Helgarpósturinn - 28.11.1985, Síða 9
rjS&S';
STARMAN
Adalhlutuerk: Jeff Bridges, Karen
Allen, Charles Martin Smith,
Richard Jaeckel. Leikstjóri John
Carpenter. Framleidendur Larry
Franco, Barry Bernardi. Handrit
Ray Gideon, Bruce Euans, Dean
Riesner. Tónlist Jack Nitzsche.
Kvikmyndataka Donald M.
Morgan. Litmynd. 115 mínútur.
Columbia Pictures. Bandaríkin
1984.
Þessi geimmynd John Carpenters
er dásamlega frábrugðin öðrum að
því leyti að hún fjallar um fólk frem-
ur en hluti. Grunnhugmyndin er
yndislega einföld og Carpenter
bregst henni sjaldnast: Geimbúi sem
aldrei sést í sinni réttu mynd kemur
til jarðarinnar og breytir sér í eftir-
mynd (Jeff Bridges) nýdáins eigin-
manns ungrar húsmóður (Karen
Allen). Hundelt af fjandsamlegum
yfirvöldum (og Allen ekkert of hrif-
in af því að þessi yfirskilvitlegi tví-
fari mannsins hennar ræni henni)
leggur parið af stað í þriggja daga
ferð yfir þvert og endilangt landið til
móts við geimfarið sem gesturinn
ætlar að fara með heim. Á leiðinni
verða þau ástfangin og er hann fer
er ófrjó konan á yfirnáttúrulegan
hátt orðin þunguð að dreng. Þetta
er ákaflega blíðleg ástarsaga, lýst
upp með blossum mildrar gaman-
semi, kvikmynd ákaflega ólík þeim
hröðu myndum sem Carpenter hef-
ur hingað til einbeitt sér að. En hann
nær á stundum næstum skáldlegri
einfeldni, einna áhrifamest atriðið
þegar Bridges endurlífgar skotið dá-
dýr sem er bundið á bíl veiðimanns.
Tæknibrellurnar (góðar í upphafi
kvikmyndarinnar, svolítið farnar að
dofna í lokin) eru ekki það sem allt
snýst um, eins og þó tíðkast. Það
sem skiptir meginmáli og tekst stór-
kostlega er leikurinn. Karen Allen
er ákaflega góð í hlutverki ungu
ekkjunnar sem þorir ekki að trúa
eigin heppni, að fá þarna nýtt tæki-
færi í hjónabandinu; Jeff Bridges
hreyfir sig eins og fugl og fylgist
með og tileinkar sér smáatriði lífs-
ins á þessari einkennilegu plánetu
okkar og veitir manni sanna
ánægju.
FALLING
IN LOVE
Það er dapurlegt að þeir samfund-
ir sem einna mest hefur verið beðið
eftir í kvikmyndum skuli eiga sér
stað á svona lasburða bæli. Falling
in Loue er fyrsta myndin sem Meryl
Streep og Robert De Niro hafa leikið
í síðan The Deer Hunter var gerð og
þó lítill vafi leiki á að þau séu góðir
leikarar veldur kvikmyndin sjálf
nokkrum vonbrigðum.
Handritið er að Brief Encounter,
endurunnið fyrir New York nútím-
ans. Tvær venjulegar manneskjur
rekast hvor á aðra í jóiaösinni í
bókabúð. Bæði eru í hamingjusömu
hjónabandi en komast að því að þau
hafa árum saman verið samferða í
lestinni til Manhattan, hvort úr sínu
(virðingarverða) úthverfi. í ringul-
reiðinni á þessum fyrsta fundi taka
þau ranga pakka og makar þeirra fá
bók sem hinum var ætluð. Þannig er
teningnum nokkuð ákveðið kastað
og gagnkvæm hrifning þeirra eykst
í ferðunum sem á eftir koma.
Efnið er ósköp einfalt og ég ætla
ekki að eyðileggja eftirvæntinguna
með því að koma upp um lokaflétt-
una en sem kvikmyndamáltíð er
Falling in Love heldur rýr málsverð-
ur. Streep og De Niro skera list sína
niður að berum beinum aðferðar-
leikstílsins, sinna smáatriðum í
augnatilliti og látbragði, andvörp-
um og kippum en virðast aftur á
móti ófær um að botna setningu.
Þessi yfirþyrmandi raunsæju tök á
efninu verða heldur gremjuleg er á
iíður.
SEM VERT ER AÐ SKOÐA
TILBOÐ
Nú gefst almenningi kostur á að eignast
þessi þrjú úrvalsmyndbönd á mjög
hagstæðu verði, kr. 2.000,- pr. stk
THE
fuwmsr
4 THIHG...
yoi/V£
i : /V£V£7?
. SEEW
, MwHtttf* 9«t» you
^.tfTABINNI, PINNI
Öll myndböndin eru með íslenskum texta
JMDLLY
fPl|RES
Trading Apocalypse An officer
places now and a
gentleman
* m
HASK0LABI0
HELGARPÖSTURINN 9