Helgarpósturinn - 30.05.1985, Blaðsíða 24
A
þingflokksfundi hjá Fram-
sóknarflokknum í gær varð allt vit-
laust vegna frétta af fundi Stein-
gríms Hermannssonar, Hákons
Sigurgrímssonar, formanns blað-
stjórnar NT, Hauks Ingibergs-
sonar, framkvæmdastjóra Fram-
sóknarflokksins, Einars Birnis
stórkaupmanns, Guðmundar
Bjarnasonar, ritara flokksins,
Helga Péturssonar, fréttamanns á
Útvarpinu o.fl. um ritstjóramál NT.
Ákveðið er, að Helgi Pé byrji 1. júlí,
óvíst er hvort Magnús Bjarnfreds-
son hjá Kynningarþjónustunni kær-
ir sig um starf ritstjóra þótt það sé
talið líklegt. Magnús hefur í raun
„fúnkerað" sem framkvæmdastjóri
fjölmiðlamála hjá Framsókn um
langa hríð. En á þingflokksfund-
inum varð allt vitlaust og voru það
þeir Jón Helgason dómsmálaráð-
herra og Stefán Valgeirsson sem
helltu úr skálum reiði sinnar yfir
Steingrím formann og Hauk fram-
kvæmdastjóra. Páll Pétursson
þingflokksformaður hallaði sér
makindalega aftur á bak og gerði
hið mesta grín að öllum þessum lát-
um. Haukur á að hafa sagt á fund-
inum, að málið væri nánast afgreitt
með þríeykið á ritstjórn NT. Hins
vegar mun hann hafa misst út úr sér,
að í raun yrði Indriði G. ekki eigin-
legur ritstjóri, heldur einhvers kon-
ar „yfirverkstjóri", svo notað sé orð
Hauks. Þetta skildu menn ekki. Tal-
ið er, að frá þessum málum verði
gengið um helgina. Hákon formað-
ur verður að vísu erlendis, en „það
má nota símann", eins og Stein-
grímur á að hafa sagt í gær. Varð-
andi Indriða, þá getur HP upplýst,
að nafn hans hefur komið hvað eftir
annað upp á blaðstjórnarfundum,
þegar rætt hefur verið um ritstjóra
við hlið Magnúsar Ólafssonar.
Vel á minnst: Nú er ákveðið, að
Magnús hætti störfum á föstudag.
Til þess að átta sig á þríeykinu er
rétt að fram komi, að Helgi Pé er
fulltrúi Steingríms ojg Hauks, Magn-
ús fulltrúi bænda, SIS og Hákons og
Indriði er maður, sem er Einari
Birni, SÍS og hægri mönnum vel að
skapi. Vinstri menn og bændur
mega ekki heyra minnst á Indriða
vegna Svarthöfðaskrifa hans um
landbúnaðarmál. Ástæðan fyrir
veru Erlends Einarssonar á fund-
inum í forsætisráðuneytinu mun
vera sú, að SÍS ætlar að yfirtaka
skuldir NT upp á einar 15—20 millj-
ónir króna.
Þess má að lokum geta, að eitt
fyrsta verk Helga Pé sem nýráðins
ritstjóra NT verður að troða upp á
heilmikilli kratahátíð í Laugardals-
höll með Ríó tríóinu. Á fréttastofu
útvarpsins er búið að taka ákvörðun
um, að Helgi Pé fái ekki að sinna
þingfréttum lengur, þar sem hann sé
búinn að ná sér í pólitískan flokks-
stimpil. . .
Þ
ótt blaðstjórnin finni ein-
hvern tíma ritstjóra sem hentar,að
ekki sé talað um þríeyki, eins og
hugmyndin er núna, þá verður for-
vitnilegt að sjá hvernig þeir eiga að
komast fyrir í húsakynnum NT. Þar
er nefnilega aðeins ein rúmgóð
skrifstofa fyrir ritstjóra en henni til
viðbótar tvö smærri herbergi, sem
eru í notkun. Á það er bent, að ein-
hverjir þessara þriggja mánna,
a.m.k. tveir þeirra, myndu aldrei
sætta sig við slíkar ,,holur“. í þess-
um herbergjum sitja núna Odd-
ur Ólafsson innanblaðsstjóri og
Guðmundur Hermannsson frétta-
stjóri, sem sagt hefur upp á blað-
inu...
A
ritstjorn NT eru viðbrögð
manna aðallega þau, að fólki veitist
erfitt að skilja hvers vegna í ósköp-
unum menn eins og Magnús og
Indriði vilji koma á NT. Mönnum
þykir þetta „furðulegt" og þeir eru
„hissa". . .
að gekk ekki þrautalaust fyr-
ir sig að finna oddamann í úrskurð-
arnefnd um deilu BHM og ríkisins.
Ástæðan var sú, að aðilar málsins
áttu erfitt með að sætta sig við þá,
sem stungið var upp á. Fjöldi manna
var nefndur til leiksins, en ávallt
hafnað af örðum hvorum aðila.
Loks tókust svo sættir og oddamað-
ur var valinn Bjarni Bragi Jóns-
son, aðstoðarbankastjóri Seðla-
bankans.
HP hefur fregnað að meðal þeirra
sem hafi verið nefndir séu Björn
Björnsson, hagfræðingur ASÍ,
Egill Skúli Ingibergsson, fyrrver-
andi borgarstjóri, Benedikt Sigur-
jónsson, fyrrverandi hæstaréttar-
dómari, Björn Teódórsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Flugleiðum, Guö-
laugur Þorvaldsson, ríkissátta-
semjari, Ólafur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra iðn-
rekenda, Þórir Einarsson pró-
fessor, Guðmundur Magnússon
háskólarektor og sá nýkjörni Sig-
mundur Guðbjarnarson.
Þá frétti HP, að um það bil sem
BHM-menn voru að gefast upp á
oddamannsleitinni hafi þeir stungið
upp á Pétri Sigurgeirssyni, bisk-
upnum yfir íslandi. Þeirri hugmynd
vísuðu þeir í fjármálaráðuneytinu á
bug, þar sem þeir töldu að óánægja
presta með kjör sín gerði æðsta
mann kirkjunnar á Islandi of vilhall-
an sjónarmiðum Bandalags há-
skólamanna. Það má því segja, að
Bjarni Bragi hafi verið nánast
himnasending, nema hann verði of
vilhallur sjónarmiðum ráðuneytis-
ins...
A
n Akureyri hefur um nokk-
urra ára skeið staðið talsverður styr
um hitaveitu bæjarins, einkum
vegna gífurlegs kostnaðar og
skuldahala, sem fyrirtækið hefur
orðið að dragnast með. Þannig er
hitaveitan nánast orðin blórabögg-
ull fyrir margt af því, sem aflaga fer
í bænum. Núna er kominn nýr snún-
ingur á málin fyrir norðan, því í bæj-
arstjórninni héldu þeir Jón Sig-
urðsson (F) og Björn Jósef Arn-
viðarson (S) uppi harðri gagnrýni á
sjálfan hitaveitustjórann, Wilhelm
V. Steindórsson, sem leyfði sér að
hafa þá skoðun, að Akureyringar
sjálfir ættu að leysa vanda hitaveit-
unnar en ekki leita á náðir Stóra
bróður fyrir sunnan. Framsóknar-
maðurinn Jón og sjálfstæðismaður-
inn Björn Jósef eru hins vegar á
þeirri skoðun, að réttast sé að kíkja
í kistu Alberts í Reykjavík. Eftir
gagnrýnina í bæjarstjórninni var
rætt við hitaveitustjóra í svæðisút-
varpinu á Akureyri og gaf hann þá
þeim félögum Jóni og Birni Jósef
einkunnir í hitaveituþekkingu. Jón
fékk 3 en Björn Jósef 0...
E
fisaftir því, sem HP kemst næst
hefur Seltjarnarnes verið kært til
embættis ríkisskattstjóra fyrir að
svíkja undan söluskatti og fleiri
hugsanleg brot af svipuðum toga.
Kæran mun hafa komið frá Hösk-
uldi Jónssyni, ráðuneytisstjóra í
fjármálaráðuneytinu, sem gert var
viðvart um hugsanleg söluskatts-
svik Seltjarnarness. Þá mun Sigurð-
ur Þórðarson í gjaldadeild ráðu-
neytisins hafa fengið fregnir af því,
að ekki væri allt með felldu í bók-
haldi þessa bæjarfélags, sem hingað
til hefur getað státað af því að leggja
lág gjöld á íbúana. Þarna er kannski
komin skýringin, ef kæran reynist á
rökum reist. Athugasemdin í fyrstu
umferð mun snúast um það, að
nefnt bæjarfélag hafi t. d. sloppið
nær alveg við að greiða eðlilegan
söluskatt af vinnuvélum í eigu sveit-
arfélagsins.
Vinnuvélaeigandi á Seltjarnar-
nesi, með viðlíka „flota" og bæjarfé-
lagið, komst að því að hann greiddi
tí- og tuttugufalt meira fyrir rekstur
tækja sinna vegna söluskatts heldur
en sveitarfélagið Seltjarnarnes.
Þannig greiddi hann 1981 um 186
þúsund krónur til ríkisins vegna
vinnuvéla sinna á sama tíma og Sel-
tjarnarnes greiddi skitnar þrjú þús-
und og 300 krónur. 1982 greiddi
hann 278 þúsund krónur tæpar en
sveitarfélagið 4.850, og 1983
greiddi hann rétt tæpa hálfa milljón,
en sveitarfélagið 33 þúsund krónur.
Þarna er um að ræða mun, sem
væntanlega mun skýrast við skatt-
rannsókn. í ljósi upplýsinga af þessu
tagi ber að líta forystugreinar Sel-
tirninga í blöðum um samfélagið
sitt, þar sem forystunni er hrósað
upp í hástert fyrir góðan rekstur. Og
vel að merkja: í vetur hefur fjár-
málaráðuneytið farið í herferð til
þess að brýna fyrir fólki að standa
skil á sköttum. Hvergi er orði vikið
að sveitarfélögunum... .
M9
B/acksi UeckBP
0NN
GARÐAHOLDUM
Fæst um land allt
LOFTPÚÐASLÁTTU
VÉL
LAUFLÉTT GARÐSLÁTTUVÉL.
KR. 8.394,-
KAIMTSKERAR
KR. 2616,-
24 HELGARPÓSTURINN