikmyndagerðar-
menn berjast í bökkum. Útlaginn
hefur ekki enn borgað sig, á Rokk-
inu og Sóley hvíla miklar skuldir og
nú virðist ekki nægja að mynd sé
íslensk til að almenningur láti sjá
sig. Frumsýningardagur OKKAR
Á MILLI verður því á margan hátt
dagur „hita og þunga“ fyrir Hrafn,
því bregðist áhorfendur verður erf-
itt að safna fyrir skuldunum. Við
skulum samt vona hið besta.
- BVS.
Margrét Gunnlaugsdóttir^ nýut-
lelkur^dótturina,! leikhúsatriöinu.
„t örmum *r^.g ekki sú
°6ÞVúererheIdursú sem>ég
immynÞd“ mér. S „Þg% FrV-
Benedikt ^ma frammistoöu
Srkunna ie^stjóra I aöai-
hlutverkinu.
_ oddsteinsdóttir
/yndrea Benjamins
bs-js-»“sfisrs
S&riwa*1"-,