Helgarpósturinn - 30.05.1985, Blaðsíða 13
yerða nýjung: ,
iNDSTÆKl A AÐEINS 49.90CC
ðamyndbandstæki, afnotaréttur af myndtökuvél.
ORION NE-VM-A fjölnota-mynd-
bandstækið með afnotarétti af
myndtökuvél, á viðráðanlegu
verði, er lausnin
í samvinnu við ORION, verktakaverksmiðju NESCO í
]apan, hefur framleiðsludeild NESCO síðustu misserin
unnið að þróun og gerð fjölnota-myndbandstækis, á
viðráðanlegu verði.
Það er olkur mikil ánægja að kynna árangurinn hér.
ORION fjölnota-myndbandstækið samanstendur af
tveimur megin einingum, sem hér eru sýndar í eðlilegri
stærð, 11: Upptöku- og afspilunareining, sem gengur
bæði fyrir 220V heimilisrafstraumi og 12V (en lítill 12V
rafgeymir, sem stungið er inn í tækið, fylgir því) og
viðtækis- og tímatækiseiningu, fyrir upptöku sjón-
varpsútsendinga og stiilingu á upptöku fram í tímann.
Auk þess fylgir hleðslutæki fyrir rafgeyminn, þráðfjar-
stýring og axlaról fyrir upptöku- og afspilunartækið.
Síðast en ekki síst fyigir afnotaréttur af mjög vandaðri
og góðri ORION myndtökuvél, í allt að 15 daga á ári í
3 ár, með í kaupunum. Athuganir okkar benda tíl, að
þetta ætti að vera fullnægjandi fyrir hinn almenna
notanda.
Auðvitað er hægt að kaupa sér aukinn afnotarétt, ef
þörf krefur, gegn vægu gjaldi (dagsleiga tveggja átekinna
myndkassetta).
Að liðnum 3 árum er gengið út frá þyí, að verð
myndtökuvéla hafi lækkað í þeim mæli, að menn geti
keypt sér slíkar vélar og átt. Eins verður, auðvitað, hægt
að leigja sér myndtökuvélará ódýran hátt eftir þörfum.
Sérstaklega skal tekið fram, að notkun ORION
fjölnota-myndbandstækisins, ekki síður ferðabúnað-
arhlutans en heimilishlutans, er sáraeinföld og á
allra færi, og kostnaður við eigin upptökur er enginn
(nema kostnaðarverð myndkassettunnar, sem tekið
er upp á). Hér er engin framköllun, engir eftirmálar
af neinu tagi, menn geta horft á upptökurnar strax
og þær hafa farið fram. Myndgæoin á eigin upp-
tökum eru mjög mikil, fyllilega sambærileg við það,
sem menn siá í almennum sjónvarpsútsendinum.
íslenskur notkunarleiðarvísir fylgir ORION fjölnota-
myndbandstækinu.
*Verð og greiðsluskilmálar á
ORION rjölnota-myndbandstæk-
inu eru afar hagstæðir.
Staðgreiðsluverð á ORION NE-VM-A fjölnotamynd-
banastækinu, með afnotarétti af myndtökuvél, er aðeins
49.900 kr. Ef búnaðurinn er keyptur með 24.900 kr.
útborgun er söluverðið 54.900 kr. og eftirstöðvar til 6
mánaoa. Sé ORION NE-VM-A keypt með 9.900 kr.
útborgun er söluverðið 59.900 kr., en þá má greiða
eftirstöðvar á allt að 10 mánuðum.
í raun er það litlu meira átak að festa kaup á
ORION fjölnota-myndbandstækinu en á venjulegu
heimilismyndbandstæki.
Er þá nokkur spurning, hvort borgar sig!!??
LAUGAVEG110 SIMI27788
FYRIRTÆKIÐ. SEM LÆKKAR VÖRUVERÐ Á ÍSLANDIMEÐ ÞÁTTTÖKU í ALÞJÓÐA VIÐSKIPTUM
MULTIPLE VIDEO CASSETTE RECORDER
BJARNI DAGUR: AUGLÝSINGASTOFA
UÓSM.: IMYND
SETN. TEXTA: SAMSETNING
HELGARPÓSTURINN 13