Helgarpósturinn - 01.12.1983, Side 12
MATKRÁKAN
Bragð er að þá barnið finnur
Bækur eftir börn eru sjaldséðar gersemar,
ég tala nú ekki um matreiðslubækur. Fyrir
nokkrum árum kom út ein slík í Bandaríkj-
unum: Smashed Potatoes, A Kid’s Eye
View of the Kitchen. Jane G. Martel, kennari
í Winchester, Massachusetts, bað börn á
dagheimilum og leikskólum að semja
mataruppskriftir sem hún skrifaði upp eftir
þeim og valdi saman í bók. Ég má til með að
snara nokkrum uppskriftum úr þessari ó-
venjulegu matreiðslubók. Það er t.a.m. mjög
skemmtilegt að athuga tímaskyn og hlutföll
hráefna. Appelsínusafa þarf t.d. að hrista í
nokkra klukkutíma áður en maður frystir
hann í pinna...En nú læt ég uppskriftir barn-
anna tala sínu máli!
Hrœrö egg
3 pund af soðnu beikoni
2 pund af eggjum
3 pund af engiferöli
1 fita
4 pund af pipar
8 gallon af salti
1 hnífur af smjöri
Fyrst opnarðu eggin með fingravettling-
unum þínum. Notaðu bara það sem er innan
í. Hentu hinu í vaskinn. Settu eggin í 10
punda skál og eldaðu beikonið á plastpönnu.
Láttu pönnuna verða vel heita. Ef þú hitar
pönnuna fyrst, þarftu bara að steikja í 2 mín-
útur. En ef pannan er ekki heit, þarftu að
steikja í 3 tíma.
Borðaðu þau í morgunmat eða seinnipart-
inn. Og á eftir þarftu áreiðanlega að fá þér
appelsínusafa.
Skabbetti
42 pylsur eins stórar og eyrad á þér
42 kjötbollur ekki eins stórar
42 appelsínugular kartöflur eða
tómatar
42 skabbetti
42 hrein olía
Fyrst verður þú að ákveða hvað eigi að
vera í kvöldmatinn — pylsur eða kjötbollur.
Þegar pabbi þinn hefur sagt þér hvort á að
vera, byrjarðu að elda. Búðu til sósuna í
hrærivélinni, svo að þú meiðir ekki á þér
olnbogana. Þegar skabbettíið er búið að
sjóða nógu lengi í pottinum (stillt á 2 gráður
eða kannski 3), seturðu það í silfurskálina
með götunum með sleifinni með götunum.
Smurðu svo sósunni yfir. Þetta nægir handa
allri fjölskyldunni og öllum vinum pabba
þíns.
Heill kalkún
1 stór poki fullur af heilum kalkún
(fáðu kalkún með engum fjöðrum, ekki
svona eins og pílagrímarnir átu)
I risastór klumpur af fyllingu
1 eggaldinbaka
1 lítill, fallegur diskur af súrum berjum
1 stór, fallegur diskur af blönduðu
grænmeti
20 diskar af allskonar brjóstsykri,
súkkulaðikúlum og salthnetum
Farðu á fætur þegar vekjaraklukkan
hringir og flýttu þér. Taktu utan af kalkúnin-
um og opnaðu holurnar. Ýttu fyllingunni inn
í nokkra tíma. Þú verður að næla fyllinguna
við kalkúninn, annars held ég að hún fari út.
Hitaðu eldhúsið vel og þá geturðu bara farið
að elda kalkúninn.
Svo seturðu grænmetið í pott — fyrst set-
urðu eina tegund efst, og svo þá næstu á
botninn og svo eina í miðjuna. Svoleiðis
færðu blandað grænmeti. Settu 2 rauða
bolla af salti út í og 2 rauða bolla af vatni líka.
Sjóddu þetta bara þangað til það er Vi heitt.
Settu sælgætið út um allt og þegar gestirn-
ir koma skaltu setja upp rauðu svuntuna.
Venjulegur fiskur
3 diskar af venjulegum fiski
1 dós af matarolíu
1 dós af vanillu
svolítið mjöl sem ekki er haframjöl
ég veit ekki mn fleira
Ég veit að fiskimaðurinn verður að sigla í
báti alla nóttina til að veiða fiskinn í fiski-
tjörninni sinni. Það er ábyggilega ferlega
erfitt. — Það verður að elda fiskinn í kvöld-
matarfati og taka fram 3 litlar krúsir af pipar.
Hristu 8 sinnum upp og 11 sinnum niður. Síð-
an kastarðu fiskinum 11 sinnum upp með
pönnukökuspaðanum.
Ef fiskurinn verður tilbúinn, ferðu að borð-
inu og kveikir á kertunum, en ekki slökkva
ljósin því þá sérðu ekki hve góður fiskurinn
er.
Þegar þú ert búinn að borða nóg skaltu
biðja fólkið að afsaka þig.
Jesús frá sjónarhóli barna
Önnur bók eftir börn kom út á þessu ári í
Danmörku. Það var einnig kennari sem stóð
að útgáfu hennar, Niels nokkur Vogel í
Skanderborg. Hann valdi efni úr ritgerðum
danskra barna í grunnskóla um hina marg-
víslegustu hluti. Bókin ber heitið De to
forste Mennesker pá Jorden Var Hans
Og Grete. Hún varð samstundis metsölu-
bók, seldist í 10 þúsund eintökum fyrsta
mánuðinn. Þar sem fæðingarhátíð frelsar-
ans nálgast nú óðum er ekki úr vegi að birta
hér stutta frásögn af lífi hans ogstörfum, eins
og ungur grunnskólanemi túlkar þau.
■ Sá sem hefur orðið frægastur úr Biblíunni
er Jesús. Hann var frá Nazaret í Egyptalandi.
Hann fæddist á jólanótt í fjósi, vegna þesá að
öll hótel voru full. Mamma hans hét María og
stjúppabbi hans Jósef. Hann var ekki raun-
verulegur pabbi Jesú, því María var áður gift
einhverjum sem hét Gabríel, en hann var
floginn í burtu. Þegar Jesús var nýfæddur
áttu þrír jólasveinar leið fram hjá fjósinu og
þegar þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkr-
ar jólagjafir og reykelsi handa hjónunum, en
það veitti sannarlega ekki af þar sem þau
höfðu ferðast allan daginn á asna, af því að
það átti að telja þau.
Jesús var ekki skírður fyrr en seinna, því í
þá daga voru börnin ekki skírð fyrr en þau
voru orðin fullorðin og höfðu lært að synda,
því þau voru nefnilega alveg færð í kaf. —
Þegar Jesús varð átta ára gaf pabbi hans
honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára
kunni hann hana utan að, og það var vel af
sér vikið, því í þá daga var Biblían svo stór
að það varð að vefja hana upp á kefli. Hann
eftir Jóhönnu Sve'nsdóttur
var líka duglegur að læra sálma. Hann gat
galdrað þegar hann var bara smá strákur.
Hann var reyndar mesti galdramaður sem
uppi hefur verið.
Jesús var mjög sérstakur. Hann gekk um
og lagði gátur fyrir fólk sem það átti að
reyna að leysa, en það tókst sjaldan. Hann
gat líka gengið í gegnum vatn og eld, án þess
að það kæmi við hann. Hann gat líka gengið
á vatninu. Það var á Genezaretvatni, þar
sem hann gekk út að fiskibáti til að kaupa
fisk. Pabbi minn segir að það hafi verið ís á
vatninu, en hann trúir heldur ekki á Guð og
Jesú.
Jesús gerði líka mikið fyrir umferðina.
Einu sinni þegar hann var á gangi í Jerú-
salem, mætti hann lömuðum manni sem lá
í rúminu sínu úti á miðri götu. Jesús sagði:
Tak sæng þína og gakk. Maðurinn gerði það
og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar.
Svo var það ekkja sem átti son, en ég bara
skil ekki hvernig hún gat átt hann fyrst hún
var ekkja. Jesús tók son ekkjunnar í krafta-
verkameðferð og við það varð hann mjög
vitur, sagði fólk.
Eitt af þvi merkilegasta sem Jesús gerði.
var að stjórna borðhaldinu í eyðimörkinni.
Það var þegar þessar 5 þúsund manneskjur
stóðu aleinar úti í eyðimörkinni án þess að
eiga vott né þurrt. Þá gerði Jesús kraftaverk
og allir fóru saddir í rúmið. Jesús gat ekki
alltaf komið fram í eigin persónu. Stundum
var hann dulbúinn sem hirðir, og einu sinni
kom hann fram undir fölsku nafni.
Kókoskúlur (u.þ. b. 25. stk.)
I lokin kemur hér einföld uppskrift að
kókoskúlum sem börnin geta spreytt sig á að
hnoða einhvern tíma þegar þeim finnst biðin
eftir fæðingarhátíð Jesú, besta vinar síns,
óþolandi löng.
100 g smjör eða smjörlíki
% dl strásykur
2-4 msk kakó
1 tsk kaffiduft (neskaffi)
2'á dl haframjöl
1 dl kókosmjöl til að velta kúlunum upp
úr
Hrærið smjör/smjörlíki þar til það er orðið
lint og hrærið þá sykrinum saman við það.
Blandið kakói og kaffidufti saman við. Að
lokum er haframjölinu hrært vel saman við.
Hnoðið kúlur úr deiginu og veltið þeim upp-
úr kókosmjöli. —Svo er best að sýna þolin-
mæði og leyfa kúlunum að harðna smástund
í frystinum áður en gráðugir munnar úða
þeim í sig....
r
%
H0FUM
0PNAÐ SERDEILD
MED ÖLGERÐAREFNI
ALLT TIL ÖL 0G VÍNGERÐAR
ÞAÐBESTA
FRÁ ENGLANDI
UNICAN
ÞAÐ BESTA
FRÁ DANMÖRKU
Verslunin
TILBOÐSVERÐ A BYRJENDASETTUM. AI4RKID
SENDUM í PÓSTKRÖFU. - KREDITKORTAÞJÓNUSTA. Suðurlandsbraut 30, sími 35320.
V
12 HELGARPÓSTURINN