Helgarpósturinn - 30.07.1987, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 30.07.1987, Blaðsíða 14
saman vinsœ> inningar, lag sem kem n o utskyrt getur .eftirlætislagi m eftir fram skap, lag sem enginn einmitt þetta lag er um við ekki einu llar gott s vegna annski vit- lagið er, hvaða hljómsveit flutti það eða hver var söngvarinn þegar við heyrðum það fyrst. Það skiptir enda engu máli. Lagið stendur fyrir sínu þótt árin líði. Hljómlistarmenn eiga líka sín eftirlætislög. Það eru ekki endilega lögin sem ,,slógu í gegn“ á þeirra blómaskeiði og þeir geta kannski ekkert frekar en við leikmennirnir útskýrt hvers vegna þeir halda upp á ákveðið lag. Við leituðum til þekktra hljómlistarmanna og söngvara og báð- um þau að útbúa fyrir okkur lista yfir tíu bestu íslensku dægurlögin að þeirra mati. Eins og þið sjáið kom margt skemmtilega á óvart í lagaval- inu... KARIUS OG BAKTUS BESTIR EINARÖRN BENEDIKTSSON, SYKURMOLUNUM 1. Sitja svangir bræður tveir. Karíus og Baktus. Þetta er fyrsta dægurlagið sem ég lærði textann við og gat næstum því sungið. 2. -10. Guðfræði. Vonbrigði. Hávaði. Jonee/Jonee. Kata rokkar. Útvarpshljómsveitin. Fimmti gír. Sogblettir. Valdimar geimfari snýr aftur. Lojpippos & Spojsippus. Mandala. Trúbrot. Gullfoss með glæstum brag. Ellý Vilhjálms. Enn ungur enn. Purrkur Pillnikk. Ó djonný. Guðjón Matthíasson. Ég vel þessi lög vegna þess að ef mér stekkur ekki bros við að heyra dægurlag, þá kalla ég það ekki dægurlag. Öll þessi lög hafa það sammerkt að kæta hjá mér lundina. ÁSKIL MÉR RÉTT TIL AÐ SKIPTA UM SKOÐUN! GUÐMUNDUR HAUKUR JONSSON. HLJÖMLISTARMAÐUR Minn listi er í stafrófsröð — svona nokkurn veginn að minnsta kosti — en ekki í gæðaröð. Pau lög sem mér þykja bestu, íslensku dægurlögin á þessu augnabliki eru þau sem fylgja hér á eftir, en ég tek það fram að ég áskil mér allan rétt til að skipta um skaðun fyrirvaralaust! Bláu augun þín. Braggablús. Fjólublátt ljós við barinn. Fröken Reykjavík. Garden party. Reykjavíkurblús. Sumarkveðja eftir Inga T.. Slá í gegn. Spáðu í mig. Sísi fríkar út með Grýlunum. Gaggó Vest. Söngur dýranna í Týrol. Lítill drengur. Röndótta mær. En nota bene: Eg hlusta kannski svolítið öðruvísi á tónlist en margir aðrir, að minnsta kosti skilst mér það. Ég hlusta alltaf mikið á texta og ef texti og lag falla vel saman — og textinn höfðar til mín — þá bjargar það oft laginu inn að hjartarótum VEL UPPBYGGT OG SÖNGRÆNT LAG ELLÝ VILHJÁLMS, SÖNGKONA 1. Komdu aftur. Lag og texti: Magnús Eiríksson. 2. Eg veit þú kemur. Lag: Oddgeir Kristjánsson. 3. Vals númer eitt. Magnús Eiríks- son. 4. Söknuður. Jóhann Helgason. 5. Vals moderato. Magnús Péturs- son. 6. Ferðin mín til Frakklands. Magnús Kjartansson. 7. Vetrarsól. Gunnar Pórðarson. 8. I grænum mó. Sigfús Halldórs- son. 9. ísland er land þitt. Magnús Þór Sigmundsson 10. Skýið. Björgvin Halldórsson. Það lag sem er efst á iistanum hjá mér, „Komdu aftur“, finnst mér af- skaplega vel uppbyggt og söngrænt. Það kemur mér í góða stemmningu og hefur þægileg áhrif á mig. Lagið er fallegt að mínu mati. MINN LISTI GILDIR BARA I DAG MAGNÚS ÞÖR JÓNSSON, MEGAS Ég gat ekki gert neina vægisröð eða gæðaröð. Ég komst að þeirri niðurstöðu að það væri fráleitt að raða niður tíu lögum því það er svo mikið af tónlist sem kemur til greina og listinn sem ég geri í dag, hann verður ekki eins á morgun. Hann gildir bara í dag. Það er vonlaust að gera gæðalista frá eitl til tíu en þau lög sem mér fannst best milli tólf og tvö í dag eru eftirfarandi: 1. Paranoja. Bubbi Morthens. 2. Ég veit þú kemur. Oddgeir Kristjánsson. 3. Stína, ó Stína. Arni Isleifs. 4. Hreðavatnsvalsinn. Reynir Geirs. 5. Draumur fangans. 12. sept- ember. 6. Brúnaljósin brúnu. Jenni Jóns. 7. Litla stúlkan. Steingrímur Sig- fússon. 8. A morgun. Ingibjörg Þorbergs. 9. Játning. Sigfús Halldórsson. 10. Þórður sjóari. Agúst Péturs- son. En nota bene: Þetta eru þau tíu lög sem mér finnast best í augna- blikinu. Það verða einhver allt önn- ur tíu í kvöld og enn önnur tíu á morg- un. Eins og sést þá flögraði hugur minn á ákveðinn tíma og hann fór ekkert þaðan. HEFÐI GETAÐ VALIÐ HUNDRAÐ LÖG RÚNAR JÚLiUSSON, LAGAHÖFUNDUR Ég hefði auðveldlega getað valið hundrað íslensk lög því ég á mörg eftirlætis íslensk dægurlög. Ég valdi fleiri en tíu á þennan lista því ég gat ómögulega gert upp á milli nokk- urra laga. Brúðarskórnir. Þórir Baldursson og Davíð Stefánsson. Söknuður. Jóhann Helgason og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Vegir liggja til allra átta. Sigfús Halldórsson og Indriði G. Þorsteins- son. Braggablús og Sönn ást eftir Magnús Eiríksson. Harðsnúna Hanna eftir Gunnar Þórðarson og Þorstein Eggertsson. Island er land þitt. Magnús Þór Sigmundsson og Margrét gerði text- ann. Don’t try to fool me. Jóhann G. Jóhannsson. Svo kemur eitt lag eftir sjálfan mig sem heitir Taskó Tostada. Litla frænka. Gylfi Ægisson. Það er svo undarlegt með unga menn. Rúnar Gunnarsson. Ég veit þú kemur. Oddgeir Krist- jánsson. Sumarliði er fullur eftir Bjartmar Guðmundsson. LAG OG TEXTI VINNA VEL SAMAN HELGI BJÖRNSSON, SiÐAN SKEIN SÓL Listi minn er ekki í númeraröð, þ.e. fyrsta lagið er ekki endilega það besta. Þetta eru þau lög sem mér finnast best og ég miða við að lögin hafi náð eyrum almennings og öðl- ast vinsældir, því það hefur ekkert að segja þótt lög séu góð ef enginn hlustar á þau: Slappaðu af. Flowers. Gvendur á Eyrinni. Dátar. Is there a hope for tomorrow. Trúbrot. Blindsker. Das Kapital. Þú bíður allavega eftir mér. Megas. Ég er frjáls eins og fuglinn. Facon. Allur lurkum laminn. Bubbi Morthens. Kittý. Oxzmá. Spáðu í mig. Megas. Frystikistan. Tappi tíkarrass. I þessum lögum finnst mér lag og texti vinna mjög vel saman og í þeim er einhver „atmosphera" sem mér finnst höfða til mín. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.