Helgarpósturinn - 05.02.1987, Qupperneq 25
Framsóknarflokkurinn á nú 70 ára
sögu aö baki
— Þessi ár eru mesta framfaratímabil
íslensku þjóðarinnar.
Forustumenn flokksins hafa með tilstyrk
sinna stuðningsmanna, verið í fylkingar-
brjósti í stjórnmálum allan þennan tíma,
ýmist sem forustuafl í ríkisstjórn, eða í
öflugri stjórnarandstöðu.
Þaö hefur aldrei verið nein lognmolla
í kring um Framsóknarflokkinn
Um stefnu hans og störf hafa verið harðar
deilur og andstœðingar framsóknarmanna í
stjórnmálum hafa haft í frammi ýmsar
fullyrðingar um flokkinn. Hér skulu nokkrar
nefndar.
Framsóknarflokkurinn er gamaldags kerfisflokkur, varöhundur fyrir ríkjandi ástand.
ÞETTA ER RANGT — Ekki þarf annad en að líta á störf ráöherra flokksins í þessari ríkisstjórn sem ná
situr. Undir þeirra forustu hafa gífurlegar breytingar átt sér staö í atvinnu, efnahags- og félagsmálum.
Þar nægir að benda á:
— Nýjar leiðir í stjórn fiskveiða, og hreinsun í sjóðakerfi sjávarútvegsins, endurskipulagningu ríkismats
sjávarafurda og frumvarp um nýjar leidir í fisksölumálum.
— Ný lög um framleiðslu og sölu landbúnaðarafurða og uppbyggingu nýrra búgreina í sveitum.
— Ný sveitarstjórnalög og nýtt húsnœöislánakerfi.
— Gjörbreytta stefnu í efnahagsmálum, ný lög um byggðastofnun og stofnun þróunarfélagsins til þess
að örva nýjungar í atvinnustarfsemi.
Er þetta að standa vörð um ríkjandi ástand?
Hafa aðrir flokkar beitt sér fyrir viðlíka breytingum?
2. FULLYRÐING:
Framsóknarflokkurinn gengur erinda landsbyggðarinnar.
ÞETTA ER RÉTT — Hitt ber að hafa í huga að uppbygging á landsbyggðinni er höfuðborgarsvœðinu í
hag. Byggðaröskun er þjóðfélagslega óhagkvœm. Framsóknarflokkurinn vill framför alls landsins og
allrar þjóðarinnar. Hann vill efla þá tilfinningu að við séum ein þjóð í einu landi.
3. FULLYRÐING:
Framsóknarflokkurinn er tækifærissinnaður og krónískur stjórnarflokkur, forustumenn hans taka ráö-
herrastóla fram yfir hugsjónir.
ÞETTA ER RANGT — Framsóknarmenn ganga ekki til stjórnarmyndunarviðrœðna fullir af öfgum og
fordómum. Þeir láta málefnin ráða hverju sinni. Það hefur oftar en ekki reynst ókleift að mynda þing-
ræðisstjórn á Islandi nema hófsamur milliflokkur hefði þar forustu um. Það rœður því að Framsóknar-
flokkurinn hefur verið kallaður til oftar en aðrir flokkar.
4. FULLYRÐING:
Framsóknarflokkurinn gengur erinda samvinnuhreyfingarinnar, er pólitískur armur Sambandsins.
HID RÉTTA ER — að Framsóknarflokkurinn styður Samvinnuhreyfinguna, enda er samvinnustefnan eitt
grundvallaratriðið í stefnu flokksins. Samvinnuhreyfingin þarfnast slíks málsvara, en hún samanstendur
af 50 þúsund félagsmönnum sem styðja alla stjórnmálaflokka landsins. Þrátt fyrir þetta er mjög djúpt á
stuðningi þeirra við þessa hreyfingu og stœrsti flokkur landsins hefur þá grundvallarstefnu, að
samvinnuform í rekstri standi einkaframtaki langt að baki.
Hér hefur verið stiklað á stóru. Framsóknarflokkurinn hefur átt ríkastan þátt í að skapa það þjóðfélag velferöar og framfara sem við N
lifum (. Hann mun halda áfram að vinna að jöfnuði. — Hann mun vinna að jöfnuði, án tillits til búsetu og efnahags og jöfnuði á
félagslega sviðinu. Þann veg vilja framsóknarmenn ganga — gegn íhaldi og frumskógarlögmáli f viðskiptum — gegn
stjórnlyndi og skrifræði og yfirþyrmandi ríkisforsjá. Sá vegur heitir hinn gullni meðalvegur.
HELGARPÓSTURINN 25