Helgarpósturinn - 02.02.1984, Side 28

Helgarpósturinn - 02.02.1984, Side 28
p B^Lússar eru alls staðar að pauf- ast og oftastnær i misjöfnum til- gangi, ef marka má blað allra lands- manna. Rússinn hefur löngum verið iðinn við alls konar rannsóknar- og vísindastörf í Islandsálum, oft þann- ig að mörgum hefur þótt nóg um. Nú berast þær fréttir úr utanríkis- ráðuneytinu að heilum þremur rússneskum rannsóknarskipum hafi nýskeð verið synjað um leyfi til þess að stunda rannsóknir í ís- lenskri lögsögu á þeim forsendum að umsóknir þeirra hafi verið ófull- nægjandi og ekki komið nógu skýrt fram hverslags vísindi þessi skip hygðust stunda. Margir munu þó þeirrar skoðunar að þetta afsvar untanríkisráðuneytisins sé helbert yfirskin; þar telji menn sig vita mæta vel hvað vaki fyrir Rússunum og að jafnvel hafi verið haft samráð við höfuðstöðvar Atlantshafs- bandalagsins um það að reyna eftir fremsta megni að bægja hnýsnum Rússum frá íslandsströndum. Það verði einmitt gert með ráðum eins og þessum — að úrskurða umsóknir ófullnægjandi eða krefjast þess að íslenskir vísindamenn séu um borð í rannsóknarskipunum sem síðan muni ekki reynast vera á lausu þeg- ar til kastanna kemur.. . v ald stjórnmálaflokkanna í ríkisbönkunum virðist fara þverr- andi. Um daginn var bankamaður- inn Stefán Pálsson ráðinn banka- stjóri Búnaðarbankans þrátt fyrir mikið pólitískt makk í bankaráðinu, og nú heyrir HP að hverfandi líkur séu á því að annar hvor Sjálfstæðis- þingmannanna Lárus Jónsson - eða Friðjón Þórðarson hreppi bankastjórastöðuna sem Magnús - heitinn Jónsson gegndi. Þótt svo virtist um miðja vikuna af blöðum að dæma sem Lárus Jónsson fengi þessa stöðu herma heimildir HP að það verði hins vegar annar banka- maður, og reyndar sjálfstæðismað- ur í leiðinni Jón Adolf Guðjóns- son aðstoðarbankastjóri. Njóti Jón núna stuðnings meirihiuta banka- ráðsins, — Alþýðubandalagsmanns- ins Helga Seljan, Alþýðuflokks- mannsins Hauks Helgasonar og formanns ráðsins Stefáns Val- geirssonar framsóknarmanns. Þá eru eftir sjálfstæðismennirnir Frið- jón Þórðarson og Gunnar Gísla- son og mun sá síðarnefndi reyndar ekki styðja Lárus heldur. Afturá- móti leggur forysta Sjálfstæðis- flokksins nú algjört ofurkapp á að tryggja Lárusi þessa stöðu og sæta þeir Stefán, Friðjón og Gunnar geysilegum þrýstingi þessa dagana um að vinna því brautargengi. Heyrir HP að flokksforystan sé nú að reyna að kaupa stuðning Stefáns Valgeirssonar við Lárus og virðist sem ekkert þjóðfélagsmái sé brýnna um þessar mundir á íslandi en að fá Lárusi Jónssyni banka- stjórastöðu. Svo langt gekk þetta í gær, miðvikudag, að formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, - Þorsteinn Pálsson og Friðrik Sophusson, gengu, samkvæmt ó- yggjandi heimildum Helgarpósts- ins, á fund Jóns Adolfs Guðjóns- sonar niðrí Búnaðarbanka og báðu hann bókstaflega að draga sig í hlé í nafni einingar innan flokksins. Vit- að er að Jón Adolf, sem var hægri hönd Magnúsar heitins Jónssonar, er afturámóti ákaft hvattur af sam- starfsfólki sínu innan bankans til hins gagnstæða. Svona er nú barist í bönkum. .. s ^^^jálfstæðismenn almennt eru siður en svo í sjöunda himni yfir því „framtaki" Davíðs Oddssonar - borgarstjóra að verja tveimur millj- ónum af peningum bprgarbúa í fjöl- miðlunarfyrirtækið ísfilm, og eru reyndar flestir á því að þetta sé ekki það sem flokksmenn eigi við með hugtakinu ,,einkaframtak“. Sam- kvæmt góðum heimildum HP er ljóst að borgarstjóri hafði lítið ef nokkurt samráð við aðra borgarfull- trúa flokksins um þetta mál og jafn- vel nánustu samstarfsmenn hans, eins og Markús Orn Antonsson, - forseti borgarstjórnar, og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, vissu ekki af málinu fyrr en um seinan. A fundi borgarstjórnarflokks Sjálf- stæðismanna í fyrradag kom fram hörð gagnrýni á þessa ákvörðun Davíðs og kannski frekar alla máls- meðferð hans. Þótti mönnum sem ekki bæru vinnubrögðin vott sér- stakri ást á lýðræði. Þeir sem gjörla þekkja til telja að þessi ákvörðun Davíðs, sem skýrð er fyrst og fremst sem fljótfærni og til marks um vax- andi einangrun borgarstjórans á valdatindinum, hafi rýrt verulega það traust sem hann hefur notið í vaxandi mæli, enda staðið sig í flestu með röggsemi og festu. Hins vegar er samstaða um það innan borgarstjórnarflokksins að opin- bera ekki mótmæli við ákvörðun Davíðs til þess að auðmýkja ekki borgarstjóra út á við . . . A JI^Tftnnað er ekki siður athyglis- vert í öllu því leynimakki sem leitt hefur til stofnunar hlutafélagsins ís- film: Helgarpósturinn hefur traust- ar heimildir fyrir því að Geir Hall- grímsson, stjórnarformaður Ár- vakurs hf., eins hluthafa í ísfilrn, og einnig stjórnarformaður í Stuðlum hf., styrktarfyrirtæki Almenna bókafélagsins, annars hluthafa í ís- film, hafi ekki haft minnstu hug- mynd um það sem til stóð. Geir var staddur erlendis þegar gengið var frá málinu og frétti ekki af því fyrr en við heimkomuna. Varð Geir hinn reiðasti við þessi tíðindi og mun hafa veitt forráðamönnum AB og framkvæmdastjóra Morgunblaðs- ins ofanígjöf, enda snertir aðild þessara fyrirtækja að hinni nýju fjöl- miðiunarsamsteypu óhjákvæmi- lega pólitíska stöðu Geirs ... LADA bílar hafa sannað kosti sína hér á landi sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti (könnun verðlagsráðs) og ekki síst fyrir hátt endursöluverð. Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd, stillanlegirspeglar innanfrá, stuðararo.fl. o.fl., en sífellt er unnið aðendurbótum er lúta aðöryggi og endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð. Verð við birtingu auglýsingar kr. 199.500.- Bifreiðar & Sifelld þjónusta Landbúnaðarvélar hf. SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600 Söludeild sími 312 36 Vél: Rúmtak . . . 1442sm3 Borun 76 mm Slaglengd 80 mm Þjöppun ... 8,5:1 Kraftur . . . . . . . 55 kW (75 DIN PS) á 5600 sn/m Tog . .108 Nmá3500sn/m Eyðsla ... . 7-101/100 km 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.