Helgarpósturinn - 09.07.1987, Side 27
Þ
'ingflokkur Framsóknar-
flokksins var lýðræðislegur í vali
sínu á ráðherrum. Hverjum þing-
manni var gert að greiða fjórum
þingflokksmönnum atkvæði í
leynilegri kosningu. Eins og
gengur nutu menn misjafnlega mik-
ils trausts. Allir vildu Steingrím
Hermannsson og Halldór Ás-
grímsson. Tíu vildu Guðmund
Bjarnason og átta Jón Helgason.
Alexander Stefánsson átti sér tvo
velvildar- og stuðningsmenn. Hann
fékk þrjú atkvæði. Stuðningur við
önnur ráðherraefni var ekki ýkja
breiður. Jóhann Einvarðsson fékk
eitt atkvæði. Sömuleiðis fékk Páll
Pétursson eitt atkvæði. Guð-
mundur G. Þórarinsson naut
engu minna trausts. Hann fékk
hvorki meira né minna en eitt at-
kvæði. Menn eiga sér víða hauka í
horni. . .
ni
■ orskur sérfræðingur, dr.
Bjorn Buent var hér á ferð í apríl til
að rannsaka jarðlögin við Blöndu-
virkjun en framkvæmdir eru þar i
fullum gangi. Hann var fenginn
hingað af norsku verktökunum
Krafttak sf. sem sjá um allar fram-
kvæmdir við Blönduvirkjun. Stöðv-
arhúsið er byggt 240 metra neðan-
jarðar og kannaði dr. Buen meðal
annars gæði bergsins. Hann skilaði
skýrslu til Landsvirkjunar eftir rann-
sóknir sínar þar sem hann lýsti yfir
miklum efasemdum um gæði bergs-
ins og stæðni veggja stöðvarhússins.
Skýrslan var tekin til athugunar hjá
Landsvirkjun og var ákveðið að
ljúka greftri á svæðinu með meiri
varfærni en áður hafði verið
ákveðið . . .
ESinn er sá þingmaður Alþýðu-
flokks sem nú sleikir sár sín. Sá er
Árni Gunnarsson. Hann hlaut
ekki ráðherradóm og ekki er útlit
fyrir að hann hreppi virðulegt
embætti, þrátt fyrir að hann sé ritari
Alþýðuflokksins. Árni er skv. heim-
ildum HP saltvondur þessa dagana
og þykir fram hjá sér gengið. Sama
heimild fullyrðir að Árni hafi krafist
þess að fá embætti Eiðs Guðna-
sonar, þ.e. formennsku í þing-
flokki, en að Eiður sé fastur fyrir og
gefi hvergi eftir sinn hlut. . .
Starfsmann Helgarpóstsins
vantar sárlega íbúð til leigu.
Helst sem nœst miðbœnum.
Upplýsingar i síma
681511
á venjulegum skrifstofutíma.
Gisting
Veitingasala
Bar
Bíó
Fundarsalir
Ráðstefnur
Dans
HÓTEL
VALASKJÁLF
EGILSSTÖÐUM
Sími: 97-1500
Þar sem
PLÚS° og MÍNUS
mætast í frystihúsinu, vöruskemmunni
eða iðnaðarhúsnæðinu er lausnin að nota
MAVÍL iðnaðarplasthengi
til varnar hita- og kuldatapi.
Hljóðeinangrandi og gegnsæ.
Leitiö Austurströnd 8
upplýsinga I II _ sími 61-22-44
njeep
UMBOÐIÐ
FYRIRUGGJANDI
INNFLUTTIR NOTAÐIR
1987
riAMC
UMBOÐIÐ
Bílar þessir eru allir árg. 1987, lítið eknir með 4,0 lítra - 6 cyl.- 173 hestafla vél,
sjálfskiptir, með rafmagnslæsingum, rafdrifnum rúðum og hlaðnir aukahlutum.
WAGONEER LIMITED KR. 1.495.
ElTlIt
Þessir bílar eru keyptir af
AMC JEEP verksmiðjunum
og eru því í ábyrgð sem og
aðrir bílar sem fluttir eru inn
af AMC JEEP umboðinu á
íslandi, Agli Vilhjálmssyni
hf.
EGILL VILHJALMSSON HF.
SMIÐJUVEGI 4 KÓP.
SÍMAR 77200-77202.