Helgarpósturinn - 28.07.1983, Side 8

Helgarpósturinn - 28.07.1983, Side 8
,8 sÝninfiarsnlir Nýlistasafnið: Magnús V. Guðlaugsson sýnir mál- verk I stærri salnum og Marleen Buys sýnir myndverk úr ýmsu efni í minni salnum. Sýningarnar eru opnar virka dagakl. 16—22 og 14 til 22 um helgar og lýkur 31. júlí. Norræna húsið: I anddyri er ennþá sýningin íslenskir sjófuglar en niðri hefur nú verið opn- uð sýningin Ungdom i Norden en það er Ljósmyndarafélag íslands sem gengst fyrir henni. Það er opið alla daga frá 14—19 og henni lýkur 7. ágúst. Djúpið: Sýning á verkum Ólafs Th. Ólafsson- ar stendur yfir en hann sýnir verk unn- in með blandaöri tækni. Ólafur út- skrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handiöaskóla íslands áriö 1981 en hyggst á framhaldsnám í Vinarborg í vetur. Gallerí Vesturgata 17: Sölusýning á verkum 15 félaga í List- málarafélaginu. Sýningarsalurinn, is- lensk list, er opinn virka daga kl. 9—18. Kjarvalsstaðir: Kjarval á Þingvöllum. Dásamleg Kjar- valssýning i Kjarvalssal. Stendur i allt sumar. i vestursal og fórsal stendur yfir sýning á verkum, sem Reýkjavíkurborg hefur fest kaup á á undanförnum 2-3 árum. Verkin eru eftir ýmsa listamenn. Þeirri sýningu lýkur 21. ágúst. Opið alla daga kl. 14- 22. Gallerí Langbrók: Sigrún Einarsdóttirog Sören Larsen, glergerðarsnillingarnir i Bergvik á Kjalarnesi opna einkasýningu á laug- ardag, þar sem aðallega verða alls konar karöflur. Frábært handverk og list. Opið alla daga kl. 12-18. Lýkur 7. ágúst. Ásgrímssafn: Sumarsýningin i fullum gangi. Opið daglega kl. 13.30-16, nema laugar- daga. Þá er lokað. Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4a: Nýtt galleri gamalreyndra lista- manna, sjö talsins. Þeir sýna og selja skartgripi, grafik, leirmuni, málverk, skúlptúr, fjölva, handprjónaöar flíkur og fleira. Opið virka daga kl. 12-18. Stúdentakjallarinn: Jane Levy Reed frá Bandarikjunum sýnir Ijósmyndir, sem teknar voru í heimalandi hennar, Austurlöndum og viðar. Skemmtileg sýning. Ásmundarsalur: Ásgeir Smári Einarsson sýnir skúlpt- úra, vatnslitamyndir, kritarmyndir og fleira. Opiö virka daga kl. 16-22 og 14- 22 um helgar. Lýkur 30. júlí. Heilsuhæli Náttúrulækningafélags- ins í Hveragerði: Ólafur Th. Ólafsson á Selfossi heldur málverkasýningu. Hann sýniroliu-og vatnslitamyndir. Sýningunni, sem er sölusýning, lýkur 15. ágúst. Árbæjarsafn: Opið laugardag og sunnudag kl. 13.30—16. Lokað mánudag. Á sunnu- dag kl. 14 veröur gönguferö um Ell- iðaárdal og kl. 16 verður fiöludúett i Eimreiðarskemmunni og ætti kaffiö að bragðast vel undir Ijúfum tónum. Munið strætó nr. 10. Bogasalur: Myndir úr íslandsleiðöngrum og fleira nýtt. Opið alla daga kl. 13.30-16. Sýningin stendur út ágúst. Mokka: ítalski myndlistarmaðurinn Ricardo' Licate sýnir verk sin. Listasafn Einars Jónssonar: Opið miðvikudaga og sunnudaga kl. 13.30—16. Stórfenglegar höggmynd- ir. Ásmundarsafn: Ásmundarsafn við Sigtún er opið daglega nema mánudaqa frá kl 14—17. Hótel Stykkishólmur: Helgi Þorgils Friöjónsson og Kristinn Guðbrandur Harðarson sýna glæsi- legar litaðar glansmyndir og teikning- ar. Sýningin stendur út júlf. Gallerí Lækjartorg: Opin sýning 83. Hún opnar á laugar- dag og þar veröa til sýnis verk lista- manna, sem hafasýnt ástaönum, svo og verk í eigu gallerisins. í upphafi verða m.a. verk eftir Jóhann G. Jó- hannsson. Sýningin er opin út ágúst kl. 14-18 virkadagaog sunnudaga kl. 14-22. Aðgangur er ókeypis. Icikluís Stúdentaleikhúsið: Reykjavíkurblús eftir Magneu Matt- hiasdóttur og Benóný /Egisson verð- ur endursýndur vegna mikillar að- sóknar. Sýningar varöa í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 2030 og annað kvöld kl. 20.30. Fimmtudagur 28. júlí 1983 jjiísturinn. Ekki sérlega spennandi Mike Oldfield — Crises í vor voru liðin tíu ár frá því að Mike Oldfield sendi frá sér plöt- una Ttibular Bells, sem gerði hann í einni svipan að stórstjörnu, jafn- framt því sem þá var spáð að með honum væri kominn fram á sjón- arsviðið maður er breyta mundi gangi rokksögunnar. Htbular Bells naut óhemju vinsælda um langan tíma og ekki skemmdi nú fyrir að hluti verksins var notaður í kvikmyndinni The Exorcist, sem um þær mundir ærði fólk um víða veröld. Plata þessi var meira og minna í heilt ár í fyrsta sæti breska vinsældarlistans og þremur árum eftir útkomu hennar höfðu selst yfir fimm milljónir eintaka í heiminum. Það er dálítið skemmtilegt til þess að vita, að áður en Oldfield gerði Thbular Bells, gekk hann á milli plötufyrirtækja í Englandi með reynsluupptökur af verki þessu en enginn vildi gefa það út. Það var ekki fyrr en Richard Branson, sem rak nokkrar hljóm- plötuverslanir undir nafninu Virgin, heyrði hvað Oldfield hafði fram að færa að hlutirnir fóru að ganga. Branson hafði áhuga á að fara út í hljómplötuútgáfu og Thbular Bells var fyrsta platan sem hið nýja fyrirtæki hans, Virg- in Records, gaf út. Plata þessi gerði því meira en að gera Oldfield að stórstjörnu, hún lagði grunn- inn að því að gera Virgin að einu af stærri hljómplötufyrirtækjum Bretlands. Þegar önnur plata Oldfields, Hergest Ridge, kom út í ágúst 1974 fór hún beint í fyrsta sæti vinsældarlistans, og um Ieið varð Ihbular Bells að þoka sér niður í annað sætið. Hergest Ridge var hins vegar heldur mislukkuð og olli mönnum vonbrigðum. Marg- ir héldu því fram að Oldfield hefði sem sé strax á sinni fyrstu plötu spilað öllum trompum af hendi sér. Þvi var þó ekki þannig farið, því platan Ommadawn sem hann sendi frá sér 1975 stendur Ihbular Bells lítt að baki og að mínu mati eru þessar tvær plötur það lang- besta sem Oldfield hefur gert. Eftir útkomu Ommadawn máttu aðdáendur kappans bíða í ein þrjú ár eftir nýrri plötu. Þegar hún svo loksins leit dagsins ljós voru aðrir tímar og margt hafði breyst frá útkomu síðustu plötu. Pönkið og nýbylgjan höfðu skoll- ið yfir og nú nennti fólk ekki leng- ur að hlusta á lög sem voru mikið lengri en þrjár mínútur. Þetta verk Oldfields, sem heitir Incant- ations og kom út á tveimur plöt- um, tók hins vegar yfir 70 mínútur í flutningi og var sannast sagna, í þokkabót, langdregið og leiðin- legt. Það voru margir gamlir að- dáendur sem sögðu skilið við hann og var ég í þeim hópi. Ég hef ekki fylgst náið með hvað hann hefur gefið út siðan, en ég man eftir að ein platan hét Platinum og í fyrra kom út Five Miles Out. Ég hef einungis heyrt þá síðarnefndu og var ekki ýkja hrifinn. Nú á tíu ára útkomuafmæli Thbular Bells hefur Oldfield sent frá sér nýja plötu og nefnist hún Crises. Heldur virðist mér hann nú í framför, frá því sem var á Five Miles Out, en þó er ljóst að þessi plata stendur langt að baki því sem hann hefur gert best. í fyrstu lék Oldfield því sem næst einn á öll hljóðfærin en nú síðustu ár hefur hann farið inn á þá braut að fá aðra hljóðfæraleik- ara sér til aðstoðar og virðist mér það rétt stefna og til þess eins að skapa tónlist hans aukna þróun- armöguleika. Hins vegar hefur hann ekki inikið breyst sem tón- skáld og það má segja að hann styðji sig enn að mestu við þær út- setningaraðferðir, sem hann not- aði strax í byrjun. Hann byrjar gjarnan á því að slá fram einhveri einfaldri laglínu, sem sumar hverjar eru nú heldur þreyttar, leiknar af einu hljóðfæri en hleð- ur síðansmámsamanhljóðfærum ofaná, sem þá oft leika þessa sömu laglínu tilbrigðalaust. Síðan er stundum eins og hann hætti fyrirvaralaust við laglínu þessa og skelli sér út í þá næstu, en það er þó oft ekki fyrr en eftir allt of langan tíma. Þannig er þessu farið í verkinu Crises, sem fyllir fyrri hlið nýju plötunnar. Öðru hvoru dúmpa þar upp ágætir kaflar en í heildina finnst mér verk þetta ekki sérlega spennandi. Á seinni hliðinni er svo að finna styttri Iög og þar fær hann m.a. til liðs við sig söngkraftana Maggie Riley, Jon Anderson og Roger Chapman. Þegar er orðið all vin- sælt lagið Moon Shadow, sem er lauflétt popplag og sem slíkt ekki slæmt. Best finnast mér lögin Taurus III, þar sem Oldfield sýnir hversu lipur gítarleikari hann er og Shadow On The Wall en það er nú fyrst og fremst vegna Chap- mans. Crises er að mínu mati ekki meðal þess besta sem Oldfield hefur sent frá sér, en þó er hún öllu betri en Five Miles Out, en það er nú kannski ekki mikið til að státa af. Blessað gufuradíóið er farið að eldast Þegar ég rita þetta greinarkorn skömmu eftir hádegið mánudag- inn 25. júlí, þá líður mér heldur illa. Mér er illt í maganum og mat- arlystin var heldur lítil. Þetta staf- ar m.a. af því að skömmu fyrir há- degið nánar til tekið kl. 11.30 varð mér óvart á að hlusta á þátt Her- manns Arasonar Lystaukann. Satt að segja bjóst ég við ein- hverju, en þessi þáttur var verra en ekkert. Hann var illa saman sett- ur, þrautleiðinlegur og stjórnand- inn með endalaust kjaftæði um sjálfan sig og upplifun sína, m.a. af Vaglaskógi. Reynandi væri að telja, hversu oft Hermann sagði ég í þættinum, en þetta persónu- fornafn ættu góðir útvarpsmenn að forðast eins og heitan eldinn. Þá voru viðtölin og söngur ferða- manna heldur í lakara lagi. Lík- lega má telja, að þessi þáttur sé á Auðar Haralds og Valdísar gæð- unum, en þó heldur verri. Annars hefur Valdís Óskars- dóttir verið að lesa sögu, sem hún hefur þýtt í morgunstund barn- anna. Sagan er vel þýdd og lestur- inn hjá Valdísi einkar góður. Með sumardagskránni tóku stjórnendur barnaefnis í útvarp- inu upp þann sið að láta ýmsa segja börnunum sögur rétt fyrir sjónvarpsfréttir, svo að foreldr- arnir hefðu nú frið. Ég hlusta stundum á þessar sögur. I síðustu viku sagði Bryndís Víglundsdóttir börnunum sögu. Að mínu viti gerði Bryndís það einkar vel og á hugljúfan hátt. Ég gat alla vega ímyndað mér, að ég væri lítill hnokki, sem hlustaði á einhverja góða og notalega konu segja mér sögu. Svo var Bryndís með morg- unorðin einn morguninn og talaði um samband og framkomu for- eldra gagnvart börnum sínum. Framkoma Bryndísar í útvarpi er slík, að hún ætti að vera öðrum til fyrirmyndar. Undanfarna sunnudagseftir- miðdaga hafa Trausti Jónsson og félagar hans verið með þætti, þar sem þeir hafa kynnt ýmsa söng- lagahöfundaíslenska. í fyrra voru þessir sömu menn með þætti um íslensk sönglög. Framsetning þeirra og meðferð á því efni sem tekið er fyrir hverju sinni er til hreinnar fyrirmyndar. Kynningar eru hnitmiðaðar og komast fylli- lega til skila. Þátturinn í gær, 24. júlí vareinkargóður. Þar fjölluðu þeir um Þorvald Blöndal, sem lést um aldur fram. Virðast þeir félag- ar hafa gert sér far um að afla sem víðtækastra heimilda um Þor- vald. Aldrei hafði ég heyrt hans getið fyrr en í gær. Þættir þessir ættu að varðveitast í segulbanda- safni útvarpsins og jafnvel ætti að gefa þá út sem kennslugögn í tón- mennt. Á miðvikudagskvöldið 20. júlí flutti útvarpið þátt um banda- ríska blaðamanninn John Reed í samantekt Sigurðar Skúlasonar. Lesari með honum var Arnar Jónsson. Með samsetningu og flutningi þáttarins tókst þeim að gera hann bráðgkemmtilegan og þær mínútur, sem þátturinn var- aði voru fljótar að líða. Þátturinn er dæmigerður um vönduð vinnu- brögð. Ekki er hægt að segja hið sama um Skruggur Eggerts Bern- harðssonar, þar sem hann fjallaði um Kollumálið. Eggerti hættir til að vera svolítið flausturslegur í lestri og greinilegt var, að eftir- tektin hjá honum eða tækni- manni þeim, sem hljóðritaði þátt- inn var ekki upp á það besta, því að klippingar eða innkomur heyrðust, a.m.k. á einum stað. Annars væri gaman einhvern tíma seinna að útskýra fyrir ykkur les- endum, hvernig útvarpsþáttur verður til. Segja má að útvarp liðinnar viku hafi verið harla gott, en blessað Gufuradíóið er farið að eldast, því að það týnir fréttaauk- um og gleymir að sækja þætti út á flugvöll. Eða er þetta ef til vill handvömm starfsmannanna? G.H. sjoranp Föstudagur 29. júlí 20.40 Á döfinni. Birna er komin aftur. Hún var bara í sumarfrii. Velkomin fagra meyja. 20.50 Steini og Olli. Skopmyndir i marg- faldri röö. Er ætlast til aö viö hlæjum að þessu? Þó er margt verra til. 21.15 Þyrlur Fyrsta nothæfa þyrlan hóf sig til flugs áriö 1936. Það ár fór Franco aö derra sig. Þyrlan er flókiö apparat og hér veröur gerö grein fyrir öllum helstu nýjungum og framförum og svo framvegis. Allt sem þú vilt vita um þyrlur... 22.10 Ambátt ástarinnar (Ambáttskí ástarskí). Sovésk biómynd. Leik- endur: Elena Solovei. Leikstjóri: Nikita Mihalkof. Dagar byltingar- innar, góöir dagar. Svartahafið og sólin. Ungur og hundeltur maður kemur aö máli viö stjörnu þöglu myndanna við vinnu sína og biður um hjálp. Ekki fyrsta mynd Mihalk- ofs i sjónvarpinu og vonandi ekki sú síðasta. Áreiöanlega góð skemmt- an. Laugardagur 30. júlí 17.00 iþróttlr. Ingo H. er kominn Bjarna Fel til aðstoðar og nú geta þeir ekki hvor án annars verið. Góöur liðs- andi, góöir menn. 20.351 blíðu og stríðu. Bandariskur flokkur um hiö allra skemmtileg- asta fólk, sem sést hefur lengi f fs- lenska sjónvarpinu. 21.00 Syrpa-myndir úr sögum Maugh- ams (Encore). Bresk bíómynd, ár- gerð 1951. Leikendur: Glynis Johns, Nigel Patrick, Kay Walsh, Roland Culver, Ronald Squire. Leikstjórar: Harold French, Pat Jackson og Anthony Pelissier. Hin allra besta skemmtun, þar sem þrjár stuttar myndir eru geröar eftir stuttum sögum skáldsins mikla Maugham. Hér ægir öllu saman, glaumgosa og bróður hans, kjafta- glaðri piparmeyog ungum hjónum. 22.30 Einsöngvarkeppnin í Cardiff. Úr- slit. Því miður. En samt ætti þetta nú að geta orðið gott. Hún var góð sú sem vann þarna um daginn, Ijóskan. Ég mæli með þessum þátt- um. Sunnudagur 31. júlí 18.00 Sunnudagshugvekja. Siguröur Arngrimsson, séra minn, syngur öðrum betur. Daginn út og daginn inn, deyr nú aldrei vetur. 18.10 Magga i Heiðarbæ. Fálkatemjarinn og Magga eru góðir vinir. 18.35 Frumskógarævintýri. Myndaflokk- ur fyrir alla fjölskylduna. Frá Sví- þjóð, en það er alveg sama. Um dýralif i frumskógum Indlands. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Magnús Bjarnfreðsson kynningarfulltrúi. Hann er vanur maður. 20.45 Blómaskeið Jean Brodie. Nú eru ósköpin farin að dynja yfir. Góðir þættir. 21.45 Sumartónleikar á Holmenkollen. Filharmoniusveitin i Osló leikur lög eftir norsk tónskáld. Mariss Jan- sons stjórnar af alkunnri röggsemi og snilld. Mánudagur 1. ágúst 20.35 Tommi og Jenni. Þeir eru svo dá- samlegir. Ég á ekki orö. 20.40 fþróttir. Bjarni Fel búinn að parkera aöstoðarmanninum fram að helgi. Góður maður Bjarni. 21.15 Ræningjahjónin (Couples and Robbers). Bresk sjónvarpsmynd. Leikendur: Frances Low, Rik May- all. Leikstjóri: Clare People. Nýgift hjón dreymir um lifsins gæði og láta ekki sitja við orðin tóm. Þau fara i þjófaleik. Allt endar með ósköpum. 21.45 Kafað í hafdjúpin. Kafarar i hella- könnun í Karibahafi. Eyjan heitir Andros. Gaman. Bresk mynd. IITVAItl’ Föstudagur 29. júlí 8.30 Ungir pennar. Ungir sveitadrengir og ungar sveitastúlkur ríöa skáld- fáknum um innsveitir noröanlands. Brokk og skokk og tölt. 8.40 Tónbilið. Þögn milli tveggja tóna. Segi ég. Klassískur yndisþokki i morgunsáriö. 10.35 Mér eru fornu minnin kær. Einn vinsælasti þáttur útvarpsins. Enda góður, segja þeir, sem hafa hlustað. Einar frá Hermundarfelli stendur alltaf fyrir sinu. 11.35 Svíþjóðarpistill. Jakob S. viö nám og störf, Frásagnir af Kalla kóngi. 14.30 Óskalög sjómanna. Þeir standa ■s.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.