Helgarpósturinn - 28.11.1985, Blaðsíða 24
Já — nýja lagningarskúmið
frá L'ORÉAlf'
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
NOTARLEGASTA SÓLBAÐSSTOFA
BORGARINNAR BÝÐUR PÉR:
SÓL, SAUNA, OG NUDDPOTT Á ÚTISVÆÐI
MORGUNAFSLÁTT, EINNIG LOKAÐA TÍMA
FYRIR HÓPA.
ELSKAÐU
SJÁLFAN ÞIG
ÞVÍ ÞÚ ÁTT AÐEINS
ÞAÐ BESTA SKILIÐ.
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
FRÁ KL. 7.30 - 23.00
LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA 10.00 - 20.00
ATH!
20%
AFSLÁTTUR
FYRIR NÁMSFÓLK.
HOLLUSTUBRAUD,
ÁVEXTIR & GRÆNMETI.
ALLTAF HElTT Á KÖNNUNNI.
HJÁ OKKUR LIGGUR ENGUM Á.
fekríkjan 192^
SMIDJUSTlG 13, REYKJAVÍK.
HVlLDARSTAÐUR I M BORGARINNAR
SYNINGAR
Ásgrímssafn
Opið í vetur þriðjudaga, fimmtudaga og
sunnudaga kl. 13.30—16.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Opið virka daga kl. 12—18 erf um helgar kl.
14-18.
Gallerí Langbrók
Amtmannsstíg 1
Jólasýning opnuð á laugardag kl. 14. Til
sýnis og sölu myndir og listmunir gerðir af
valinkunnum listamönnum.
Opið mánud. — föstud. kl. 12—18, laugar-
daga í des. og á Þorláksmessu eins og versl-
anir.
Gerðuberg
Fyrri hluti sýningar á myndverkum í eigu
Reykjavíkurborgar eftir konur. Sýningin
verður opin til 1. desember og sýnd verða
verk eftir listakonur sem nú eru látnar. Seinni
hluti sýningarinnar verður í janúar. Aðgang-
ur ókeypis.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Kjarvalssýning, opið kl. 14—22.
Listasafn Einars Jónssonar
Hnitbjörgum við Njarðargötu
Safnið er opið laugardaga og sunnudaga frá
kl. 13.30—16. Höggmyndagarður safnsins
er opinn daglega frá kl. 10—17.
Listasafn Islands
Sýning á Kjarvalsmyndum í eigu Listasafns
íslands. Opið laugardag, sunnudag, þriðju-
dag og fimmtudag kl. 13.30—16.
Listver
Sýningarsalur á Austurströnd 6, Seltjarnar-
nesi. Listver verður opnað á laugardag kl. 14
með sýningu á myndum Sveins Björnssonar
við Ijóð Matthíasar Johannessen. Opið dag-
lega kl. 14—21 til 8. des.
Mokka
v/Skólavöröustíg
Ólafur Engilbertsson sýnir málverk, teikn-
ingar, grímur og bækur. Hann lærði leik-
myndateiknun á Spáni.
Norræna húsið
I anddyri sýning á bókverkum íslenskra lista-
manna, þ.e. bókum sem listaverkum. í bóka-
safni eru sýndar norrænar listaverkabækur
og sýningarskrár. Þessar sýningar eru báðar
settar upp í tilefni af 40 ára afmæli Norræna
myndlistarbandalagsins og í tengslum við
þær verða haldnir tveir fyrirlestrar mánu-
dagskvöldið 2. desember.
í sýningarsölum sýningin „Samískur listiön-
aöur", samkvæmt aldagamalli samískri
hefð. Farandsýning frá samtökum Sama í
Noregi og Listiðnaöarsafninu í Þrándheimi,
en á henni eru verk eftir Sama frá öllu Norð-
urkollusvæðinu.
Báðum sýningunum lýkur 8. desember.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Yfirlitssýning á verkum Þorsteins Díómed-
essonar frá Hvammstanga. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 16.00—20.00, en 14.00 —
20.00 um helgar. Henni lýkur 2. desember.
Verkstæðið V
Þingholtsstræti 28
Opið alla virka daga frá kl. 10—18og laugar-
daga 14—16.
Þjóðminjasafn Islands
í Bogasal stendur yfir sýningin Með silfur-
bjarta nál, íslenskar hannyrðakonur og
handverk þeirra. Á sýningunni eru hannyrðir
íslenskra kvenna undanfarinna alda. Opið
kl. 13.30—16 daglega.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
Regnboginn
Amadeus
★★★★
Sýnd kl. 3, 6 og 9.15.
ógnir frumskógarins
(The Emerald Forest)
★★★
Sýnd kl. 3.10, 5.20, 9 og 11.15.
Ástardraumar
★★★
Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 7 og 9.30.
Dísin og drekinn
★ ★★
Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05.
Villigæsir 2
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 3, 5.30, 9 og 11.15.
Háskólabíó
Jólasveinninn
(Santa Claus)
★
Sjá Listapóst
Sýnd kl. 5 og 7.
Ástarsaga
(Falling in Love)
★★★
Leikstjóri: Ulu Grosbard. Handrit: Michael
Cristofer. Kvikmyndataka: Peter Suchitzky.
Tónlist: Dave Grusin. Aðalleikarar: Robert
De Niro, Meryl Streep, Harvey Keitel, Jane
Kaczmarek.
Sýnd kl. 9.
Nýja bíó
Skólalok
(Secret Admirer)
Sýnd kl. 5. 7. 9 og 11.
Siðustu sýningar.
Bíóhöllin
Salur 1
ökuskóiinn
Fyrsta jólamynd Hallarinnar, gerð af sama
fólki og „Police Academy" og „Bachelor
Party".
He-man og leyndardómur sverðsins
(The Secret of the Sword)
Sýnd kl. 3 um helgina.
Salur 2
Vígamaöurinn
(Pale Rider)
★★★
Framleiðandi: Clint Eastwood. Leikstjóri:
Clint Eastwood. Handrit: Michael Butler og
Dennis Shryacks. Kvikmyndataka: Bruce
Surtees. Tólist: Lennie Niehaus. Aðalleikar-
ar: Clint Eastwood, Michael Moriarty,
Sydney Penney, Carrie Snodgress, Christop-
her Penn, Richard Dysart, John Russel.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Gosi
Sýnd kl. 3 um helgina.
Salur 3
James Bond aðdáandinn
Grínmynd.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Mjallhvít og dvergarnir 7
Sýnd kl. 3 um helgina.
Salur 4
Á Letigarðinum
(Doin' Time)
★
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
Heiður Prizzis
(Prizzi's Honor)
★★★
Sýnd kl. 9.
Sagan endalausa
Sýnd kl. 3 um helgina.
Síðasta sinn.
Salur 5
Ðorgarlöggurnar
(City Heat)
★★
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Tvífarinn
Sýnd kl. 3 um helgina.
Laugarásbíó
Salur A
Náöur
(Gotcha!)
Gamanmynd. Leikstjóri: Jeff Kanew (Re-
venge of the Nerds). Aðalhlutverk: Anthony
Edwards (Nerds, Sure Thing), Linda Fior-
entino (Crazy for you). íslenskur texti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur B
Max Dugan snýr aftur
(M.D. Returns)
★★
Leikstjóri: Herbert Ross. Handrit: Neil
Simon. Aðalhlutverk: Marsha Mason, Jason
Robards, Donald Sutherland, Matthew
Broderick, Dody Goodman og fl.
Mynd þessi er ósköp sæt og hugguleg en
aðalgallinn við hana er að hún er ekki nógu
áhugaverö að neinu leyti. Allir leikaramir eru
góðir en ekkert meir. -IM
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur C
Myrkraverk
(Into the Night)
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Austurbæjarbíó
Salur 1
Vitlaus í þig
(Crazy for You)
Aöalhlutverk: Matthew Modine, Unda Fior-
entino.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur 2
Hrekkjalómar
(Gremlins)
★★
Sýnd 5, 7, 9 og 11.
Salur 3
Lyftan
★★
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd 7, 9 og 11.
Banana-Jói
Með Bud Spencer.
Sýnd kl. 5.
Tónabíó
Svikamyllan
(Rigget)
Sakamálamynd gerð eftir sögu Chase, Hit
and Run. Aðalhlutverk: George Kennedy,
Ken Robertson, Pamela Bryant. Leikstjóri
C.M. Cutry.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Prúðuleikararnir
kl. 3 laugar- og sunnudag.
Stjörnubfó
Salur A
Country
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Ein af strákunum
(Just One of the Guys)
★
Sýnd kl. 3 laugar- og sunnud.
Salur B
Sylvester
★
Sjá Ustapóst
Sýnd kl. 5 og 7.
Einnig kl. 3 um helgina.
Birdy
★★★
Leikstjóri: Alan Parker. Handrit: Sandy
Kroopf og Jack Behr, eftir samnefndri skáld-
sögu William Whartons. Kvikmyndun:
Michael Serensin. Tónlist: Peter Gabriel. Að-
alleikarar: Matthew Modine, Nicholas Cage,
John Harkins, Sandy Baron, Karen Young,
Bruno Kirby, Nancy Fish.
Sýnd kl. 9
Bönnuð innan 16 ára.
Öryggisvörðurinn
★
Máttlítill þriller, broddlaust handrit ásamt
átakalítilli leikstjórn setja hömlur á Sheen og
Gossett, þá annars ágætu leikara. SER
Sýnd kl. 11.
LEIKLIST
Leikfélag Hafnarfjarðar
Bæjarbíói
„Fúsi froskagleypir" eftir Ole Lund Kirke-
gaard.
Sýning laugard. og sunnud. kl. 15.
Miðapantanir í síma 50184.
Félagsstofnun stúdenta
v/Hringbraut
Rokksöngleikurinn Ekkó með tónlist Röggu
Gísla., fimmtud. (í kvöld), uppselt, sunnud.,
mánud. og miðvikud. kl.21. Upplýsingar og
miðapantanir í síma 17017.
Sýningum fer að fækka.
Hlaðvarpinn
Vesturgötu 3
Skugga-Björg í kvöld og annað kvöld
(föstud.) kl. 20.30. Sími 19560.
Leikfélag Reykjavíkur
Land míns föður
Söngleikur eftir Kjartan Ragnarsson.
Uppselt, þar til á þriðjud.
Þjóðleikhúsið
Með vífið í lúkunum
Fimmtud. og laugard. kl. 20.
Grfmudansleikur
Uppselt þar til þriðjud.
Listdanssýning fslenska dans-
flokksins
Laugardag kl. 15.00.
(Barnasýningarverð).
Nemendaleikhúsið
Hvenær kemurðu aftur rauöhærði riddari.
Sýning í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30. Síð-
asta sýning.
Leikritið er ekki viö hæfi barna.
Ath.: Símsvari allan sólarhringinn í síma
21971.
Hitt leikhúsið
Litla hryllingsbúðin
Fimmtudag, föstudag og laugardag kl. 20.
Síðustu sýningar.
TÖNLIST
Safarí
v/Skúlagötu
Franska hljómsveitin Etron Fou Le Leublanc,
íslenskur Svart-hvftur draumur og ritskáldin
Einar Már Guðmundsson og Sigfús Bjart-
marsson með skemmtun á sunnudags-
kvöld. Ballið byrjar kl. 20.30 sirkabát.
Stúdentakjallarinn
v/Hringbraut
Tríó Jóhannesar Snorrasonar leikur mel-
ódískan djass, að sögn, og ókeypis frá kl. 21.
Þorlákshafnarkirkja
Gunnar Kvaran sellóleikari heldur tónleika á
sunnudag kl. 16.30, þar sem hann mun leika
þrjár einleikssvítur eftir Johann Sebastian
Bach, svftur nr. 1 í G-dúr, nr. 2 í d-moll og nr.
3 í C-dúr.
VIÐBURÐIR
Fyrirlestrar
I kvöld 28. nóvember kl. 20:30, les sænski
rithöfundurinn Gerda Antti úr verkum sín-
um I Norræna húsinu.
Lars Brink, prófessor I dönsku við Hl flytur
opinberan fyrirlestur á morgun, föstudag,
kl. 16:15 istofu 301 íArnagarði.
Menningarvika
Samtakanna '78
félags lesbia og homma á Islandi,
Brautarholti 18, 4. hæð.
Sunnudaginn 1. des. er opið hús fyrir al-
menning frá kl. 14 þar sem brotið er skarð f
bakkelsi vikunnar og starfsemin kynnt. Kl 17
sýnd ungversk kvikmynd, Aörar leiðir, um
ástir tveggja kvenna. Kl. 20 er umræða um
efnið: Hvaða ábyrgð hefur þú I starfi þínu
gagnvart lesbíum og hommum? Blaða-
manni, geðlækni og kennara boðið til að
ræða afstöðu þeirra, sem starfa við fjölmiðl-
un, heilbrigðismál og uppeldismál, gagn-
vart samkynhneigð.
Mánudagskvöld kl. 20.30 er samfelld dag-
skrá um Iff homma og iesbfa — heima og er-
lendis — á þessari öld.
Þriöjudag kl. 20.30 flytur Þorvaldur Kristins-
son erindi um homma 1 kvikmyndum og
ræðir um nýjungar f kvikmyndagerð
homma.
Miövikudagskvöld kl. 20 er efnt tii Ijóða- og
sagnakvölds.
Rmmtudagskvöld kl. 20.30 er sýnd þýska
kvikmyndin Afleiöingarnar. Að mynd-
inni lokinni hefst umræöa um efnið: Hvaöa
þýðingu hafa Samtökin '78 fyrir lesbíur og
homma?
Föstudagskvöid hefst svo lokahóf kl. 21.00.
Kl. 23 er tískusýning þar sem kynnt er nýja
linan i láttfatatisku vetrarins.
24 FSIGARÞÖSTUMNN