Helgarpósturinn - 04.09.1986, Blaðsíða 36
dómsrannsókn loks í kaffibauna-
máli Sambandsins og veröur fyrsta
vitni Sverris Einarssonar sakadóm-
ara fráfarinn forstjóri SÍS Erlendur
Einarsson. Síðan verða hinir
ákærðu kallaðir fyrir einn af öðrum.
Þeir eru Hjalti Pálsson yfirmaður
innflutningsdeildar, Gísli Theó-
dórsson, Sigurdur G. Björgvins-
son og Sigurður Asgeirsson. Við
vitnaleiðslur hefur almennur starfs-
maður Sambandsins skýrt frá því,
að ætlunin hafi allan tímann verið
sú að „plata Kaffibrennslu Akureyr-
ar“, og um þetta komið skipun ,,að
ofan“. Hjalti hefur reynt að hlífa
sjálfum sér og Erlendi, en við vitna-
leiðslur mun hann hafa vísað á yfir-
menn sína. Sjálfur mun Erlendur
segja, að hann hafi ekki haft hug-
mynd um málið. Fram hefur komið,
að þær 5 milljónir dollara, sem mál-
ið snýst um hafi skilað sér til gjald-
eyrisyfirvalda hér heima. Hins veg-
ar hefur komið fram hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins, að afsláttar-
greiðslurnar vegna kaffibaunakaup-
anna hafi allar farið fyrst inn á sér-
stakan reikning í London, og hefur
raunar jafnframt komið fram, að all-
ar deildir og fyrirtæki SÍS hafi slíka
reikninga erlendis. í kaffibaunamál-
inu hafa menn velt fyrir sér ábyrgð
stjórnar og um leið vitneskju. Bent
er á, að Valur Arnþórsson stjórn-
arformaður SÍS og Kaífibrennslunn-
ar ásamt öðrum stjórnarmönnum
hljóti að minnsta kosti að hafa velt
fyrir sér hvaðan allt þetta gullna fé
bærist. Annað sé óhugsandi. Við
bíðum átekta eftir frekari fréttum af
dómsrannsókninni, þar sem
Jónatan Sveinsson saksóknari á
örugglega eftir að spyrja marga
óþægilegra spurninga. . .
WÍi að verður gaman að fylgjast
með prófkjörsmálum sjálfstæðis-
manna í Norðurlandi eystra. Á laug-
ardaginn, 6. sept., verður kjördæm-
isþing þar nyrðra og búist við, að
ákveðið verði lokað prófkjör sjálf-
stæðismanna þann 11. október
næstkomandi. Ekki er gert ráð fyrir
því, aö nokkur ýti Halldóri Biön-
dal úr efsta sætinu og enn sem kom-
ið er telja menn Björn Dagbjarts-
son nokkuð öruggan í annað sætið
enda hefur hann heimsótt stuðn-
ingsmenn sína og aðra stíft eftir að
hann kom inn á þing. Það er 3. sæt-
ið, sem augu manna beinast helst að
og þar verða margir um hituna. Bú-
ist er við, að Vigfús á Laxamýri
Jónsson bjóði sig í þetta sæti
áfram, en til viðbótar má svo nefna
Stefán Sigtryggsson viðskipta-
fræðing, Tómas Inga Olrich
menntaskólakennara, Sverri Leós-
son útgerðarmann og Svavar
Magnússon frá Ólafsfirði. HP er
kunnugt um, að Stefán Sigtryggsson
hefur þegar lýst yfir, að hann ætli í
prófkjör og stefni á 3. sætið. Þetta
gerði hann á lokuðum fundi ungra
sjálfstæðismanna, sem munu sækja
hart fram í því að ná inn ungum
manni eins og Stefáni og um leið
Akureyringi, en hvorki Halldór
Blöndal né Björn Dagbjartsson telj-
ast Akureyringar. ..
A
^^^■Lltalað er hvernig lögmenn,
uppboðshaldarar, sýslumenn og
bæjarfógetar hafa hagnast og fitn-
að á blankheitum næstliðinna Stein-
grímsára með gríðarlegri fjölgun
skuldamála, innheimtuaðgerða og
FRÁIMíRAR
VEITINGAR
í FALLEGU
UMHVERFI
1 hóPef
SELFOSS
VIÐ ÖLFUSÁRBRÚ, S. 99 2500
gjaldþrota. En ekki einasta löglærð-
ir mega vel við una. íslenskt réttar-
kerfi hefur yfir að ráða vænlega
borguðum sendisveinum sem skjót-
ast fyrir lögfræðinga með stefnur til
skuldara. Svokallaðir stefnuvottar
sem taka við stefnum hjá lögfræð-
ingum, koma þeim í hendur skuld-
ara, eða sambýlisfólks, eða einhvers
á sama stigagangi, í sömu götu eða
sama kunningjahópi. Fyrir bréfút-
burðinn fá stefnuvottar 200 krónur
auk 220 króna í bílakostnað og virð-
ist ekki nein ofrausn. Úti á lands-
byggðinni getur bílastyrkurinn ver-
ið allmiklu hærri en engin föst gjald-
skrá á landsvísu er í gildi og heyrst
hefur um hreppstjóra á landsbyggð-
inni sem neita alfarið að taka gjald
fyrir að stefna sveitungum sínum.
En þó gjald það sem greitt er stefnu-
vottum Borgardóms Reykjavíkur
virðist engan veginn hátt þá eru
samt talsverðar upphæðir í spilinu.
Þar vinna 3 aðalstefnuvottar og 4 til
5 aukastefnuvottar. Þingfestar stefn-
urásíðasta árivoru 17.117 og eru þá
ótaldar allar þær stefnur sem aldrei
eru þingfestar því oft borgar skuld-
arinn skuld sína eftir að hafa verið
stefnt, til þess að losna við frekari
kostnað. Mjög varlega áætlað má
halda því fram að stefnur á síðasta
ári hafi ekki verið færri en 20 þús-
und. Við störf sín ferðast stefnuvott-
ar talsvert með leigubílum, sem
verður þá umtalsverður póstur.
Engu að síður er um að ræða 8,4
milljónir króna í greiðslu fyrir
stefnuvottun. Ef skotið er á að 25%
þess fari í leigubílakostnað þá eru
eftir rúm 700 þúsund í árslaun til
handa hverjum stefnuvotti. Flestir
þeirra eru svo í einhverri annarri
vinnu með og sumir stunda vottun-
ina bara sem aukagetu. Dálagleg
aukalaun það. ..
fí • ,• ..'lAWWt*
SAMBANDSH
tt MMBRv wi
;stur i sinni fequrstu mvnd
4t _ ^ y
/ 2- —' - í - 1 —r- r- . .„! _
m
7**
Porsche umboðið
Austurströnd 4
Box 50
172 Seltjarnarnesi
s. 61-12-10
36 HELGARPÓSTURINN