Helgarpósturinn - 17.11.1983, Page 20
LEIKHÚS
Sambandslaust dagdraumafólk
Þjóðleikhúsid:
Návtgi.
Höfundur: Jón Laxdal.
Þýðing: Arni Bergmann.
Leikstjórn: Brynja Benediktsdóttir og Jón
Laxdal.
Leikmynd: Björn G. Björnsson.
Búningar: Guðrún Sigríður Haraldsdóttir.
Lýsing: Hávar Sigurjónsson.
Leikendur: Róbert Arnfinnsson, Borgar
Garðarsson, Guðrún Þ. Stephensen og Bald-
vin Halldórsson.
Við erum leidd inn í stofu hjá miðevrópsku
•yfirstéttarfólki, þar sem gríðarlega stór lauf-
skáli er baksviðs og sér á glervegg í botni
sviðsmyndarinnar. Hátt er til lofts og vítt til
veggja, enda á milli og uppúr og niðrúr á
stóra sviði Þjóðleikhússins. Þarna búa hjónin
Raul og Rut, hún stundar innhverfa íhugun
og hugsar um blómin og hans helsta iðja
virðist vera að fitla við vínflöskur. (Áður en
lengra er haldið ætla ég að benda Halldóri
á Kirkjubóli eða einhverjum ámóta bind-
indispostula á að skrifa langa grein um ó-
tæpilega og óvarlega notkun víns í þessu
leikriti, það eru eiginlega allir fuilir allan tím-
ann.) Hann hefur einhverntíma verið kvik-
myndaframleiðandi en hún trúlega leik-
kona. Ekki kemur fram á hverju þau lifa
öðru en fornri frægð en víst er um það að
þau lifa bæði í dagdraumum hvors um sig.
Helsti viðburður sem raskar þeirra hvers-
dagslegu rútínu er heimsóknir vinarins Rud-
olfs, sem hafa reyndar sitt fasta munstur, en
ekki kemur fram hvort þær eru árlegar eða
hvað en það líða nærri fimmtán ár á milli
heimsóknarinnar sem segir frá í fyrsta og
öðrum þætti og þeirrar sem greinir frá í
þriðja þætti.
Rudolf er kvikmyndaleikstjóri og þeir fé-
lagarnir dunda sér við að láta sig dreyma
dagdrauma um kvikmyndir sem þeir ætla að
búa tii, á milli þess sem þeir kveða uppúr
með margar háspekilegar ræður eða rifjað-
ar eru upp sögur úr fortíðinni. Allt er þetta
umlukið einni drykkjuvímu sem þau bera þó
furðu vel.
Það má vel setja upp langan lista með
þeim umræðuefnum sem tekin eru fyrir og
tæpt á í hinum löngu orðræðum verksins,
t.a.m. vanda kvikmyndalistarinnar, vanda
frægðarinnar, innantómu lífi hnignandi yfir-
stéttar Vesturlanda, aflokun mannlegra
samskipta, einangrun, firringu...und so
weiter.
Það er margt fallega gert i sviðsetningu
þeirra Brynju og Jóns. Uppstillingar á svið-
inu eru sumarhverjar vel útfærðar og leikur-
inn einatt býsna vel agaður. Þau Guðrún,
Róbert og Bprgar marka sínar týpur skýrum
dráttum. Guðrún upphafin með hjúp um sig
sem ekkert fær komist í gegnum, þeir
óöruggir hvor með sínum hætti og spila vel
á hýrleikann milli persónanna. Baldvin
„Góður leikur og
ágæt sviðsetning
dugar ekki til ef
undirstööu til að
standa á skortir. Og
þv( miöur stendur
leikritið ekki undir
sér,“ segir Gunn-
laugur Ástgeirsson
m.a. í umsögn sinni
um NÁVIGI eftir
Jón Laxdal.
eftir Gunnlaug Ástgeirsson
Halldórsson bregður upp eftirminnilegri
smámynd af rithöfundi sem lítillega kemur
við sögu.
En ekkert af þessu dugir til. Góður leikur
og ágæt sviðsetning dugar ekki til ef undir-
stöðu til að standa á skortir. Og því miður
stendur leikritið ekki undir sér. Orðræðan
sem fram fer á sviðinu er alls ekki í tengsium
við þá framvindu sem þar á sér stað. Fólkið
situr og talar og talar, en athafnir þess og
það sem gerist í augnablikinu á sviðinu nær
ekki tengslum við orðin og grunaða merk-
ingu þeirra. Þessvegna verður fólkið og efni
leiksins eins og í lausu lofti og flögrar um
þessa miklu stofu og laufskálann að baki,
nær ekki sambandi sín á milli og þaðan af
síður við fólkið i salnum. Af þessari sömu or-
sök verða tákn leiksins, sem eru fjölmörg,
meira og minna merkingarlaus.
Það getur vel verið að minna svið og ein-
hver allt önnur leikaðferð hefði dugað til að
láta þetta leikrit virka, en þó held ég ekki.
Það eru vissulega drög að margvíslegum
efnivið í verkinu en ég held að úr því hefði
þurft að vinna betur og trúlega með öðrum
hætti.
Það er að mínu áliti ljóst að nýliða í leik-
ritasmíð er litill greiði gerður með að setja
verk eins og þetta á svið og ég skil ekki al-
mennilega hvernig á því stendur. Ég hélt að
innanbúðar í Þjóðleikhúsinu væri töluvert af
fólki sem bæri þokkalegt skynbragð á hve-
nær leikrit er bærilegasviðstæktog hvenær
ekki.
Eigendur
Caterpillar
iand- og sjóvéla
athugið!
Getum útvegað með stuttum fyrirvara alla
varahluti í Caterpillardieselvélaráhagstæðu verði.
Leitið upplýsinga. Þær kosta ekki neitt.
Við erum ekki lengra frá yður en næsta símtæki.
Symfoni
og Bucha
Barna-, dömu- og herrasokkar
Fallegir, ódýrir
og vandaðir
SteLnavöi fté.
Sími27755 r
STRAUM
LOKUR
Cut out
LANDSIIMS BESTA ÚRVAL
STRAUMLOKUR OG SPENNUSTILLAR
í nær allar gerðir bifreiða og vinnutækja
á mjög hagstæðu verði
Rakarastofaa Klapparstíg
i 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
/ Ertþú \
búinn að fara í
Ijósaskoðunarferð?
B,ysEERiwn
Þegar komið er af vegum með
bundnu slitlagi tekur tíma
að venjast breyttum aðstæðum
í ( [ FÖRUM VARLEGA!
||umVerdar ^ Á
Yækjasalan hf .... vanti þig tæki - erum vió til taks 1 oam •eroSi HABERC hf 1 NÚ líður mér vel!
Pósthólf 500 202 Kópavogur S. 91-46577
20 HELGARPÓSTURINN