Helgarpósturinn - 08.01.1987, Page 9

Helgarpósturinn - 08.01.1987, Page 9
við endurskipulagningu á verð- bréfamarkaði sínum svo sem greint var frá í HP á sínum tíma að stæði til. Stofnaður hefur verið Verðbréfa- sjóður Ávöxtunar hf og mun hann gefa út skuldabréf á sjóðinn, sem fyrirtækið rekur. Þar verður lögð áhersla á sömu þætti og fyrirtækið hefur áður gert, þ.e. að ná hæstu ávöxtun hverju sinni. I auglýsingum sem birtar verða um næstu helgi, segir ekki alveg húmorslaust: „Ahyggjulaus ávöxtun á óöruggum tímurn". Þetta fyrirkomulag er í samræmi við það sem fyrirtækið lét uppi við ríkissaksóknara á sínum tíma. Fyrirtækið hermir að það hafi náð rúmlega 31% ávöxtun í fyrra á sínum bréfum eða 14% umfram verðbólgu. í stjórn þessa nýja sjóðs ávöxtunar sitja Ármann Reynis- son, Pétur Björnsson forstjórar í fyrirtækinu og Páll Sigurðsson dósent við Lagadeild Háskóla íslands... N ■ ú sitja RLR og Ríkissak- sóknari í súpunni. Eftir að Hæsti- réttur úrskurðaði að vinna þessara Borðapantanir í síma 11340. aðila að okurmálinu hefði verið óþörf verður framganga þeirra litin öðrum augum. Ekki er ólíklegt að spurt verði um ástæður þess að ekki var tekið veð í Hótel Borg til trygg- ingar greiðslu Sigurðar Kárasonar á 170 milljóna króna tékkanum. Hugsanlegt er að Hermann Björgvinsson geti krafið RLR og ríkissaksóknara um einhverjar bætur fyrir hversu slælega þeir tryggðu þau verðmæti er þessir aðilar tóku úr hans vörslu. Menn sem hafa brotið meira af sér en Hermann Björgvinsson hafa sinn rétt og sama gildir um Hermann sem er nú orðinn einn þekktasti meinti smákrimmi sögunnar. . . n ómur Hæstaréttar í ok- urmálinu getur átt eftir að hafa ótrú- legustu afleiðingar. í mörgum dóm- um er kveðið á um að sektir skuli bera hæstu lögleyfðu dómsvexti. Dómsvextir hafa hingað til verið miðaðir við hæstu innlánsvexti bankastofnana. En nú er þeim skuldurum sem dæmdir hafa verið til að greiða þessa vexti í lófa lagið að efast um lögmæti þeirra og greiða lánardrottnum sínum aðeins höfuðstólinn. Menn geta ekki greitt það sem ekki er til, og margt virðist nú benda til þess að nær ómögulegt sé að ákvarða hvað felst í hugtakinu „hæstu lögleyfðu dómsvextir". Þetta myndi setja skaðabótamál og önnur skyld mál sem búið er að dæma í einn óleysanlegan hnút og hinir réttmætu kröfuhafar færu með skarðan hlut frá borði... A ^^^^lþýðuflokkurinn fylgir rett eftir fylgissveiflu sinni í landinu. Um þessar mundir er flokkurinn í Reykjavík að opna kosningaskrif- stofur í gamla DV-húsinu að Síðu- múla 12. Ámundi Ámundason, hugmyndafræðingur flokksins er kosningastjóri en Guðlaugur Tryggvi Karlsson hefur leyst hann af hólmi í auglýsingum Alþýðu- blaðsins. Frambjóðendurnir fóru í fundaherferð strax um áramótin eða 2. janúar. Þá fóru þeir Jón Bald- vin og Guðmundur Einarsson austur á firði. Eftir þá fundalotu fer formaðurinn með Jóni Sæmundi Sigurjónssyni um Norðurland vestra og um svipað leyti eru þau á ferð um Norðurlandskjördæmi eystra Kjartan Jóhannsson og Jóhanna Sigurðardóttir. Væntan- lega er „taktíkin" sú, að forystu- menn að sunnan fari í veikustu kjör- dæmin, hvort sem það skilar ár- angri eður ei... l nnan Framsóknarflokksins er ekki talið útilokað, að sömu flokkar myndi næstu ríkisstjórn að aflokn- um kosningum í vor. Hitt mun vera ljóst, að þeir Alexander Stefáns- son og Jón Helgason fái ekki ráð- herrastóla í þeirri ríkisstjórn. Hins vegar mun Steingrímur Her- mannsson sjálfsagt láta sér detta Guðmundur G. Þórarinsson í hug enda er hann samverkfræðingur hans og ráðgjafi. Enn fremur mun Guðmundur Bjarnason, vígamað- ur að norðan, vera inni í þessari mynd auk Halldórs Ásgrímsson- ar að sjálfsögðu. En fyrst er að kom- ast yfir kosningarnar.. . $ H BÍLEIGENDUR $ BODDÍHLUTIR! A/ Trefjaplastbretti á lager fyrir eftirtaldar bifreiðir: Subaru '77 '79, Mazda 929, 323 og Pickup, Daihatsu Charmant '78 og '79, Lada 1600, 1500, 1200 og sport, Polonez, AMC Eagle og Concord, Datsun 180 B og Sunny. Brettakantar á Lodu Sport Toyota Landcruiser og Blazer. Einnig samstæða á Willy's. • • . , Asetning bretta á staðnum. BÍLPLAST Vagnhöfða 19, simi 688233. Tökuni að okkur trefjaplastvinnu. Póstsendum. I Veljið íslenskt. Útgeróarmenn Fiskverkendur Vandiö valið! Veljið tækin fyrir frysti- og fiskiðnaðinn hjá Jötni. Úrval tækja frá þekktum framleiðendum og viðurkennd þjónusta. FRYSTIKLEFAR / hraðfrystihúsið, eldhúsið, búrið, versiunina eða mötuneytið NOVENCO HITABLÁSARAR fyrir frystihús, fiskvinnslustöðvar, verksmiðjur og annað atvinnuhúsnæði. NORDISK VENTILATOR CO X S Jk KÆLI OG SABROE FRYSTIVELAR fyrir frystihús og varmadælur. MMÆTBMrW Rk 1^1 C PLÖTUFRYSTITÆKI um borð í fiskiskipum og i frysti- og fiskiðnaði. Heilsteyptu frystiplöturnar í KYÆRNER tækjunum try9gja áöi örugga hraðfrystingu JÖTUI\II\J F Í HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK SIMI: 685656 og §4530 « HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.