Helgarpósturinn - 30.07.1987, Blaðsíða 6
rýmum fyrir 1988 árgeröum
Hdarkjör á örfáum bílum af árgerð 1987
337300
V
itað er að frammistaða
Hrafnanna tveggja, þeirra Hrafns
Gunnlaugssonar og Ingva
Hrafns Jónssonar, hefur ekki ver-,
ið Markúsi Erni Antonssyni út-
varpsstjóra mjög að skapi, enda
hafa báðir haft öðrum hnöppum að
hneppa utan stofnunarinnar, auk
þess sem störf þeirra beggja hafa
verið mjög umdeild. Eins og áður
hefur komið fram í blaðinu hafa út-
varpsráðsmenn og fleiri undrast
hvernig sumarfrí Ingva Hrafns eru
reiknuð miðað við frí annarra starfs-
manna innan stofnunarinnar, enda
hefur hann svo til ekkert sést á
fréttastofunni í sumar. Einhverjar
sættir munu hafa tekist milli þeirra
tveggja hvað varðar þetta atriði og
mun Ingvi Hrafn geta snúið til baka
gegn því skilyrði að hann láti af lax-
veiðum. En það er annað sem Mark-
úsi Erni hefur mislíkað, en það er að
undanfarið hefur Ingvi Hrafn verið
að ýja að því við vini sína að hann
hyggist láta af störfum sem frétta-
stjóri en þegar á reyndi hafi hann
hætt við þessi áform. Markús Örn
telur að hann eigi að fá fréttir af
svona fyrirætlunum fyrstur manna
enda hafi hann allt frá því að Ingvi
Hrafn tók við fréttastjórastöðunni
haldið verndarhendi yfir honum.
Hvað varðar hinn Hrafninn, Hrafn
Gunnlaugsson er það mál manna,
að Markús sé endanlega búinn að
afskrifa hann og það eina sem liggi
fyrir honum sé að taka til eftir sig. . .
AUGLÝSINGASÍMI
6 HELGARPÓSTURINN
I