Helgarpósturinn - 28.07.1983, Síða 6

Helgarpósturinn - 28.07.1983, Síða 6
6 Fimmtudagur 28. júlí ^983^%%+, (r^n í miðjum sal Umferðarmiðstöðvarinnar í Reykjavík stendur spenntur unglingur. Hann er með svefnpoka undir annarri hendinni og tvö þúsund krónur í rassvasanum. Kannski eina flösku innan á úlpunni. Búið. Hann veit ekkert ennþá hvert hann ætlar. En hann veit hvað hann vill. Hann vill fara þangað sem fjörið er. Hann vill vita hvert straumurinn liggur. Og hann er í stuði. I skrifstofu, á hæðinni fyrir ofan hann, situr Gunnar Sveinsson, framkvæmdastjóri Um- ferðarmiðstöðvarinnar og skipuleggur rútu- ferðir út um allt land. Hann er löngu búinn að fastsetja rútuna sem þessi unglingur niðri í sal kemur til með að taka út á land. „Við erum búnir að búa okkur vel með ferð- ir yfir þessa verslunarmannahelgi,“ segir Gunnar. „Það er miklu meira um að vera núna en um verslunarmannahelgina í fyrra. Miklu fleiri útihátíðir, miklu fleiri ferðir" Gunnar segir, að salurinn niðri troðfyllist á föstudagseftirmiðdögum fyrir verslunar- mannahelgar. „Þetta eru þúsundir. Allt ung- lingar. Fólk er með gítara og fer strax að syngja rútuslagarana. Frá klukkan fimm til Straumþung helgi klukkan svona hálf tíu er allt á fullu. Þá fer héðan full rúta á svona kortersfrestií* „Þau eru ofsalega hress" segir konan sem selur unglingunum farmiðana á 3-500 krónur. Straumurinn er aðallega í Þjórsárdal og Húsafell, líka til Eyja og í Þórsmörk. Þetta eru krakkar frá 13 til 16-17 ára. Þau spyrja okkur talsvert um það hvert straumurinn liggi, en flestir eru búnir að ákveða hvert þeir ætla, áður en þeir kaupa miða. Síminn hefur mikið hringt á skrifstofu Um- ferðarráðs þessa vikuna. Spurning, sem oft er borin upp í símann við starfsmenn þar, er hvert straumurinn liggi. En svörin sem fólk fær þar eru talsvert frábrugðin þeim sem ung- lingarnir fá á Umferðarmiðstöðinni. „Við vilj- um dreifa umferðinni sem mest“ segir Tryggvi Jakobsson fulltrúi hjá Umferðarráði, rödd Umferðarráðs í útvarpinu. „Þannig að við gefum ekkert upp neina ákveðna straum- stefnu, dagana fyrir verslunarmannahelgií* Það er líka erfitt að sjá það fyrr en helgarum- ferðin er byrjuð fyrir alvöru" segir Tryggvi. „Undanfarin ár hefur umferðin dreifst meira á miðsumarið í heild. Það er ekki lengur þessi hvassi Hallgrímskirkjuturnsoddur á verslunarmannahelginni“ segir Tryggvi og tal- ar nú í línuritum. „Þetta er orðinn flatari og samfelldari toppur. Helgarnar fyrir og eftir verlsunarmannahelgi eru ekki síður miklar umferðarhelgar núna virðist vera. Um síðustu helgi komum við aðeins til móts við þessa þró- un hér hjá Umferðarráði og byrjuðum að út- varpa héðan inn í ýmsa dagskrárþætti. Við verðum með sendingar héðan um verslunar- mannahelgina og leggjum þá áherslu á upp- lýsingar um ástand vega, umferðarþunga og við verðum með eins mikinn áróður og hægt er, bæði um góða hegðun í umferðinni og eins um slysavarnir almennt.“ Tryggvi segir að al- varlegustu slysin undanfarnar verslunar- mannahelgar hafi ekki verið umferðarslys heldur slys í ám og vötnum. Banaslys af þessu tagi hafa orðið tvær síðustu verslunarmanna- helgar. Þegar umferðarlestin fer að mjakast úr bæn- um á föstudag fyrir verslunarmannahelgi fara línur að skýrast um það hvert straumurinn raunverulega liggur í þetta skiptið. Eins og getið er að framan er um margar útihátíðar að ræða að þessu sinni en einna helst er reiknað með að meginstraumur unglinga af höfuð- borgarsvæðinu verði í Þjórsárdal. Þar verður útihátíð í fyrsta skipti síðan 1973. Þá var þar „Vor í dal“ hátíð sem flestir sem þátt tóku vilja gleyma, ef þeir muna þá eftir henni yfir- höfuð. Sú „hátíð drukknaði víst í rigningu, slyddu og vosbúð. Hátíðin í ári heitir „Gauk- urinn ’83í‘ Skipulagning hennar, eins og reyndar margra annarra hátíða um þessa helgi, er í öruggum höndum ungmennafélags- manna. Af öðrum hátíðum um helgina má nefna útiskemmtunina í Atlavík með Stuðmönnum og Grýlum, Laugahátíð norðanmanna í Þing- eyjarsýslu, þar sem Egó leikur undir sprellinu á kvöldin, Jöklagleði á Arnarstapa á Snæ- fellsnesi, gamla góða bindindismótið í Galta- læk (upplagt fyrir óvirka) og síðast en ekki síst Þjóðhátíðin í Eyjum fyrir heimamenn og þá sem vilja leita út fyrir landsteinana um þessa verslunarmannahelgi. Á þessum stöðum verða böll á hverju kvöldi. Auk þess verða sveitaböll úti um allar sveitir: á öllum helstu sveitaballstöðum tvö eða þrjú kvöld helgarinnar. Það ætti því að vera hægt að skreppa á skrall um þessa helgi. Aðgöngumiðar á þessi böll kosta 3-400 krón- ur, stundum meira 800 krónur kostar að- göngumiðinn i Þjórsárdal. N^okkrir staðir eru ónefndir, þar sem engin sérstök hátíðahöld verða, en fólk safnast engu að síður saman á. Þetta eru Þórsmörk, Húsa- fell og Þingvellir. Eins og undanfarin ár er bú- ist við unglingafjöld í Húsafell, ungu fólki á jeppum í Þórsmörk og fjölskyldufólki á Þing-, velli. „Engin útiskemmtun verður betri en veðrið á henni“. Þetta er þumalfingursregla sem Is- IfSHMI FIMP i Forsetar Contadora-ríkjanna á fundi sínum í Concún í Mexíkó fyrir hálfum mánuði. Frá vinstri: Betancur forseti Kólumbíu, Campins forseti Venezuela, Miguel de la Madrid forseti Mexíkó og Ricardo de la Espriella forseti Panama. Reagan þjarmar að Sandinistum en Contadora-lönd leitafriðar Borgarastyrjöldin í E1 Salvador er ekki leng- ur þungamiðja átaka og viðsjárverðs ástands í Mið-Ameríku. Nú snýst málið um tilveru rík- isstjórnar Sandinistahreyfingarinnar í Nicar- agua. Sú stjórn er skipuð mönnum úr forustu- liði byltingarhreyfingar, sem hrakti síðasta harðstjórann af Somoza-ættinni frá völdum, eftir að hún hafði mergsogið þjóðina í hálfa öld. Bandarísk hernámsyfirvöld hófu fyrsta Somozann á valdastól, um leið og bandarísk- ar landgönguliðasveitir yfirgáfu landið eftir hernám sem hófst á forsetadögum Theodore Roosevelts. Nú heldur bandaríska leyniþjón- ustan CIA uppi 10.000 til 15.000 manna skæruher við landamæri Nicaragua, her sem fyrrverandi foringjar í Þjóðvarðliði Somoza- ættarinnar veita forustu. Jafnframt eru boð- aðar stórfelldar, bandarískar flotaæfingar í næsta mánuði undan ströndum Nicaragua, bæði Atlantshafsmegin og Kyrrahafsmegin. Þar á ofan á að senda 4.000 manna bandarískt herlið til Honduras, nágrannaríkis Nicaragua, sem skotið hefur skjólshúsi yfir innrásarlið CIA. Er látið heita svo, að þessi bandaríski liðsafli eigi að stunda æfingar ásamt Hondur- asher í mánuð eða svo. Hernaðarviðbúnaður þessi hefur vakið ugg í Bandaríkjunum og kurr á Bandaríkjaþingi. Á þriðjudagskvöld hélt Ronald Reagan forseti fund með fréttamönnum, sem snerist einvörð- ungu um Mið-Ameríku, ástandið þar og á- form Bandaríkjastjórnar. Fréttamaður breska ríkisútvarpsins komst svo að orði, að Reagan hefði verið í vörn fréttamannafundinn út í gegn. Hvað eftir annað kom það fyrir, að hann leiddi hjá sér að svara spurningum um meginatriði eða svaraði þeim út í hött. Þar á meðal var spurningin um afstöðu Bandaríkjastjórnar til viðleitni ríkis- stjórna lýðræðisríkja í Rómönsku Ámeríku til að tryggja frið í Mið-Ameríku og afstýra erlendri íhlutun í átökin þar. Stjórnir Mexíkó, Kólumbíu, Panama og VFIRSVN ERLEIMD Venezuela hafa myndað svokallaðan Conta- dora-hóp, kenndan við fyrsta fundarstað, þar sem þessi ríki bundust samtökum um að vinna að friðsamlegri lausn mála í Mið-Amer- íku. Á fundi í Cancún I Mexíkó um miðjan þennan mánuð gengu forsetar ríkjanna fjög- urra frá tillögum um ráðstafanir til að friða svæðið. Meginatriði þeirra eru að Nicaragua og nágrannaríki þess komi á herlausum svæð- um meðfram landamærunum, að ekkert ríki Mið-Ameríku ljái land undir árásarundirbún- ing þriðja aðila gegn öðru ríki og að erlendir hernaðarráðunautar verði á brott af svæðinu. Forsetar Contadora-hópsins beindu jafn- framt persónulegum áskorunum til Reagans Bandaríkjaforseta og Castro Kúbuforseta, að Ijá lið viðleitni til að hindra að ófriður í Mið- Ameríku magnist og breiðist út. Sem stendur sitja utanríkisráðherrar Cont- adora-landanna á fundi í Panamaborg. Hafa þeir fengið til fundarins fulltrúa frá fimm öðrum ríkjum Mið-Ameríku, þar á meðal bæði Honduras og Nicaragua. Sömuleiðis eru staddir í borginni fulltrúar stjórnmálahreyf- inganna í EI Salvador, sem styðja skæruhern- að gegn ríkisstjórninni þar. Á þessum fundi virðast Contadora-ríkin ætla að gera úrslita- tilraun til að þoka málum í friðarátt. Stjórn Panama hefur lagt sig sérstaklega fram að afstýra því að bandarísku hervaldi verði beitt til að skipa málum í Mið-Ameríku. Ástæðan er, að fá ár eru liðin siðan Panama- menn losnuðu úr viðjum sem á þá voru lagðar með bandarískri íhlutun í Mið-Ameríku á fyrstu áratugum aldarinnar. Panama varð til, þegar Bandaríkjastjórn stuðlaði að því að lima svæðið frá Kólumbíu upp úr síðustu aldamótum. Stjórn nýja ríkis- ins, sem var algerlega háð bandarískum hern- aðarstuðningi, var svo látin undirrita samn- ing, sem lét Bandaríkjunum í té belti þvert ytir landið meðfram Panamaskurðinum. Hernað- aríhlutun Bandaríkjanna í Nicaragua, og öðr- um löndum við Karíbahaf, á næstu áratugum var svo einatt réttlætt með þörf á að tryggja öryggi Panamaskurðar og hernaðaraðstöðu Bandaríkjanna við hann. Stjórn Franklins Roosevelts hvarf frá bandarískri íhlutunarstefnu á fjórða tug ald- arinnar og tók upp „stefnu hins góða granna“ gagnvart ríkjum Rómönsku Ameríku. Próf- steinninn á hver hugur fylgdi máli kom þegar stjórn Cardenas í Mexíkó þjóðnýtti eignir bandarískra oliufélaga í landinu. Stjórn lendingar þekkja af langri reynslu. Lögreglan segir jafnan að ölvun á slíkum skemmtunum verði aldrei teljandi vandamál ef ekkert er að veðri. Veðurguðirnir og Bakkus vinna saman að þessu leyti. En hvernig verður þá veðrið um verslunar- mannahelgina? Trausti segir í samtali við HP að eins gott sé að hafa gætur á gigtinni. Hann segir að útlit sé fyrir hæga breytilega átt og sennilega skúraleiðingar um mest allt landið föstudag og laugardag, og að líkur séu u.þ.b. 2/3 á norðanátt og kaldara veðri á laugar- dagskvöld eða sunnudag. Þetta með norðanáttina og hugsanlega sól sunnanlands og kulda norðanlands rímar á- gætlega við þá kenningu margra sunnlenskra bænda, að hafi tíð verið vond frameftir sumri, þá verði undantekningarlítið sólskin um verlsunarmannahelgina. Trausti vill ekki lofa okkur sól Hann segir: „Ég hef aldrei lof- að neinu nema rigningu“ Hann segir að þegar meðaltalstölur fari að berast Veðurstofunni frá veðurathugunarstöðvumúti á landi eftir helgina verði hægt að sjá hvar þetta sumar er raunverulega statt veðurfarslega á landinu í heild. „En það má teljast kraftaverk ef þetta er ekki kaldasti júlí á öldinni hér í Reykjavíký segir Trausti. Og Reykvíkingar sem ætla ekki út úr bæn- um um verslunarmannahelgina biðja um kraftaverk. Fólk utan af landi, sem kemur til Reykjavíkur um helgina biður um kraftaverk. „Það er miklu meira um ferðalög íslend- inga í sumar en í fyrrasumar" segir Tryggvi Jakobsson hjá Umferðarráði. „Fólk hefur kannski sleppt sólarlandaferðinni og nú vill það sól. Já, fólk spyr okkur mikið um veðriðí' „Það er aldrei að vita með veðrið“ segir kona úr söfnuði Hvítasunnumanna, sem heldur Kotsmót í Kirkjulækjarkoti í Fljóts- hlíð um verslunarmannahelgina. „En hér verður fólk með sól í hjarta“ Og með söng á vörum væntanlega líka, eins og unglingarnir á Umferðarmiðstöðinni. Góða ferð! — Takið bomsurnar með til ör- yggis. Roosevelts stóðst þrýstinginn að grípa til vald- beitingar. Síðan hefur skipt í tvö horn um framkomu bandarískra ríkisstjórna við ríki Mið-Amer- íku, eftir því hvort repúblikanar eða demó- kratar eru við völd. Repúblikanastjórnum er gjarnt að láta dólgslega, eins og þegar CIA var látið steypa stjórn Arbenz frá völdum í Guate- mala á stjórnarárum Eisenhowers, af því hún hafði þjóðnýtt landeignir United Fruit. Síðan hefur ekki linnt blóðsúthellingum og ógnar- öld þar í Iandi. Stjórn demókratans Carters varð hins vegar til þess að ganga til samninga við Panama um endurskoðun ójafnaðarsamningsins um Panamaskurð frá 1903. Fær Panama nú full yfirráð yfir landi sínu og skurðinum fyrir aldamót. Áður en samningurinn nýi var staðfestur, urðu um hann harðar deilur í Bandaríkjun- um. Einn þeirra sem harðast gengu fram í andstöðu við að láta Panama ná rétti sínum var forsetaefnið Ronald Reagan. Hann notaði það óspart til árása á keppinauta sína um for- setaframboð fyrir Repúblikanaflokkinn, að þeir væru undansláttarmenn, sem afsala vildu bandarískum hagsmunum og hernaðarað- stöðu með því að samþykkja samning stjórn- ar Carters við Panama. Ein af þeim hugmyndum, sem uppi voru í deilunni um samninginn um að skila Panama stjórn á skurðsvæðinu, var að Bandaríkin beittu sér síðar meir fyrir grefti nýs skurðar milli Atlantshafs og Kyrrahafs, þar sem band- arísk yfirráð yrðu tryggð um alla framtíð. Hentugasti og reyndar eini mögulegi staður- inn fyrir slíkan skipaskurð er í Nicaragua. Að svo miklu leyti sem unnt er að gera sér grein fyrir stefnu Reagans í erjunum sem hann hefur látið magnast í Mið-Ámeríku, virðist markmiðið vera að steypa af stóli stjórn Sand- inista í Nicaragua. Þegar Sandinistaleiðtog- inn Umberto Ortega bauð á byltingarafmæl- inu um daginn griðasáttmála við Honduras og viðræður við önnur ríki Mið-Ameríku svo stillt yrði til friðar, sagði Reagan að tillögurn- ar væru góðar í sjálfu sér, en hann sæi enga á- stæðu til að búast við árangri af viðræðum meðan Sandinistar væru við völd í Managua, höfuðborg Nicaragua.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.