Helgarpósturinn - 02.02.1984, Page 23

Helgarpósturinn - 02.02.1984, Page 23
HRINGBORÐIÐ Köttur útí mýri . . . Það er nú ekki alltaf tekið út með sældinni að sitja hér og eiga að reiða eitthvað fram á hring- borði, allra síst í hvítum ævintýra- heimi áramótanna, sem enn er við lýði. Út um gluggann blasa við mér hvítir tindar — blessaður Skerjafjörðurinn minn virðist vera kominn í harða samkeppni við Alpana eða annað fjalilendi og helsta spaugið er að reyna að komast klakklaust útá strætóstöð, svona þegar maður ætlar í vinn- una. Glannaferðir gamalia kvenna yfir götur hafa áður verið uppspretta yndis og ánægju, en nú eru þær allar snjóaðar inni og komast ekki þverhandarspönn frá ónefndum líkamshluta, þó að Mogginn segi að eigi að fara að ryðja gangstéttir. Hvað verður um þann snjó veit ég ekki, nema ef vera skyldi að eigi að aka honum hér útá moldarbanka Reykjavík- ur, einsog garðyrkjustjóri er búinn að endurskíra Vatnsmýrina (og furðar sig á að fuglalífið þar sé nærri þvi fyrir bí!), eftir að dyggir borgarstarfsmenn fluttu sam- viskusamir allan ruðninginn sem Ægissíðubúar viJdu ekki fá til sín þangað í skjóli nætur (nattens mulm og morke, minnir mig að. Danir orði þetta). Halelúja — þá höldum við vetri framá sumar hér í litla Skerjó. í svona veðri er ekki annað hægt að gera en lesa ævintýri, ef maður hefur þá ekki því sterkari tithneigingu til skíðaiðkana eða snjómoksturs. Á mínu heimili eru ævintýrin helst í safni Grimms- bræðra þessa dagana og endur- vekja ljúfar minningar um dyggð- ir sem mér var einu sinni talin trú um að ég ætti að temja mér, svo- sem einsog iðjusemi, þolinmæði og fórnfýsi. Einhverra hluta vegna hef ég trú á að ráðamenn ís- lensku þjóðarinnar hafi líkt og ég farið að rifja upp gömlu ævintýrin um það leyti sem þeir lýstu yfir stríði á hendur drekanum ógur- lega, verðbólgunni. Það vill bara til, að almúgamenn eiga yfirleitt ekki geðugar nornir og dverga, sem rétta þeim svona hinsegin borðdúka sem hlaða sig sjáifir af allskyns kræsingum og pyngjur sem aldrei tæmast. Þvert á móti. Hér eru heldur ekki konungbornir aðilar í ýmsum álögum sem hægt er að frelsa með ofurmannlegri áreynslu og giftast síðan — það er helst að fjallkonutetrið liggi í ein- hverskonar dvala, en ég hef á til- finningunni að hún sé ákaflega einstæð móðir og ekkert á þeim buxunum að hætta slíku. Hún hef- ur ekki beint farið vel útúr sínum samböndum, tötrið. Ævintýri nútímans ættu auð- vitað fremur að snúast um atburði sem efst eru á baugi og kenna okk-' ur að meta dyggðir sem koma að gagni í okkar samfélagi. Til að mynda sagan um góða, duglega og eflaust bláfátæka (þeir voru all- ir fátækir í gömlu ævintýrunum) ráðherrann, sem batt slíka órofa- tryggð við blessaðan rakkann sinn að hann lagði allt í sölurnar í baráttunni við lagatröllið ógur- lega og leysti hverja þrautina á fætur annarri (að minnsta kosti þrjár) til að frelsa hundinn. Það mætti svo botna söguna með því að tíkin leystist úr álögum og yrði fögur prinsessa, svona rétt til að missa ekki sjónar á hefðinni, auk þess sem það væri hampaminna en breyta reglugerðinni um hundahaldið. Eða góða og sak- lausa fólkið (eflaust bláfátækir skógarhöggsmenn) sem flutti í draugahúsið voðalega þar sem fiskar spruttu fram úr veggjum, veggir hrundu og hlóðust aftur og önnur ósköp gengu á, allt af völd- um voðalegrar nornar sem beitti sjónhverfingum og öðrum göldr- um. Skyldi ekki vera hægt að gera krassandi ævintýri um slíkt? Og ekki er hún verri sagan æsispenn- andi um vonda KGB-njósnarann, sem tælir unga og efnilega menn til fylgilags við sig með fögrum fyrirheitum, en að liðnum ein- hverjum vissum tíma glata menn sálinni og lífinu og öllu sem til- heyrir ef þeim tekst ekki aö snúa á hann. (Svona í forbifarten, svo ég sletti áfram dönsku: Mér þótti það furðulegt að þyrfti að taka fram í einni af daglegum opnum Moggans um Þríholt að hann hefði verið samvinnuþýður við lögregl- una. Mér hefur sýnst á öllu, að maðurinn sitji einmitt inni fyrir það að vera samvinnuþýður.) Ævintýrin eru tvímælalaust það sem koma skal — í munnlegri geymd að sjálfsögðu, því nú ku enginn hafa efni á því að kaupa sér bók. Það eru svo skolli dýr myndböndin . .. HELGARPÖSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.