Helgarpósturinn - 30.05.1985, Blaðsíða 15
og líf í tuskunum!
Sumardagskrá Kramhússins:
*
Oþreyttar
húsmædur
og -fedur
I Kramhúsinu á horni Skólavörðu-
stígs og Bergstaðastrætis hefur farið
fram öflug dansmennt í vetur undir
höf uðverkstjórn Hafdísar Árnadótt-
ur. Þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari HP Iitu þangað inn í vikunni var
líf í tuskunum í bókstaflegri merk-
ingu, þar sem undirbúningur vor-
fagnaðar Kramhússins var í fullum
gangi. Hann verður haldinn næst-
komandi laugardag og þá munu
hinir ýmsu hópar troða upp með af-
rakstur vetrarins, sem er hinn fjöl-
breytilegasti — allt frá þrautþjálfuð-
um og glæsilegum danssýningum
óþreyttra húsmæðra og -feðra, upp í
heila leiksýningu yngstu kynslóð-
arinnar. Og inn í þetta allt saman er
blandað óvenjulegri „listtískusýn-
ingu“, þar sem nemendur Kram-
hússins leika og dansa í undurfögr-
um, handmáluðu silkiflíkunum
hennar Möddu Þorvardar. (Þaðan
kemur semsé lífið í tuskunum sem
sést á myndinni. . .)
Strax eftir helgina hefjast svo
sumarnámskeiðin: áframhaldandi
námskeið í leikfimi, afríkudansi og
spuna fyrir börn og fullorðna undir
stjórn Hafdísar, Abdou Abdeliliah -
hins marókanska, Höllu Margrétar,
Ásdísar Paulsdóttur o.fl.
En auk föstu námskeiðanna verð-
ur bryddað upp á ýmsum nýjungum
í Kramhúsinu í sumar. Aðra helgina
í júní verður í gangi svokölluð leik-
smiðja (workshop), og er ætlunin að
það starf standi frá föstudegi til
sunnudags. Stjórnendur verða Haf-
dís Arnadóttir, sem einkum mun
leggja áherslu á dans og dansspuna,
og Sigrídur Eyþórsdóttir með leik-
ræna tjáningu.
„Parna reynum við ekki síst að
höfða til kennara, söngskólafólks og
óperufólks sem alltaf er í eldlínunni.
Þarna fær það tækifæri til að liðka
sig í fríinu," sagði Hafdís í spjalli við
HP. „En að sjálfsögðu mega allir
sem áhuga hafa vera með." Þarna
gefst landsbyggðarfólki t.d. færi á
„öðruvísi" helgarpakka til Reykja-
víkur með leik og starfi — svefn-
pokaplássi í Kramhúsinu og kónga-
fæði á veitingahúsinu Rán við hlið-
ina.
Helgina þar á eftir mun Halla Mar-
grét halda uppi leiksmiðjufjörinu
með spuna og dansi, einkum við
hæfi unga fólksins, og þriðja og síð-
asta leiksmiðjuhelgin verður vænt-
anlega í öruggum höndum Kuregej
Alexöndru sem mun leggja áherslu
á leikræna tjáningu.
Dagana 20. júlí til 1. ágúst mun -
Audrianne Hawkins, dansari og list-
rænn ráðunautur Impulse Company
í Boston, halda námskeið í djass-
dansi og afríkudönsum. Audrianne
hefur mörg undanfarin sumur látið
Evrópubúa njóta krafta sinna, eink-
um í Frakklandi, Hollandi og
Skandinavíu. Og nú er komið að Is-
lendingum og þá hvort heldur sem
er atvinnudönsurum eða áhuga-
sömum almenningi, því að vonir
Það var erfitt að fá þessar fraukur til að skrúfa niður (djassinum og stilla sér upp fyrir Ijósmyndarann, svo iðandi voru þær í skinninu
við vorfagnaðarundirbúninginn, uppáklæddar handmáluðu módelflíkunum hennar Möddu. Frá vinstri: Halla Margrét danskennari,
Hafdís Árnadóttir höfuðpaur, Madda Þorvarðar, myndlistarkona og fatahönnuður, og Ásdís Paulsdóttir danskennari.
standa til að hægt verði að hafa
námskeiðið tvískipt.
Þá ætlar Anthony Michel, leik-
stjóri og leikari frá Wales, að leiða
Kramhúss-fólk í allan sannleika um
trúðatækni, sviðsbardaga o.fl. á
hálfsmánaðarnámskeiði í ágúst. En
Anthony er íslensku áhugafólki um
sviðsframkomu að góðu kunnur, því
þetta er í þriðja sinn sem hann kem-
ur hingað til lands í þessu skyni.
I lokin má geta þess að aðstand-
endur Kramhússins eiga sér þann
sumardraum að koma á fót eftirmið-
dagsleikhúsi með klukkutíma dag-
skrá nokkrum sinnum í viku.
Til að fyrirbyggja allan misskiln-
ing er rétt að taka fram að fólk þarf
ekki að vera í neinni sérstakri þjálf-
un til að fá inni í Kramhúsinu. Bruss-
ur og bakveikir og aðrir með sér-
þarfir komast líka að í sérstökum
byrjendatímum hjá Hafdísi þar sem
miki! áhersla er lögð á teygjur og
öndun, því fyrst með réttri öndun
fær maður almennilega hreyfingu í
t.d. mjóhrygginn, að sögn Hafdísar.
Megas, Guðrún Tryggua, Harpa Björns og fl.
myndlistarmenn:
Frjálst og
óhád gallerí
Þótt fleiri tækifæri gefist nú til
sýninga á myndlist en hér á árum
áður, þá hefur orðið svo mikil fjölg-
un í röðum myndlistarmanna að
þeir sýningarstaðir sem fyrir eru
hafa ekki vilja eða getu til að koma
til móts við nema mjög fáa þeirra,
(t.d. kostar sýningaraðstaða að Kjar-
valsstöðum 1.500 kr. á dag og auk
þess er kostnaðarsamt að setja upp
sýningu). Æ erfiðara verður því fyr-
ir ungt listafólk að fá inni með verk
sín þar sem almenningur getur
gengið að þeim til að skoða, kaupa
og njóta.
Því hefur stór hópur ungra,
óháðra listamanna af báðum kynj-
um og ólíkum lífsskoðunum; málar-
ar, teiknarar, grafíkerar og lífs-
kúnstnerar, þekktir og óþekktir (en
með glæstar vonir), tekið sig saman
um að reka gallerí í hjarta borgar-
innar, nánar tiltekið undir yfirborði
jarðar að Vesturgötu 3, um óákveð-
inn tíma til að ganga úr skugga um
hvort grundvöllur er fyrir rekstri
gallerís af þessum toga. Aðstand-
endur ætla sjálfir að sitja að sýning-
araðstöðunni og hafa gefið gallerí-
inu nafnið Salurinn.
„Ég hafði gengið með þennan
draum lengi," sagði Harpa Björns-.
dóttir, einn af aðstandendum galler-
ísins Salarins. „Svo frétti ég í apríl-
lok að þetta húsnæði væri að losna,
hafði samband við Odd, eiganda
Kjallarans sem var hér þá til húsa,
og þremur vikum síðar hafði mér
ekki bara tekist að fá húsnæðið,
heldur safna saman fimmtán manns
til að standa að galleríinu og við bú-
in að breyta því sem breyta þurfti og
flytja inn. Svona á þetta að ganga!“
— Þurftuð þið að gera miklar
breytingar á húsnæðinu?
„Nei, rífa niður hillur - en aðallega
þurftum við nú að mála yfir bieika
litinn sem var á veggjunum. Það er
svo gaman þegar gamlir menn reka
hér inn nefið og segja sem svo: Nei,
hér er nú aldeilis öðruvísi um að lit-
ast en þegar hér var til húsa Véla-
verkstæði G.J. Fossberg eða þá Kjöt-
verslunin Liverpool. Hennar hafði
ég ekki heyrt getið áður.“ Og á svart-
Það er ótrúlega v(tt til veggja og bjart, þótt lágt sé til lofts (kjallara Vesturgötu 3 þar sem gallerfið Salurinn er til húsa. Á svart-hvltu
tíglagólfinu sést móta fyrir gamla búðarborðinu í Kjötversluninni Liverpool sem elstu Reykvíkingar muna sjálfsagt eftir.
hvítu steinflísagólfinu sést einmitt
móta fyrir búðarborðinu gamla.
Aðstandendur gallerísins Salarins
eru Björg Örvar, Guðrún B. Rich-
ards, Guðrún Tryggvadóttir, Gunn-
ar Karlsson, Harpa Björnsdóttir,
Haukur Friðþjófsson, Jón Axel,
Kjartan Ólafsson, Kristbergur Pét-
ursson, Magnús Þór (Megas),
Margrét Birgisdóttir, Sigrún Ög-
mundsdóttir, Steingrímur Þorvalds-
son og Valgarður Gunnarsson. Sam-
sýning þeirra stendur yfir til 5. júní,
en þá opnar Steingrímur Þorvalds-
son sýningu. Nokkur aðstandenda
útskrifuðust úr Myndlistar- og hand-
íðaskólanum í vor, þ. á m. Megas. Á
þessari sýningu eru þrjár af þeim
fjölmörgu sjálfsmyndum sem hann
hefur verið að vinna í vetur.
„En þó einhver sé með einkasýn-
ingu verða ævinlega í galleríinu
verk eftir aðra. Við stefnum að því
að hafa einkasýningar á tveimur
stærstu veggjunum en önnur verk á
hinum smærri,“ segir Harpa Björns-
dóttir. „Og verðið á þessari sýningu
er ansi fjölbreytilegt, eða frá 1.000
upp í 60 þúsund, stundum eftir sam-
komulagi!" JS
HELGARPÖSTURINN 15