Helgarpósturinn - 28.07.1983, Side 22

Helgarpósturinn - 28.07.1983, Side 22
„...meðtak lof og prís“ Af kvenlegum kapítalisma Kvenlegur kapitalismi — kannske það sé lausnarorð- ið? Hvaðan hef ég það? Úr 19. júní, ársriti Kvenréttinda- félags íslands ’83. Og þó kannski fremur frá merki- legri kvennasamkomu, sem ég álpaðist inn á fyrr í sumar í fylgd með Bryndisi. Fund- urinn var haldinn yfir matar- borðum á Lækjarbrekku og ég var eini karlmaðurinn við- staddur, ef mér hefur ekki missýnzt. Fyrirlesarinn var fjallmyndarleg vestur-ís- lenzk kona, Alene Halvor- son Moris að nafni (systur- dóttir Halldóru Bjarnadótt- ur hinnar langlífu). Eins og fram kemur í pistli eftir AI- ene í 19. júní rekur hún sér- staka ráðgjafar- og endur- hæfingarþjónustu fyrir kon- ur (og reyndar karla) sem vilja eða þurfa að leita aftur út á vinnumarkaðinn, eftir að hafa lokið uppeldishlut- verkinu. Þessi stofnun hefur höfuðstöðvar í Seattle á vest- urströnd Bandaríkjanna. Alene reyndist vera hinn líbblegasti fyrirlesari. Hún sagði stuttlega frá lífshlaupi sínu og ástæðu þess að hún stofnsetti þessa endurhæf- ingarstöð. Áður en hún kom að því sem mér fannst vera kjarni málsins (hin sérstaka Kvenlega Hugsun) gerði hún ýmsar athugasemdir við femínisma, gamlan og nýj- an. Hún var á móti þeim femínisma, sem vill gera konur að körlum, þ.e. að konur reyni að hasla sér völl innan karlaveldisins skv. leikreglum og forsendum karla, með þeim afleiðing- um, að þær hljóta að lokum að draga dám af þeim. Verða einhvers konar karlkonur; ef ekki með skegg, þá með magasár, stress og meðfylgj- andi tösku. Hún vildi ekki afsala sér hinu kvenlega, þvert á móti leggja áherzlu á það. Sjálf var hún hin skrautlegasta, djásnum prýdd og notalega kvenleg. etta kvenlega tilhald var ekki endilega bara til að ganga I augun á oss (þótt það sakaði engan) heldur átti það forsendur í hinni Kven- legu Hugsun. Röksemda- færslan var á þessa leið: Hin grimmilega innbyrðis sam- keppni í karlaveldinu (stríðs- leikurinn) er komin á það stig, að hún ógnar öllu lífi á jörðinni. Leiðin til að stöðva vígbúnaðarkapphlaupið og forða ragnarökum er sú að efla Kvenlega Hugsun. Hver er hún? Konan elur börn, stjórnar heimili og mótar uppeldi barna. Börn eru ólík. Sum eru frek, kappgjörn, ágeng. Önnur eru hlédræg, inn- hverf, hlýðin. Og allt þar á milli. Engri móður dettur í hug að mismuna börnum sínum vegna ólíkra eigin- leika. Ef eitthvert þeirra ætl- ar að verða undir í sam- keppni innan heimilisins, reynir móðirin að rétta hlut þess. Hún gerir öllum jafn hátt undir höfði, hörkutól- um jafnt sem hinum hátt- vísu, hinum hlédrægu engu síður en hinum fram- hleypnu. Til hefðu verið þjóðfélög þar sem þetta hegðunarmynstur maternal- ismans (mæðraveldis) var ráðandi. Við þyrftum að hefja mæðraveldið til vegs á ný, ryðja braut hinni Kven- legu Hugsun. Gíaman var að heyra, hvernig Alene fylgdi hinni Kvenlegu Hugsun nýja fem- ínismans eftir í verki. Fyrsta verkefnið er að byggja upp sjálfstraust þeirrar konu (móður) sem ætlar að leita út á vinnumarkaðinn á seinna skeiði ævinnar. Það er gert m.a. með því að sýna henni fram á, að í hlutverki sínu sem móðir, uppalandi og heimilisstjórnandi hefur hún öðlast lífsreynslu, þekkingu og kunnáttu um margt, sem venjulegum körlum er fram- andi, en koma að fullum notum í atvinnulífinu. Margar konur reka heimili af dugnaði, útsjónarsemi og fjárhagslegum hyggindum. Þær kunna að fara með fé, skipuleggja tíma, nýta vel hringboróió í dag skrifar Jón Baldvin Hannibalsson • Fimmtudagur 28. júlí 1983 —Dústurínn takmörkuð efni. Margar konur eru sérfræðingar hvað snertir vöruþekkingu á neyt- endamarkaði. Þær eru það sem atvinnulífið kallar inn- anhúsarkitektar, fatahönn- uðir, iðnaðarmenn, súper- kokkar, framleiðslumenn o.s.frv. Fyrir nú utan sál- fræðina og félagsráðgjöfina. Satt að segja er auðvelt að telja upp tugi ef ekki hundr- uð atvinnulífsfúnksjóna, sem konur gegna í uppeldis- störfum og heimilisrekstri. Og þá kemur rúsínan í pylsuendanum. Hvers vegna eiga þessar konur að gerast undirdánugar þvottakonur eða senditíkur karlaveldisins á seinna æviskeiði? Þannig fer þeim eins og bónda, sem verið hefur kóngur í ríki sínu á manndómsárum, en fer svo að sópa gólf í fabrikkum, þegar heilsan dugir ekki lengur til erfiðisvinnu. Nei takk. Stofnið ykkar eigin kvennafyrirtæki. Konan sem er súperkokkur stofnar veit- ingastað eða hótel. Kona sem er vörufræðingur og annast hefur verðútreikn- inga heimilisins, stofnar verzlun. Konurnar sem unnu á yngri árum í bönkum, í verzlunum, á skrifstofum, stofna sína eiginbanka, (eða tryggingafyrirtæki eða verðbréfamiðlun, eða fast- eignasölu). Og hvað gerist? Konur stjórna yfirleitt öllum fjármálum heimila í hvaða ríki sem er. Fjármál heimila eru á bilinu frá 70-80% af þjóðarframleiðslunni. Gerið þið svo vel. Auðhringir eins og IBM, General Motors eða Standard Oil eru eins og hverjar aðrar rassvasaheild- sölur í samanburði við hag- kerfi heimilanna, maternal- ismans í heiminum. Mú- hammeð lagði undir sig Ar- abaheiminn á 4 árum. Kannske hinn kvenlegi kapi- talismi komist af með eitt kjörtímabil líka. Móðir- konameyja, meðtak lof og prís. Svo er bara dulítið PS um hina Kvenlegu Hugsun. Þótt Alene sé vestur-íslenzkur matriark, er hún ekki Amer- íkani fyrir ekki neitt. Hún talaði business. Kvennafyrir- tæki, kvennakapitalismi. Það sem er gott fyrir konur, er gott fyrir United States. En hvað með hina Kvenlegu Hugsun? Um hina góðu móður, sem gerir ekki upp á milli barna sinna, þrátt fyrir ólíka hæfileika, löngun og getu til að olnboga sig á- fram? Einmitt. Það er það sem ég ólst upp við að héti lýðræðisleg jafnaðarstefna, sósíaldemókratí. Það endar í velferðarríki. Kvenlegu vel- ferðarríki þá? Þess vegna vildi ég kvenreisn á sínum tíma. En þær skorti reisnina, því miður. Sorrí Stína. — JBH. vettwanqur að hann sjái út yfir það allt. Því er ekki að undra, þótt ungur blaða- maður, þótt áhugasamur sé, geri ekki mikið meira í fyrstu lotu en þreifa upp eftir einni löppinni á fílnum, svo gripið sé til samlíkingar úr gamalli dæmisögu. Um ríkiskerfið Það fyrsta sem hins vegar er rangt við þennan greinaflokk er sjálf yfirskriftin: „Atlagan gegn ríkiskerfinu!1 Þarna hefur höfund- ur fyrirsagnarinnar fallið í þá gryfju að stimpla ,,ríkiskerfið“ sem eitthvað neikvætt, sem ríkisstjórnin þurfi að og ætli að ráðast gegn. Það þarf agaðri notkun hugtaka en mætti um einstök stefnuatriði þeirra. Fleiri atriði mætti nefna, bæði í löggjöf, framkvæmd laga og al- mennum rekstrarháttum, sem til umbóta hafa horft. Með sama hætti mætti rekja löggjöf fyrr og síðar, sem Alþingi hefur samþykkt og þar með tekið á ríkið að fjár- magna eða reka allskonar starf- semi, sem réttilega má deila um hvar eigi heima. Um það getur verið og er eðlilegur stjórnmálalegur á- greiningur. í skrifum þar sem menn láta sér nægja að nota hugtök eins og „kerfið" eða „báknið“ um starf- semi opinberra aðila, örlar oft á unum háð vegna þess að fjármagn er ekki fyrir hendi hjá hugsanlegum kaupendum að neinu marki. Stefna af þessu tagi verður því ekki fram- kvæmd nema smám saman á löng- um tíma, nema ætlunin væri að gefa fyrirtækin. Slíkt væri óhæfa. Hið opinbera á nú þegar með ó- beinum hætti megnið af fiskiskipa- flotanum og mikið af fiskvinnsl- unni í formi lánveitinga og skrifara þessarar greinar er til efs að bæt- andi sé á slíka fjármögnun atvinnu- rekstrarins í landinu. Önnur hlið er á þessu máli. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr og hver sem er orsökin, er atvinnu- rekstur einstaklinga og einkafyrir- verða ekki til með lögum eða fyrir- mælum einum sér, heldur er ávöxt- ur af samstilltu átaki allra þeirra manna, sem í hlut eiga.og það er list stjórnunar að ná að samhæfa þessa krafta. Umbætur i opinberum rekstri sérstaklega ráðast mest af raunverulegum viðhorfum þess eða þeirra ráðherra, sem í hlut eiga. Þvert ofan í það, sem gilda kann um almenning, taka embættismenn minna mark á því, sem ráðherrar segja, en meira á því sem þeir gera. Gerðir ráðherra eru þannig það, sem mestu ræður um, hvort honum tekst að laða fram það, sem í liði hans býr. Hvert skipti, sem hann er sjálfum sér ósamkvæmur og gerir Ríkisreksturinn verður ekki bættur nema innanfrá Helgarpósturinn hefur óskað eftir umsögn eða innleggi í umræðu blaðsins, sem hafin er með grein hinn 14. júlí s.l. undir yfirskriftinni: „Atlagan gegn ríkiskerfinu!” í greininni er lagt út af ráðagerðum ríkisstjórnarinnar um umbætur og samdrátt í rekstri og umsvifum rík- isins. Öll uppsetning þessarar greinar er í æsifréttastíl og hluti af efninu eins og viðleitnin til umbóta hjá rík- inu sé einhver meiri háttar bófahas- ar, þar sem „dauðasveit Stein- gríms“ leiðir góðu kallana í atlög- unni gegn vondu köllunum í kerf- inu og hausar fá örugglega að fjúka, svo notað sé orðalag greinar- innar. Opinber og opinská umræða um stefnumál af þessu tagi er nauðsyn- legt framlag fjölmiðla til að upp- lýsa almenning um þörfina fyrir þróun og umbætur. Með sama hætti er nauðsynlegt að upplýsa al- menning um það, sem gert er, bæði þegar til tekst betur og verr. Þess vegna er sú hugmynd, sem virðist liggja að baki þessum skrifum^njög virðingarverð og sama máli gegnir um ýmsar þær upplýsingar, sem þar koma fram. En málefnið er viða- mikið, hvorki meira né minna en öll stjórnmálastefna valdhafa landsins undanfarna áratugi eins og hún speglast í viðfangsefnunum, sem ríkið fæst við,og stofnunum þeim og fyrirtækjum, sem Alþingi hefur sett á laggirnar til að leysa þessi við- fangsefni af hendi. Það má draga í efa hvort nokkur íslendingur hefur þá yfirsýn yfir þetta viðfangsefni, þetta til að eiga markvert innlegg í alvöru þjóðmálaumræðu. „Ríkis- kerfið“ er safn fólks í stofnunum og fyrirtækjum, sem sjá okkur fyrir heilbrigðisþjónustu, skólagöngu, lífeyri öryrkja og gamalmenna, vegagerð, síma, útvarpi, sjónvarpi, flugsamgöngum, höfnum, bygging- arlánum, löggæslu, vatni, raforku og svo mætti lengi telja þætti í opin- berum rekstri, sem fólk réttilega tel- ur ómissandi. í öllum þessum grein- um má eflaust gera betur en gert er, bæði í afköstum og meðferð fjár- muna, en það réttlætir ekki að skíra eðlilega viðleitni nýrrar ríkisstjórn- ar sem atlögu að þessari starfsemi í stríðsfréttastíl. Það þekkja blaða- menn hins vegar betur en sá, sem þetta skrifar, hvort þetta er nauð- synlegt í hávaðasamfélaginu til að fá menn til að lesa. Það sem gert hefur verið I greininni er of lítið gert úr því, sem gert hefur verið í skipulagi og rekstri ríkisins undanfarin ár og áratugi og horfir til mikilla fram- fara. Þar má nefna lögin um fjárlög og ríkisreikning, sem sett voru í tíð Magnúsar Jónssonar sem fjármála- ráðherra. Þessi tæki til stjórnar á ríkisumsvifunum hefur Alþingi ekki megnað að nýta sér svo sem þau gefa færi á og er raunar með ó- líkindum það áhugaleysi, sem Al- þingi virðist sýna ríkisreikningum, svo miklar upplýsingar um ríkis- reksturinn sem hann veitir. Greinin getur laganna um stjórn- arráð frá 1969, en þau voru gagn- merk skipulagsbreyting þótt deila þeirri trú, að „kerfið" sé eitthvað sem verður til og þrifst af sjálfu sér og lýtur sinni eigin stjórn. Þeir sem um þessi efni skrifa verða að hafa í huga, að allur sá frumskógur, sem starfsemi ríkisins er, er gróðursett- ur, ræktaður og vökvaður með á- kvörðunum Alþingis um stofnsetn- ingu slíkrar starfsemi og fjárveit- ingar til hennar. Starfsemi ríkisins er þannig samnefnari þess stjórn- málalega vilja, sem á Alþingi hefur verið ríkjandi undanfarna áratugi, þótt verið geti að hann sé nokkuð blandaður stjórnmálalegu fram- taksleysi eða leti að taka á hlutun- um, sem mönnum eru raunverulega þvert um geð. Sala á fyrirtækjum Kveikjan að áðurnefndri grein mun vera yfirlýsingar og aðgerðir ráðherra í þá átt að taka nú til hend- inni á þessu sviði og hreinsa til eftir því sem kostur er. Þetta er hollt og mjög góðra gjalda vert, þótt ekki séu allar hugmyndirnar nýjar. í greininni er skýrt frá nokkrum hug- myndum, einkum um sölu fyrir- tækja eða annarrar starfsemi í rík- iseigu. Greinin geymir hins vegar enga teljandi úttekt á slíkum sölum. engefurtil kynna innan tilvimunar- merkja, að samningar um slíkt verði hagstæðir og aðgengilegir. Réttilega er bent á, að hlutabréf séu ekki söluvara nema að breyttum skattalögum. Sala á ríkisfyritækjum getur ver- ið algerlega eðlileg stjórnmála- stefna hérlendis sem erlendis. Hér er slík stefna þó miklum takmörk- tækja ekki nógu öflugur til að standa fjárhagslega að þeirri upp- byggingu, t.d. í iðnaði, sem þörf er fyrir hér á landi á næstunni. Þar þarf rikið að koma til með einum eða öðrum hætti. Andvirði ríkis- fyrirtækja, sem seld kynnu að verða og raunar arður þeirra, sem fyrir eru og kunna að skila arði, þarf að renna til slíkrar uppbygg- ingar þar sem arðsamra kosta er völ. Eigi að framkvæma slíka stefnu þarf að safna saman nokkr- um mönnum með viðskiptavit, sem jöfnum höndum hafa umboð til að selja eignir og fjárfesta andvirðið í arðbærum nývirkjum. Stjórnkerf- ið, sem fyrir er.hefur nóg á sinni könnu að taka til í sínum eigin garði, þótt þessu væri ekki á það bætt. Þar fyrir utan á sala á eignum aldrei að vera aðferð til að ná jöfn- uði í rekstrarbúskap ríkissjóðs. Skipulagsbreytingar og lagasetning til umbóta Greinin, sem öll þessi skrif fjalla um,gerir talsvert úr skipulagsbreyt- ingum og nýrri lagasetningu sem aðferð til að ná hagkvæmni í ríkis- rekstri. Reynsla þessa skrifara er að oftast megi ná svipuðum árangri án þess að raska skipulagi eða lögum nema óverulega og þá í lokin til staðfestingar á þróun, sem orðin er. Skipun nefndar til að endurskoða lög er of oft aðferð til að láta líta út eins og eitthvað sé að gerast, en á meðan sú tímafreka endurskoðun á sér stað gerist venjulega ekkert. Umbætur í hvaða rekstri sem er eitthvað, sem stangast á við það, sem hann opinberlega segir, dregur hann úr líkingunum til að hann nái árangri. Æviráðning embættis- manna Greininni í Helgarpóstinum lýk- ur með því að höfundurinn vitnar hvorki meira né minna en í ráð- herra, fyrrum ráðherra og embætt- ismenn um að æviráðning helstu embættismanna sé meiri háttar skaðvaldur og Þrándur í Götu framfara á þessu sviði. Á því er enginn vafi að meðal æviráðinna stjórnenda í mikilvæg- ustu stöðum hjá ríkinu, eins og hvarvetna endranær í störfum hjá ríki og einkaaðilum, eru til óhæfir menn við störf. Þeir eru komnir til að starfa á ábyrgð þeirra ráðherra sem skipuðu þá og þeir starfa á á- byrgð þeirra ráðherra, sem sitja hverju sinni. Óhæfir menn í slíkum stöðum eiga að víkja hvað sem allri æviráðningu líður og ef þeir eru látnir gera það, er það á ábyrgð ráð- herrans. Lögin sjá fyrir hagsmun- um mannsins, sem í hlut á. Það er þess vegna ódýr afsökun, ef ráð- herrar láta hafa eftir sér, að þeir geti ekkert að gert fyrir ónýtum ævi- ráðnum stjórnendum hjá ríkinu. Á hinu er vert að vekja athygli, að æviráðningin er ekki alvond, því að trúlega er hún höfuðástæða þess hversu marga góða stjórnendur og aðra starfsmenn ríkið hefur í sinni þjónustu. Það má því draga í éfa Framh. á 11. síðu

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.