Helgarpósturinn - 09.07.1987, Qupperneq 21
LISTAP
Stjörnulið
í þrívíddinni
I grein Gunnars Kvaran sem fyrr
var vitnað til kemur m.a. fram að
Jón Gunnar stóð einna fremstur í
flokki þeirra listamanna sem á árum
áður leituðu nýrra leiða í listsköpun
sinni pg hann var einn af stofnend-
um SÚM-hópsins sem í seinni tíð er
orðinn samnefnari fyrir ferska og
frumlega listsköpun og endurnýjun
hugmynda um listina, hlutverk
hennar og eðli á 7da áratugnum.
Gunnar minnist einnig á mikilvægi
kynna þeirra Jóns og Dieters Roths,
telur hugmyndir Dieters hafa verið
hreina opinberun fyrir Jón Gunnar.
Jón Gunnar segir hinsvegar sjálf-
ur: „Einar Jónsson er faðir mynd-
höggsins á íslandi, hann er einhver
mesti myndhöggvari sem ég hef séð
og ég hef orðið fyrir miklum áhrif-
um af honum, bæði sem listamanni
og manneskju."
Sýningin í Norræna húsinu tekur
til þess hluta listsköpunar Jóns sem
nefnt er conceptlist, stundum kallað
hugmyndalist á íslensku, þar sem
hugmyndaleg tilvísan er útgangs-
punktur listamannsins og telur
Gunnar Kvaran að í fyrstu hafi verkin
verið hlaðin pólitískum ásetningi en
síðar beinst meira að sjálfri listinni
og myndmálinu.
Jón Gunnar efast ekki um fram-
gang myndhöggsins á Islandi og
segir: „Allir sem eru að fást við því-
vídd á íslandi eru stjörnulið, menn
eru alltaf að tala um þetta málverk
en það er allt mögulegt að gerast í
þrívíddinni.'
-KK
Rölt með Jóni Gunnari um sýningu hans í Nor-
ræna húsinu
Nú stendur yfir hin svokallaöa
sumarsýning Norrœna hússins, sem
er ordin árviss vidburdur í íslensku
lista- og menningarlífi. Aö þessu
sinni er það skúlptúristinn Jón
Gunnar Arnason sem sýnir verk sín
á sumarsýningunni, en Jón Gunnar
hefur um áraraðir verið í fremstu
röð íslenskra myndlistarmanna, allt
frá byrjun 7da áratugarins að telja.
Sýningin í Norrœna húsinu spannar
hálfan annan áratug í listsköpun
Jóns Gunnars, elstu verkin eru frá
1971 og þau nýjustu frá þessu ári.
þegar hann var spurður að því
hvernig elstu verkin kæmu honum
fyrir sjónir í dag þá svaraði hann:
„Ég er alveg krossbit hvað þau eru
góð, ég myndi ekki sýna þau ef þau
væru ekki góð. Það er einfalt mál.“
Óhætt er að segja að sýningin sé
heilsteypt, jafnvel þó svo hún taki
yfir 16 ár af ferli listamannsins, hníf-
arnir og sólin og skipin og flugvél-
arnar með sínum hvössu oddum og
sterku hreyfingu. Jón Gunnar segir
sjálfur: „í hverjum hnífsoddi er orka
og í hverju bátslagi er falin orka sem
getur ráðið við náttúruöflin, þú get-
ur keyrt bát í gegnum öldur ef hann
er réttur og fallegur, það er það sem
er málið." Gunnar Kvaran listfræð-
ingur segir svo einmitt í sýningar-
skrá í grein sem hann skrifar þar um
list Jóns Gunnars: „Ef við skoðum
verk Jóns Gunnars í enn stærra sam-
hengi má sjá að við getum þrætt
hugtakið „orká' í gegnum stóran
hluta af listsköpun hans. Því þrátt
fyrir að skúlptúr listamannsins sé
oft sjónræn ljóðræna þá er inntakið
í flestum tilfellum takmarkalaus
orka.“
Eins og áður sagði nær sýningin
yfir 16 ár af ferli Jóns Gunnars og
INN
DJASS
Blódgreifinn spekist
James Blood Ulmer: America —
do you remember the love? (Blue
Note/Skífan
Stundum hefur James Blood
Ulmer verið líkt við Wes Montgo-
mery og stundum við Jimi Hendr-
ix — hvorugum líkist hann og
kannski engum nema sjálfum sér.
Hann er einn frumlegasti gítar-
leikari djassins — og kraftmesti!
Ulmer á ætt að rekja til kirkjutón-
listar og rýþmablús, en brátt tók
djassinn völdin og hann lærði
bæði af Coltrane og Miles Davis.
En stórbyltingin i lífi hans varð er
hann kynntist Ornette Coleman
(sem rakti feril sinn í íslenska sjón-
varpinu fyrir nær tveimur vikum).
Ornette sagði Ulmer fæddan
harmolodic-leikara, en svo nefnir
Ornette tónkenningar sínar. Hann
lék á fyrstu skífu Ulmers: Tales of
Captian Black er út kom hjá Art-
ists House 1978. Ári síðar lék Ulm-
er með Arthur Blythe inná skífu er
hér hefur fengist: Lenox Avenue
Breakdown (CBS/Steinar).
Breska útgáfufyrirtækið Roug
Trade gaf út þriðju skífu hans: Are
you glad to be in America? en
þrjár þær næstu voru gefnar út af
CBS. Nú er hann kominn á samn-
ing við Blue Note og frægur popp-
stjóri stjórnar upptöku á nýju skíf-
unni hans og leikur með á bassa:
Bill Laswell. Það setur sinn svip á
skífuna en sem betur fer er gamall
harmolodic-félagi í hópnum,
trommarinn villti Ronald Shannon
Jackson. Sá Ulmer er þarna má
heyra er allur annar en sá er ég
hlustaði á eina magnaða kvöld-
stund í Jazzhus Montmartre sum-
arið áttatíuogfjögur. Þá trylltu
Ulmer og félagar allt kvöldið og
tónlistin stundum svo æst að allir
taugaendar voru komnir í hnút.
Ekki auðveldasta tónlist í heimi til
að hlusta lengi á.
Þessi nýja skífa skiptist í tvö
horn. Þrjú verkanna eru sungin: 1
belong in the USA, Lady blue og
Show meyour love. Ulmer er ekki
raddmikill en blúsinn hrár í bark-
anum. Þessi lög eru líkleg til vin-
sælda hjá þeim er meta svarta tón-
list af ýmsu tagi og ekki ólíklegt að
Ulmer takist að ná til stærri hóps
en fyrr — væri það vel, því tónlist-
in er vönduð og seiðandi. Seiður-
inn er þó meiri í þeim þremur-
verkum er hann leikur á gítarinn:
After dark, Black sheep og IVings.
Það er engin hætta á að taugar
bresti við þá hlustun einsog oft var
fyrr — heldur að seiðmagnið nái
I torsdog d. 9 j»»t*
I ORNETTE COLEIVIAN u PRIME thvie
---------------- ——uum uoM urn msran
” DON CHERRY
(redag d. lO. jnli
LAST EXIT
lordog d. Tt.jufi
group
sondag d. 12. juli
IMEW MUSIC ORCHESTRA
. SIVUCA .
ROY RICHARDS* it funky fRBNDS » —
KENNY
KRISTINA JONES^LMR.NJJNCK KVARTET
POSITION ALPHA Zi.
E1TI CARSTI N HSÍÍOyP JS.
QUEEN IDA Æ,
REDGUM
-I.
^PER OOtpSCHMIDT K\J»RJTT
JiaHGEN EMUORG S€ X TTT j;.
LtHOY COLLINS - STCOND KALI ÍSi
KOMCERT PA RIDEBANEN
lordoq d.11. iidi kl. n -19
því valdi að erfitt sé að slíta sig frá
—■ kannski á austrænn blærinn
þátt í því. En umfram allt er þetta
tónlist sem stendur fyrir sínu af
öðru óstudd og ólík því er aðrir
leika. Allir sem gaman hafa af
djassi, blúsi eða fúsjón ættu að
geta notið snilldar James Blood
Ulmers.
eftir Vernharð Linnet
Jazz áseyöi
íslendingar eru á ferð og flugi á
miðju sumri og margir þeirra eiga
leið um Kaupmannahöfn. Þar er
nú Kaupmannahafnardjasshátíðin
á fullu og djassað út mánuðinn.
Þeir sem leið sína leggja í Tívolí
ættu að líta á dagskrá Jazzhus
Slukefter og til gamans birtum við
hér dagskrá Jazzhus Montmartre.
Þar er margt forvitnilegt á ferð og
sumt okkur framandi einsog
harmonikkusnillingurinn brasil-
íski Sivuca, sem syngur orðalaust
af miklum kynngikrafti einsog
Taina Maria og fleiri landar hans.
Það verður heldur ekki amalegt ef
sólin skín á djassgeggjarana fyrir
framan Kristjánsborgarhöll á
ókeypis útistórstjörnutónleikum
þann 11. júlí.
Ýmsir ágætir íslandsfarar verða
þarna: Don Cherry, Peter Brötz-
man, Jens Winther, Jan zum
Vorhde, Tomas Clausen, Ole Kock
Hansen og John Scofield.
Góða skemmtun góðir íslend-
ingar og þið sem eruð staddir í
Reykjavík, munið Heita pottinn á
sunnudagskvöldum.
HELGARPÖSTURINN 21