Helgarpósturinn - 27.06.1985, Side 8
Yfirstiórn hins opinbera í ferðamálum
eftir Bjarna Harðarson mynd Valdís Óskarsdóttir
lið
Alda hörmulegra dauðaslysa á erlendum ferðamönnum á fjöllum
pi í ágústmánuði síðastliðið sumar vöktu menn til umhugsunar. Á
num vetri funduðu 12 aðilar tengdir ferðamálum, löggæsíu og
björgunarstarfi um það hvað gera mætti til úrbóta. Á fundum þessum
kom í I jós að enginn aðili ber ábyrgð á viðvörunum við hættulega staði
né hefur fjármagn til þess að koma slíku upp. Aðilar þeir sem funduðu
voru sammála um ákveðna þætti sem þyrfti að vinna að en engar
ákvarðanir voru teknar um aðgerðir í sumar. Fjárráð veita óvlða ráð-
rúm til annars en að haldið sé i horfinu.
Framlag Alþingis nú á vordögum var svo að skera niður tekjustofna
Ferðamálaráðs og Ferðamálasjóðs, rétt eins og gert var í fyrra, hitteð-
fyrra og flest árin þar á undan. Á meðan gjaldeyristekiur af ferða-
mannaþiónustu eru taldar vera um 2,5 milljarðar króna ser ríkissjáður
af 12 milljónum til þessara mála. Virðist þá engu skipta þótt reiknað sé
með verulega auknum ferðamannastraumi til landsins í sumar, eða
allt að 90 j>úsundum gesta. íslensk þjónusta við erlenda ferðamenn
einkennist i þessum efnum af því að taka, rukka og skattlegg ja en gefa
ekkert til baka.
Ringulreið
og fégrœðgi
Ríkið halar inn hundruð millióna a erlendum
ferðamönnum og skilar engu til baka
8 HELGARPÓSTURINN
• •