Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 18
eftir Guðlaug Bergmundsson
myndir Jim Smart, Rúnar Þór Björnsson og fleiri
Hótelsvítur ættu ekki aö vera bara fyrir auduga kaupsýslumenn og lávarda utan úr
heimi, aö minnsta kosti ekki á íslandi. Það kostar svo lítið að gista í þeim, „ekkert
meira en í einhverri kakkalakkaholu á Manhattan,“ eins og einn hótelmaðurinn
kemst að orði.
En skyldi það vera svo að þar gisti eingöngu heldri menn? Helgarpóstinum lék
forvitni á að vita það, svo og að frœðast aðeins um glœsilegustu vistarverurnar sem
hótel landsins bjóða þeim sem vilja láta fara vel um sig. Og eru um leið tilbúnir til
að greiða meira fyrir það.
HÓTEL SAGA a HÓTEL LOFTLEIÐIR HÓTEL ESJA
„FJÁRRÁÐ MÍN LEYFA
EKKI SVONA LÚXUS"
„MÉR LEIÐ
LJÓMANDI VEL"
„EKKI SPURNING
MEÐ ÞÆGINDIN"
Lyndon B. Johnson, þáverandi
varaforseti Bandaríkjanna, svaf
þar. Walter Mondale svaf þar, og
Aga Khan. Líka U Thant, og Kurt
Waldheim, ad ógleymdum Louis
Armstrong og Ellu Fitzgerald. Fyrir
utan náttúrlega alls konar ráöherra
frá hinum Noröurlöndunum. Og í
vor veröur þar Carrington lávaröur,
framkvæmdastjóri NATO.
Hvar nema á svítunni á Hótel
Sögu, herbergi 730, með útsýni til
allra átta, nema norðurs.
Sögusvítan er sú elsta í landinu,
verður 25 ára í ágúst, rúmgóð og
glæsileg. Bleikt veggfóður í svefn-
herbergi, ljóst í stofu. Austurlenskir
renningar ofan á Ijósu teppinu, bæði
í svefnherbergi og forstofu. Ás-
grímur Jónsson uppi á vegg. Þægi-
leg húsgögn.
Gisting í svítunni kostar tæpar 7
þúsund krónur yfir vetrartímann,
en rétt liðlega 9 þúsund yfir sumar-
tímann, og að sögn Bjarna Sig-
tryggssonar aðstoðarhótelstjóra eru
gestir að borga þar fyrir stærðina.
Þeir fá enga aukaþjónustu, nema
ávaxtakörfu og blóm, og áður en
langt um líður verður boðið upp á
aðgang að heilsuræktaraðstöðu,
sem verið er að byggja í kjallara
nýju viðbyggingarinnar.
Það eru að sjálfsögðu útlendingar,
sem hreiðra um sig í svítunni alla
jafna, og eru Evrópumenn þar í
miklum meirihluta, kaupsýslumenn
og forstjórar. „Nýja markaðsstefna
Sögu beinist að þeim sem ferðast á
kostnað annarra,“ segir líka Bjarni
Sigtryggsson. Einstaka Islendingar,
sem búa erlendis og reka eigin fyrir-
tæki, og þurfa að koma oft heim,
sjást líka í svítunni. Auk þess sem
brúðhjón biðja oft um hana.
Bjarni segir, að það færist í vöxt
að sama fólkið gisti í svítunni aftur
og aftur. ,,Þá vita viðskiptamenn
þeirra á landinu hvar þeir eru,“ segir
Bjarni.
Að lokum var Konráð Guðmunds-
son hótelstjóri spurður hvort hann
myndi sjálfur gista i svítunni, ef
hann kæmi sem gestur á eigið hótel.
„Ef ég þyrfti ekki að borga það
sem gistingin kostar, því að fjárráð
mín leyfa ekki slíkan lúxus. En burt-
séð frá kostnaði myndi ég hiklaust
gera það. Ef maður vill láta fara vel
um sig, hlýtur þetta að vera það,
sem mann langar til,“ segir Konráð
Guðmundsson hótelstjóri á Sögu.
Allt er í gamla stílnum á svítu
Hótels Loftleiöa, enda heitir hún því
viröulega nafni Gimli. Húsgögnin
eru í anda rokkokó og þess sem
geröist hjá Loövíki 14. Frakkakóngi.
Borö eru gyllt og eitt úr marmara,
Ijós teppi á gólfi og fölgrænar gard-
ínur fyrir gluggunum, sem snúa í
suöaustur, meö útsýni til Suöur-
nesja.
Svítan hefur verið með svipuðu
sniði frá því hótelið opnaði fyrir
rúmum áratug, en ekki er útilokað
að þar á verði gerðar einhverjar
breytingar, samfara öðrum breyt-
ingum á hóteiinu, að sögn Einars
Olgeirssonar hótelstjóra.
Næturgisting í Gimli kostar 160
dali á sumrin, en ekki nema 120 dali
á veturna, ef miðað er við fullt verð,
og er það ámóta og verður að borga
fyrir venjulegt herbergi á góðum
hótelum í erlendum stórborgum.
Gimligestum er ekki boðið upp á
neina þjónustu umfram aðra gesti
hótelsins, nema hvað þeim sem
borga fullt verð eru færðar ávaxta-
körfur og blóm.
Einar Olgeirsson hótelstjóri segir,
að það séu langmest útlendingar
sem sækjast eftir svítunni, einkum
ríkir veiðimenn sem koma hingað
ár eftir ár. „Einnig höfum við mikið
notað hana sem brúðkaupssvítu,
ekki síst ef veislan er haldin hjá okk-
ur,“ segir Einar, og bætir við að
nokkuð sé um að fólk sem eigi stór-
afmæli gisti þar. Ekki má svo
gleyma öllu fræga fólkinu, sem hef-
ur haft náttstað í Gimli. Fats Domino
er þar um þessar mundir, en af öðr-
um gestum má nefna George
Schultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Bobby Fisher, Henry Kiss-
inger, Willi Brandt fyrrum kanslara
Vestur-Þýskalands, Faisal yngri,
prins af Sádi Arabíu og tónlistar-
mennina Rod Stewart, Jerry Lee
Lewis, Dave Brubeck og Grace
Jones.
„Nei, öðru nær,“ segir Einar, að-
spurður um hugsanleg mannalæti
svítugesta. „Mér hefur alltaf fundist
„stóru karlarnir" þægilegasta fólk
að eiga við. Þeir eru ekki með nein-
ar kröfur, kannski vegna þess, að
það er ósjálfrátt hugsað meira um
þá.“
Einar Olgeirsson hefur einu sinni
sofið í Gimli. Hann var þá hótelstjóri
á Húsavík og hafði komið til Reykja-
víkur í heimsókn. Loftleiðahóteíið
var fullt, nema svítan og þangað fór
hann. „Mér leið ljómandi vel og ég
get vissulega mælt með henni," seg-
ir hann. „Ef fólk utan af land vill
koma til Reykjavíkur til að halda
upp á eitthvað, þá er notalegt að búa
þarna," segir Einar Olgeirsson hótel-
stjóri á Hótel Loftleiðum.
[ y 1 T' |s
U A
, fjaflB
„Eg hef aldrei sofiö hér, en ég
myndi gera þaö, efég vœriaö koma
íbœinn meö frúna, á þeirri forsendu
aö verömunurinn ersvo lítill. Þaö er
heldur ekki spurning um þœgindin,
og útsýniö er frábœrt"
Þetta segir Hans Indriðason hótel-
stjóri á Esju er hann horfir út yfir
sundin blá og Esjuna úr svítunni
uppi á 8. hæð. Vistarverurnar skipt-
ast í tvennt, svefnherbergi og stofu,
auk baðherbergis. í svefnherberg-
inu er fóður á veggjunum, en í stof-
unni dökkur palisander, og þar eru
einnig málverk eftir þá Tryggva
Ólafsson og Baltasar. Teppin eru ljós
og húsgögnin í stofunni með dökk-
rauðu áklæði, en grænleitu í svefn-
herberginu.
„Innréttingarnar hafa verið eins
frá upphafi, og ég býst við að það
hafi verið í tísku í þá daga að hafa
palisanderklæðningu á veggjum.
En það er alltaf eitthvað virðulegt
við dökkan við,“ segir Hans Indriða-
son, og að eins og er, séu ekki fyrir-
hugaðar neinar breytingar á svít-
unni.
Gistingin í Esjusvítunni kostar í
vetur 4920 kr. fyrir sólarhringinn,
en fyrir venjulegt herbergi þarf að
greiða rúmar 3 þúsund krónur. Og
þeir sem greiða fullt verð, fá gjarnan
blóm eða ávaxtakörfur í kaupbæti.
Hans segir, að það séu bæði ís-
18 HELGARPÓSTURINN