Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 08.01.1987, Qupperneq 19

Helgarpósturinn - 08.01.1987, Qupperneq 19
BRUNAMALASTJÓRI SKARAR ELD AÐ EIGIN KÖKU! Það hitnaði aldeilis undir Þóri Hilmarssyni brunamálastjóra þegar HP tók að skipta sér af málefnum hans og birti grein hinn 6. febrúar. HP upplýsti að í sama húsnæði og brunamálastjórinn hafði skrifstofu væri að finna einkafyrirtæki hans og barna hans, Skanis hf, sem ein- mitt bauð alla þá þjónustu sem stjór- inn á að sjá til að fyrirtækin í land- inu kaupi! Meðal annars var greint frá ferð brunamálastjórans til Danmerkur þar sem hann sat opinberlega nám- skeið um Halon slökkviefni — en heim kominn auglýsti hann síðan einkaumboð fyrir Halon 1301 á ls- landi. Ekki þótti heldur samræmast vinnubrögðum opinbers starfs- manns að hafa þegið utanlandsferð- ir af I. Pálmasyni (brunavarnafyrir- tæki) og Hagkaupum (vegna bruna- varna). Þórir neitaði að sjálfsögðu öllum sakargiftum og talaði um rógsherferð, en eftir samtal við blaðamann og ritstjóra HP sendi hann í blöðin fréttatilkynningu þess efnis að hann myndi láta af störfum að fjórum mánuðum liðnum! HÚSNÆÐISLÖGIN ÓNÝT — ÞYKKUR LEYNDARHJUPUR Ný húsnæðislög sáu dagsins ljós á árinu og urðu margir til að fagna þeim innilega. Hinn 4. september upplýsti HP hins vegar að þessi nýju húsnæðislög væru ekki bara ónýt heldur hefðu í för með sér „skulda- fangelsi" þúsunda í 40 ár! Við sýnd- um fram á rangar og villandi for- sendur varðandi heildarfjárþörf og fjölda lántakenda. Var meðal annars sagt frá athuga- semdum Stefáns Ingólfssonar for- stjóra Fasteignamats ríkisins, að „með hinu nýja fyrirkomulagi mun draga úr lánum lífeyrissjóðanna beint til kaupenda og ef til vill bankalánum einnig. Mesta nettó- aukning á lánsfé, sem sýnilegt er að lögin hafi í för með sér er um 4% af veltu fasteignamarkaðarins". Út ár- ið komu rök HP æ betur í ljós og best undir lok ársins. Alexander Stefánssyni félagsmálaráðherra þótti ástæða til að láta reiði sína bitna á Stefáni lngólfssyni. Átjánda desember átti HP viðtal við Stefán, sem upplýsti að þegar nýju húsnæðislögin voru til um- ræðu um vorið hefði félagsmálaráð- herra haft í skúffu hjá sér upplýsing- ar er sýndu svart á hvítu að allar áætlanir um fjármögnun kerfisins væru rangar. Félagsmálaráðherra vill hins vegar halda leyndarhjúp yf- ir málinu, sem líklegt er að muni ná hápunkti sínum um það bil er lands- menn ganga til kosninga í vor. Hjálparslofnun í mannsmynd kölluðum við Þóru Einarsdóttur í Vernd, er við áttum við hana viðtal 16. október um óeigingjarnt starf hennar í þágu bágstaddra i Indlandi og víðar, sérstaklega um einstakt framtak hennar í þágu holdsveikra barna á Indlandi. Aids-sjúkdómurinn var á síðum HP og meðal annars átti blaðið 6. nóvember tyrst allra viðtal við sjúkl- ing, sem upplýsti lesendur að hann hefði smitast af kvæntum karl- manni. Innheimtudeild Ríkisútvarpsins var tekin fyrir í blaðinu 11. desem- ber og greint frá ólöglegum inn- heimtuaðgerðum uppi á tugi millj- óna króna, með því að lögfræðingar eru látnir innheimta skuldir að ÓNÝTA STEYPAN / upphafi ársins fjallaöi HP al- mennt um málefni Steypustödvar- innar hf. og sérstaklega um steypuskemmdir á byggingu Gunnars Inga Gunnarssonar lœknis. Kom fram aö Steypustööin heföi fengiö á sig lang flest þeirra mála sem beint haföi veriö til Rannsóknarstofnunar byggingar- iönaöarins (RB). Forstjóri fyrir- tœkisins situr í stjórn RB! Lítið eftirlit er með þessum veigamikla þætti og bjóða fram- leiðendur aðeins upp á eins árs ábyrgð — þó skemmdir komi iðu- lega ekki í Ijós fyrr en eftir þann ttma. í kjölfar þessarar umræðu samdi Steypustöðin við RB um reglulegt eftirlit — en 30. janúar hpplýsti HP um inhihald ítarlegrar skýrslu, þar sem meðal annars kom fram að eftirlitsmanni hefði verið vísað á dyr hjá Steypustöð- inni, að við njælingar á salti hjá fyrirtækinu hefði í 5 tilfellum af 24 mælst of hátt saltmagn (auk- in alkalívirkni) og að loftmagn/ loftblendi hefði í nokkrum mæl- ingum verið undir leyfilegum mörkum. Halldór Jónsson forstjóri Steypustöðvarinnar var hins veg- ar hinn ánægðasti á þessum tíma og sagði enga steypustöð fram- leiða meiri og betri steypu en Steypustöðina. RB mældi sýni Steypustöðvarinnar eins og samið var um, en niðurstöður voru tald- ar trúnaðarmál þrátt fyrir að veru- legir ágallar hefðu komið í Ijós án þess að byggingarfulltrúa Reykja- víkurborgar hafi verið tjáð um þá fyrr en seint og síðar meir. Loks var það undir lok ársins að bygg- ingarfulltrúinn sá ástæðu til að hóta fyrirtækinu lokun og var greint frá stöðu mála í HP 18. des- ember; að fyrirtækið hefði „bætt" sig einna helst með því að minnka sementsmagn í steypunni! Nú er fyrirtækið í sérstöku eftirliti: Sýn- istökur auknar og almennt eftirlit hert. Sannleiksgiidi frásagna HP kom í ljós — þóft langt um liði. óþörfu með tilheyrandi innheimtu- kostnaði — en rétta aðferðin er að senda vanskilin beint til fógeta. Áfram var fjallað um málið í næsta blaði og í síðasta blaði ársins var sér- staklega fjallað um óþarfa lögfræði- innheimtu á Isafirði. ÞETTA SÖGÐU ÞAU Á LIÐNU ÁRI „Ekkert ísienskt fyrirtæki getur búið til betri steypu en Steypustöðin hf.“ sagði Halldór Jónsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, 23. janúar. „Eg kaupi helst aldrei Helgarpóst- inn, en ég sá í honum um daginn að þið teljið mig ekki vera landbúnað- arráðherra" sagði Jón Helgason, dóms-og landbúnaðarráðherra, 13. febrúar. „Peningar stjórna þessu þjóðfé- lagi sem við lifum í. Ég snýst um peninga og svo er um alla aðra ís- lendinga" sagði Kristinn Finnboga- son, framkvæmdastjóri Tímans, 20. febrúar. „Þórður (Björnsson, fv ríkissak- sóknari) er áreiðanlega greindur maður en gjörspilltur" sagði Þorgeir Þorgeirsson, rithöfundur, 27. febrúar. „Áður hræddist fólk atvinnurek- endur en núna hræðist fólk sína eig- in (verkalýðs)forystu" sagði Bjarn- fríöur Leósdóttir, 20. mars. „Því miður hefur kirkjan verið allt of íhaldssöm" sagði Gunnar Björns- son, fríkirkjuprestur, 27. mars. „Við stefnum að því að fá alls stað- ar að minnsta kosti einn mann kjör- inn, en í Reykjavík vonumst við eftir því að ná þremur inn í borgarstjórn" sagði Áshildur Jónsdóttir, Flokki mannsins, 10. apríl. „Menn stóðu fjögurra tíma vaktir og iðulega fengu menn sér í glas þegar þeir voru á frívakt.,.. Jón Helgason sagði að sér væri kunnugt um drykkjuna hjá Landhelgisgæsl- unni“ sagði Jón Sveinsson, sjóliðs- foringi, 7. maí. „Hér ríkir mikil pólitísk logn- molla. Það liggur við að Alþingi hafi misst lögmæti sitt" sagði Herdís Þor- geirsdóttir, ritstjóri, 15. maí. „Ég ætla að njóta góða útsýnisins úr Stigahlíðinni" sagði Helgi Þór Jónsson, eigandi Hótel Arkar, 22. maí. „Því er ekki að leyna, að við höf- um hjá okkur skrif HP um Hafskips- málið og raunar... öll tölublöðin í heild sinni" sagði Hallvaröur Ein- varösson, þáverandi rannsóknar- lögreglustjóri, 29. maí. „Lýðræði er mjög hættulegur og vandmeðfarinn hlutur" sagði Pétur Einarsson, flugmálastjóri, 12. júní. „Bjórkassa sendan frá Hafskip, nei, ég man ekki eftir því" sagði Þor- steinn Pálsson, fjármálaráðherra, 19. júní. „Við vorum ekki að styrkja verka- lýðsleiðtogann Guðmund J. Guð- mundsson heldur persónuna Guð- mund, borgara hér í bæ“ sagði Höröur Sigurgestsson, forstjóri Eim- skips, 19. júní. „Ég hef lesið Helgarpóstinn og kannski haft meira úr honum en öðrum" sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra um Hafskipsmálið, 26. júní. „Ég vildi sjá þann mann sem hefði geðheilsu til þess að fara yfir alla leiðara Þjóðviljans" sagði Asmund- ur Stefánsson, forseti Alþýðusam- bandsins, 10. júlí. „Ég álít... að Hafskipsþrjótarnir eigi ekkert að fara í fyrirtækisrekst- ur aftur og reyndar ekki í það að reka stjórnmálaflokka heldur" sagði Páll Pétursson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, 28. ágúst. „Þjóðin getur ekki án (BJ) verið, það getur ekki dáið... Við eigum ekkert samieið með þessum gömlu flokkum... Ég get líka sagt þér í hreinskilni að mig langar alls ekki í framboð fyrir slíka flokká' sagði Guömundur Einarsson, þá leiðtogi BJ, nú frambjóðandi Alþýðuflokks, 4. september. „Það er sú harka í fréttaflutningi, sem hefur farið fyrir brjóstið á út- varpsráði, sem verður sú lína sem Stöð 2 mun vinna eftir" sagði Páll Magnússon, fréttastjóri, 11. sept- ember. „Ég myndi þó halda að Sovét- menn hugsuðu á þeim línum, að ef þeir sendu sprengju á ísland stæðu þeir að eilífu frammi fyrir andúð og hatri íslensku þjóðarinnar" sagði Ed Anderson aðmíráll, þá yfirmaður Varnarliðsins, 25. september. „Nú tel ég það hins vegar ljóst — af viðræðum mínum við Ásmund (Stefánsson) og menn í kringum hann — að þeir eru ekkert nema kratar" sagði Jón Baldvin Hannibals- son, formaður Alþýðuflokksins, 2. október. „Mér finnst sjónvarpslausu fimmtudagarnir besta hugmynd í sjónvarpsmálum sem ég hef nokkru sinni heyrt“ sagði Peter Jennings, fréttamaður ABC-sjónvarpsstöðvar- innar, 16. október. „Þeir segjast ætla að berjast gegn spillingunni en ástunda hana svo sjálfir" sagði Kristín Kvaran, þá flúin úr BJ í Sjálfstæðisflokkinn, 16. október. „Helgarpósturinn veitir aðhald. Það virðist hafa sannast í okkar dæmi“ sagði Guömundur Einars- son, þá enn framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, 13. nóvember. „Það er því rétt hjá Davíð Schev- ing Thorsteinssyni, Alþýðubanda- lagið hefur fengið fé frá fyrirtækjum hans" sagði Baldur Oskarsson, fyrr- um framkvæmdastjóri ABL, 13. nóvember. „Ef aðstæður í þessu fyrirtæki leyfðu það, þá myndi ég lækka verð á bensíni til neytenda strax. Það get ég ekki nú. En það kemur“ sagði ÓIi S. Sigurösson, þá nýorðinn aðaleig- andi OLÍS, 4. desember. „Þá reyndu þeir að fá mig til að þegja og þegar það dugir ekki þá verður að skrúfa endanlega fyrir upplýsingastreymið og hrekja mig á brott frá stofnuninni" sagði Stefán Ingólfsson, deildarstjóri hjá Fast- eignamati ríkisins, 18. desember. „Ég tel aö Framsóknarflokkurinn sé tiltölulega prinsippslaus flokkur, sem leggur meira upp úr því að hafa völd en öðru" sagði Friörik Sophus- son, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, 30. desember. HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR Umfjöllun Helgarpóstsins um málefni Hjáiparsíofmmar kirkj unnar er vafalaust þaö mál blaös- ins á síöasta ári sem hvaö mesta athyglina vakti. Tuttugasta og fimmta september upplýsti HP aö ársreikningar HK vœru mjög óná- kvœmir og slœlega sundurliöaöir. Greint var frá því aö endurskoö- andi stofnunarinnar heföi gert at- hugasemdir viö ársskýrsluna 1982 og krafist úrbóta — sem ekki hafi veriö fylgt eftir. Meöal annars höföu gjafir veriö metnar til fjár samkvœmt tilbúnu mati, greint var frá umsvifamiklu bílabraski stjórnenda, íburöi á skrifstofu stofnunarinnar og háum feröa- kostnaöi starfsmanna. Gagnrýnd var sú stefna stofnunarinnar aö sinna nœr eingöngu neyöarhjálp, vanhugsaö kynningarstarf og stefnuleysi. Megin niðurstaðan varðandi bókhaldið var, að samkvæmt heimildum HP fóru innan við 10% af innlendu söfnunarfé, sem ráð- stafað var á árinu 1984, til beinnar neyðar- og þróunaraðstoðar, en ekki um 70% eins og sett var fram í bókhaldinu. Haft var eftir Baldri Möller, fyrrverandi ráðuneytis- stjóra: „Það er í raun og veru ótækt eins og komið er, að ekki sé til löggjöf sem nær yfir þessar stofnanir." Annan október greindi HP frá því, að auk þessa heföu forráðamenn HK nýverið keypt 10 miiljón króna einbýlishús yfir reksturinn. Nánar var farið í saumana á dýrum ferðalögum stofnunarinnar, viðskiptum við Skálholtsútgáfuna, bílabraski og launum, en einnig kom fram ótrú- lega há verðskráning á skreiðar- töflum og notuðum fötum. Jón Helgason kirkjumálaráð- herra 'naröi þá að beiðni HK sett þriggja manna nefnd í málið. Níunda október greindi HP frá því að starfssvið þessarar nefndar væri mjög óljóst eftir erindisbréfi ráðherra að dæma og einnig kom fram að Guömundur Einarsson, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, hefði bannað upp- lýSingastreymi til HP og lýst um- fjöllun HP sem ranga og niður- stöður blaðsins firru. Tuttugasta og þriðja október birtir HP enn nýjar upplýsingar í málinu: Að hjúkrunarfólk á vegum HK hefði fengið laun hjá Lúterska heims- sambandinu, að á árinu 1984 hefði HK grætt hátt í eina milljón króna á saltfisksendingu til Ghana, að saltsíldarsending til Póllands hefði að stórum hluta verið fjármögnuð af Evrópudeild Alkirkjuráðsins og greint var frá því að fleiri dæmi væru um að gefið væri í skyn í reikningum HK að söfnunarfé færi í hluti sem aðrir greiddu fyrir. Þá var greint frá ferð til Póllands, en ferðalangar hefðu gist á lúxus- hóteli fyrir söfnunarfé. Loks skilaði nefndin skýrslu og 6. nóvember greindi HP frá niður- stöðum nefndarinnar. Niðurstað- an var að nefndin staðfesti í meg- indráttum skrif HP og hafði uppi verulega gagnrýni á bókhald og starfsemi stofnunarinnar, auk þess sem áður óþekktir og óeðlilegir þættir komu fram vegna áranna 1984 og 1985. „Hvernig var starf- semin fyrir þann tíma“ þótti HP ástæða til að spyrja. Mál þetta kom til kasta Kirkju- þings og urðu lyktir þær, að fram- kvæmdastjórinn, allir starfsmenn og formaður stjórnar sögðu af sér störfum. HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.