Helgarpósturinn - 09.07.1987, Qupperneq 7
YFIRHEYRSLA
nafn: Karvel Sfeindór Ingimar Pálmason staða: Þingmaður
heimilishagir Kvæntur, fjögur börn heimilisfang: Traðarstígur 12, Bolungarvík
laun Þingmannslaun áhugamál Mörg bifreið Ford Escord 1985
Hef engum leiðum
eflir Jónínu leósdóltur myndir Jim Smart
Nokkru ádur en gengið var endanlega frá málefnasamningi nýju ríkisstjórnarinn-
ar, tilkynnti Karvel Pálmason, þingmaður Alþýðuflokks, að hann kæmi ekki til með
að styðja stjórnina. Er hann eini þingmaður flokkanna þriggja, sem verður í stjórn-
arandstöðu.
Karvel Pálmason er í Yfirheyrslu Helgarpóstsins.
— í hverju er megingagnrýni þín á
stjórnarsáttmálann fólgin?
„Hún er í fyrsta lagi fólgin í því, að ég hef
ekki trú á að það samstarf náist, sem mér
finnst verða að vera svo árangur náist. í öðru
lagi sýnist mér Alþýðuflokkurinn ekki
hafa fengið þann byr innan þessa stjórnar-
sáttmála, sem hann þarf til að koma þeim
stefnumálum fram, sem hann hefur haft á
orði mörg undangengin ár. Hann barðist
gegn fráfarandi ríkisstjórn í mörgum grund-
valiaratriðum og taldi t.d. sjálfsagðan hlut að
Framsóknarfiokkurinn færi t endurhæf-
ingu og kæmi ekki nálægt ríkisstjórn. Ekki
hefur það gerst. Flokkurinn hefur þar að
auki verið hatrammur andstæðingur land-
búnaðarstefnunnar, en nú ætiar hann að
ganga inn á hana. Hann á að vera launajöfn-
unarflokkur, en menn sjá hvað hlýtur að
blasa viö á komandi hausti og ekkert um það
sagt í stjórnarsáttmálanum.“
— Af hverju gerðirðu þá ekki athuga-
semdir við málefnasamninginn á fyrri
stigum?
„Pað hafa alltaf verið gerðar athuga-
semdir af minni hálfu. Fyrst og fremst um
þetta þrennt. Á Vestfjöröum var kosið um
byggðamálin. Þaðan verður að stöðva fólks-
flótta og það líka, að fólk fái ekki nema brot
af andvirði þeirra verðmæta, sem það skap-
ar. Þessu hélt ég fram.
í öðru lagi taldi ég nauðsynlegt, í Ijósi þess
sem er að gerast í launamálum, að Alþýðu-
flokkurinn hefði a.m.k. ákveðna stefnu í
þeim efnum. Þessu hélt ég alltaf fram og það
er ekkert nýtt í mínum málflutningi."
— Nú var málflutningur þinn og Sig-
hvatar Björgvinssonar hinn sami í kosn-
ingabaráttunni, en hann virðist geta
kyngt þessum stjórnarsáttmáia. Hvers
vegna getur þú það þá ekki líka?
„Það er auðvitaö hans mál, hverju hann
kyngir. Ef hann er þá að kyngja einhverju.
Ég svara einungis fyrir mig og ég vil yfirleitt
halda eftir kosningar þau loforð, sem ég gef
fyrir þær. Svo verða aðrir að svara fyrir sig."
— Heyrst hefur að þú hafir verið sér-
staklega gagnrýninn ú störf Jóns Sig-
urðssonar í stjórnarmyndunarviðræð-
unum. Er þetta rétt?
„Ég gagnrýni Jón Sigurösson eins og
aðra. Hann er ekkert fullkominn, frekar en
aðrir."
— Er ríkisstjór narþútttaka meira hans
verk en annarra í flokknum?
„Eg hugsa að hún sé ekki síður hans
verk en annarra."
— Varst þú nær ofurliði borinn á
flokksstjórnarfundinum sl. sunnudag?
„Ég hef nú alltaf verið þeirrar skoðunar,
að í lýðræðisríki verði hver að fá að hafa sína
skoðun. Hver sem hún er. Á flokksstjórnar-
fundinum komu fram þó nokkrar gagnrýnis-
raddir, þó svo fólk hafi undir lokin greitt
atkvæði með þátttökunni — að því er mér
skilst."
— Þú skírskotar mikið til meintrar
óánægju og reiði á Vestfjörðum í mál-
flutningi þínum. Eru þetta ekki bara
nokkrir menn, sem þú ert að tala um —
stuðningsmenn þínir, t.d. á Bolungarvík
og á Flateyri?
„Það verður fólk að gera upp við sig
sjálft, hvað eru „nokkrir menn" og hvar. Ég
tel mig vera að tala fyrir munn margra Vest-
firðinga, þegar ég lýsi yfir megnri óánægju
með að það skuli ekki vera ljóst hvað gera á
í samgöngu- og byggðamálum. Það á ekki
bara við um alþýðuflokksmenn, heldur trúi
ég að velflestir Vestfirðingar vilji láta taka til
höndum í þessum málum. Og hafa krafist
þess. Líka í launa- og sjávarútvegsmálum."
— Nú hlýtur að hafa verið komið eitt-
hvað til móts við ykkur Sighvat í stjórn-
armyndunarviðræðunum, úr því hann
telur sig geta stutt ríkisstjórnina. Eða
höfðuð þið kannski engin áhrif á mál-
efnavinnuna?
„Þetta er ekki spurning um það, hvort
komið hafi verið til móts við mig eða Sig-
hvat. Heldur það, hvort hér er verið að taka
til hendinni til þess að bæta margháttað
óréttlæti í þjóðfélaginu, sem Alþýðuflokkur-
inn hefur gagnrýnt. Fram var tekið, að við
myndum ekki styðja ríkisstjórn, sem stæði
að óbreyttu kvótakerfi. Sjávarútvegsráðherr-
ann, sem alþýðuflokksmenn að eigin sögn
eru nú að tryggja í sessi næstu fjögur árin,
lýsti því yfir þremur klukkustundum fyrir
flokksstjórnarfundinn, að hann myndi halda
svotil óbreyttri stefnu í kvtítamálum. Er það
vilji Vestfirðinga?
Það á að skipa nefnd. Það er rétt. Von-
andi höfum við áorkað því. En það hafa
margar nefndir verið skipaðar og fengið litlu
breytt! Það dugar ekki, að það sé bara á
pappír."
— Þú talar um að ríkisstjórnin hafi
ekki sett fram neina launastefnu og styð-
ur hana þess vegna ekki. Þú segir, að
samgöngumál verði í slæmu horfi og
gagnrýnir stjórnina fyrir skort á stefnu
í byggðamálum. Við lestur málefna-
samningsins virðist þetta hins vegar allt
vera inni. Hvað er það nákvæmlega, sem
þú vildir að væri öðruvísi í þessum mála-
flokkum?
„Ég hef séð marga málefnasamninga og
í þeim hefur verið margt gott, kannski flest.
En fæst af því hefur verið framkvæmt! Það
er mergurinn málsins. Hverjir eru möguleik-
ar Alþýðuflokksins á aö framkvæma þau
réttlætismál, sem hann hefur lagt áherslu á?
Þar eíast ég nefnilega og vil á engan hátt
skuldbinda mig til þess að æða út i það fen,
sem mér sýnist geta orðið þrátt fyrir þetta
góða stöðu á blöðum að sumra mati. Það
dugar mér ekki."
— Er þá nokkuð að marka þessi plögg
yfirleitt og hefði eitthvað meira mark
verið takandi á fallegum orðum í mál-
efnasamningi ríkisstjórnar, sem þú
hefðir treyst þér til að styðja?
„Ég lít á fortíðina og í Ijósi hennar skal
framtíðina skoða. Alþýðuflokkurinn hefur
sérstaklega gagnrýnt Framsóknarflokkinn
og talið nauðsynlegt fyrir þjóðina að ýta
honum til hliðar. Hann er nánast settur í önd-
vegi núna.
Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur
farið með fjármálin undangengin ár og þau
eru í miklu verra ástandi en þau hafa nokk-
urn tímann verið. Og það í mesta góðæri i
langan tíma. Hann er nú aö yfirgefa þetta
ráðuneyti og það á að gera hann að forsætis-
ráðherra. Er líklegt, eftir það sem ó undan er
gengið, að menn hafi trú á því að þetta geti
gengið með eðlilegum hætti? Ég dreg það í
efa.“
— Eins og fyrr segir, telur þú m.a.
skorta launastefnu í ríkisstjórnarsátt-
málann. En er það ekki hlutverk verka-
lýðsfélaga fremur en framkvæmda-
valdsins?
„Það er staðreynd, að undangengnar
vikur hafa hinar ýmsu stéttir verið að semja
um 30—50% kjarabætur sér til handa. Frá-
farandi ríkísstjórn, sem Alþýðuflokkurinn er
núna að ganga til liðs við, kom aftan aö fisk-
vinnslufólki og almennu verkafólki í samn-
ingunum, sem gerðir voru i vetur. Hún sveik
lokað
gefin loforð. Hvað ætlar þessi nýja stjórn að
segja við fiskvinnslufólk og hinn almenna
verkamann í haust, þegar hann hiýtur að
krefjast þeirra réttlátu bóta sem hann á rétt
á samanborið við aðra? Um þaö er ekki orð.“
— Það hefur heyrst, að andóf þitt sé til
komið til þess að hendur þínar verði
ekki bundnar á Verkamannasambands-
þingi í haust og á ASÍ-þingi að ári. Ætlar
þú að hasla þér völl á þeim vettvangi í
ríkari mæli en áður?
„Hendur mínar verða aldrei bundnar.
Ég fagna því hins vegar, ef fóik er þegar farið
að hugsa svona til mín. Ég hef yfirleitt haft
sjálfstæða skoðun og ætla að haida því
áfram, enda hef ég aldrei látið pólitíska
forystu eða flokksklíkur segja mér fyrir
verkum. Þeir stjórnmálamenn, sem þannig
eru gerðir, eru ekki bara leiðinlegir. Þeir eru
hættulegir lýðræðinu og frjálsri skoðana-
myndun og tjáningarfrelsi."
— Ef þú ættir að fara í framboð strax á
morgun og Alþýðuflokkurinn kæmi
ekki til greina, myndirðu þá vera veikur
fyrir Þjóðarflokknum?
„Fólk verður að fá að hafa sitt hug-
myndaflug í friði."
— Er eitthvað til í sögusögnum um að
þú hafir átt í viðræðum við Albert Guð-
mundsson um að taka sæti í þingflokki
Borgaraflokksins?
„Ég vísa til míns fyrra svars."
— Ætlarðu að sitja þingflokksfundi á
næsta þingi?
„Ég hef enga ákvörðun tekið um það."
— Þegar allt kemur til alls, ertu þá
ekki bara með þetta andóf vegna sár-
inda eftir að þú sást fram á að fá hvorki
ráðherrastói né formennsku í fjárveit-
inganefnd?
„Ég fylgi sannfæringunni og því, sem ég
hef lofað, frekar en að sækjast eftir metorð-
um. Það eru engin sárindi í mér, nema vegna
þess að lítið tillit er tekið til þess, sem jafnað-
armenn á Vestfjörðum og víðar hafa lagt til
mála og krafist, réttlátara þjóðfélags."
— Er þá Alþýðuflokkurinn að þínu
mati orðinn þéttbýlisflokkur?
„Ég skal ekkert segja um það, en vissu-
lega gefur sú staðreynd, að þrír ráðherrar
koma allir úr einu kjördæmi, tilefni til að
halda það. Og það er ástæða til að spyrja: Var
það kjördæmið, sem skilaði mestu í kosning-
unum?"
— Er líklegt að þú segir þig úr flokkn-
um?
„Ég er búinn að taka afstöðu til þess,
sem ég stóð frammi fyrir. Ég neitaði að styðja
málefnasamninginn og þrjá ráðherra úr
Reykjavík. Þannig stendur málið og ég skal
ekkert segja um áframhald eða hvað kann að
gerast. Ég hef engum leiðum lokað."